Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 45
byrja með á innflutningi véla og
varnings til notkunar í landbúnaði og
því kynntist hann vel störfum ís-
lenkra bænda og eignaðist marga
góða vini meðal þeirra. Hjarta hans
sló með þeim í blíðu og stríðu og
hann lét sér ekki nægja að eiga við
þá viðskipti heldur vildi einnig hjálpa
þeim til þess að bæta land sitt og um-
hverfi. Hann stundaði því bæði
mannrækt og jarðrækt auk þess að
stjórna stóru fyrirtæki og berjast
ótrauður fyrir einu mesta hags-
munamáli þjóðarinnar, auknu frelsi
og bættri aðstöðu í viðskiptum.
Samtök verslunarinnar þakka
Árna Gestssyni störf hans og sam-
ferðina að leiðarlokum og senda að-
standendum hans samúðarkveðjur.
Haukur Þór Hauksson,
formaður.
Þeim fækkar vinunum í GBK,
Gufubaðsklúbbnum skemmtilega,
sem áratugum saman mætti í hádeg-
inu á laugardögum í baðhúsinu í
Nauthólsvík sér til hressingar og
ánægju. Þegar það hús var rifið
haustið 2000 lögðust gufubaðsferðir
klúbbsins niður en eftir lifir minn-
ingin um glaðværa vinafundi þar
sem græskulaus glettni og gaman-
samar frásagnir voru í hávegum
hafðar með hnyttnum tilsvörum og
tilheyrandi hlátrasköllum klúbb-
félaganna.
Árni Gestsson forstjóri, ein styrk-
asta stoð þessa vinaklúbbs og einn af
stofnendum hans fyrir nærfellt 60
árum, er nú fallinn frá 82 ára að
aldri. Hann lét sér frá upphafi einkar
annt um tilvist þessa hóps og lagði
sig fram um að þótt aldurinn færðist
yfir félagsmenn létu þeir ekki merk-
ið falla en héldu uppi þeim gamla
góða sið að hittast reglulega sér til
skemmtunar.
Í áratugi var GBK stjórnað af
festu og röggsemi af þeim bráð-
fyndna gleðigjafa, Ágústi Bjarnasyni
skrifstofustjóra, sem fyrir vikið
ávann sér tignarheitið „forseti“, en
við fráfall hans 1994 var Árni Gests-
son einróma valinn til forystu. For-
setastarfinu gegndi hann síðan af al-
kunnum dugnaði sínum, rausn og
höfðingskap í sex ár þar til undirrit-
aður tók við tigninni samkvæmt ósk
Árna og hinna félaganna í GBK.
Þessi ágæti gufubaðsklúbbur hóf
göngu sína á stríðsárunum, trúlega
1943, í íþróttahúsi Jóns Þorsteins-
sonar við Lindargötu, þar sem Þjóð-
leikhúsið starfrækir nú „Litla svið-
ið“. Um 1950 flutti klúbburinn
starfsemi sína í baðhúsið í Nauthóls-
vík og mætti þar síðan í gufuböð þar
til húsið var rifið.
Frumkvöðlarnir að stofnun GBK
voru auk þeirra Árna Gestssonar og
Ágústs Bjarnasonar þeir Sigfús
Bjarnason, forstjóri í Heklu, Hans
R. Þórðarson forstjóri og Ólafur
Jónsson forstjóri, báðir kenndir við
fyrirtæki sitt, Elektric, Helgi Þór-
arinsson, síðar forstjóri SÍF, og Jó-
hann Fr. Guðmundsson skrifstofu-
stjóri. Síðar bættust í hópinn Bragi
Kristjánsson, framkvæmdastjóri hjá
Landsíma Íslands, dr. Sigurður
Samúelsson prófessor, Geir Hall-
grímsson forsætisráðherra, Lýður
Björnsson forstjóri, dr. Gunnlaugur
Snædal prófessor, dr. Árni Kristins-
son yfirlæknir, Ragnar Bernburg
frkvstj., Tómas Árni Jónasson yfir-
læknir, Gunnar Biering yfirlæknir,
Ingimundur Sigfússon ambassador
og undirritaður.
Árni var sem kunnugt er mikill at-
hafnamaður í viðskiptum, einkan-
lega á vettvangi innflutningsverslun-
ar og var lengst af kenndur við
Glóbus, fyrirtæki sem hann keypti
ungur að árum og rak af miklum
myndarskap og atorku og gerði með
fjölskyldu sinni að einhverju um-
svifamesta innflutningsfyrirtæki
landsins um árabil. Hann lét og fé-
lagsmál sig miklu varða og var um
sinn í stjórn Félags stórkaupmanna
og varaformaður Verslunarráðs Ís-
lands og í bankaráði Verslunarbank-
ans og formaður þess um sinn. Hann
hafði mikinn áhuga á kornrækt og
landgræðslu og var formaður félags
um kornrækt á Rangárvöllum og
beitti sér fyrir landssöfnun til að
stöðva jarðvegs- og gróðureyðingu á
Haukadalsheiði. Voru honum veitt
Landgræðsluverðlaunin 1994.
Árni kvæntist Ástu Jónsdóttur
1943 en hún lést fyrir tveimur árum.
Þau hjón voru miklir höfðingjar
heim að sækja, bæði í Reykjavík og
sumarhúsi þeirra að Helluvaði á
Rangárvöllum. Nutum við félagarnir
í GBK rausnarlegrar gestrisni
þeirra hjóna oftsinnis og hafði Árni
orð á því síðast þegar ég talaði við
hann um miðjan nóvember sl. að
hópurinn þyrfti endilega að heim-
sækja sig næsta vor að Helluvaði.
En nú er Árni fallinn frá og ferð-
um okkar í GBK að Helluvaði eru bú-
in sömu örlög og gufubaðsferðunum
okkar, að þeim er hér með lokið. Eft-
ir lifa allar góðu og skemmtilegu
minningarnar sem við getum áfram
ornað okkur við.
Við klúbbfélagar söknum góðs
vinar og mikils rausnarmanns og er-
um innilega þakklátir fyrir að hafa
átt Árna Gestsson að kunningja og
vini í öll þessi ár.
Við vottum fjölskyldu hans allri
dýpstu samúð okkar á saknaðar- og
sorgarstundum.
Baldvin Tryggvason.
Ég kynntist orðspori Árna Gests-
sonar fyrir mörgum árum. Einnig
sögunni á bakvið Globus hf., hvernig
Árni hafði af úrræðasemi og hyggju-
viti viðskiptamannsins byggt Globus
upp. Allt frá litlu fyrirtæki, stofnuðu
1947, upp í eitt af stærri fyrirtækjum
landsins. Leiðir okkar lágu síðan
saman fyrir nokkrum árum þegar ég
réðst til fyrirtækisins. Árni hafði þá
hætt daglegu amstri fyrir aldurssak-
ir. Hann var í lokin stjórnarformað-
ur fyrirtækisins og hefur nú sleppt
hendi af þessu eftirlætis verkefni
sínu.
Í huga þessa aldna frömuðar
brann eldur viðskiptamannsins til
síðustu mánaða og hann fylgdist
grannt með innlendum og erlendum
viðskiptum og fréttum. Heimsóknir
Árna á skrifstofur okkar í Globus
síðustu árin voru tíðar, varla sú vika
að hann kíkti ekki inn, settist niður
og spurði: „Jæja, og hvernig gengur
svo?“ Fátt er eins hvetjandi fyrir þá
sem yngri eru en að finna kraft og
áhuga stofnandans. Það er lán
starfsmanna að samskiptin við hann
voru mikil. Þrátt fyrir að við séum að
kveðja fyrrum vinnuveitanda, eig-
anda og samstarfsmann, sumra til
áratuga, þá verður eftir hjá okkur
hluti af reynslu hans og viðskipta-
kunnáttu. Þá reynslu og áunnu
þekkingu nýtum við á margan hátt
daglega, reynslu sem hvergi fæst
keypt í hugbúnaðarpökkum tölvu-
aldar. Stutt tilvitnun lýsir e.t.v. Árna
vel og því viðhorfi hans að viðskipti
snúast um meira en að selja. Þau
snúast um að þekkja viðskiptavinina,
bakgrunninn og lífsumhverfið í
kringum þá!
Ég hitti í haust eldri mann, fyrr-
um bónda og verkstæðisrekanda af
landsbyggðinni. Hann spurðu m.a.
frétta af Árna. Sagði hann í spjalli
okkar: „Það var alltaf gott að koma
við í Globus, frábært starfsfólk og
alltaf opið inn til Árna og vel tekið á
móti manni. Það var boðið sæti, jafn-
vel vindill og Árni vildi jafnan vita
hvernig búskapurinn gengi, verk-
stæðisreksturinn og spurði ávallt af
áhuga um allt mannlífið.“
Við, starfsmenn Globus hf., þökk-
um Árna Gestssyni við leiðarlok góð
kynni og samstarfið í fyrirtækinu.
Einnig þann áhuga sem hann sýndi
okkur og verkefnum sem við vorum
að fást við með heimsóknum, spjalli
og samtölum síðustu árin. Guð varð-
veiti þig, kæri vinur, við varðveitum
minninguna.
Fyrir hönd starfsmanna
Globus hf.,
Pálmi Pálmason.
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 45
✝ Marta Svein-björnsdóttir
fæddist í Vestmanna-
eyjum 14. nóvember
1927. Hún lést á
Líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
2. janúar síðastliðinn.
Marta var dóttir
Sveinbjörns Einars-
sonar, f. 12. júní
1890, d. 13. ágúst
1984, og Guðbjargar
Ingvarsdóttur, f. 28.
júní 1897, d. 2. sept-
ember 1987. Systkini
Mörtu eru Fanney,
Ingvi og Daníel, sem eru látin og
eftirlifandi systur, Svava, búsett í
Reykjavík, og Jenný, búsett í Sví-
þjóð.
Marta giftist Ágústi Hallssyni,
f. 28. apríl 1924, d. 10. janúar
1986, þau slitu samvistum, synir
þeirra eru Björn, f.
13. nóvember 1946,
maki Guðfinna Hall-
dórsdóttir, þau eru
búsett í Ástralíu, og
Ingvi, f. 7. júní 1948,
maki Anna K. Norð-
dahl.
Seinni eiginmaður
Mörtu var Einar
Ólafur Gíslason, f. 6.
apríl 1929, þau slitu
samvistum, dóttir
þeirra er Kristín, f.
24. júní 1957, d. 13.
júní 2000, maki Pét-
ur Þór Jónsson.
Marta starfaði um árabil sem
flugfreyja, síðan við verslunar- og
þjónustustörf í Reykjavík til
margra ára.
Útför Mörtu verður gerð frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Marta mín, nokkur kveðjuorð að
lokum. Það er ekki langt síðan að
ég settist niður og skrifaði nokkur
orð til hennar Krissu okkar, þá
stóðst þú, Marta mín, eins og
klettur og studdir okkur hin í
sorginni, þó að sorg þín væri mikil.
Nú rúmum tveimur árum seinna
kveður þú okkur hér og ferð í
ferðalagið mikla. Þú sagðist ekki
kvíða því, þú værir viss um líf eftir
dauðann og að þið Krissa og allir
hinir myndu hittast hinum megin.
Þegar við töluðum saman eftir að
þú veiktist sagðist þú nú alveg
vera til í nokkur ár í viðbót en ef
þinn tími væri kominn þá værir þú
tilbúin.
Ég vil þakka þér samfylgdina í
gegnum tíðina og ég veit að þú lít-
ur til okkar sem erum hér. Bið að
heilsa.
Elsku Sandra mín, Pétur, Maggi
og Ingvi minn, mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Anna.
Fjallið sem þögult fylgdi mér eftir hvert
skref
hvert fótmál sem ég steig, nú er það
horfið.
Á beru svæði leita augu mín athvarfs.
Um eilífð á burtu fjallið sem fylgdi mér
eftir
til fjærstu vega, gnæfði traust mér að
baki.
Horfið mitt skjól og hreinu, svalandi
skuggar.
Nú hélar kuldinn hár mitt þegar ég sef
og hvarmar mínir brenna þegar ég vaki.
(Hannes Pét.)
Elsku amman mín, Guð geymi
þig og dreymi þig vel.
Minningin um einstaka og góða
konu mun lifa.
Þín,
Sandra Sif.
Fallinn er í valinn félagi okkar
til margra ára og stjórnar-
meðlimur í Félagi áhugamanna um
stjörnulíffræði. Við hjónin
kynntumst Mörtu á árunum ’70 og
’71 er við vorum félagar í Félagi
nýalssinna. Skilningur á eðli heims
og lífs var okkar akkeri í lífsins
ólgusjó hvert á sinn hátt. Marta
var mjög ötull félagsmaður og
vann óeigingjarnt starf fyrir félag-
ið og liðsheildina. Hún hafði mikla
tiltrú og var töluvert magnaður
einstaklingur, enda sóttu sitjarar í
nærveru hennar til að njóta orku-
streymisins frá henni. Samkvæmt
okkar lífssýn og skilningi hefur
Marta fengið nýjan og skaðlausan
líkama sem verður með tímanum
fagur og bjartur vegna þeirra eðl-
iskosta er hún bjó yfir. Hún þurfti
eins og margur annar að beygja
sig fyrir illvígum sjúkdómi er gekk
nokkuð hratt yfir. Því miður segj-
um við félagar hennar, því hugur
okkar stefndi á annað. Hennar er
sárt saknað af hópnum. Við fé-
lagarnir sendum ástvinum hennar
okkar dýpstu samúðar- og þakk-
lætiskveðjur fyrir að hafa fengið
að njóta hennar og og ekki hvað
síst að kynnast henni.
Atli Hraunfjörð og
Sigríður Guðmundsdóttir.
Sárt er vinar að sakna,
sorgin er djúp og hljóð.
Minningarnar mætar vakna,
svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta,
lýsir upp myrkrið svarta
vinir þó falli frá.
Góðar minningar geyma,
gefur syrgjendum ró.
Til þín munu þakkir streyma,
þér munum við ei gleyma,
sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Með þessu ljóði kveðjum við
kæra vinkonu okkar, Mörtu Svein-
björnsdóttur, sem lést 2. janúar sl.
Marta var einstaklega traustur og
góður félagi í áratugi bæði í blíðu
og stríðu. Hún lifði og dó með
reisn og undarlegt er að þessi
sterka kona skuli nú vera horfin
okkur svona skyndilega. Hún skil-
ur eftir sig tóm sem virðist vand-
fyllt á þessari stundu. Við sendum
Söndru og öðrum aðstandendum
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Bryndís, Guðrún, Einara
og Sigurbjörg.
MARTA SVEIN-
BJÖRNSDÓTTIR
Kæra Marta, takk fyrir allt sem
þú gafst okkur. Blessuð sé minn-
ing þín.
Gíslína, Gunnar, Lárus,
Jón Úlfar og samstarfsfólk
í Sigluvogi.
HINSTA KVEÐJA
Látið minninguna lifa um ókomna tíð á gardur.is!
upplýsingar í síma 585 2700 eða hjá útfararstjórum.
gardur.is
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, sonur
og bróðir,
GYLFI HARÐARSON,
Vestmannabraut 33,
Vestmannaeyjum,
lést að heimili sínu fimmtudaginn 2. janúar. Útför
hans fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 11. janúar kl. 14.00.
Gylfi Anton Gylfason, Linda Hrönn Ævarsdóttir,
Ólafur Þór Gylfason, Ingibjörg Arnarsdóttir,
Unnur Heiða Gylfadóttir, Þröstur Friðberg Gíslason,
Bjarki Týr Gylfason, Sigríður Reynisdóttir,
Unnur Jónsdóttir,
barnabörn og systkini hins látna.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
JÓHANNA G. DAVÍÐSDÓTTIR,
frá Patreksfirði,
til heimilis á Hrafnistu Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut að kvöldi
laugardagsins 4. janúar sl.
Útför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju
mánudaginn 13. janúar kl. 15.00.
Hrefna Pétursdóttir,
Ólína Björk Pétursdóttir,
Hugrún Pétursdóttir, Marteinn Geirsson,
Pétur K. Pétursson, Anna S. Einarsdóttir
og öll ömmubörnin.
Elskuleg dóttir okkar, systir, mágkona og
frænka,
BJÖRK STEINGRÍMSDÓTTIR,
Tjarnarlundi 10,
Akureyri,
lést þriðjudaginn 7. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Steingrímur Svavarsson, Vordís Björk Valgarðsdóttir,
Sigurður Steingrímsson,
Ólafur Steingrímsson, Þórdís Ása Þórisdóttir,
Sigmar Steingrímsson, Brynja Hergeirsdóttir,
Guðmundur Helgi Steingrímsson, Hannesína Scheving
og frændsystkini hinnar látnu.