Morgunblaðið - 31.12.2002, Síða 39
hugsa ég til hennar með þökk í huga.
Ég bið henni Guðs blessunar og votta
aðstandendum samúð mína.
Hlíf Böðvarsdóttir.
Ég kveð elskulega móðursystur
mína með eftirsjá. Það var gott að
koma til Auðar frá amstri hversdags-
ins. Auður hafði lifandi áhuga og
skoðanir á svo ótal mörgu og fylgdist
vel með þjóðfélagsumræðunni og
dægurmálum. Hún var víðlesin, ætt-
fróð og minnug og oft leitaði ég til
hennar þegar ættarbókin okkar var
skráð fyrir nokkrum árum. Auður
var mikill náttúruunnandi og síðustu
misserin átti náttúruvernd hug henn-
ar allan. Einn af eftirlætisstöðum
hennar voru Laugarvatnsvellirnir og
gamli konungsvegurinn frá Gjábakka
að Laugarvatni sem er enn á sínum
stað og vellirnir nær óspilltir af skóg-
rækt og vegagerð. En blikur eru á
lofti á þessum yndislega stað eins og
svo víða í landinu okkar. Stundum
rifjuðum við upp minningar frá gamla
bænum á Laugarvatni, afa og ömmu.
Það var bjart og hlýtt yfir þessum
minningum og alltaf fann ég sterkt
hversu mikla virðingu og væntum-
þykju Auður bar til ömmu og afa. Við
áttum líka sameiginlegar minningar
heiman úr Bjarkarlundi, dýrmætar
samverustundir þegar frænkur og
frændur komu heim til afa og ömmu
og undu þar í lengri eða skemmri
tíma á sumrin. Í minningunni finnst
mér alltaf hafa verið sól og alltaf stór-
afmæli hjá ömmu.
Ég mun sakna allra samveru-
stundanna, trúnaðartraustsins og
vináttunnar. Þegar erfiðleikar steðj-
uðu að í okkar litlu fjölskyldu var
Auður til staðar til að hugga á sinn
hljóðláta hátt og fyrir það er ég æv-
inlega þakklát. Ég votta Bjarnfinni,
Ingunni og Rannveigu og fjölskyld-
um þeirra innilega samúð mína.
Bergljót Magnadóttir.
Látin er kær frænka mín Auður
Böðvarsdóttir frá Laugarvatni.
Mig langar til að kveðja hana með
nokkrum minningarorðum, en finn
mig jafnframt vanhæfa til þess. Hug-
urinn leitar langt aftur í tímann, til
ársins 1940 að ég held. Auður kom þá
í heimsókn að Minniborg til þess að
hitta systur sína Ragnheiði, hún var á
leið niður að Eyrarbakka til þess að
byrja að búa þar, þá nýgift Hjalta
Bjarnfinnssyni frá Eyrarbakka. Ég
unglingurinn skynjaði hve Auður var
hamingjusöm ung stúlka. Sérstak-
lega vel klædd eftir nýjustu tísku og
geislaði af gleði. Ég öfundaði hana af
flottu kápunni og skónum. Nú var
Auður fallegust systra mömmu, sagði
mamma. Þetta var hennar tími. Hver
systir átti sinn tíma sem fallegust í
augum mömmu sem var elst af ellefu
systrum. Svo liðu árin og við Einar
fengum leigða stofu hjá Auði og
Hjalta í nokkra mánuði á Lokastíg
18. Þá, eins og nú, var erfitt að fá hús-
næði og vorum við mjög þakklát fyrir
að fá að búa hjá þeim. Hjá Auði eign-
aðist ég mitt fyrsta barn og fann ég
strax hve hún var barngóð og ráðholl
og vildi mér vel án þess að vera með
nokkra afskiptasemi, enda hefur mér
fundist Auður taka við erfiðleikum
lífsins hughraust og tilbúin til þess að
gera sitt besta. Sannkölluð hetja í
löngu heilsuleysi nú síðustu ár.
Þó að Auður væri hlédræg að eðl-
isfari var hún einörð í skoðunum og
rökföst þar sem hún vildi hafa áhrif
og fór ekki milli mála að hún var
bjargfastur umhverfissinni. Hún vildi
fara vel með landið og eiga það eins
og það er frá náttúrunnar hendi.
Sómakonan Auður frænka hefur
kvatt þetta líf sem hún tók þátt í og
naut þess eins og hún mögulega gat,
henni féll aldrei verk úr hendi prjón-
aði listrænar flíkur, hún var svo verk-
lagin eins og þær systur allar. Og
ekki síst hafði hún gaman af að spila á
spil og átti góðar vinkonur í þeim
hópi.
Við Einar kveðjum Auði með sökn-
uði og vottum börnum hennar og öðr-
um aðstandendum innilega samúð.
Ólöf Stefánsdóttir.
Fleiri minningargreinar um Auði
Brynþóru Böðvarsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2002 39
Okkar elskulega móðir, tengdamóðir og
amma,
MÁLFRÍÐUR ERLA LORANGE,
Bláskógum 9,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 3. janúar kl. 13.30.
Jóhann Ingi Gunnarsson, Guðfinna Nanna Gunnarsdóttir,
Steindór Gunnarsson, Erna Benediktsdóttir,
Aðalheiður Gunnarsdóttir, Björn Erlingsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HERMÍNA MARINÓSDÓTTIR,
síðast til heimilis í
Aðalstræti 4,
Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Seli aðfaranótt laug-
ardagsins 21. desember.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju föstu-
daginn 3. janúar kl. 13.30.
Sigurður Víglundsson, Aðalbjörg Garðarsdóttir,
Jónína Víglundsdóttir, Þórir Björnsson,
Gunnbjörg Helga Víglundsdóttir, Stefán Runólfsson,
Jóhanna Alfa Víglundsdóttir, Gústaf Sigurlásson,
Ingimar Víglundsson, Geirþrúður Elísdóttir,
Smári Víglundsson,
Ragnheiður Víglundsdóttir, Garðar Pétursson,
Sóley Víglundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
AUÐUR BRYNÞÓRA BÖÐVARSDÓTTIR,
sem lést fimmtudaginn 19. desember, verður
jarðsungin frá Háteigskirkju fimmtudaginn
2. janúar kl. 13.30.
Bjarnfinnur Hjaltason, Erna Jónsdóttir,
Ingunn Hjaltadóttir, Agnar Friðriksson,
Rannveig Hjaltadóttir, Jónas Ágústsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir minn, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR MARÍASSON,
áður til heimilis á
Tangagötu 31,
Ísafirði,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugar-
daginn 4. janúar kl. 14.00.
Hafliði Guðmundsson, Arndís Sigurðardóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og systir,
BERGÞÓRA SIGURÐARDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtu-
daginn 19. desember.
Jarðarförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn
3. janúar kl. 13.30.
Róbert Róbertsson,
Hulda M. Róbertsdóttir, Michael A. Otero,
Sigurður A. Róbertsson,
Erna B. Róbertsdóttir,
Jórunn H. Sigurðardóttir
og barnabörn.
Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GOLDA HELEN MONTGOMERY,
Fálkagötu 5,
Reykjavík,
sem lést laugardaginn 21. desember, verður
jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 7. janúar
kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Hilda Marie Montgomery,
Jón Þór Sveinbjörnsson, Margrét Jóna Sveinsdóttir,
Stefán Sveinbjörnsson, Hallbjörg Karlsdóttir,
Jónína María Sveinbjarnardóttir, Haraldur Guðbjartsson,
Hrafnhildur Sveinbjörnsdóttir, Helgi A. Nielsen,
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg frænka okkar,
ANNA INGUNN BJÖRNSDÓTTIR,
lést á Landspítalanum við Hringbraut laugar-
daginn 28. desember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Björn Kristjánsson,
Jóhanna Gunnlaugsdóttir,
Óli Jón Bogason,
Guðríður Bogadóttir.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
MAGNÚS INGJALDSSON,
áður Kleppsvegi 76,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni sunnudaginn
29. desember.
Júlíana Árnadóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
JÓN LEVÍ JÓNSSON,
áður til heimilis á
Bergþórugötu 6,
lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn
26. desember.
Vandamenn.
Sambýlismaður minn og faðir,
JÓN BENEDIKTSSON,
Höfnum á Skaga,
er látinn.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurlaug Magnúsdóttir,
Birna Jónsdóttir.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SIGMUNDUR BALDVINSSON,
Borgarvegi 36,
áður Reykjanesvegi 46,
Reykjanesbæ,
lést miðvikudaginn 25. desember sl.
Útför hans fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
föstudaginn 3. janúar kl. 14.00.
Anna Magnúsdóttir,
Magnús Þór Sigmundsson, Jenný Borgedóttir,
Brynjar Sigmundsson, Anne Sigmundsson,
Ósk Sigmundsdóttir, John Cramer,
Pétur Baldvinsson,
Baldvin Baldvinsson.