Morgunblaðið - 31.12.2002, Page 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 37
MINNINGAR
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Ég man fyrst eftir
honum Andra þar sem
hann skreið berrassað-
ur eftir eldhúsgólfinu
á Kársnesbrautinni í
Kópavogi kannski ársgamall eða
svo –sumarið sem ég var sendill í
KRON og fór stundum með heim-
sendingu til móður hans. Ég man
að mér fannst svo gaman að koma
þangað, því að hún var alltaf svo
glöð, hún var líka dönsk og talaði
dálítið skringilega íslensku og vék
oft að manni köku eða gotteríi. Svo
hitti ég Andra ekki fyrr en hann
var orðinn fullorðinn og farinn að
taka þátt í leikstarfinu með Leik-
félagi Kópavogs. Þá lék hann hjá
mér galgopann Matta-Gokk í Glöt-
uðum snillingum Heinesens og
gerði það af sérlega skemmtilegum
húmor og með mátulegum sjarma
og glannagangi. Þetta var löngu áð-
ur en hann ákvað að fara í leiklist-
arnám og eitthvað fleira mun hann
hafa leikið með Leikfélagi Kópa-
vogs. En það geislaði alltaf af hon-
um þessi gleði, sem hafði einkennt
móður hans í minningunni – og
reyndar föður líka – í mínum
barnshuga voru þau skemmtilegu
hjónin á Kársnesbrautinni Svo fór
hann í hinn virta leiklistarskóla í
London: Webber Douglas Academy
og lauk þaðan prófi sumarið 1980.
Fyrsta leiksýningin sem hann tók
þátt í að loknu námi var söngleik-
urinn Grettir hjá Leikfélagi
Reykjavíkur. Þar var ég aftur við
stjórnvölinn og það var gaman að
endurnýja kynnin við Andra, sem
eins og fyrri daginn var einstaklega
glaðvær, opinn og skemmtilegur í
samstarfi. Hann réðst svo til Þjóð-
leikhússins þar sem hann lék í
nokkur ár, á annan tug hlutverka.
Meðal sýninga, sem hann lék í voru
Sölumaður deyr, Gosi, Sögur úr
Vínarskógi, Tyrkja-Gudda, Svejk í
seinni heimsstyrjöldinni og söng-
leikirnir Gustur, Gæjar og píur og
Chicago, því hann var ágætur
söngvari. Kannski er fyrsta hlut-
verk hans í Þjóðleikhúsinu mér
minnisstæðast en það var yngri
bróðirinn, Happy, í Sölumaður deyr
eftir Arthur Miller, sem varð fal-
lega einlægur og brjóstumkennan-
legur í túlkun hans.
Andri hafði sjálfur eitthvert sak-
leysislegt og glaðlegt yfirbragð,
sem hann átti þó auðvelt með að
breyta í skúrks- og skelmishátt á
sviði. Hann var myndarlegur mað-
ANDRI ÖRN
CLAUSEN
✝ Andri Örn Clau-sen sálfræðingur
fæddist í Reykjavík
25. febrúar 1954.
Hann lést í hjúkrun-
arheimilinu Skóg-
arbæ í Reykjavík 3.
desember síðastlið-
inn og var útför hans
gerð frá Kópavogs-
kirkju 10. desember.
ur, alltaf með bros í
augum og einhvern
veginn fannst manni
að honum hlyti alltaf
að líða vel. En hann
dvaldi ekki lengi við
leiklistina heldur sneri
sér að öðru námi og
starfi sem líka felst í
að skoða, kanna og
vinna með manninn:
sálfræði. Hann hafði
eignast glæsilega og
hæfileikaríka konu,
eina af okkar fremstu
leikkonum, Elvu Ósk
Ólafsdóttur og saman
áttu þau tvö mannvænleg börn,
Agnesi og Benedikt, sem reyndar
hefur fetað í fótspor foreldra sinna
og er farinn að leika þótt ungur sé
að árum.
Andri hélt til framhaldsnáms til
Árósa og lauk námi í klíniskri sál-
arfræði. Hann hafði einmitt fengið
spennandi starf hér heima, meðal
annars við að hjálpa fólki að vinna
úr sorg, þegar ólánið dundi yfir og
heilablæðing varð þess valdandi að
hann gat ekki lengur tjáð sig við
umheiminn. Sameiginlega höfðu
þau hjón í tvígang tekist á við önn-
ur alvarleg veikindi hans og þótti
mörgum nóg á þau lagt. Eftir að
hann fékk heilablæðinguna hættum
við samstarfsfólkið aldrei að dást
að þrautseigju og umhyggju Elvu.
Þótt hún væri að æfa og leika
kröfuhart aðalhlutverk fór hún dag
hvern fór hún upp á sjúkahús, tal-
aði við hann, þótt engin væru svör-
in, spilaði fyrir hann tónlist og vék
ekki frá honum vikum og mánuðum
saman. En vonin um bata fór dvín-
andi og nú er Andri allur. Við sem
kynntumst honum, minnumst hans
sem einstaklega góðs drengs, sem
hafði falleg áhrif á allt sitt umhverfi
og þótt ævin yrði ekki löng tókst
honum að miðla af hæfileikum sín-
um og mannkostum í ríkara mæli
en margur á mun lengri ævi.
Samstarfsfólk Elvu í Þjóðleikhús-
inu sendir henni, Benedikt og
Agnesi og fjölskyldu Andra allri
innilegar samúðarkveðjur á erfiðri
stund.
Blessuð sé minning hans.
Stefán Baldursson.
Fyrstu minningar mínar um
Andra Clausen eru minningar um
fíngerðan, hnellinn, broshýran
strák, sem sjaldan sat kyrr. Kynni
okkar hófust þegar við vorum að
ganga inn í það heillandi en þó oft á
tíðum sársaukafulla tímabil sem
unglingsárin eru. Við tilheyrðum
sömu „klíkunni“ í sama skóla og
sóttum sömu partýin þar sem
vandamál heimsins voru leyst á
einni kvöldstund, ástarsorgir og
ástarsæla skiptust á og síðast en
ekki síst mikið sungið. Þar var
Andri fremstur meðal jafningja.
Með gítarinn í hendi stjórnaði hann
hópnum og seiddi fram úr hljóðfær-
inu hin fjölbreytilegustu hljóð og
stemningar. Hann var „performer“
að eðlisfari og naut þess að vera
miðpunkturinn. Hann gat enda ver-
ið með afbrigðum fyndinn og hrifið
aðra með sér. En hann gat líka
sökkt sér djúpt niður í tveggja
manna tal af einlægni og sam-
kennd. Oftar en ekki snerist slíkt
tal upp í vangaveltur um framtíð-
ina. Hann var aldrei í vafa um, að
framtíðin myndi hafa eitthvað stór-
fenglegt í för með sér og var
óhræddur við að byggja sér borgir
og ræða þær af einlægni við aðra.
Það er kaldhæðni örlaganna að
skömmu fyrir áfallið var viðtal við
Andra í Ríkisútvarpinu í þættinum
„Að láta drauma rætast“ þar sem
hann lýsti draumum sínum og
hvernig hann hefði staðið af sér
erfið veikindi. Hann leit svo á að nú
væri hann að hefja nýjan starfs-
feril, fullan af tækifærum. En ör-
lögin höfðu ætlað honum annað
hlutverk. Lífshlaup Andra sýnir
okkur sem eftir stöndum á harka-
legan hátt hversu hverful gæfan er
og hversu lífið getur í einni svipan
snúist upp í andstæðu sína. Innileg-
ustu samúðarkveðjur sendi ég Elvu
Ósk, Agnesi og Benedikt, föður
hans og bróður.
Þitt bros – svo bjart.
Þinn hugur – svo frjáls.
Þín von – svo sterk.
Þitt líf – svo stutt – þitt líf.
Brynhildur G. Flóvenz.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
ÁRNI GESTSSON,
Efstaleiti 14,
Reykjavík,
andaðist á Líknardeild Landspítalans í Kópa-
vogi, laugardaginn 28. desember.
Jónína Árnadóttir, Már Jónsson,
Gestur Árnason, Judith Anna Hampshire,
Börkur Árnason, Lísa-Lotta Reynis Andersen,
Ásta Árnadóttir, Jón Grétar Margeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
UM ÁRAMÓT taka í gildi ný lög um
útlendinga og atvinnuréttindi þeirra.
Við það falla úr gildi eldri lög um eft-
irlit með útlendingum frá 1965 og lög
um atvinnuréttindi útlendinga frá
1994.
Með lögunum og reglugerð sem
þeim fylgir eru talsvert miklar breyt-
ingar gerðar, t.d. varðandi dvalar-
leyfi útlendinga á Íslandi. Má þar
nefna sérstakt ákvæði sem fjallar um
dvalarleyfi aðstandenda þeirra sem
búa á Íslandi og nýtt ákvæði sem
kveður á um skyldu til að sækja nám-
skeið í íslensku til að útlendingar geti
fengið búseturétt. Þá má nefna að
greinarmunur verður gerður á því
hvort fólk hefur sérþekkingu/sér-
staka hæfileika eða ekki þegar dval-
arleyfi er veitt.
Af þessu tilefni efnir Alþjóðahús til
málstofu hinn 7. janúar 2003 kl. 20 á
Hverfisgötu 18, þar sem farið verður
yfir helstu breytingar og þær rædd-
ar. Allir eru velkomnir og það þarf
ekki að tilkynna þátttöku með fyrir-
vara. Þess má geta að í febrúar fara
fram fræðslufundir um þessi málefni
í Alþjóðahúsi sem verða túlkaðir á
ensku, pólsku og rússnesku.
Kynna
ný útlend-
ingalög
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness
dæmdi í gær karlmann á sjötugs-
aldri í fjögurra mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir skilasvik.
Sannað þótti að honum hefði verið
ljóst að hann hafði verið úrskurð-
aður gjaldþrota er hann ráðstafaði
hlutabréfum sínum í útgerðarfélagi
á þann veg að þær eigur bús hans
kæmu lánardrottnum þess ekki að
gagni.
Í dómnum segir að á þeim tíma
sem salan á hlutabréfunum fór
fram hafi ákærði átt í miklum erf-
iðleikum. Andvirði hlutabréfanna
hafi að öllu leyti gengið til að greiða
skuldir tveggja útgerðarfélaga og
það muni hann hafa gert til að firra
syni sína refsiábyrgð, en ákærði
fékk sjálfur ekkert af andvirði
hlutabréfanna.
Þá segir að við ákvörðun refs-
ingar hafi borið að hafa í huga að
langur tími leið frá því að maðurinn
framdi brotið og það upplýstist hjá
skiptastjóra og þangað til ákæra
var gefin út á hendur honum. Muni
þar mestu hve langur tími leið
þangað til skiptastjóri sendi málið
til ríkislögreglustjóra.
Finnbogi Alexandersson héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Verjandi
ákærða var Örn Clausen hrl. Málið
sótti Helgi Magnús Gunnarsson,
fulltrúi ríkislögreglustjóra.
Fjögurra
mánaða
fangelsi fyr-
ir skilasvik
FJÓRUM starfsmönnum var sagt
upp hjá kjúklingaframleiðandanum
Reykjagarði á Hellu í gær og
greindu stjórnendur fyrirtækisins
frá ýmsum skipulagsbreytingum til
hagræðingar í rekstri.
Sigurður Rúnar Sigurðsson, slát-
urhússtjóri Reykjagarðs, sagði í gær
að ekki væri gert ráð fyrir frekari
uppsögnum. Um 50 manns starfa hjá
fyrirtækinu. Hann sagði að íslenskir
kjúklingaframleiðendur hefðu átt
erfitt uppdráttar að undanförnu,
sérstaklega vegna þess að margir
væru á markaðnum og undirbyðu
hver annan. Jafnvel væri verið að
bjóða vöruna undir kostnaðarverði á
framleiðslunni.
Uppsagnir
hjá Reykja-
garði á Hellu