Morgunblaðið - 22.12.2002, Side 27

Morgunblaðið - 22.12.2002, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. DESEMBER 2002 27 Störf í grunnskólum Reykjavíkur Laugalækjarskóli, símar 588 7500 og 897 5045 Kennsla í 7. og 8. bekk frá áramótum, kennslu- greinar stærðfræði og enska. Skólaliði í 50% starf frá áramótum, vinnutími eftir hádegi. Seljaskóli, sími 557 7411 Myndmenntakennsla frá og með áramótum, vegna forfalla. Upplýsingar veita skólastjóri og aðstoðarskóla- stjóri viðkomandi skóla. Umsóknir ber að senda til skóla. Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um laus störf og grunn- skóla Reykjavíkur er að finna á netinu undir www.grunnskolar.is . Skólaskrifstofa S E L T J A R N A R N E S B Æ R A ug l. Þó rh ild ar 22 00 .1 61 Atferlismeðferð fyrir einhverfa Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með aðra uppeldismenntun óskast til að vinna með einhverfu barni í leikskólanum Mánabrekku á Seltjarnarnesi. Í leikskólum Seltjarnarness er öflugur faglegur stuðningur vegna barna sem njóta sérkennslu. Góð þekking og reynsla á atferlismeðferð er til staðar. Mánabrekka er 4ra deilda leikskóli og í almennu starfi leikskólans er lögð rík áhersla á umhverfis- og náttúruvernd. Upplýsingar gefa: Dagrún Ársælsdóttir leikskólastjóri í síma 5959281. manabrekka@seltjarnarnes.is og Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi í síma 5959130. hrafnhildur@seltjarnmarnes.is Vefstjóri Starf vefstjóra Ríkisútvarpsins er laust til umsóknar. Vefur Ríkisútvarpsins er einn af 10 mest sóttu vefjum landsins.  Við erum að leita eftir vefstjóra í a.m.k. 50% starf.  Vefstjórinn þarf að hafa víðtæka tölvuþekk- ingu og reynslu í vef- og margmiðlun.  Æskilegt er að vefstjórinn þekki til forrita sem notuð eru við vinnslu og rekstur vefsíðna og geti veitt ráðgjöf um þróun vefs Ríkisút- varpsins.  Vefstjóri mun vinna með starfsfólki Texta- varpsins.  Ætlast er til frumkvæðis og sjálfstæðis í vinnubrögðum og að viðkomandi eigi auð- velt með að vinna með öðrum í hóp.  Auk góðrar íslenskukunnáttu þarf umsækj- andi að hafa vald á ensku og gjarnan einu Norðurlandamáli.  Reynsla af vinnu á fjölmiðlum er æskileg. Nánari upplýsingar veitir yfirmaður tölvudeild- ar í síma 515 3000. Laun samkvæmt viðeigandi kjarasamningi við starfsmenn ríkisins. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsreynslu þurfa að berast skrifstofu starfs- mannastjóra, Útvarpshúsinu, Efstaleiti 1, fyrir 8. janúar nk. Félagsráðgjafi Félagsráðgjafa vantar við Fjölskylduþjónust- una Lausn, Sólvallagötu 10. Um er ræða fullt starf til eins árs frá 1. mars 2003. Félagsráðgjafamenntun nauðsynleg og æski- legt er að umsækjandi hafi sérmenntun í fjöl- skyldumeðferð, ásamt reynslu og þekkingu í lausnamiðaðri fjölskyldumeðferð. Mikilvægt er að viðkomandi hafi áhuga á þróunarvinnu og hafi frumkvæði til að vinna sjálfstætt. Reynsla af kennslu er góður kostur. Í starfinu felst að geta veitt lausnamiðaða með- ferð á faglegan hátt með viðtölum við einstak- linga, fjölskyldur og hópa, ásamt því að geta skipulagt og kennt á námskeiðum. Fjölskylduþjónustan Lausn er meðferðar og ráðgjafastöð sem rekin er af Félagsþjónustunni í Reykjavík. Lausn er brautryðjandi í innleið- ingu lausnamiðaðrar fjölskyldumeðferðar á Íslandi. Hugmyndafræðin sem að baki starf- seminni liggur grundvallast einkum á því að gefa fólki möguleika á að breyta lífi sínu á já- kvæðan hátt á tiltölulega stuttum tíma. Þjón- ustan er tilboð til borgarbúa. Laun samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkur- borgar og Stéttarfélags íslenskra félagsráð- gjafa. Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2003. Um- sóknum skal skila til Félagsþjónustunar í Reykjavík, Síðumúla 39, 108 Reykjavík, merktar: „Félagsráðgjafi Lausn“. Nánari upplýsingar veitir Helga Þórðardóttir, forstöðumaður í síma 552 5881, netfang: hel- gath@fel.rvk.is . Sjá einnig almennar upplýsingar um laus störf og starfsmannastefnu Félagsþjónustunnar á vefsíðunni: www.felagsthjonustan.is . Vélritun af hljóðupptökum Vandvirka vélritara með góða íslenskukunnáttu vantar í hlutastörf til vélritunar á fundargerðum af hljóðupptökum með aðstoð diktafóns. Í boði er sveigjanlegur vinnutími í þægilegu umhverfi. Áhugasamir leggi inn umsókn á auglýsinga- deild Mbl. eða á netfangið reynirb@vortex.is merkta: „V—13134“. Starfið gæti hentað einstaklingi með haldgóða menntun og reynslu á rafmagnssviði. Starfssvið: Rannsóknir Skráning gagna Afgreiðsla fyrirspurna Fræðsla Starfið gerir kröfu um kunnáttu í textameðferð og skýrslugerð og æskilegt er að viðkomandi hafi góð tök á öðru Norðurlandamáli og ensku. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir óskast sendar til Hagvangs merktar „Sérfræðingur“ fyrir 6. janúar 2003. Upplýsingar veitir Ari Eyberg. Netfang: ari@hagvangur.is Skógarhlíð 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 Bréfasími 520 4701 • www.hagvangur.is Sérfræðingur Opinber stofnun á rafmagnssviði óskar að ráða sérfræðing til starfa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.