Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 23
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 23 Umsóknarfrestur rennur út 20. jan. 2003. EFNAHAGSTILLÖGUR George W. Bush Bandaríkjaforseta, sem hann kynnti í ræðu í Chicago á þriðjudag, hafa fengið blendnar við- tökur, að sögn fréttavefjar BBC. Þar er lýst tíu ára áætlun repúblikana um að örva efnahaginn, fyrst og fremst með skattalækkunum til að ýta undir neyslu almennings og fjár- festingar fyrirtækja en einnig verð- ur varið nokkru fé til ýmissa verk- efna sem talin eru geta aukið hagvöxt. Fyrirhugaðri lækkun tekjuskatts, sem átti að koma til framkvæmda 2004 og 2006, verður flýtt og verður hún að veruleika á þessu ári. Barnafólk fær einnig auk- inn afslátt á sköttum, þúsund doll- ara, um 81 þúsund kr., með hverju barni í stað 600 dollara fram til þessa. Lítil fyrirtæki fá að afskrifa fjárfestingar í nýjum búnaði mun hraðar en tíðkast hefur. Embættismenn segja að gangi til- lögur Bush eftir muni verða til 2,1 milljón nýrra starfa á næstu þrem árum. Forsetinn kynnti tillögurnar á fundi í Chicago og sagði þar að efna- hagur landsins væri öflugur „en samt eru hættumerki á lofti sem ég mun ekki hunsa og vona að þingið muni heldur ekki hunsa“. Hann lagði til að réttur til atvinnu- leysisbóta yrði framlengdur en margir atvinnulausir Bandaríkja- menn misstu réttinn um áramótin. Nýkjörið þing kom saman í fyrradag og samþykkti þá þessa tillögu en repúblikanar hafa nú meirihluta í báðum þingdeildum. Önnur atriði í tillögunum snúa m.a. að umbótum á almannatryggingum og sjúkra- tryggingum. Almenningur fullur efasemda Þótt Bush njóti mikils stuðnings fyrir frammistöðu sína í embætti meðal kjósenda hefur álit fólks á efnahagsstefnu hans minnkað mjög síðustu mánuði. Í könnun ABC-sjón- varpsstöðvarinnar segjast 43% vera ánægð með stefnu hans í efnahags- málum. Könnun á vegum sjónvarps- stöðvarinnar CBS sem birt var á þriðjudag gefur til kynna að 59% Bandaríkjamanna telji að skatta- lækkanir Bush komi aðallega ríkasta hluta þjóðarinnar til góða. Hagfræð- inga greinir á um það hvort aðgerð- inar muni bera árangur en eru yfir- leitt sammála um að fjárhæðirnar séu nægilega hátt hlutfall af þjóð- arframleiðslu til að þær ættu að geta ýtt undir neyslu og fjárfestingar. Fyrstu viðbrögð á mörkuðum vestanhafs, er helstu atriði tillagn- anna urðu kunnug fyrir helgi, voru lítil en fremur jákvæð, hlutabréf hækkuðu nokkuð og gengi dollarans braggaðist á þriðjudag, að sögn AP- fréttastofunnar. Sögðu sérfræðingar að dagana á undan hefði orðið nokk- ur hækkun, menn hefðu vitað um að- alatriði tillagnanna um nokkurt skeið og tekið tillit til þeirra. Hefði því ekki verið grundvöllur fyrir frek- ari breytingar á gengi bréfa á þriðju- dag. Auk þess vildu menn sjá hvort hugmyndirnar yrðu samþykktar á þingi. „En jákvæð áhrif á efnahaginn gætu orðið mjög mikil,“ sagði Lynn Reaser, verðbréfasérfræðingur hjá Bank of America í gær. Fleiri áhrifamenn í viðskiptaheim- inum tóku undir og sögðu að bjart- sýni myndi aukast ef tillögurnar fengju framgang. Ýmsar hagtölur sem birtar hafa verið sl. ár hafa einn- ig valdið því að menn telja auknar líkur á betri tíð, m.a. virðist hagvöxt- ur hafa verið meiri vestra en margir töldu. Þrátt fyrir að hagvöxtur hafi minnkað um hríð eykst neysla árlega um 4%, að sögn BBC. Einna mesta athygli hafa vakið til- lögur forsetans um að skattur á arð af hlutabréfum verði ekki lækkaður heldur með öllu afnuminn. Var rök- semd hans sú að í reynd væri um- ræddur arður tvískattaður. Hluta- bréfaeign er mjög útbreidd í landinu og tugmilljónir fjölskyldna og ein- staklinga munu því fagna breyting- unni, ekki síst margir aldraðir borg- arar sem hafa með tímanum eignast umtalverða hlutabréfaeign og vilja fá hagnaðinn óskertan. Um 92 milljónir tekjuskattsgreið- enda, aðallega fólk með lágar eða miðlungstekjur, munu á árinu fá endurgreidda skatta og verður tékk- inn að meðaltali rösklega 1.000 doll- ara eða nær 90 þúsund krónur. Ásakanir um ábyrgðarleysi Eins og búast mátti við gagnrýndu demókratar tillögurnar harkalega og bentu á að með skattalækkunum væri ljóst að halli yrði á fjárlögum og auk þess myndi stríð gegn Íraka og eftirleikurinn geta valdið miklum út- gjöldum. Sagði Tom Daschle, leið- togi demókrata í öldungadeildinni, að einu áhrifin af aðgerðunum yrðu að skuldsetja ríkið en jákvæðu áhrif- in á efnahaginn yrðu engin. Einnig fullyrtu demókratar að skattalækk- anirnar myndu einkum koma hinum efnameiri til góða og væru því mjög ósanngjarnar. Repúblikanar svara því til að eðlilegt sé að lækkunin skipti litlu fyrir fátæklinga sem greiði litla eða enga skatta. „Hann hefur kynnt óskalista sem einkennist af ábyrgðarleysi, mun ekki bera árangur og byggist á hug- myndafræðilegum röksemdum,“ sagði Joseph Lieberman, öldunga- deildarþingmaður og varaforseta- efni Al Gore árið 2000. Lieberman er talinn munu gefa kost á sér sem for- setaefni 2004. Dick Gephardt, sem er einn af þeim sem vilja keppa við Bush um forsetaembættið, hefur lagt fram til- lögur sem einnig eiga að örva efna- haginn en kosta aðeins 136 milljarða dollara. Er þar kveðið á um endur- greiðslur á skatti en einnig auknar atvinnuleysisbætur. Efnahagstillögur Bush forseta fá blendnar viðtökur Demókratar segja skattalækkanir aðallega nýtast ríkum Reuters George W. Bush Bandaríkjaforseti er hann kynnti tillögur sínar í fyrradag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.