Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Olympus Camedia C-220 ZOOM Olympus Camedia C-300 ZOOM Það ætti að geta farið vel um ykkur hérna, herrar mínir. Bara rollugirðingar og óvopnaður vörður. ABC-hjálparstarf Hugsjón varð að veruleika ÞESSA dagana erudagatöl ABC-hjálparstarfs að detta inn um bréfalúgur landsmanna. „Ólaunaður framkvæmdastjóri“ ABC er Guðrún Margrét Páls- dóttir og svaraði hún nokkrum spurningum Morgunblaðsins. – Hver er nú tilurð þessa hjálparstarfs? „Árið 1985 fór ég ein míns liðs í hnattferð eftir að hafa unnið sem hjúkr- unarfræðingur í nokkur ár. Ég fór víða og sá margt. Ólæst og óskrif- andi fólk. Munaðarlaus börn sofandi úti á götu. Ég fékk ákveðna hugsjón að vinna að hjálparstörfum við þetta. Ég kom síðan heim, ákveðin í að halda utan á ný að þremur mánuðum liðnum. Stefnan var tekin á El Salvador. Hins vegar var ég varla komin heim er ég hitti manninn minn og varð við það mjög tvístígandi. Af því að ég hef alltaf verið mjög trú- uð leit ég á þetta sem innígrip og ég krafði því Guð um skýr svör. Tók sex peninga, þrjá tíkalla og þrjár krónur, lokaði augunum og kastaði myntunum upp í loft hverri af annarri og sagði Guði að ef enginn fiskur kæmi upp þá færi ég ekki utan. Ég opnaði síðan augun, safnaði saman peningun- um og það var enginn fiskur. Þetta skoðaði ég sem afgerandi svar og fór ekki. Hins vegar brann hugsjónin áfram og næstu tvö árin vissi ég ekki hvernig ég ætti að finna henni farveg. Þá var það að bróðir minn kom með þessa hugmynd og við stofnuðum sjö saman ABC-hjálparstarf. Ég hef rekið þetta starf síðan.“ – Hvernig er ABC rekið? „Það er sjö manna stjórn, ásamt mér, allir launalausir, og margir sjálfboðaliðar. Síðan eru 2,2 stöðugildi á skrifstofunni þar sem nokkur fyrirtæki og einstak- lingar hjálpa okkur með launin. Húsnæðið er frítt og síðan seljum við jólakort, penna og dagatöl til að standa straum af öðrum rekstri. Erlendis eru fimm traust- ir samstarfsaðilar sem sjá til þess að hver einasta króna skilar sér.“ – Í hverju er þetta starf fólgið? „Þetta er samkirkjulegt hjálp- arstarf sem unnið er í góðu sam- starfi við ýmsa aðila sem hafa hjálpað okkur. Við styrkjum börn í skóla með þeim hætti að fá ein- staklinga og fyrirtæki til að veita framlög. Á Filippseyjum kostar t.d. 1.950 krónur á mánuði að framfleyta einu barni í skóla með fæðispeningum og læknisþjón- ustu. Sömu upphæð kostar að halda úti barni í Úganda þar sem við höfum byggt einkaskóla með mat og læknisþjónustu. Hér er oftast um að ræða munaðarlaus börn í fóstri, eða börn sem búa við erfiðar heimilisaðstæður. Í Úg- anda stendur til að stækka barna- skólann og að auki erum við með unglingaskóla í bygg- ingu. Stærstu verkefn- in eru hins vegar tvö heimili sem við höfum reist og rekum í Ind- landi, Heimili litlu ljós- ana og El Shaddai-barnaheimilið. Á fyrri staðnum eru núna 1.710 börn, en um 150 á hinum. Þarna kostar 3.250 til 3.450 krónur að framfleyta hverju barni á mánuði. Við höfum einnig komið að tveim- ur öðrum heimilum, kornabarna- húsi í Indlandi og barnaheimili í Kambódíu. Heimilin í Indlandi eru víðtækari starfsemi en í hin- um löndunum, þarna búa börnin og stunda nám allt til tvítugs.“ – Framlögin framfleyta börn- unum, en fyrir hvaða peninga reisið þið heimili og skóla? „Aðallega með söfnuninni „Börn hjálpa börnum“ sem hefur verið árleg og fer fram í mars. Ís- lensk skólabörn ganga þá í hús og safna til þessara framkvæmda. Margir skólar hafa aðstoðað okk- ur við þessa söfnun, skipulagt hana í sínum hverfum o.þ.h. Sam- tals fóru héðan um 84 milljónir á síðasta ári, þar af 6 milljónir sem söfnuðust í gegnum „Börn hjálpa börnum“ og í þessum löndum er mikið hægt að gera fyrir svoleiðis upphæðir.“ – Hvernig eru viðtökurnar? „Það gengur bara nokkuð vel í ljósi þess að við erum ekki mikið kynnt. Við erum með tæplega 2.700 stuðningsaðila og margir eru með fleiri en eitt barn á fram- færi. Hæst hefur farið í 30 til 40 börn hjá sama aðilanum. Núna er mest um 12 börn hjá sama aðila og einhver dæmi eru um tíu börn. Það er ekki endilega mjög efnað fólk sem er að láta háar upphæðir í þetta hjálparstarf. Við erum t.d. með verkamann sem er með tíu börn á framfæri.“ – Vantar fleiri styrktaraðila? „Já, t.d. vantar okkur styrkt- araðila fyrir um 300 af 1.710 börn- um á Heimili litlu ljósanna, þar af 210 litlar stúlkur sem koma inn í haust. Styrkara gengi krónunnar hefur hjálpað okkur að halda úti rekstrinum í bili.“ – Hvers konar samband er boð- ið uppá? „Það eru reglulega sendar myndir, bréf og fleira. Eins eigum við myndband frá heimil- unum og fólk getur nálgast það hjá okkur. Í einhverjum tilvikum hefur fólk farið utan til að hitta skjólstæð- inga sína.“ – Er svona hjálp samt ekki bara dropi í hafið? „Það má ekki hugsa þannig. Auðvitað er ógrynni barna sem þarf á svona hjálp að halda, það verður aldrei hægt að mæla þörf- ina, en það skiptir þau börn öllu sem fá slíkan stuðning.“ Guðrún Margrét Pálsdóttir  Guðrún Margrét Pálsdóttir er fædd 15. mars 1959. Stúdent frá MH og BS í hjúkrunarfræði frá HÍ 1982. Starfaði sem hjúkrunar- fræðingur víða næstu árin og stofnaði ABC-hjálparstarf ásamt fleirum 1988 og hefur síðan verið „ólaunaður framkvæmdastjóri“. Maki er Hannes Lenz, trygginga- fulltrúi hjá Sjóvá-Almennum, og eiga þau fjögur börn, Kristínu, 14 ára, Kristófer Pál, 12 ára, Davíð Walter, 5 ára, og Lindu Ragnheiði, 6 mánaða. … en okkur vantar fleiri styrktaraðila
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.