Morgunblaðið - 31.12.2002, Blaðsíða 1
Gleðilegt
nýár!
Morgunblaðið/Golli
STOFNAÐ 1913 305. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 mbl.is
Straumar
og stefnur
Árið gert upp og horft til fram-
tíðar Gamlársdagur 2—9
Það besta í
tónlistinni
Gagnrýnendur velja bestu
plötur í dægurtónlist Fólk 54
Áramóta-
getraunir
Spurt um fornsögur og fréttir
á́rsins Gamlársdagur 35—39
NÆR sjö af hverjum tíu Rússum óska
þess að Sovétríkin hefðu aldrei liðið
undir lok, ef marka má viðhorfskönn-
un sem birt var í gær í tilefni af því að
80 ár eru liðin frá því að Sovétríkin
voru stofnuð formlega.
Um 68% aðspurðra sögðust harma
hrun Sovétríkjanna árið 1991 en 25%
söknuðu þeirra ekki.
1.600 Rússar tóku þátt í könnuninni
og þrír fjórðu þeirra sögðu að Sovét-
ríkin hefðu verið betur til þess fallin að
stuðla að félagslegum og efnahagsleg-
um framförum.
Rússar sakna
Sovétríkjanna
Moskvu. AFP.
YFIRVÖLD á Salómonseyjum í Kyrrahafi
óttuðust í gær um afdrif 3.000 íbúa tveggja
afskekktra eyja, tveimur dögum eftir að
mikill hvirfilbylur skall þar á.
Öll fjarskipti við eyjarnar Tikopia og
Anuta rofnuðu í óveðrinu á laugardagskvöld
og ekkert hefur því frést til íbúanna. Eng-
inn flugvöllur er á eyjunum og það tekur
viku að sigla þangað frá höfuðstað Salóm-
onseyja, Honiara, sem er um 1.000 km frá
eyjunum. Ráðgert er að senda þangað lög-
reglubát en það hefur ekki verið hægt enn
vegna óveðurs.
Óttast um
afdrif 3.000
manna
Auckland. AFP.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að síðustu daga
hafi hún séð hvernig menn beiti
valdi sínu í stjórnmálaflokkunum á
ógeðfelldan hátt. „Mér finnst ég
hafa séð inn í ákveðinn kjarna í
þessum flokkum og séð kannski
hvernig menn beita valdi sínu sem
mér finnst heldur ógeðfellt. Ég er
ekkert að segja að þetta eigi bara
við um Framsóknarflokkinn. Ég
held þetta sé nokkuð ríkt í stjórn-
málaflokkum, að þetta liggi að ein-
hverju leyti í hefðum og eðli
þeirra,“ segir Ingibjörg í ítarlegu
viðtali við Morgunblaðið í dag, að-
spurð hvort hún beri minna traust
til Framsóknarflokksins en áður.
Aðspurð hvort þetta eigi líka við
um Samfylkinguna segir Ingibjörg:
„Ég sá það nú fyrst og fremst inni í
Framsóknarflokknum.“
Ingibjörg Sólrún sagði á sunnu-
dag af sér embætti borgarstjóra frá
og með 1. febrúar og um kvöldið
var samþykkt að ganga til við-
ræðna við Þórólf Árnason, fyrrver-
andi forstjóra Tals, um að hann taki
við borgarstjóraembættinu.
Þórólfur hitti oddvita R-lista-
Ófrágengið er hvernig önnur
embætti skiptast á milli flokkanna.
Borgarstjóri hefur verið formaður
borgarráðs en það embætti fellur
nú öðrum í skaut. Árni Þór Sig-
urðsson, forseti borgarstjórnar,
segir að eftir sé að sjá hvort það
hafi áhrif á önnur embætti.
flokkanna á heimili borgarstjóra í
gær, en það var fyrsti fundur
þeirra. Að sögn Þórólfs gekk fund-
urinn vel, en ráðgert er að ganga
formlega frá ráðningu hans í emb-
ætti borgarstjóra fljótlega á nýju
ári. „Það var mikill sáttahugur
meðal fulltrúa Reykjavíkurlistans á
fundinum. Það var greinilega mikill
vilji hjá þeim um að samstarfið yrði
gott,“ segir Þórólfur.
Hef séð valdi beitt
á ógeðfelldan hátt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Oddvitar R-listaflokkanna og væntanlegur borgarstjóri, Þórólfur Árna-
son, koma af fundi með Ingibjörgu Sólrúnu á heimili hennar í gær.
Afsögn borgarstjóra/
6, 10–14, 30
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er harðorð í garð framsóknarmanna
UM milljón Kenýamanna kom saman í
Frelsisgarðinum í miðborg Nairobi í gær
þegar Mwai Kibaki sór þar embættiseið
forseta eftir að hafa borið sigurorð af for-
setaefni KANU-flokksins sem hafði verið
við völd í landinu frá því að það hlaut sjálf-
stæði frá Bretum 1963.
Kibaki, sem situr hér með annan fótinn í
gifsi eftir að hafa lent í bílslysi, lofaði að
koma á víðtækum umbótum.
Nýjum forseta
fagnað í Kenýa
AP
Mwai Kibaki/21
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
vekur máls á þeirri hugmynd í ára-
mótagrein í Morgunblaðinu í dag, að
sett verði á fót þverpólitísk nefnd til
að fjalla um Evrópumál.
Davíð segir umræðuna um veiði-
leyfagjald hafa verið yfirþyrmandi á
síðasta áratug, en málið hafi þó að lok-
um verið skoðað af yfirvegun og nið-
urstaða fengist í formi sanngjarnrar
sáttagjörðar. Segist hann því nefna
þetta mál til sögunnar að umræða um
Evrópumál sé oft „undir áþekkum
formerkjum og var þegar veiðileyfa-
gjaldsumræðan var sem vitlausust“
og spyr hvort unnt sé að sameinast
um þverpólitíska nefnd, sem nálgist
efnið frá mismunandi forsendum.
„Einhverjir munu sjálfsagt setja
sig upp á móti svona hugmynd vegna
þess eins að viss hætta er á að nefnd
af þessu tagi gæti átt það til að ná ár-
angri,“ segir Davíð og bætir við:
„Sjálfsagt eru þeir til, úr báðum skot-
gröfum, sem vilja ekki að púðurreyk-
urinn nái að setjast svo menn sjái út
úr augum. Slíkir fengu ekki að ráða
för í fyrrnefnda málinu og hví ættu
þeir að ráða för í svo alvarlegu deilu-
máli sem Evrópusambandsmálið svo
sannarlega er?“
Þverpóli-
tísk Evr-
ópunefnd
Við áramót/30