Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.01.2003, Blaðsíða 30
NEYTENDUR 30 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ BÓNUS Gildir 9.–12. jan. nú kr. áður kr. mælie.verð Frosin lambalæri niðursöguð ....... 799 Nýtt 799 kr. kg Frosinn lambahryggur niðursag- aður .......................................... 799 Nýtt 799 kr. kg Frosin ýsa með roði ..................... 449 499 449 kr. kg Frosin ýsa roðlaus ....................... 595 699 595 kr. kg Gold kaffi, 500 g ........................ 155 179 310 kr. kg Neskaffi koffínlaust, 200 g .......... 499 Nýtt 2.495 kr. kg Knorr súpur, 4 teg. ...................... 49 Nýtt 49 kr. pk Colgate tannkrem, 75 ml............. 129 159 1.720 kr. kg 11–11-búðirnar Gildir 9.–15. jan. nú kr. áður kr. mælie.verð Kjúklinga Cordon bleu................. 1.098 1.450 1.098 kr. kg Kjúklinganaggar ......................... 1.098 1.450 1.098 kr. kg Steiktir kjúklingaleggir ................. 959 1.198 959 kr. kg Skyr.is 4 tegundir, 170 g ............. 79 93 460 kr. kg Léttostur m/villisveppum, 250 g .. 199 239 790 kr. kg Léttostur m/skinku og beikoni, 250 g ........................................ 199 239 790 kr. kg Korni flatbrauð, 300 g................. 125 159 410 kr. kg Finn Crisp hrökkbrauð, 200 g ...... 125 159 410 kr. kg FJARÐARKAUP Gildir 9.–11. jan. nú kr. áður kr. mælie.verð Appelsínur................................... 98 135 98 kr. kg Rautt og hvítt grape...................... 98 129 98 kr. kg Rauðrófur ferskar ......................... 98 220 98 kr. kg Reykt og saltað folaldakjöt............ 369 599 369 kr. kg Hunts tómatsósa, 1,13 kg ............ 198 219 180 kr. kg Filippo Berio Olive oil, 500 ml ....... 289 323 578 kr. kg Pascual jógúrt, 3 teg., 500 g......... 178 198 356 kr. kg KRÓNAN Gildir 9.–15. jan. nú kr. áður kr. mælie.verð SS pizzabollur steiktar, 225 g........ 186 248 820 kr. kg SS beikonbollur steiktar ................ 269 359 269 kr. st. UB hrísgrjón, 907 g...................... 149 189 160 kr. kg UB 2 step sósur, súrsæt og/eða Cantonese, 540 g ........................ 229 279 420 kr. kg H & S sjampó, 400 ml, 4 tegundir. 499 5881.240 kr. ltr Bold Aqua þvottaefni, 2,2 kg ........ 889 Nýtt 400 kr. kg Blátoppur og/eða sítrónutoppur, 1,5 ltr ......................................... 129 149 80 kr. ltr NÓATÚNSVERSLANIR Gildir 9.–16. jan. nú kr. áður kr. mælie.verð Kjúklingur frosinn ......................... 295 599 295 kr. kg Ferskur lax í heilu ......................... 399 639 399 kr. kg Ferskur lax í sneiðum .................... 499 929 499 kr. kg Kellogs Special K, 500 g .............. 299 379 590 kr. kg Finn Crisp hrökkbr. m/kúmeni ....... 99 149 99 kr. pk. Brauð dagsins, 680 g................... 119 198 170 kr. kg Easy uppþvottal. 500 ml, lemon og original ................................... 79 125 158 kr. ltr H & S sjampó, 6 tegundir ............. 299 398 299 kr. st. SELECT-verslanir Gildir 6.–29. jan. nú kr. áður mælie.verð Staur .......................................... 65 85 Hríspoki, 120 g............................ 190 225 Oetker Pizza Speciale, 330 g......... 395 455 Oetker Pizza Hawaii, 330 g............ 395 455 Drykkjarjógúrt .............................. 75 89 Toppur + samloka ........................ 270 365 Cappuccino + vínarbrauð.............. 195 265 SPARVERSLUN, Bæjarlind Gildir til 13. jan. nú kr. áður mælie.verð Ýsuflök m/roði frosin .................... 498 598 498 kr. kg Cavendish franskar rifflaðar .......... 239 335 239 kr. kg Gunnars kokteilsósa, 200 ml ........ 98 124 490 kr. ltr Gríms fiskibollur úr fiskborði.......... 669 780 669 kr. kg Gríms fiskibuff úr fiskborði ............ 669 798 669 kr. kg Léttsósur, 200 g, Salathúsið ......... 194 249 970 kr. kg Úrvals hrásalat, 350 g, Salathúsið. 118 155 337 kr. kg Léttostur skinku/beikon, 250 g ..... 209 232 836 kr. kg Léttostur villisveppa, 250 g........... 209 232 836 kr. kg UPPGRIP – verslanir OLÍS Janúartilboð nú kr. áður kr. mælie.verð Samloka Sóma, MS-hyrna, Hersh. Alm. súkkul. og ½ l kók (venjul. eða diet) ..................................... 399 524 Freyju villiköttur m/kornkúlum....... 85 99 Trópí appelsínusafi, 330 ml plastfl. 99 120 ÞÍN VERSLUN Gildir 9.–15. jan. nú kr. áður kr. mælie.verð 4 hamborgarar, 4 brauð .............. 331 389 389 kr. pk. Búrfells nautahakk...................... 619 728 619 kr. kg Mueslibar súkkulaði, 6x25 g........ 299 357 1.973 kr. kg Axa jarðarberjamusli, 375 g......... 189 249 491 kr. kg Axa original musli ....................... 289 368 289 kr. kg Fiskur víða á tilboðsverði Helgartilboð Verðupplýsingar sendar frá verslunum VERÐ á ávöxtum og grænmeti lækkar enn í matvöruverslunum og segja kaupmenn það til marks um mikla samkeppni um þessar mundir. Sigurður Reynaldsson innkaupa- stjóri Hagkaupa segir verð á ávöxt- um og grænmeti hafa lækkað jafnt og þétt á árinu og að ástæðan sé ekki einvörðungu lækkanir eða niðurfell- ingar á tollum, sem einungis hafi náð til fáeinna tegunda grænmetis, ekki ávaxta. Sigurður telur verð á ávöxtum og grænmeti sem verslanir hafa verið að bjóða ekki leiða til viðunandi arð- semi þegar til lengdar láti og muni koma í bakið á mönnum, eins og hann tekur til orða. Hagkaup lækk- uðu verð á rúmlega 20 tegundum ávaxta og grænmetis fyrr í vikunni og segir Sigurður að þótt það sé út af fyrir sig ekki óvenjulegt, hafi verð á þessum vöruflokkum verið að með- altali 10% lægra í desember 2002 miðað við sama mánuð 2001. Offjölgun verslana Sigurður segir samkeppni mat- vörukaupmanna afar harða um þess- ar mundir, í raun allt þetta ár, og kveður hann marga þætti spila inn í harðnandi verðsamkeppni, svo sem of mikla fjölgun búða, aukna sókn í lágvöruverðsverslanir og brotthvarf Nýkaupa af markaði. Segir hann að fyrst neytendur sendi kaupmönnum þau skilaboð að þeir taki lágvöruverð fram yfir dýr- ari vöru og þjónustu hafi stórmark- aðirnir þurft að lækka verð á ýmsum vörutegundum. Nefnir hann sem dæmi tvöfaldan pakka af Pampers-bleium, sem kost- aði áður 2.089 krónur í Hagkaupum en kostar nú 1.799 krónur og hefur því lækkað um tæp 14%. Tveir lítrar af Coke hafa lækkað um 2,2%, úr 224 krónum í 219 krónur og þá má nefna að Myllu Heimilisbrauð kostaði 239 krónur fyrir ári en kostaði 195 krón- ur, þar til Myllan boðaði verðhækk- un, sem er 18% munur. Ekkert lát á gríðarlega harðri samkeppni Ingimar Jónsson forstjóri Kaupáss, sem rekur Nóatún, 11-11 og Krónuna, segir samkeppni á mat- vörumarkaði hafa verið gríðarlega harða síðastliðna mánuði og að ekk- ert lát sé á. Hann segir verðþróun á ávöxtum og grænmeti eiga sér til- tekinn aðdraganda og skýrast meðal annars af formbreytingum á þeim markaði, eins og hann tekur til orða. Kaupás hóf eigin innflutning á ávöxtum og grænmeti 1. október síð- astliðinn og segir Ingimar hann með- al annars hafa leitt til hagstæðara innkaupsverðs. „Hins vegar sveiflast verð mikið á þessum markaði og vel mögulegt að verð á ávöxtum og grænmeti eigi eft- ir að hækka á næstunni. Hugsanlega eru einhverjir komnir neðar en þeir þola,“ segir Ingimar. 30% afsláttur af ávöxtum Verslanir 11-11 og Kjarvals bjóða 30% afslátt af öllum ferskum ávöxt- um frá deginum í dag til sunnudags. Sem dæmi um verð má nefna að rauð epli fara úr 199 krónum kílóið í 139 krónur, appelsínur fara úr 189 krón- um í 132 krónur, kíví úr 289 krónum í 202 og gul melóna úr 189 krónum í 132 krónur. Þá má nefna að Fjarðarkaup eru með appelsínur á 98 krónur kílóið á helgartilboði, þær kostuðu áður 135 krónur. Rautt og hvítt grape er einn- ig á 98 krónur kílóið, kostaði áður 129 krónur. Þá eru ferskar rauðrófur ennfremur á 98 krónur kílóið en þær kostuðu 220 krónur áður í Fjarðar- kaupum. Mikil verðsam- keppni í ávöxtum og grænmeti ÝMIS matvara hefur hækkað í verði að undanförnu og fleiri hækkanir boðaðar. Eggjaframleiðendur hafa boðað tæplega 28% hækkun á síðast- liðnum fimm mánuðum. Mjólkursamsalan reið á vaðið með hækkun á heildsöluverði um áramót og segir Sigurður Reynaldsson inn- kaupastjóri Hagkaupa að fleiri inn- lendir framleiðendur hafi tilkynnt hækkanir í kjölfarið. Myllan hefur til að mynda hækkað verð á sinni framleiðslu um 2% að hans sögn og hermt er að fleiri bak- arí hyggi á verðbreytingar. Mjólk- urlítri hefur hækkað um 3,3%, MS KEA skyr um tæp 4%, MS Skólajóg- úrt um tæp 5% og ¼ l MS rjómi um 3,5%. Þá hefur Ölgerðin Egill Skalla- grímsson tilkynnt 3% verðhækkun frá 15. janúar. Svo dæmi séu tekin um verðbreyt- ingar hækkar 770 g Heimilisbrauð frá Myllunni um 4 krónur, úr 195 krónum í 199 krónur. Mjólkurlítri hækkar úr 84 í 87 krónur, Skólajóg- úrt úr 58 í 61 krónu, KEA vanillu- skyr úr 88 krónum í 92 krónur og ¼ l rjómi úr 172 krónum í 178 krónur. Egils appelsín sem kostar 197 krónur hækkar á næstunni í 203 krónur og Pepsi úr 179 í 184 krónur svo fleiri dæmi séu tekin. Vallá hefur boðað tæplega 28% hækkun á eggjum síðastliðna fimm mánuði og segir Sigurður Reynalds- son að Hagkaup hafi ekki hækkað verð í versluninni sem því nemi enn sem komið er. „Allir eggjaframleið- endur boðuðu samskonar hækkanir í ágúst á liðnu ári og því greinilega um að ræða samráð þeirra á meðal til þess að ná verði á eggjum upp. Hag- kaup hafa verið mjög ósátt við þessi vinnubrögð og ljóst að við getum ekki tekið á okkur þessar hækkanir,“ segir Sigurður. Mjólkur- vörur, brauð og gos hækka LISTIR HÚSFYLLIR var í gær á fyrstu af fernum Vínartónleikum Sinfóníu- hljómsveitarinnar sem standa munu út þessa viku. Í þetta sinn í Háskóla- bíói, sem mætti tónleikagestum með stemningsaukandi kyndlum og rauð- um dregli. Stjórnandi var líkt og undangengin áramót hinn vinsæli Peter Guth, að margra áliti meðal fremstu vínarvalsatúlkenda heims- ins í dag. Eftir svolítið varfærnislega byrj- un í Forleiknum að Sígaunabarón- inum eftir Jóhann Strauss yngri kvað æskuþýður tenór Garðars Thórs Cortes við í fyrsta skipti í Úti í náttúrunni úr Gleðistríðinu eftir sama höfund. Að loknum Kampa- vínsgalopp hins eldri Strauss í með- förum hljómsveitar kom einleikari kvöldsins fyrst fram á svið í Spænsk- um dansi úr Leðurblökunni, og óhætt að segja að einleikshljóðfærið hafi verið af fágætari gerðinni – spænskar kastaníettur. Vitanlega þó í lófaheldri mynd, ekki á skafti eins og tíðkast í slagverksdeildum sinfón- íuhljómsveita, enda takmarkað hvað beita megi þeim með því stirða móti. Lucero Tena mun hafa frumflutt marga konserta sérstaklega samda fyrir þetta ævaforna slaghljóðfæri og átti eftir að hrífa marga með til- þrifamiklum slætti sínum í lokakafla Sígaunaljóða Sarasates, Spænskum marsi eftir J. Strauss y., og í La Boda de Luis Alonso eftir Giménz, enda þótt vekti undrun undirritaðs hvað útsetjarar létu oft hljóðfærið elta lagferli meginstefja í stað þess að bjóða t.d. upp á sjálfstæða kross- rytma. Garðar Thór sótti smám saman í sig veðrið, sem hefði e.t.v. mátt auð- velda með því að hafa fleiri en eitt söngatriði í hverri atlögu. Reyndi nokkuð á hæðina í Fagnaðu mér Vín úr Marizu greifafrú eftir Emmerich Kálmán, en það tókst af aðdáunar- verðri mýkt, þó að enn ætti söngv- arinn nokkuð eftir óbætt í kraftsarp- inn. Það gilti einnig um Legató- aríuna Þú átt mitt hjarta allt úr Brosandi landi Franz Lehárs, þar sem víbratóið átti auk þess til að verða einhæft og mótunin um leið frekar litlaus. En í frábæru lagi Kálmáns úr Marizu, „Komm, Tzig- an!“ komst hann í efsta tjáningargír við upptendrandi forystufiðluleik stjórnandans í gervi ungverska tat- arans og uppskar dúndrandi og verðskuldaðar undirtektir. Margt fleira bar á hlustir þetta vel heppnaða Vínarkvöld og vakti at- hygli hvað hljómsveitin, sem jókst markvert að snerpu og innlifun eftir hlé, var frábærlega samtaka í dæmi- gerðum hraðaukningum vínarvals- anna, sem raunar útheimta engu minni hópnákvæmni en samsund smáfiskatorfu. Kom það vel fram af Kampavíns- og Cachucha-galoppum Jóhanns eldri og Dónárvölsunum Op. 314 eftir J. Strauss y., en einnig gustaði hressilega af polkum og völs- um Jósefs Strauss eftir hlé, með Á fleygiferð sem sópandi hápunkt. Skrifast sá pilsasviptandi hópþokki hljómsveitar væntanlega ekki sízt á leiðtogann í lyftingu, sem sannaði einu sinni enn framúrskarandi fag- kunnáttu sína í þessari kampavíns- kátu fjaðurviktargrein. Komdu, sígauni! TÓNLIST Háskólabíó Vínartónlist eftir Straussfeðga, Kálmán, Lehár o.fl. Einsöngvari: Garðar Thór Cort- es tenór. Einleikari: Lucero Tena kast- aníettur. Sinfóníuhljómsveit Íslands u. st. Peters Guths. Miðvikudaginn 8. janúar kl. 19:30. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Jim Smart Stjórnandi var líkt og undangengin áramót hinn vinsæli Peter Guth, að margra áliti meðal fremstu vínarvalsatúlkenda heimsins í dag. OPNUNARTÍMA Listasafns Reykjavíkur – Hafnarhúss og Lista- safns Reykjavíkur – Kjarvalsstaða hefur verið breytt og eru bæði húsin nú opin frá kl. 10–17 alla daga vik- unnar. Vegna breytinganna færist hin reglubundna sunnudagsleiðsögn í Hafnarhúsinu frá kl. 16 til kl. 15 en á sama tíma er leiðsögn um sýningar Kjarvalsstaða. Ásmundarsafn heyrir einnig undir Listasafn Reykjavíkur en þar er opið yfir vetrarmánuðina frá kl. 13–16 en kl. 10–16 frá 1. maí til septemberloka. Á síðasta ári var tekin upp sú ný- breytni að láta einn aðgöngumiða gilda samdægurs í öll hús Listasafns Reykjavíkur. Þannig býðst nú gest- um aðgangur að allt að átta ólíkum myndlistarsýningum fyrir 500 kr. á einum og sama deginum. Listasafn Reykjavíkur Breyttur opnunar- tími ÞURÍÐUR Sigurðardóttir opnar sýninguna Óboðnir gestir í Galleríi Hlemmi ann- að kvöld kl. 20. Þuríður hefur að mestu leyti fengist við málverk um skeið og náð að teygja þann miðil og toga í ýmsar óvæntar áttir, segir í kynningu. „Hún hefur samtvinnað ljósmyndir og málverk, saumað út og prjónað, fengist við ofur- raunsæislegar útfæslur á ýmsum munum en á komandi sýningu í Galleríi Hlemmi gengur hún lengra en nokkru sinni fyrr í gaumgæfilegri skoðun og túlkun á hinu agn- arsmáa og viðkvæma.“ Sýningunni lýkur sunnu- daginn 2. febrúar en Gallerí Hlemmur verður opið mið- vikudaga til sunnudaga frá kl. 14–18. Óboðnir gestir á Hlemmi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.