Morgunblaðið - 31.12.2002, Síða 38
MINNINGAR
38 ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Auður BrynþóraBöðvarsdóttir
fæddist á Laugar-
vatni 13. júlí 1915.
Hún lést á Landspít-
ala í Fossvogi 19.
desember síðastlið-
inn. Auður var dóttir
hjónanna Böðvars
Magnússonar, bónda
á Laugarvatni, f.
25.12. 1877, og Ing-
unnar Eyjólfsdóttur,
f. 2.8. 1873. Systkini
Auðar eru: Ragn-
heiður, f. 7.11. 1899,
d. 10. sept. 2000,
Magnús, f. 18.6. 1902, d. 12.11.
1971, Arnheiður, f. 14.7. 1904, d.
27.3. 2000, Laufey, f. 24.11. 1905,
d. 6.11. 1974, Hrefna, f. 26.11.
1906, d. 8.7. 1976, Magnea, f. 20.3.
kvæntur Berglindi Eymarsdóttur.
Börn Hjalta eru Karlotta, Ari Hall-
dór og Elías Bjarnfinnur. Börn
Jóns Inga eru Klara Dögg og Erna
Guðrún. Börn Birgis eru Eymar
Andri og Arnar Daði. 2) Ingunn, f.
3.5. 1945, gift Agnari Friðrikssyni,
framkvæmdastjóra í Grimsby í
Englandi, f. 14.7. 1945. Börn
þeirra: Brynjar, sambýliskona
hans er Judith Ann Goll, og Krist-
ín. 3) Rannveig, f. 31.8. 1947, fyrri
maður Sturla Pétursson, f. 18.9.
1945, d. 7.4. 1990. Þau skildu. Son-
ur þeirra er Pétur. Seinni maður
Jónas Ágústsson framkvæmda-
stjóri, f. 14.10. 1949. Börn; Auður,
sambýlismaður hennar er Jóhann
Harðarson, og Ingvi. Dóttir Péturs
er Ylfa Kristín.
Auður og Hjalti bjuggu á Eyr-
arbakka 1940–1942 og fluttu þá til
Reykjavíkur og áttu heima þar síð-
an, lengst af í Eskihlíð 12.
Útför Auðar verður gerð frá Há-
teigskirkju fimmtudaginn 2. jan-
úar og hefst athöfnin klukkan
13.30.
1908, d. 22.5. 1977,
Hlíf, f. 11.4. 1909, Sig-
ríður, f. 29.8. 1912, d.
19.4. 1990, Lára, f.
25.8. 1913, Anna, f.
19.6. 1917, d. 2.12.
1989, og Svanlaug, f.
24.12. 1918.
Auður giftist 31.1.
1940 Hjalta Bjarn-
finnssyni búfræðingi
frá Eyrarbakka, f.
14.3. 1917, d. 31.5.
1984. Börn Auðar og
Hjalta eru: 1) Bjarn-
finnur, húsasmiður, f.
23.12. 1939, kvæntur
Ernu Jónsdóttur, bankastarfs-
manni, f. 30.1. 1943. Börn; Hjalti,
kvæntur Elísabetu Halldórsdóttur,
Jón Ingi, sambýliskona hans er
Sigrún Karlsdóttir, og Birgir,
Í hartnær 40 ár hef ég verið þeirrar
miklu gæfu og ánægju aðnjótandi að
umgangast Auði Böðvarsdóttur, sem
nú hefur kvatt þennan heim. Auður
er einhver eftirminnilegasta mann-
eskja, sem ég hef nokkurn tíma
kynnst, hljóðlát, hógvær, vel lesin í
hvívetna, með einstaklega gott og já-
kvætt hjartalag, sem við sem henni
kynntumst náið fengum ríkulega að
njóta.
Auður ólst upp á stóru heimili for-
eldra sinna austur í Árnessýslu, nán-
ar tiltekið á Laugarvatni, í faðmi for-
eldra sinna þeirra Böðvars og
Ingunnar ásamt ellefu systkinum,
einum bróður og tíu systrum. Eins og
gefur að skilja var í mörg horn að líta
á þessu stóra og gestkvæma heimili
og á unglingsárum sínum tók Auður
virkan þátt í daglegum heimilisstörf-
um á Laugarvatni. Á þeim árum
stundaði Auður jafnframt nám við
Héraðsskólann á Laugarvatni í einn
vetur, vann við símstöðina á Laug-
arvatni og við skólann á staðnum. Þá
sótti Auður námskeið í matreiðslu og
saumaskap á þessum árum. Hinn 31.
janúar 1940 kvæntist Auður Hjalta
Bjarnfinnssyni frá Eyrarbakka, sem
hafði stundað ráðsmennsku á Laug-
arvatni. Hjalti lauk búfræðinámi frá
Hvanneyri, sótti vélstjóranámskeið á
Stokkseyri og stundaði þaðan sjó-
mennsku fyrstu árin eftir giftingu
þeirra Auðar. Árið 1942 fluttu þau
Auður og Hjalti til Reykjavíkur, þar
sem þau bjuggu alla tíð, lengst af í
Eskihlíð 12. Hjalti starfaði lengi sem
stjórnandi kolakranans við Reykja-
víkurhöfn hjá Kolum og salti hf., eða
allt til 1959, er hann ásamt tveimur
öðrum stofnaði fyrirtækið Etnu hf.,
sem hann starfaði við og stjórnaði allt
til þar til hann lést árið 1984, langt
fyrir aldur fram. Heimili þeirra Auð-
ar og Hjalta var eftirminnilegt fyrir
margra hluta sakir. Mikið bókasafn
Hjalta setti sinn svip á heimilið og
umræðuna sem þar fór fram. Þau
voru gestrisin svo um munaði og var
heimili þeirra tíðsótt af ættingjum og
vinum bæði af Reykjavíkursvæðinu
og austan úr sveitum. Þau bæði voru
einkar næm á vel skrifað orð, tónlist
og fallega dregnar línur í myndum,
sem prýddu veggi heimilisins. Þá
voru þau afar áhugasöm um þjóðmál,
ekki í flokkspólitískum skilningi,
heldur frekar frá sjónarhorni réttlæt-
is og sanngirni öllum þjóðfélagsþegn-
um til handa. Réttlætiskennd var
þeim í blóð borin og mótaði afstöðu
þeirra til manna og málefna hverju
sinni. Mér eru minnisstæðar margar
ánægjustundirnar á þeirra heimili,
þar sem snarpt var deilt um helstu
mál líðandi stundar og oftast fannst
mér Auður hafa lög að mæla. Reynd-
ar var áhugasvið þeirra beggja svo
vítt að sjaldan kom eitthvert það mál
til umræðu, þar sem komið var að
tómum kofunum hjá þeim, og þau
höfðu ekki sitthvað vitlegt til mál-
anna að leggja. Ekki má gleyma mikl-
um spilaáhuga þeirra Auðar og
Hjalta og ósjaldan var gripið í spilin á
heimilinu og tekin ein berta eða tvær.
Jafnan spiluðu systurnar og fjöl-
skyldur þeirra brids og félagsvist
reglulega. Á síðari árum eignaðist
Auður sérlega góðar vinkonur, en
hún spilaði allt fram á síðustu vikur
víða um borgina í félagsmiðstöðvum
aldraðra með Hlíf systur sinni, sem
ég veit að var Auði ómetanlegt.
Eftir andlát Hjalta stundaði Auður
prjónamennsku af atorku og af slíkri
snilld, sem víða hefur farið. Hannyrð-
ir hvers kyns léku í höndum Auðar og
sjaldan lét hún verk úr hendi falla.
Með prjónaskap á efri árum náði
Auður að drýgja tekjur sínar svo að
með ólíkindum var. Jafnframt tók
hún virkan þátt í uppeldi barna-
barnanna. Oft dvaldi Auður á sumrin
á Laugarvatni, þar sem systurnar
höfðu afnot af hluta af Bjarkarlundi í
byggðinni sjálfri, og á síðari árum af
sumarbústöðum, sem fjölskyldur af-
komenda þeirra Böðvars og Ingunn-
ar höfðu byggt í Skógarlundi, vestan
við byggðina á Laugarvatni. Minnis-
stæð eru sumarsíðkvöldin, er Anna
systir hennar kom niður til að spila
brids með okkur gestkomendum.
Með fylgdu sögur af æskuárunum
þeirra systra þar á staðnum, sem við
hlustuðum á af athygli. Með spila-
mennskunni voru þjóðmálin rædd
fram og aftur af miklum áhuga. Börn-
in okkar Ingunnar, þau Brynjar og
Kristín, dvöldu oft langdvölum þar
eystra með afa sínum og ömmu, og
ömmu Auði á síðari árum. Þar og þá
lærðu þau að meta náttúruna, bera
virðingu fyrir öllu sem kvikt er, meta
gróðurinn og umhverfið í víðasta
skilningi. Umhverfismál, verndun
óbyggðanna og náttúru landsins voru
sérstakt áhugamál Auðar, einkum þó
á síðari árum. Lét hún skoðanir sínar
í ljós af mikilli sannfæringu, sem bar
keim af einlægri virðingu Auðar fyrir
landinu og þeirri ábyrgð sem hvílir á
okkur þegnum þessa oft harðbýla
lands að ganga varlega um það og af
hógværð. Betra og hollara uppeldi
hverju barni er vart unnt að hugsa
sér og veit ég að börnin okkar Ing-
unnar eru ömmu sinni ævarandi
þakklát fyrir hvernig henni tókst á
sinn einstaka máta að auðga æsku
þeirra, víkka sjóndeildarhringinn og
fyrir þau sérlega jákvæðu áhrif, sem
hún hefur haft á uppeldi þeirra og
þroska.
Ég kveð Auði með miklum söknuði,
og þakklæti fyrir allt það góða og já-
kvæða sem hún skilur eftir sig.
Agnar Friðriksson.
Söknuður er mér efst í huga þegar
ég kveð systur mína og vinkonu, Auði
Böðvarsdóttur. Nú get ég ekki lengur
hringt á kvöldin og spjallað við hana
um viðburði dagsins og margt þar
fyrir utan. Í stað þess hef ég minning-
arnar að orna mér við, allt frá þeim
tíma sem við systkinin vorum öll sam-
an í foreldrahúsum á Laugarvatni –
ellefu systur og einn bróðir. Lífs-
brautir okkar Auðar héldu áfram að
liggja saman, sérstaklega seinni árin,
og hafa samvistirnar við hana ávallt
verið mér til góðs. Við Auður tókum
að okkur verkefni í nokkur ár sem var
okkur bæði til gagns og gleði. Og síð-
ar, á efri árum, leyfðum við okkur
þann munað að sitja við bridgeborðið
tvisvar í viku og stundum oftar og
nutum þess að vera til. Þessar spilast-
undir gáfu okkur í raun og veru miklu
meira. Við kynntumst góðu og
skemmtilegu fólki sem alltaf er ómet-
anlegt í þessu lífi. Það var alltaf dýr-
mætt að eiga Auði að ef hjálpar var
þörf. Það munaði um hana því að hún
var hagsýn, verklagin og fljótvirk. Nú
er Auður horfin sjónum, en því meira
AUÐUR BRYNÞÓRA
BÖÐVARSDÓTTIR Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EGGERT A. SIGURÐSSON,
Miðgarði 10,
Keflavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans föstu-
daginn 27. desember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn
3. janúar kl. 13.30.
Elísabet Lúðvíksdóttir,
Guðrún Eggertsdóttir, Kristján Guðmundsson,
Lúðvík J. Eggertsson, Agnes D. Friðriksdóttir,
Jenný Olga Eggertsdóttir, Gunnar Þór Þórmarsson,
Helga Ágústa Eggertsdóttir, Bragi Páll Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær faðir okkar, sonur og bróðir,
GUNNAR INGI LÖVDAL,
Blásölum 24,
Kópavogi,
lést af slysförum.
Jónas Ingólfur Gunnarsson,
Sonný Gunnarsdóttir,
Sunna Lind Gunnarsdóttir,
Sigrún Jónsdóttir, Hafsteinn Á. Ársælsson,
Edvard Lövdal, Elsa Pálsdóttir,
og systkini hins látna.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HARALDUR EYVINDS,
Sóltúni 2,
áður til heimilis á
Bárugötu 14,
Reykjavík,
lést á Sóltúni 2, föstudaginn 27. desember.
Jarðsungið verður frá Fossvogskapellu þriðju-
daginn 7. janúar kl. 13.30.
Þröstur Eyvinds, Sigurlaug Kr. Bjarnadóttir,
Sigrún Ragnarsdóttir, Skúli Ólafsson,
Fjóla Ragnarsdottir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SVERRIR SIGFÚSSON,
Hringbraut 67,
Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 17. desember sl. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey í Hafnarfirði.
Kærar þakkir til þeirra sem hafa sýnt okkur
hlýhug.
Einnig eru starfsfólki á Landakoti og á Hrafnistu í Hafnarfirði færðar
þakkir fyrir góða umönnun og stuðning.
Sólveig Þórðardóttir,
Þórður Sverrisson, Hafrún Dóra Júlíusdóttir,
Ingibjörg G. Sverrisdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GUNNAR MAGNÚS DAVÍÐSSON,
Þiljuvöllum 37,
Neskaupstað,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
föstudaginn 27. desember.
Útförin fer fram frá Norðfjarðarkirkju laugar-
daginn 4. janúar kl. 14.00.
Nikólína Halldórsdóttir,
Lilja Dóra Gunnarsdóttir, Ingibergur Elíasson,
Rúnar Már Gunnarsson, Aldís Stefánsdóttir,
Víglundur Jón Gunnarsson, Jóna Björg Óskarsdóttir,
Dagný Petra Gunnarsdóttir, Magni Björn Sveinsson
og barnabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
INGVAR INGVARSSON,
Elliheimilinu Grund,
áður Safamýri 25,
lést fimmtudaginn 27. desember.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu þriðju-
daginn 7. janúar kl. 15.00.
Guðni Þór Ingvarsson, Matthildur Hjartardóttir,
Sigurjón Ingvarsson,
Magnús Þór Jónsson, Aðalheiður Gústafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTÍN HELGADÓTTIR,
Ártúni,
Stöðvarfirði,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaup-
stað aðfaranótt laugardagsins 28.desember.
Jarðarförin fer fram frá Stöðvarfjarðarkirkju
laugardaginn 4. janúar kl. 14.
Svanhvít Björgólfsdóttir, Hávarður Helgason,
Kolbrún Björgólfsdóttir, Magnús Kjartansson,
Berglind Björgólfsdóttir, Hafþór Valentínusson,
ömmubörn og langömmubörn.