Morgunblaðið - 31.12.2002, Page 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 9
SAMKEPPNISSTOFNUN
hefur frestað um sinn frekari
málsmeðferð vegna kvörtunar
Kortaþjónustunnar vegna
meintrar synjunar Fjölgreiðslu-
miðlunar á aðgangi að RÁS-
þjónustu (posa-kerfi). Fjöl-
greiðslumiðlun hf. (FMG) er í
eigu banka, sparisjóða og korta-
fyrirtækja, þ.m.t. Visa og Euro-
pay og taldi Kortaþjónustan að
þau hefðu reynt að koma í veg
fyrir að hún fengi aðgang að
posa-kerfinu.
Samkeppnisstofnun telur
ekki vera fullreynt hvort samn-
ingur náist á milli Kortaþjónust-
unnar og FMG án íhlutunar
samkeppnisyfirvalda. Af þeim
sökum frestar stofnunin frekari
málsmeðferð, þ.m.t. að taka
bráðabirgðaákvörðun eins og
Kortaþjónustan hafði farið fram
á. Beinir Samkeppnisstofnun
þeim tilmælum til beggja aðila
að ganga til samninga. Skuli fyr-
irtækin gera stofnuninni grein
fyrir samningum eða stöðu
samninga viðræðna fyrir 21.
janúar næstkomandi.
Forsaga málsins er sú að
Kortaþjónustan taldi að Visa og
Eyropay á Íslandi hefðu reynt
að koma í veg fyrir að Korta-
þjónustan fengi aðgang að svo-
kölluðu posakerfi og taldi Korta-
þjónustan það vera lið í viðleitni
fyrirtækjanna til að hamla gegn
samkeppni á markaði fyrir
greiðslukortaþjónustu hér á
landi.
Europay Ísland og Visa Ísland
höfnuðu fullyrðingum um ólög-
mætt samráð og að þau hefðu
reynt að útiloka Kortaþjón-
ustuna frá posa-kerfinu svokall-
aða. Töldu Visa og Europay að
PBS, reiknistofa dönsku bank-
anna, sem Kortaþjónustan hefur
umboð fyrir væri að reyna að
komast inn bakdyramegin inn
posa-kerfi FMG án þess að
greiða rétt verð fyrir.
Samkeppnisstofnun
um kvörtun Korta-
þjónustunnar
Samninga-
leiðin skal
fullreynd
FRÁ 1. janúar nk. hækka allar
greiðslur almannatrygginga um
3,2%. Að auki kemur viðbótarhækk-
un á tekjutryggingu að upphæð
3.028 kr. og einnig hækkun á tekju-
tryggingarauka um 2.255 kr. Þá
lækkar skerðingarhlutfall tekju-
tryggingarauka úr 67% í 45%.
Eftir hækkun verður mánaðarleg
upphæð elli- og örorkulífeyris 20.630
kr. Tekjutrygging ellilífeyrisþega
verður 38.500 kr. en örorkulífeyris-
þega 39.493 kr. Heimilisuppbót á
mánuði verður 16.960 kr.; tekju-
tryggingarauki hærri 18.000 kr. og
tekjutryggingarauki lægri 14.066
kr., að því er fram kemur á heima-
síðu Tryggingastofnunar.
Atvinnuleysisbætur hækka
Þá hefur félagsmálaráðherra
ákveðið, að fengnu samþykki ríkis-
stjórnarinnar, að hækka atvinnu-
leysisbætur um 5% frá og með 1. jan-
úar nk.
Trygginga-
bætur hækka
Gleðilegt ár
þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030.
Opið í dag frá 10—12
Gleðilegt nýtt ár!
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið í dag frá kl. 10.00—12.00.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Kæru viðskiptavinir
Gleðilegt ár og
þökkum það liðna
ÚTSALA
2. janúar kl. 9
Opið virka daga frá kl. 9-18
Laugardaga frá kl 10-15
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Austurhraun 3, Garðabæ
Sími 555 2866
Kays 2003 listinn er kominn!
Hátíska í stærðum á alla fjölskylduna
Verslun Kays
Ný
tt
Útsala á útsölu - Ótrúlegt verð!
Rýmum fyrir nýjum vörum - mikið úrval í búðinni
Fatnaður, gjafavara, skartgripir, snyrtivörur o.fl. o.fl.
Flott förðun og virk krem
í næsta apóteki