Morgunblaðið - 09.01.2003, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 15
Eignarhlutur Straums í Íslandsbanka er um
4,5% í dag.
Árið 2001 var eitt versta ár í sögu verðbréfa-
markaðarins eins og áður hefur verið fjallað um
og því var það talið ákveðið afrek að ná inn nýju
hlutafé sem nam 2,8 milljörðum króna að sölu-
virði, sem sýndi ákveðna tiltrú fjárfestanna á
Straumi og þeim verkefnum sem stjórnendur
félagsins vildu ráðast í.
Á aðalfundi Hlutabréfasjóðsins hf. 15. mars
2001 var samþykkt að breyta nafni sjóðsins í
Fjárfestingarfélagið Straum hf. og um leið var
ákveðið að fækka stjórnarmönnum úr fimm í
þrjá og varamönnum úr tveimur í einn.
Í stjórn voru kjörnir þeir Ari Edwald, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, formað-
ur, Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka,
og Jón Halldórsson og varamaður í stjórn var
kjörinn Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum.
Það er lykilatriði hvað varðar vendingar í
málefnum Straums á liðnu ári að huga að því
þegar Straumur ákveður að selja Búnaðar-
bankanum eigin bréf, samtals 143,5 milljónir að
nafnvirði, eða 5,12% hlut.
Þórður Már Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri Straums, hafði í janúar fyrir réttu ári
samband við Sólon Sigurðsson, annan tveggja
bankastjóra Búnaðarbankans, og bauð bankan-
um að kaupa bréf sem Straumur átti í sjálfum
sér. Þórður Már lýsti fyrir Sóloni hugmyndum
stjórnenda Straums um að breikka grunninn að
félaginu og fá annan banka inn í eigendahópinn,
auk Íslandsbanka. Sóloni leist mætavel á hug-
myndina og í bankanum var talið að svona fjár-
festing gæti skilað Búnaðarbankanum auknum
viðskiptum í gegnum þau félög og fyrirtæki sem
Straumur ætti eignarhluti í. Hugmyndin var
síðan til skoðunar innan Búnaðarbankans um
nokkurt skeið og hinn 10. maí í vor varð nið-
urstaðan sú að Búnaðarbankinn keypti af
Straumi 5,12% í félaginu.
Búnaðarbankinn hélt síðan áfram í vor að
kaupa bréf í Straumi á markaði, án þess að þau
kaup vektu í raun athygli nokkurs manns.
Þótt Orca-hópurinn, sem samanstóð einungis
af Jóni Ásgeiri og Þorsteini Má þegar vora tók á
liðnu ári, hefði misst atkvæðisréttinn í banka-
ráði Íslandsbanka, eins og greint var frá í ann-
arri grein, hélt hann samt sem áður áfram að
kaupa bréf í Straumi m.a. í gegnum Fjárfar,
fjárfestingarfélag í eigu Jóns Ásgeirs, föður
hans, Jóhannesar, og fleiri fjárfesta og í gegn-
um eignarhaldsfélagið Kaldbak (KEA á 47% í
Kaldbak, Samherji á 18% og Lífeyrissjóður
Norðurlands á 18%).
Léku á Jón Ásgeir og Þorstein Má
Þeir voru samtals komnir með 21,79% eign-
arhlut í Straumi síðastliðið vor, en það var
skömmu eftir það sem ríkjandi meirihluti í
bankaráði Íslandsbanka og fleiri vöknuðu upp
við vondan draum og áttuðu sig á því, að Jón Ás-
geir og félagar gætu verið að ná völdum í
Straumi og þar með yfirráðum yfir 8,5 milljarða
sjóðum félagsins og fleiri milljörðum að auki
sem félagið hafði burði til þess að skuldsetja sig
fyrir. Menn velktust ekki í nokkrum vafa um að
þeir félagar, Jón Ásgeir og Þorsteinn Már, voru
enn með það í huga að ná völdum í Íslandsbanka
og að þeir myndu ekki skirrast neins í þeim efn-
um og úr því sem komið var, þá voru Straumur
og þeir sjóðir sem hann hafði yfir að ráða síðasti
kostur þeirra til að ná markmiði sínu.
Í vor sem leið hófst ný orrusta, og nú um
stjórnarsæti í Straumi, sem jafnframt var bar-
áttan um meirihlutavöld í félaginu.
Aðalfundur Straums á liðnu ári var haldinn 9.
apríl sl. Fyrir þann fund voru einhverjir banka-
ráðsmenn og stjórnendur Íslandsbanka komnir
með gallbragð í munninn og höfðu vissa sann-
færingu um það, að Jón Ásgeir og félagar hefðu
ákveðið að næsta skrefið í tilraunum þeirra til
þess að ná tangarhaldi á Íslandsbanka væri að
ná undirtökunum í Straumi, sem þeir og félög
þeim tengd voru orðin svo stórir hluthafar í.
Í Íslandsbanka var litið þannig á að þeir Jón
Ásgeir og Þorsteinn Már stefndu að því að ná
tveimur stjórnarmönnum af þremur í Straumi,
þ.e. Jóni Ásgeiri sjálfum og Magnúsi Kristins-
syni frá Vestmannaeyjum, þannig að þeir Krist-
ján Ragnarsson, bankaráðsformaður Íslands-
banka, og Bjarni Ármannsson, forstjóri
Íslandsbanka, lögðust í svolítinn skotgrafa-
hernað til þess að koma í veg fyrir yfirtöku
þeirra félaga á Straumi. Hernaðaráætlun
þeirra Kristjáns og Bjarna var með eftirfarandi
hætti: Bankaráð Íslandsbanka hafði ákveðið á
fundi sínum að Kristín Guðmundsdóttir, fyrr-
verandi fjármálastjóri Granda, yrði fulltrúi
bankans í stjórn Straums og kæmi inn í stjórn-
ina í stað Bjarna Ármannssonar. En þeim
Bjarna Ármannssyni og Kristjáni Ragnarssyni
láðist hins vegar, að yfirveguðu og ásettu ráði,
að upplýsa þá Jón Ásgeir og Þorstein Má um þá
staðreynd að þeir ætluðu ekki að setja öll at-
kvæðin sem bankinn hafði yfir að ráða á nafn
Kristínar, heldur skiptu þeir atkvæðamagninu
þannig að Ólafur B. Thors fékk hluta at-
kvæðanna. Atkvæðamagn það, sem Íslands-
banki hafði yfir að ráða, dugði fyrir rúmlega
einum stjórnarmanni og því var hægt að dreifa
atkvæðunum að hluta. Þau Kristín og Ólafur
voru bæði kjörin í stjórn og mynduðu meiri-
hluta og Ólafur varð formaður stjórnarinnar, en
fulltrúi þeirra Jóns Ásgeirs og Þorsteins Más
og raunar fleiri, Magnús Kristinsson, útgerð-
armaður úr Vestmannaeyjum, féll. Þriðji mað-
urinn í stjórn var kjörinn Jón Ásgeir.
Af þessu urðu gríðarleg sárindi og hefur
hvergi nærri gróið um heilt og afleiðingarnar
sem þetta hafði áttu eftir að kosta Íslandsbanka
sitt. Raunar mun þessi dulbúna varnaraðgerð
bankaráðsformannsins einnig hafa kostað hann
sitt hvað varðar stöðu hans sem formaður LÍÚ
(Landssambands íslenskra útvegsmanna) því
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja,
og Magnús Kristinsson, útgerðarmaður frá
Vestmannaeyjum, töldu og telja að formaður
þeirra eigin samtaka hafi með þessari ráðstöfun
sinni komið í bakið á þeim – „Kristján Ragn-
arsson! Þessi maður er í vinnu hjá mér“! sagði
annar sægreifinn ævareiður eftir þennan fund.
Að vísu er það ekki óumdeilt hvort rétt hafi
verið að líta þannig á að þeir Jón Ásgeir og Þor-
steinn Már hafi verið að sameinast um að ná
meirihlutanum í Straumi á sitt vald, því Jón Ás-
geir og félög honum tengd, sem áttu í Straumi,
áttu atkvæðamagn sem dugði nákvæmlega fyr-
ir einum stjórnarmanni. Kaldbakur átti miklu
minni hlut eða 3,57% þannig að hann þurfti á
samvinnu við aðra að halda til þess að ná inn
stjórnarmanni. Það var reynt að finna leið sem
menn gætu sæst á með þriðja stjórnarmanninn
og m.a. ræddu þeir Ólafur Ólafsson, forstjóri
Samskipa, sem þá var í stjórn Kers sem átti hlut
í Straumi, og Eiríkur S. Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Kaldbaks, við Kristján Ragnars-
son um það hvort menn gætu ekki sæst á að
þriðji maðurinn í stjórn Straums væri Magnús
Kristinsson, en því var alfarið hafnað af hálfu
talsmanna Íslandsbanka, sem töldu það skyldu
sína að sjá til þess að þriðji maðurinn í stjórn
væri í raun og veru fulltrúi rúmlega sjö þúsund
lítilla hluthafa í Straumi og þann mann töldu
þeir Ólaf B. Thors vera.
Reiði þeirra Jóns Ásgeirs, Þorsteins Más og
Magnúsar var mikil, því ákveðið hafði verið í
bankaráði Íslandsbanka að Kristín Guðmunds-
dóttir yrði fulltrúi Íslandsbanka í stjórninni og
töldu þeir að Kristján Ragnarsson, formaður
bankaráðsins, hefði brotið gróflega á banka-
ráðinu með því að dreifa atkvæðunum eins og
hann gerði og töldu að hann hefði virt starfs-
reglur bankans að vettugi. Mun Kristján Ragn-
arsson hafa fengið að heyra það óþvegið í kjöl-
far fundarins. Hins vegar er á það bent af
fulltrúum meirihlutans í bankaráðinu að í sam-
þykkt bankaráðsins hafi hvergi verið sérstakt
ákvæði um að öll atkvæðin, sem Íslandsbanki
réði yfir, ættu að fara til stuðnings Kristínu.
Þessi afgreiðsla formanns bankaráðsins
hleypti svo illu blóði í þá Jón Ásgeir og Þorstein
Má að þeir ákváðu að hefja stórstríð um yfirráð-
in í Straumi – stríð sem átti eftir að valda
ákveðnum straumhvörfum, sennilega vegna
þess að það var mest háð af tilfinningalegum
hita og reiði af þeim Jóni Ásgeiri og Þorsteini
Má, en ekki yfirvegun og stríðskænsku.
Búnaðarbankinn í lið með Jóni Ásgeiri
Búnaðarbankinn og 12,5% eign hans í
Straumi gegndi lykilhlutverki í því stríði, því
Jón Ásgeir og félagar gerðu hinn 19. júní sl.
skriflegan samning við Árna Tómasson, banka-
stjóra Búnaðarbankans, og Yngva Örn Krist-
insson, framkvæmdastjóra verðbréfaviðskipta
Búnaðarbankans, um kauprétt Fjárfars ehf. á
öllum bréfum Búnaðarbankans í Straumi og
sölurétt Búnaðarbankans á bréfum sínum. Sá
hlutur hefði ótvírætt fært Jóni Ásgeiri og fé-
lögum ráðandi hlut í Straumi, ef samningurinn
hefði verið efndur. Gerð þessa samnings var að-
eins á vitorði örfárra manna.
Samningurinn hefst á upptalningu þess
hverjir gera með sér samninginn: Búnaðar-
banki Íslands hf., hér eftir nefndur Búnaðar-
bankinn, annars vegar og Fjárfar ehf., Sunda-
görðum 2, Reykjavík, Eignarhaldsfélagið ISP
ehf., Kaldbakur fjárfestingarfélag, Fjárfesting-
arfélagið Krossanes, Saxhóll og Dúkur hins
vegar, gera með sér eftirfarandi samning.
„Búnaðarbankinn skal hafa sölurétt á öllum
hlut sínum í Straumi, að nafnvirði 240.000.000
krónur til Fjárfars ehf. Greitt skal fyrir hina
seldu hluti með hlutum í markaðsverðbréfum
sem samkomulag næst um, eða reiðufé, hvort
sem Búnaðarbankinn kýs. Miða skal við mark-
aðsverðmæti félaganna þegar sölurétturinn er
nýttur. Fjárfar ehf. skal jafnframt hafa kaup-
rétt á hlut Búnaðarbanka Íslands hf. að nafn-
virði 240.000.000 milljónir króna.“
Þetta er orðrétt tilvitnun í upphaf þess
samnings sem þeir Árni Tómasson, bankastjóri
Búnaðarbankans, og Yngvi Örn Kristinsson,
framkvæmdastjóri verðbréfaviðskipta Bún-
aðarbankans, skrifuðu undir fyrir hönd
Búnaðarbankans, en Helgi Jóhannesson lög-
maður fyrir hönd Fjárfars ehf., Ingibjörg S.
Pálmadóttir fyrir hönd Eignarhaldsfélagsins
ISP ehf., Eiríkur S. Jóhannesson fyrir hönd
Kaldbaks og Krossaness, Jón Þ. Jónsson og
Einar Jónsson fyrir hönd Saxhóls og Tryggvi
Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson fyrir hönd
Dúks. Til að byrja með hvíldi mikil leynd yfir
þessari samningsgerð og engir, utan þau sem
!"
#$ %
&'
$ %
(
$ %
$% %
)*%
#$ %
+'
#$ %
,$
#$ %
-./
#
01%
2
0334
56
7
%
8$
2
(
#
$#
$
2
$ %
9
$
2
:/
+'
$ %
!"
#$ %
$% %
)*%
#$ %
+'
#$ %
&'
$ %
,$
#$ %
+' #
-./
"
$
!" # ;
$ %
#
+#< ;
"
+;
$ %
+'
'= >40
$
2
#
# ?
$# $
"
40>
$ %
+'
'#
?#
$$
#
$
2
#
+'
4@%
2%
#
$#
'#
?#
$$
#
$ 2
%
!
6
03%
"
#
%
+'
'= "
$
+'
2
$ %
#
'
#
6
'=;
"
$
+'
2
%
=
'
4>
%
'
$#
?
2
$#
;
'=
<
+
$$ %
:+'
?<''
A<
$
?#
#
B #
"
#
+C
2
:+'%
#
'
'A
$$ %
! :+'
$ %
!"
#$ %
$ %
)*
#$ %
+'
#$ %
!" #% %
$ %
&'
$ %
,$
#$ %
!" #% %
(
$ %
8#
D
$ %
E"+
#$ %
8F
#
!
"
#
"
!
# $ %
#$ %
!"
#$ %
:+' /!
$ %
!" #% %
$ %
+'
#$ %
$ %
)*
#$ %
:+%
$ %
$%%
>33
#
G%
%%H
&'
$ %
,$
#$ %
8F
#
! $
"
#"
#
"
:
# $ %
#$ %
:+'
$ %
!" #% %
$ %
"/ #
$ %
'#
$ %
,$
#$ %
+%
:
$ %
F2 #< %
F2 #< %
! 6
:+'
$ %
8F
#
!"
#
2
#
#
$#
$#
C
$=
" #%
)*
#$ %
#
2
#
) +
# 2
*"
+6 '
#
$# +'
#
2
#
B #
"
F2 #<
5
% %
&'
#
2
#
%
,$
#
2
#
5 A'< (
#
2
#
$#
G03 H
+
$
#
GI> H
2
G43 H
?#
#
G03 H%
8#
D
#
2
#
:+'%
E"+
#
2
#
B #
D $# 0
J
I
@
K
L
1
43