Morgunblaðið - 09.01.2003, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁTÖK UM STRAUM
Hörð átök urðu um yfirráð í Fjár-
festingarfélaginu Straumi að því er
fram kemur í fjórðu og síðustu grein
Agnesar Bragadóttur í greinaflokkn-
um Baráttunni um Íslandsbanka.
Býður óbreyttar greiðslur
Ísland býður óbreyttar greiðslur
til fátækari ríkja Evrópusambands-
ins, ESB, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Viðræður EFTA-
ríkjanna vegna stækkunar ESB hefj-
ast í Brussel í dag.
Mannskæð flugslys
Nærri 100 manns fórust í gær í
tveimur flugslysum. Í Tyrklandi
týndu 74 lífi er farþegaflugvél brot-
lenti á flugvelli í borginni Diyarbakir
og 21 lét lífið er flugvél hrapaði í flug-
taki í Norður-Karólínu í Bandaríkj-
unum.
Úrelt skip í höfnum
Á annað hundrað úrelt skip liggja í
höfnum landsins og valda þar veru-
legum kostnaði auk þess sem af þeim
stafara mengunarhætta. Áætlað er
að það kosti rúman milljarð að farga
þeim.
Handtökur í Bretlandi
Breska lögreglan hefur handtekið
sjö manns, sem grunaðir eru um að
hafa ætlað að fremja hryðjuverk í
landinu með eiturefninu rísíni. Er
tveggja manna enn leitað.
Markmiðið Aþena
Markmiðið er að komast á Ólymp-
íuleikana í Aþenu. Kemur það fram
hjá Guðmundi Þ. Guðmundssyni,
þjálfara handknattleikslandsliðsins,
en til þess þurfa Íslendingar að verða
í einu af sjö efstu sætunum á HM í
Portúgal, sem hefst eftir 11 daga.
Sölubókunum mest skilað
Nokkru minna er um það nú en í
fyrra, að bókum sé skilað í bóka-
verslanir að loknum jólum, en eins og
líklegt er, þá eru skilin mest á sölu-
hæstu bókunum.
Innlán takmörkuð
Fjármálaeftirlitið hefur lagt til, að
takmarkanir á verðbréfaeign lífeyr-
issjóða hjá einum aðila nái einnig til
innlána í bönkum og sparisjóðum. Er
það mat eftirlitsins, að vissar teg-
undir innlána geti talist til verðbréfa.
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
AUGLÝSINGAR ÚRELDING LÖGFRÆÐI
Birta Vefauglýsingar er
nýtt fyrirtæki sem er í
eigu Magnúsar Orra
Schram
Úrelt og ónýt skip
hrannast nú upp í höfn-
um landsins með til-
heyrandi kostnaði
LOGOS lögmannsþjón-
usta hefur ráðið dansk-
an lögmann, Peter
Mollerup til starfa
FAGMENNSKA Í/4 REIÐULEYSI/6 DANSKUR/11
ALCOA, bandaríski álrisinn sem hyggst
reisa álver í Reyðarfirði, tilkynnti í gær að
tap síðasta ársfjórðungs 2002 næmi 223
milljónum Bandaríkjadala, eða sem svarar
til rúmlega 18 milljarða íslenskra króna.
Það var mun meira en búist hafði verið við,
en sala nam 410 milljörðum króna á tíma-
bilinu, samanborið við 413 milljarða á fyrra
ári. Tapið nam 27 sentum á hlut, samanbor-
ið við 17 senta tap árið áður.
Heildarsala á árinu var 20,26 milljarðar
dollara, 1.641 milljarður króna, en árið áður
var hún 22,5 milljarðar dollara, eða 1.822
milljarðar króna. Heildarhagnaður ársins
nam 47 sentum á hlut, en árið áður nam
hann 1,05 dollurum á hlut.
Meðal aðgerða sem fyrirtækið hyggst
grípa til vegna versnandi afkomu eru upp-
sagnir, endurskipulagning og sala á ýmsum
þáttum starfseminnar. „Endurskipulagn-
ingin nær til starfsemi sem ekki hefur vax-
ið, sérstaklega í Evrópu og Suður-Amer-
íku,“ segir í yfirlýsingu frá Alcoa. Um 8.000
starfsmönnum verður sagt upp á árinu, á 70
stöðum, en fyrirtækið gerir ekki ráð fyrir
að hagræðingin skili árangri fyrr en á árinu
2004. Alls eru starfsmenn Alcoa 129.000.
Í tilkynningu frá Alcoa er haft eftir Alain
Belda, stjórnarformanni fyrirtækisins, að
samdráttur í framleiðslu í heiminum hafi
varað lengur en búist hafi verið við. „Nánar
tiltekið hafa geirar á borð við flugiðnaðinn,
markað fyrir gashverfla og fjarskiptamark-
aðinn verið í lægð og neytt okkur til að auka
sparnað í rekstri og endurskipulagningu.
Þessar aðgerðir veita okkur aukið svigrúm
til að grípa tækifæri til vaxtar í grunnstarf-
semi félagsins.“
I Ð N A Ð U R
Alcoa tapaði
18 milljörðum
á síðasta
fjórðungi
Segir upp 8.000 manns og end-
urskipuleggur rekstur
GREININGADEILDIR bankanna spá því
að hagnaður fyrirtækja í Úrvalsvísitölunni
muni aukast um 218% milli áranna 2001 og
2002, eða úr tæpum 12 milljörðum króna í
tæpa 38 milljarða króna. Þessi rúmlega þref-
öldun hagnaðarins nemur tæpum 26 milljörð-
um í krónum talið, en skiptist misjafnt niður á
fyrirtækin 15 sem eru í Úrvalsvísitölunni. Öll-
um er þeim þó spáð auknum hagnaði, fyrir ut-
an tryggingafélögin tvö, Sjóvá-Almennar og
Tryggingamiðstöðina. Samkvæmt meðalspá
greiningadeildanna lækkar hagnaður þeirra
nokkuð milli ára, eða um 9%. Ástæður þessa
eru minni fjármunatekjur og meiri tjón, og
dugar söluhagnaður ekki til að vega þetta upp.
Mest breyting til batnaðar er hjá sam-
göngufyrirtækjunum tveimur, Flugleiðum og
Eimskipafélaginu. Bættur árangur Flugleiða
samkvæmt milliuppgjörum kom nokkuð á
óvart á árinu, en mikil endurskipulagning
varð hjá félaginu. Samanburður Eimskipa-
félagsins milli ára er erfiður vegna samruna
við stór sjávarútvegsfyrirtæki og breytingar á
færslu hlutabréfaeignar dótturfélagsins Burð-
aráss. Þar við bætist að samanburður milli ára
er almennt erfiður hjá félögunum 15 vegna
þess að gengishækkun krónunnar á árinu
hafði jákvæð áhrif á fjármagnsliði rekstrarins.
Samkvæmt spánum er aukning hagnaðar
fyrir afskriftir og fjármagnsliði, EBITDA,
minni en þegar litið er til hagnaðar eftir
skatta, eða 47%. Skýrist þetta meðal annars af
fyrrgreindum áhrifum fjármagnsliða. Aukn-
ing hagnaðar fyrir afskriftir skýrist meðal
annars af því að sum félög hafa stækkað vegna
sameiningar. Má í því sambandi nefna Bakka-
vör, Pharmaco og Eimskipafélagið.
Hagnaður fyrir afskriftir dróst samkvæmt
spánum saman hjá fjórum af þeim níu fyr-
irtækjum í Úrvalsvísitölunni sem þessi stærð
á við um. Eitt þessara fyrirtækja er Samherji,
en framlegð sjávarútvegsfyrirtækja lækkaði á
árinu vegna hækkunar gengis krónunnar. Þá
er því einnig spáð að framlegð olíufélaganna
tveggja, Kers og Skeljungs, lækki milli ára,
sem að hluta til skýrist af því að þau tóku þátt í
að verja rauða strikið í maí í fyrra. Loks er að
meðaltali spáð lækkun framlegðar hjá Baugi,
en mikill munur er að vísu á þessum spám og
óvissan um framlegð Baugs er samkvæmt því
töluverð.
Þreföldun hagnaðar
Spáð er rúmlega þreföldun hagnaðar fyrirtækja í Úrvalsvísitölunni milli áranna 2001 og
2002. Gengishagnaður er stór hluti skýringarinnar og framlegð eykst mun minna.
!
"
#$
%&
%&'()* +,
%&
-, +
.
)
!
" )
/ )
+
)
!
" )
/ )
+
(
(
0112
3-4*
0112
56
7&'
8+(
( ,&
+
Miðopna: Reiðuleysi í höfnunum
2003 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
BOÐIÐ UPP Á ÓVISSUFERÐ Í PORTÚGAL / C2
DÓMSTÓLL Knattspyrnusam-
bands Evrópu, UEFA, úrskurðaði í
gær Lee Bowyer, Leeds, í sex
leikja bann í keppni á vegum
UEFA. Bannið fær Bowyer fyrir að
traðka á Gerardo, leikmanni
Malaga, í leik liðanna á Elland
Road 12. desember, þegar Leeds
var slegið út úr Evrópukeppninni.
Búist hafði verið við þriggja leikja
banni en niðurstaðan eru sex leikir
og hefur Bowyer frest fram á
sunnudag til að áfrýja niðurstöðu
dómsins.
Búist er við að Bowyer fari til
West Ham á næstu dögum. Leik-
maðurinn er 26 ára gamall og á
skrautlegan feril, bæði innan vallar
og utan. Hann á einn landsleik að
baki en Sven-Göran Eriksson hefur
ekki sýnt honum áhuga.
Eftir að hafa verið tvö tímabil
hjá Charlton fór hann til Leeds árið
1996 og stóð sig vel sem miðjumað-
ur og skoraði mikið af mörkum. En
skapið var erfitt. Í febrúar fékk
hann sex leikja bann fyrir að gefa
Gary McAllister, Liverpool, oln-
bogaskot og fyrir að blóta Jeff Win-
ter dómara í leik á móti Arsenal.
Í júlí 1996 fékk hann 4.500 punda
sekt fyrir að lenda í slagsmálum á
McDonalds í suðurhluta Lundúna.
Hann og Jonathan Woodgate voru
síðan ákærðir fyrir að hafa tekið
þátt í ruddalegri árás á 19 ára
gamlan asískan námsmann í Leeds.
Þeir voru sýknaðir.
Bowyer var sektaður um 64.000
pund af Leeds og þegar hann neit-
aði að greiða sektina var hann sett-
ur á sölulista. Hann borgaði og var
tekinn af sölulista en minnstu mun-
aði að hann yrði seldur til Liver-
pool í júlí fyrir 9 milljónir punda,
en af því varð ekki þar sem Liver-
pool og Bowyer náðu ekki sam-
komulagi.
Við fórum yfir okkar mál og mark-miðssetningu hópsins. Fyrsta
skrefið er að við tryggjum okkur upp
úr riðlinum á sem bestan hátt og í
framhaldinu að við setjum stefnuna
á að tryggja okkur að komast inn á
Ólympíuleikana í Aþenu 2004,“ sagði
Guðmundur Þ. Guðmundsson í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Við gerum okkur vel grein fyrir
því að þetta eru háleit markmið og
við erum meðvitaðir um að við verð-
um að spila mjög vel og standa okkur
framúrskarandi vel til að þetta ná-
st,“ bætti Guðmundur við.
Þess má að geta að aðeins fjórir
eikmenn í íslenska landsliðshópnum
hafa tekið þátt í Ólympíuleikum.
Guðmundur Hrafnkelsson var á leik-
unum í Seoul í S-Kóreu 1984, og í
Barcelona 1988 og þeir Patrekur Jó-
hannesson, Gústaf Bjarnason og Sig-
urður Bjarnason voru í Barcelona.
18 leikmenn til Danmerkur
Landsliðið stendur í ströngu þessa
dagana en í dag heldur liðið til Dan-
merkur og leikur þar á fjögurra
þjóða móti um helgina. Annað kvöld
eika Íslendingar við Pólverja, gegn
Dönum á laugardag og lokaleikurinn
verður við Egypta á sunnudag.
Markverðir:
Guðmundur Hrafnkelsson, Con-
versano
Roland Valur Eradze, Val
Birkir Ívar Guðmundss., Haukum
Horna- og línumenn:
Guðjón Valur Sigurðsson, Essen
Gústaf Bjarnason, Minden
Einar Örn Jónsson, Mannsenheim
Sigfús Sigurðsson, Magdeburg
Róbert Gunnarsson, Århus
Róbert Sighvatsson, Wetzlar
Útileikmenn:
Gunnar Berg Viktorss., París SG
Rúnar Sigtryggsson, Ciudad Real
Heiðmar Felixson, Bidasoa
Snorri Steinn Guðjónsson, Val
Aron Kristjánsson, Haukum
Sigurður Bjarnason, Wetzlar
Patrekur Jóhannesson, Essen
Ólafur Stefánsson, Magdeburg
Dagur Sigurðsson, Wakunaga
Leikmennirnir fjórir sem duttu úr
úr hópnum voru Bjarki Sigurðsson,
Val, Markús Máni Michalesson, Val
Elvar Guðmundsson, Ajax í Dan-
mörku, og Logi Geirsson, FH, sem
varð að draga sig út vegna meiðsla.
Guðmundur segir að 16–17 leikmenn
verði svo valdir í endanlegan hóp
fyrir HM og segist hann ekki vera
búinn að ákveða hvort hann fari með
tvo eða þrjá markverði.
„Það má segja að mótið í Dan-
mörku sé generalprufa fyrir HM.
Við getum vonandi stillt okkar
strengi saman í vörn og sókn og bætt
þá hluti sem hafa ekki verið í lagi í
síðustu leikjum,“ sagði Guðmundur,
sem hefur áhyggjur af meiðslum
leikmanna sinna – Dagur, Patrekur,
Sigfús og Gústaf hafa allir verið frá
vegna meiðsla.
KOBE Bryant, körfuknattleiks-
maðurinn snjalli hjá Los Angeles
Lakers, fór á kostum í fyrrinótt og
setti tvö ný met í deildinni í
þriggja stiga skotum. Bryant skor-
aði úr 12 slíkum þegar Lakers
vann Seattle, 119:98, og hitti úr
níu skotum í röð fyrir utan þriggja
stiga línuna. Dennis Scott átti
fyrra metið, ellefu þriggja stiga
körfur.
Bryant, sem hafði aldrei áður
skorað meira en fimm þriggja
stiga körfur í leik, skoraði 11 af
þessum 12 í öðrum og þriðja leik-
hluta. Hann hefur oft sagt að hann
sé engin þriggja stiga skytta, en
sú fullyrðing stenst varla lengur.
Phil Jackson, þjálfari Lakers,
sem hefur unnið níu NBA-titla
með Lakers og Chicago og þjálfaði
Michael Jordan árum saman,
kvaðst aldrei hafa séð aðra eins
skotsýningu á ferli sínum.
Bryant svaraði þegar hann var
spurður hvort hann hefði einhvern
tíma leikið betur: „Kannski einu
sinni, þegar ég var 7 ára, á Ítalíu.
Ég skoraði 63 stig á móti 14 ára
strákum!“ Hann skoraði samtals
45 stig í leiknum, á 37 mínútum,
og fór af velli, undir dynjandi lófa-
taki 18 þúsund áhorfenda þegar
rúmar fjórar mínútur voru eftir.
Brian Shaw, fyrrum bakvörður
Lakers sem átti metið á árum áð-
ur, 10 í leik, hristi höfuðið þegar
fréttamenn ræddu við hann eftir
leikinn. „Boltinn snerti ekki einu
sinni körfuhringinn, hann fór allt-
af beint í netið,“ sagði Shaw.
Meisturum Lakers hefur gengið
afspyrnuilla í vetur en virðast nú
vera að braggast. Þetta var fjórði
sigur þeirra í fimm leikjum, og
hann var mikilvægur því Seattle
er næst fyrir ofan þá á töflunni.
Lakers er enn aðeins í 10. sæti á
vesturströndinni en átta efstu
komast í úrslit, og liðið í 8. sæti,
Minnesota, er enn sex sigrum á
undan.
UTANDEILDARLIÐIÐ Farnborough Town
hefur fengið grænt ljós frá enska knattspyrnu-
sambandinu, FA, þess efnis að liðið leiki heima-
leik sinn í fjórðu umferð ensku bikarkeppn-
innar á heimavelli meistaraliðsins Arsenal,
Highbury í Norður-London.
Enska sambandið telur að öryggi þeirra
4.100 áhorfenda sem komast fyrir á heimavelli
Farnborough Town sé ekki tryggt, leiki liðið
gegn Arsenal á heimavelli.
Sjónvarpsstöðin Sky Sports hafði boðið Farn-
borough Town um 32 milljónir ísl. kr. fyrir
sjónvarpsréttinn hefði liðið leikið á heimavelli
gegn Arsenal, en þess í stað mun Sky sýna leik
Gillingham gegn Leeds.
Farnborough Town mun aftur á móti fá
helming af andvirði miðasölu á Highbury, en
þar er pláss fyrir 38.500 áhorfendur
Farnborough
leikur á Highbury
Bowyer í
sex leikja
Evrópubann
Reuters
Kobe Bryant fór á kostum með Los Angeles Lakers.
Kobe Bryant með sýningu
Markmiðið
að komast
til Aþenu
LANDSLIÐSHÓPURINN í handknattleik ásamt þjálfurum þess og
aðstoðarmönnum fundaði á Hótel Loftleiðum í gær og þar setti hóp-
urinn sér þau markmið að tryggja Íslandi sæti á Ólympíuleikunum í
Aþenu árið 2004. Til þess að þetta markmið verði að veruleika
þurfa Íslendingar að hafna í einu af sjö efstu sætunum á HM í Portú-
gal sem hefst eftir 11 daga.
Guðmundur Þ. Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 37/39
Erlent 20/23 Bílar 40
Höfuðborgin 24 Minningar 41/48
Akureyri 25 Bréf 52
Suðurnes 28 Kirkjustarf 53
Landið 29 Dagbók 54/55
Neytendur 30 Fólk 56/61
Listir 30,31/36 Bíó 58/61
Forystugrein 32 Ljósvakamiðlar 62
Viðhorf 36 Veður 63
* * *
EFNAHAGSSKRIFSTOFA fjár-
málaráðuneytisins gengur út frá
því að raunvextir á langtímalánum
hækki um 2% á aðalframkvæmda-
tíma til ársins 2006 vegna álvers
Alcoa í Reyðarfirði og stækkunar
Norðuráls á Grundartanga. Á
sama tíma gerir ráðuneytið ráð
fyrir 10% samdrætti á fjárfesting-
um hins opinbera en frá árinu 2007
til 2010 muni fjárfestingar aukast
á ný og raunvextir lækka. Reiknað
er með að hagvöxtur verði á fram-
kvæmdatíma mestur 5–7% og
verðbólga 5–8%.
Matið var unnið að beiðni iðn-
aðarráðuneytisins og fylgir með
frumvarpi ráðherra vegna álvers
Alcoa, sem lagt verður fram á
komandi vorþingi.
Álframleiðsla þrefaldist
Í mati fjármálaráðuneytisins
kemur m.a. fram að gangi áform
um álversframkvæmdir eftir verði
þær hinar mestu sem orðið hafa
hér á landi. Álframleiðsla muni
nær þrefaldast og heildarfjárfest-
ing, ásamt virkjunum, til ársins
2010 nemi um 250 milljörðum
króna.
Árleg vinnuaflsnotkun er áætluð
um 2 þúsund ársverk, eða ríflega
1,25% af heildarframboði vinnuafls
yfir tímabilið 2004–2006. Á þessum
árum yrði fjárfesting alls í hag-
kerfinu um 55% meiri. Hagvöxtur
gæti orðið 5–7% þegar hann yrði
sem mestur og atvinnuleysi um
eða innan við 1%.
Reiknað með 2% hækkun
raunvaxta til ársins 2006
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Starfsmenn Arnarfells eru hér við bergstálið við munna aðkomuganga tvö
að aðrennslisgöngum Kárahnjúkavirkjunar. Frá vinstri Guðmundur Axel
Grétarsson, Rafn Vilhjálmsson og Sigurbergur Konráðsson, einn eigenda
Arnarfells. Aðkomugöngin munu ná um 2.700 m inn undir Fljótsdals-
heiðina að mótum Kárahnjúkaganganna og ganga frá Jökulsá í Fljótsdal
úr Ufsarlóni.
Áhrif stóriðjuframkvæmda á þjóðarbúið
Stöðnun/10
sinni. Hann sjáist oft í skólanum og
sé svo við útskrift nemenda.
Býr til myndverk
„Ég sérhæfði mig í hönnun. Það
er til dæmis hönnun leikmynda,
búninga og ljósa.“ Hún hefur verið
að vinna við að hanna vídeóverk
við tónlist. Myndskeiðunum er svo
varpað á tjald á tónleikum og er
hluti af sviðsmynd hljómsveit-
arinnar. Þá blandar hún mynd-
unum saman við tónlistina til bæta
við upplifun áhorfandans.
Sigrún býr í Brighton á Englandi
og segir að verkefnavalið hafi ver-
ið ágætt síðan hún lauk námi. Hún
hafi þó hug á því að koma heim til
Íslands ef tækifæri gefast hér.
SIGRÚN Hrefna Lýðsdóttir út-
skrifaðist síðasta sumar úr listahá-
skóla í Bretlandi, Liverpool Insti-
tute for Performing Arts, sem
kenndur er við Bítilinn Paul
McCartney. Að sögn Sigrúnar er
hún fyrsti Íslendingurinn sem út-
skrifast úr skólanum. Nokkrir hafa
þó stundað nám þar áður.
Hún segir að í skólanum sé kennt
ýmislegt sem snýr að listum, menn-
ingu og skemmtun. Hægt sé að
velja ýmis svið eins og tónlist, dans,
leiklist, hönnun og þjálfun í upp-
setningu og umsjón verkefna.
Paul McCartney er aðalstyrktar-
aðili skólans. Sigrún segir að hann
taki tónlistarnemana í sérstakan
kennslutíma og miðli af reynslu Paul McCartney ræðir við Sigrúnu Hrefnu Lýðsdóttur á útskriftardaginn.
Lærði hönnun í listahá-
skóla Pauls McCartneys
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
fer um helgina til Japans í opinbera
heimsókn en formleg heimsókn hefst
14. janúar og
stendur í þrjá
daga. Í heimsókn-
inni mun Davíð
m.a. eiga fund
með Junichiro Ko-
izumis, forsætis-
ráðherra Japans.
Davíð hittir
einnig japanska
þingmenn í heim-
sókninni, en í Jap-
an er starfandi þingmannanefnd sem
sér um samskipti við Ísland. Nefndin
kom til Íslands síðastliðið sumar og
átti þá fund með Davíð Oddssyni.
Davíð mun einnig hitta fleiri japanska
stjórnmálaleiðtoga. Þá mun hann
ræða við fulltrúa japanskra fyrir-
tækja. Í undirbúningi hefur verið að
stofna Íslenskt-japanskt verslunar-
ráð í Japan og verður Davíð viðstadd-
ur stofnfundinn og flytur ávarp.
Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri
í forsætisráðuneytinu, sagði að í
heimsókninni yrði sérstaklega rætt
um samgöngumál og ferðaþjónustu.
Davíð og samgönguráðherra Japans
myndu ræða þessi mál á fundi. Við-
ræður hafa staðið yfir um gerð loft-
ferðasamnings milli Íslands og Jap-
ans og sagði Ólafur að það mál yrði
rætt við japönsk stjórnvöld. Enn
fremur yrðu ræddar leiðir til að fjölga
heimsóknum japanskra ferðamanna
til Íslands. Japanir opnuðu sendiráð á
Íslandi á síðasta ári og ekki er langt
síðan Íslendingar opnuðu sendiráð í
Tókýó. Árið 1999 kom fyrrverandi
forsætisráðherra Japans, Keizo
Obuchi, til Íslands en hann sat leið-
togafund Norðurlandanna í Reykja-
vík.
Davíð
Oddsson
til Japans
Davíð
Oddsson
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær 24 ára karlmann, Þór
Sigurðsson, í 16 ára fangelsi fyrir að
verða Braga Óskarssyni að bana á
gangstétt við Víðimel aðfaranótt 18.
febrúar sl. Í dómnum er árásin sögð
tilefnislaus og sérlega hrottafengin.
Svo virðist sem æði hafi runnið á hinn
ákærða sem stafi líklega af fíkniefna-
neyslu.
Fyrir dómi sagðist Þór hafa verið í
mikilli neyslu fíkniefna um margra
vikna skeið áður en hann framdi
morðið og kvaðst hafa verið undir
verulegum áhrifum þeirra umrædda
nótt. Kvaðst hann hafa verið á leið í
innbrot á fyrrum vinnustað sinn,
dekkjaverkstæði í vesturbæ Reykja-
víkur, og þess vegna verið með slag-
hamar, kjötexi og sveðju meðferðis. Á
Víðimel hefði hann rekist á Braga og
misst verkfærin. Þegar hann var að
tína þau til aftur hefði Bragi sagt eitt-
hvað við sig sem hann mundi ekki
hvað var en við það hefði hann orðið
illur og ráðist að Braga. Sagðist hann
nánast ekki muna annað en hann
hefði slegið hann einu sinni. Fram
kemur í dómnum að réttarmeina-
fræðingur fann um 20 áverka á hinum
látna, 11 sem samsvöruðu því að vera
veitt með slaghamri og 8–9 eftir bit-
vopn. Kvaðst hann ekki muna eftir að
hafa veitt Braga þessa áverka og ekki
gert sér grein fyrir að hann hefði ban-
að honum fyrr en daginn eftir þegar
hann sá fréttir í sjónvarpi. Hann aftók
að hafa ráðist á Braga til að ræna
hann og neitaði að hafa komið aftur á
staðinn og fært hann úr stað eða
dregið úlpuna yfir höfuð hans. Um
þetta kvaðst hann vera viss.
Hræðilegar afleiðingar
fíkniefnaneyslu
Geðlæknir sem kannaði geðheil-
brigði Þórs mat hann sakhæfan, taldi
hann ekki eiga við geðsjúkdóma að
stríða eða persónuleikabresti. Hann
væri búinn ágætum gáfum og mörg-
um góðum hæfileikum en hefði ungur
byrjað að drekka áfengi og fyrir
tveimur árum ánetjast fíkniefnum.
Það væri e.t.v. óvanalegt við hans mál
að hann hefði neytt fíkniefna í tiltölu-
lega stuttan tíma. Hér væri því um að
ræða hræðilegar afleiðingar mikillar
fíkniefnaneyslu. Taldi geðlæknirinn
ólíklegt að Þór myndi fremja viðlíka
glæp væri hann ekki undir áhrifum
fíkniefna.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir að
hinn ákærði beri sjálfur fulla ábyrgð á
því að hafa verið undir áhrifum vímu-
efna og taldi hann ekki eiga sér nein-
ar málsbætur. Var hann því dæmdur í
16 ára fangelsi og til að greiða móður
hins látna eina milljón í miskabætur
auk útfararkostnaðar.
Héraðsdómararnir Hjördís Há-
konardóttir dómsformaður, Guðjón
St. Marteinsson og Helgi I. Jónsson
kváðu upp dóminn. Sigríður J. Frið-
jónsdóttir saksóknari flutti málið f.h.
ríkissaksóknara. Skipaður verjandi
var Björn L. Bergsson hrl. en Helga
Leifsdóttir var skipuð réttargæslu-
maður móður hins látna.
24 ára karlmaður dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp við Víðimel
Atlagan tilefnis-
laus og sérlega
hrottafengin