Morgunblaðið - 31.12.2002, Side 25
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 25
Heimsferðir og Félag húseigenda á Spáni hafa nú undirritað samning um sæti til Alicante
sumarið 2003. Beint flug alla miðvikudaga í sumar tryggir þér þægilega ferð í glæsilegum
nýjum þotum og þægilegasta ferðatíma í sólina í sumar.
Sala er nú hafin og geta aðilar að Félagi húseigenda á Spáni
snúið sér til Heimsferða og bókað
sæti nú þegar.
Verð kr. 30.900
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Skattar, kr. 3.650 fyrir fullorðinn,
kr. 2.875 fyrir barn, innifaldir.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 34.550
Fargjald fyrir fullorðinn.
Skattar kr. 3.650 innifaldir.
Verð kr. 27.275
Fargjald fyrir barn.
Skattar kr. 2.875 innifaldir.
· Afsláttur færist á bókanir þegar
ávísanir frá FHS er skilað til
Heimsferða.
Salan er hafin
Bókaðu sæti og tryggðu þér afslátt
Félags húseigenda á Spáni
Samningur við Félag húseigenda á Spáni
Flugsæti til
Alicante
frá kr. 30.900
sumarið 2003
Dagsetningar í sumar
13. apríl
27. apríl
14. maí
21. maí
28. maí
4. júní
11. júní
18. júní
25. júní
2. júlí
9. júlí
16. júlí
23. júlí
30. júlí
6. ágúst
13. ágúst
20. ágúst
27. ágúst
3. sept.
10. sept.
17. sept.
24. sept.
1. okt.
Notaðu Atlas- og VR-ávísanirnar til að lækka ferðakostnaðinn
*
*
*
* Athugið!
Auglýst verð er með
húseigendaafslætti.
ARNARSSON
KÍLÓIÐ af Cape-vínberjum kost-
ar nú frá 798 krónum þar sem
þau eru ódýrust á höfuðborg-
arsvæðinu en algengt kílóverð
er 949–998 krónur. Í Kaup-
mannahöfn voru Cape-vínber
seld á 595 krónur í gær.
Verðið á Cape-vínberjum hef-
ur lækkað hérlendis frá því á
sama tíma í fyrra þegar kílóið
kostaði allt að 1.295 krónur.
Í Rema 1000 matverslununum
í Ósló í Noregi fékk Morg-
unblaðið þær upplýsingar í gær-
dag að Cape- vínberin frá Suður-
Afríku væru ekki nægilega
þroskuð ennþá og því hæfist
ekki sala á þeim fyrr en í næstu
viku. Þá verður kílóið af Cape-
vínberjum selt á 39 krónur
norskar eða á 456 íslenskar
krónur.
Í augnablikinu fást hinsvegar
vínber frá Brasilíu hjá Rema
1000 í Ósló en þau eru ekki
steinlaus og því ekki sambærileg
þeim Suður-Afrísku. Kílóverðið
á brasilísku vínberjunum var í
gær 29 krónur norskar sem sam-
svarar 339 íslenskum krónum.
Í Brugsen í Kaupmannahöfn
var kílóið af grænum og rauðum
Cape-vínberjum selt á 51,80
krónur danskar í gær eða 595
krónur íslenskar. Þar fékk blað-
ið þær upplýsingar að vínberja-
verð væri mjög hátt um þessar
mundir og myndi lækka eftir
eina til tvær vikur niður í 40
krónur danskar eða 474 íslensk-
ar krónur. Þegar haft var sam-
band við verslanakeðjuna Bilke í
Kaupmannahöfn voru vínberin
ekki steinlaus sem fengust þar
og þau voru eins og í Rema 1000
í Ósló frá Brasilíu.
Verðið lækkar eftir áramót
Að sögn Eggerts Á. Gíslasonar
framkvæmdastjóra hjá Mata sem
selur í versl-
anir Cape-
vínber frá
Suður-Afríku
er verðið á
vínberjunum
lægra en í
fyrra og hann
á von á því að strax í
næstu viku lækki verðið enn
frekar.
„Við erum að fá sendingar af
vínberjum til landsins með flugi
fyrir jólin og það þurfa hvorki
Norðmenn né Danir að gera
heldur fá þeir vínberin með
stórum flutningabílum frá Hol-
landi eða Belgíu.
Vínberin sem koma eftir ára-
mót koma hinsvegar til landsins
með skipi og því lækkar verðið.
Verðið lækkar því bæði vegna
þess að við fáum berin til lands-
ins með hagkvæmari hætti eftir
áramót og einnig vegna þess að
verðið lækkar á mörkuðunum úti
nú strax eftir áramót.“
Eggert býst fastlega við að
Cape-vínberin verði seld á innan
við sex hundruð krónur kílóið
eftir áramót.
Steinlausu Cape-vínberin frá S-Afríku reyndust ódýrari í Danmörku en á Íslandi
Cape-vínberin kosta hérlendis frá
788 krónum kílóið og upp í um þús-
und krónur en voru seld á 595 krón-
ur kílóið í Brugsen í Kaupmanna-
höfn í gær.
Segir flutningskostnað skýra
verðmun á vínberjum
Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir
ÞESSA uppskrift að skinku gaf El-
ín Ólafsdóttir, starfsmaður hjá
Thorarensen-Lyf ehf okkur en hún
segir hana afar bragðgóða og hún
bregðist aldrei:
1 skinka, sykursöltuð eða léttreykt.
20–25 piparkorn, gjarnan svartur
pipar.
2–3 lárviðarlauf.
Aðferð:
Leggið kjötið í kalt vatn með
puruna upp, vatnið þarf að fljóta yf-
ir kjötið. Setja kryddið út í vatnið og
sjóðið við vægan hita þar til kjöthit-
inn nær 77°C eða um 45 mín á hvert
kíló. Eftir suðuna er kjötið tekið
upp úr vatninu og látið rjúka úr því.
Hjúpurinn:
Blanda saman eggi, sykri og sinn-
epsdufti eða sinnepi og með því er
kjötið smurt að utan. Því næst er
kjötinu velt upp úr brauðraspi.
Kjötið er sett í 200°C heitan ofn og
bakað í 15 til 20 mínútur eða þar til
hjúpurinn hefur fengið góðan lit.
Sykursöltuð og
léttreykt skinka
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum Mörkinni 3, sími 588 0640
Glæsileg
kampavínsglös
fyrir áramótin
PASTAVÉL
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44 Sími 562 3614
Verð 5.500