Morgunblaðið - 09.01.2003, Page 44
MINNINGAR
44 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
✝ Árni Gestssonfæddist í
Reykjavík 14. júní
1920. Hann lést á
Líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
28. desember síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Gestur
Árnason prentari, f.
28.4. 1882 á Fossi í
Staðarsveit, d. 15.8.
1967, og kona hans,
Ragnheiður Egils-
dóttir húsmóðir, f.
11.1. 1884 í Sjávar-
götu í Garðahreppi,
d. 25.11. 1972. Systkini Árna
voru Margrét skrifstofumaður og
Egill tryggingafræðingur, en
þau eru bæði látin.
Árni kvæntist 20. nóvember
árið 1943 Ástu Jónsdóttur, f.
18.12. 1920, d. 26.5. 2000, og
eignuðust þau fjögur börn. Þau
eru: 1) Jónína, gjaldkeri, f. 6.11.
1946, hún var gift Kristjáni Þórð-
arsyni byggingameistara en þau
slitu samvistir. Unnusti hennar
er Már Jónsson, pípulagninga-
meistari. Börn Jónínu og Krist-
jáns eru: a) Arna, f. 17.11. 1970,
síðan hús á Langholtsvegi 153 og
bjuggu þar samfellt í 40 ár eða
þar til þau fluttu að Efstaleiti 14.
Árni hóf ungur störf hjá heild-
versluninni Heklu hf. og varð síð-
ar framkvæmdastjóri þar og
meðeigandi. Árið 1956 keypti
Árni ásamt fjölskyldu sinni inn-
flutningsfyrirtækið Globus hf. og
var forstjóri þess og síðar stjórn-
arformaður allt til dauðadags.
Árni gegndi margvíslegum trún-
aðarstörfum fyrir hin ýmsu fé-
lagasamtök. Hann var í stjórn
Félags íslenskra stórkaupmanna
um margra ára skeið og um tíma
formaður. Árið 1988 var hann
gerður að heiðursfélaga þess fé-
lags. Hann var í bankaráði Verzl-
unarbanka Íslands og var for-
maður bankaráðs um tíma auk
fjölmargra annarra félagsstarfa.
Ræðismaður S-Kóreu var Árni
um tíu ára skeið og var sæmdur
heiðursmerki þess lands árið
1986. Hann starfaði í Frímúrara-
reglunni og Rotaryhreyfingunni.
Árni hafði mikinn áhuga á land-
græðslumálum og gekkst fyrir
landssöfnun til að græða upp ör-
foka land á Haukadalsheiði. Hon-
um voru veitt Landgræðsluverð-
launin árið 1994. Árni var
sæmdur riddarakrossi hinnar ís-
lensku fálkaorðu árið 1977.
Útför Árna verður gerð frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
maki Ívar Trausti
Jósafatsson, f. 12.6.
1961. Barn þeirra er
Ólafur Ingi, f. 7.8.
1999. b) Þórður Ingi-
mar, f. 15.10. 1974,
sambýliskona Ann
Kristín Hrólfsdóttir,
f. 24.4. 1976. Barn
Þórðar er Elísabet
Arna, f. 25.5. 1996. 2)
Gestur, fram-
kvæmdastjóri, f. 27.5.
1948, sambýliskona
Judith Anna Hamp-
shire skrifstofustjóri.
3) Börkur, fram-
kvæmdastjóri Globus hf., f. 14.7.
1955, maki Lísa-Lotta Reynis
Andersen leikskólastjóri, f. 23.5.
1958. Börn þeirra eru: a) Elva
Björk, f. 26.2. 1981. b) Hrannar
Árni, f. 29.1. 1989. 4) Ásta, inn-
heimtusjóri, f. 5.11. 1960, maki
Jón Grétar Margeirsson sölu-
maður, f. 11.4. 1959. Börn þeirra
eru: a) Eiríkur Ingi, f. 29.4. 1992,
og b) Ásta Þórey, f. 20.3. 1997.
Fyrir átti Ásta Magnús Árna
Gunnarsson, f. 3.6. 1981.
Árni og Ásta stofnuðu heimili
fyrst á Víðimel 66 og byggðu sér
Vegir skiptast. – Allt fer ýmsar leiðir inn á
fyrirheitsins lönd.
Einum lífið arma breiðir,
öðrum dauðinn réttir hönd.
Einum flutt er árdagskveðja,
öðrum sungið dánarlag,
allt þó saman knýtt sem kveðja,
krossför ein með sama brag.
Veikt og sterkt í streng er undið,
stórt og smátt er saman bundið.
(Einar Ben.)
Kæri vinur, hafðu þökk fyrir sam-
verustundirnar. Blessuð sé minning
þín.
Tengdabörnin.
Elsku afi.
Nú ert þú kominn til ömmu sem
þú saknaðir svo mikið. Á kveðju-
stund eru minningar okkar um þig
og ömmu dýrmætar og víst er að af
nógu er að taka.
Afi var athafnamaður, glæsilegur
maður sem afrekaði mikið á ævi
sinni. Öll bárum við mikla virðingu
fyrir honum og erum stolt af því að
hafa átt svo merkan mann sem afa.
Afi og amma áttu glæsilegt heimili á
Langholtsvegi og seinna meir í
Efstaleiti og var ávallt notalegt að
koma til þeirra.
Samheldni fjölskyldunnar var
þeim ofarlega í huga og var oft komið
saman á heimili þeirra þegar tilefni
var til að gleðjast eða fagna einhverj-
um áfanga. Okkur er ljúft að minnast
brúðkaupsafmæla þeirra en þá voru
haldnar glæsilegar veislur og afi var
vanur að flytja ræðu til heiðurs
ömmu. Síðustu ár höfum við hist á
Helluvaði, sumarbústað afa og
ömmu, um páskana og átt saman
notalega stund.
Eftir að amma lést var afa mikið í
mun að halda minningu hennar á
lofti og til vitnis um það er glæsileg
minningabók sem hann gerði þar
sem ævi hennar er rakin og yfir
hundrað ljósmyndir lýsa viðburða-
ríkri ævi þeirra saman. Fyrir rúmu
ári, á afmælisdag ömmu, 18. desem-
ber, bauð afi fjölskyldu sinni til
veislu í Efstaleiti þar sem hann fékk
matreiðslumann til að elda dýrind-
ismáltíð fyrir okkur öll. Afi flutti
ræðu þar sem hann minntist ömmu
og sáum við hversu mikið hann sakn-
aði hennar.
Í veikindum afa var hann vanur að
vera með hálsklút sem amma hafði
átt. Klúturinn var honum dýrmætur
og fær að fylgja honum í hans hinstu
ferð. Okkur langar til að kveðja afa
með kvæði eftir skáldið sem hann
hafði miklar mætur á:
Vor ævi stuttrar stundar
er stefnd til Drottins fundar,
að heyra lífs og liðins dóm.
En mannsins sonar mildi
skal máttug standa’ í gildi.
Hún boðast oss í engils róm.
Svo helgist hjartans varðar.
Ei hrynur tár til jarðar
í trú, að ekki talið sé.
Í aldastormsins straumi
og stundarbarnsins draumi
oss veita himnar vernd og hlé.
(Einar Benediktsson.)
Elsku afi, við hugsum til ykkar
ömmu þar sem þið njótið endur-
funda, loksins sameinuð á ný. Við
elskum þig.
Arna, Þórður, Elva Björk,
Magnús Árni, Hrannar Árni,
Eiríkur Ingi og Ásta Þórey.
Elsku langafi.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. Sveinbjörn Egilsson.)
Við söknum þín.
Elísabet Arna og Ólafur Ingi.
Frændi minn og nánasti nágranni,
Árni Gestsson, kenndur við Glóbus,
er látinn. Hann var sonur Gests
Árnasonar, prentara í Gutenberg, og
Ragnheiðar Egilsdóttur. Þau bjuggu
lengst af í Miðstræti hér í borg og
þar ólst Árni upp. Gestur var sonur
Árna sem hafði viðurnefnið „gáta“.
Hann var Snæfellingur, sonur Hann-
esar, lyfsala og bónda á Syðri-Görð-
um í Staðarsveit, Árnasonar. Kona
Árna Hannessonar var Margrét
Gestsdóttir. Hún var dóttir Gests
Jónssonar, sem var bóndi á Varma-
læk í Bæjarsveit í Borgarfirði. Var
hann vel þekktur sem frumkvöðull í
hrossarækt á sinni tíð. Gestur kom
norðan úr Miðfirði ásamt konu sinni,
Helgu Halldórsdóttur frá Syðsta-
Hvammi í Kirkjuhvammshreppi.
Ragnheiður, móðir Árna, var dóttir
Egils á Kiðjabergi Einarssonar, Eg-
ilssonar og Sigríðar Gísladóttur af
Reykjakotsætt. Eiginkona Árna var
Ásta Jónsdóttir. Faðir hennar var
Jón Vilhjálmsson, skósmiður. Hann
var frá Stóra-Hofi í Rangárvalla-
sýslu. Móðir hennar var Jónína
Jónsdóttir frá Brekku í Austur-
Landeyjum. Árni og Ásta höfðu
þekkst síðan í barnaskóla og voru
jafnaldrar. Ólst hún upp á Vitastígn-
um, ekki fjarri æskuheimili Árna.
Voru þau hjón samrýnd mjög og var
það þungt áfall fyrir Árna þegar hún
lést skyndilega 26. maí árið 2000. Við
hjónin vorum í nábýli við Árna og
Ástu síðustu 14 árin og var ekki
hægt að hugsa sér betri nágranna.
Heilsu Árna hrakaði eftir slys sem
hann varð fyrir við laxveiði í Víði-
dalsá fyrir hálfu öðru ári. Hélt hann
þó heimili, sá um innkaupin og lét
engan bilbug á sér finna, enda naut
hann í ríkum mæli aðstoðar barna
sinna. Síðustu tvo mánuði hrakaði
heilsu hans mjög og dvaldist hann
síðustu vikurnar á líknardeild Land-
spítala. Honum varð að ósk sinni að
fá að vera heima á aðfangadagskvöld
jóla í faðmi fjölskyldunnar. Kvaddi
hann þá hlýlega nágranna sína sátt-
ur við örlög sín. Hann fékk hægt
andlát laugardaginn 28. desember sl.
Minnumst við hjón Ástu og Árna
með hlýhug og situr söknuður eftir
þegar góðir vinir kveðja. Sendum við
börnum þeirra og fjölskyldum inni-
legar samúðarkveðjur.
Hörður Þorleifsson.
Vinur minn Árni Gestsson er lát-
inn. Við Árni kynntumst á miðjum
aldri þegar ég hóf lögfræðistörf fyrir
Glóbus hf. Sá kunningsskapur leiddi
til vináttu, sem aldrei rofnaði. Við
fórum í fjölmargar langferðir á hest-
um í sumarleyfum okkar ásamt eig-
inkonum og fleiri vinum. Margar
ferðir voru farnar yfir miðhálendið
norður í land og einnig fórum við oft
Fjallabaksleið austur í Skaftafells-
sýslu. Margar helgar dvöldumst við
hjónin í boði Árna og Ástu í sum-
arbústað þeirra hjóna og nutum
gestrisni þeirra.
Þegar ég lít til baka minnist ég
Árna sem góðs félaga og vinar. Hann
var glaðlyndur, gestrisinn og góður
heim að sækja.
Um störf Árna munu aðrir vænt-
anlega rita en við hjónin sendum
börnum Árna og öðrum ættingjum
hans innilegar samúðarkveðjur.
Guðmundur Pétursson.
Stundin deyr og dvínar burt
sem dropi í straumaniðinn.
Öll vor sæla er annaðhvurt
óséð – eða liðin.
(Einar Ben.)
Þeim fækkar óðum frumbyggjum
Vogahverfis í Reykjavík, sem reistu
þar hús sín í lok síðari heimsstyrj-
aldar. Árni og Ásta voru eins og við
Haukur í þeirra hópi, en aðeins eitt
hús var á milli þeirra húss og okkar.
Það var reyndar ekki tilviljun að við
réðumst í húsbyggingar á sama
tíma. Vinátta okkar Ástu hafði þá
staðið frá því við mundum eftir okk-
ur og þegar þarna var komið höfðum
við báðar stofnað eigin fjölskyldur. Á
Langholtsveginum ólust börnin okk-
ar upp og vinátta fjölskyldnanna
efldist við nær daglegt samneyti
næstu áratugina.
Nú þegar komið er að kveðju-
stund eftir langa samfylgd sitja eftir
dýrmætar minningar um góðan fjöl-
skylduvin. Árni var þeim góðu kost-
um gæddur að vera traustur,
skemmtilegur og nærvera hans var
þægileg.
Ég og fjölskylda mín sendum
börnum og öðrum ástvinum Árna og
Ástu samúðarkveðjur. Honum sjálf-
um biðjum við blessunar á eilífðar-
brautinni.
Guðrún Claessen.
Kær vinur, félagi og fyrrverandi
samstarfsmaður er látinn en bjartar
minningar um elskulegan mann
munu lifa áfram í hugum okkar Odd-
nýjar. Stór er sá hópur vina, ætt-
ingja og kunningja sem nú drúpir
höfði með söknuði og trega vegna
fráfalls öðlingsins Árna Gestssonar.
Margs er að minnast þegar litið er
yfir farinn veg samskipta okkar
Oddnýjar við þau sómahjón Ástu og
Árna, en Ásta lést fyrir liðlega einu
og hálfu ári. Við minnumst þeirra
samverustunda með virðingu og
gleði. Flestar þeirra tengdust rækt-
un og fegrun landsins enda þau bæði
mikið ræktunarfólk.
Heimili þeirra hjóna, bæði í
Reykjavík og á Helluvaði, eru afar
smekkleg og þau hjónin voru ein-
staklega gestrisin og höfðingjar
heim að sækja. Heimilishættir
þeirra hjóna voru rómaðir eins og
mætur maður skrifaði. Allir, sem
sóttu þau hjón heim, hafa góðar
minningar frá heimili þeirra. Að leið-
arlokum er okkur efst í huga sökn-
uður og þakklæti fyrir áralanga vin-
áttu og heilladrjúgt samstarf og
samskipti sem aldrei bar skugga á.
Árni var gæddur miklum mann-
kostum, góðum gáfum, velviljaður og
vinafastur og var afar heilsteypt
manneskja. Bjó vel að mikilli reynslu
og hafði ríkan skilning á viðbrögðum
fólks. Líf og starf Árna tengdist með
afgerandi hætti landbúnaði og ekki
síður landgræðslu, sem var eitt af
hans aðaláhugamálum í nærri hálfa
öld. Hér verður ekki rakinn sem
skyldi hans merki þáttur í innflutn-
ingi landbúnaðarvéla. Þegar hann
rak Glóbus var það eitt umsvifa-
mesta innflutningsfyrirtækið á land-
búnaðarvélum, grasfræi og fjöl-
mörgu öðru í þágu landbúnaðar.
Árni var óþreytandi að kynna sér
tækninýjungar á sviði landbúnaðar-
véla og ferðaðist víða um heim til að
kynnast öllu því nýjasta sem var að
gerast á þeim vettvangi. Hann aflaði
sér einnig persónulegra tengsla og
þekkingar á grasfræi sem við enn
njótum góðs af í landgræðslustarf-
inu.
Ég kynntist Árna fyrst er hann
var af miklum stórhug og myndar-
skap að byrja að rækta bygg í
stórum stíl á Helluvaðssöndum fyrir
rétt rúmlega 40 árum. Það var mikil
og sönn vinátta með honum og Páli
Sveinssyni fyrirrennara mínum og
frænda. Þeir áttu saman mikil og góð
samskipti, m.a. í því að breyta svört-
um söndum Rangárvalla í víðfeðma
bleika akra. Er ég tók við ábyrgð-
armiklu starfi árið 1972 reyndist
hann mér einstaklega vel og áttum
við síðan fjölmörg viðskipti og sam-
starf. Þar bar einna hæst átakið
Græðum og græðum sem Árni hratt
af stað fyrir hönd Félags íslenskra
stórkaupmanna. Árni var hvatamað-
ur að þessu viðamikla söfnunarátaki
til stuðnings landgræðslu sem var þá
og er enn stærsta alhliða söfnunin
meðal almennings til að efla gróður
og fegra ásýnd landsins okkar. Þetta
var þriggja ára verkefni og stýrði
Árni því af miklum myndarskap. Það
stóð reyndar lengur og aflaði tug-
milljóna króna til fjölþættra land-
bóta. Árið 1994 voru honum verð-
skuldað veitt landgræðsluverðlaun
fyrir fjölþætt störf í þágu land-
græðslu og landbóta.
Árni var ljúfmenni og dagfars-
prúður, og það var mér heiður að fá
að starfa með honum og eiga við
hann samskipti. Öll voru þau á einn
veg, hann var traustur félagi, ná-
kvæmur og vildi hvers manns vanda
leysa og frá honum stafaði innri
hlýja. Það voru forréttindi að kynn-
ast honum og minningin um góðan
dreng lifir.
Fjölskyldur, ættingjar og vinir
kveðja nú mikilhæfan mann með
söknuði og þakklæti fyrir að hafa
fengið að njóta samvistanna við
hann. Ég bið þeim Guðs blessunar
og votta þeim mína dýpstu samúð.
Megi almættið, sem leiðir okkur og
alla þá er hjarta þitt sló fyrir, leiða
þig í sólina, kæri vinur.
Sveinn í Gunnarsholti.
Kveðja frá Samtökum versl-
unarinnar – Félagi íslenskra
stórkaupmanna
Árni Gestsson var heiðursfélagi
Félags íslenskra stórkaupmanna og
fyrrum formaður. Hann skipaði sér í
forystusveit verslunarinnar á sjö-
unda áratugnum og þar munaði mik-
ið um liðsinni hans, eins og hvar-
vetna þar sem hann kom til starfa.
Hann tók fyrst sæti sem meðstjórn-
andi í stjórn Félags íslenskra stór-
kaupmanna 1968. Ári síðar var hann
kjörinn ritari félagsins og varafor-
maður 1970. Árið 1971 var hann svo
kjörinn formaður þess og gegndi því
starfi til 1975. Hann var kjörinn
heiðursfélagi FÍS árið 1988.
Árni var aðeins 18 ára að aldri
þegar hann hóf afskipti af verslun og
viðskiptum. Hann starfaði hjá Heklu
hf til ársins 1956 er hann stofnaði
Glóbus hf og fyrir það fyrirtæki
starfaði hann til dauðadags, fyrst
sem forstjóri en síðari árin sem
stjórnarformaður. Í meira en 60 ár
voru vinnuveitendur hans því aðeins
tveir og með skylda starfsemi og má
því geta nærri að mikil reynsla og
kunnátta söfnuðust upp hjá honum.
Því lýsa verk hans og árangur betur
en mörg orð.
Dugnaði Árna Gestssonar var við
brugðið. Hann gegndi fjölmörgum
trúnaðarstörfum fyrir íslenska
verslun. Hann var einn hvatamanna
að byggingu Húss verslunarinnar í
Reykjavík og sat í byggingarnefnd
þess um skeið, var varaformaður
Verslunarráðs Íslands, varaformað-
ur og síðan formaður bankaráðs
Verslunarbankans og sat í stjórn
VSÍ svo fátt eitt sé nefnt. Hvarvetna
hreif þessi galvaski og geislandi
maður aðra með sér til verka á hin-
um ólíklegustu sviðum. Honum voru
falin trúnaðarstörf á vegum Frímúr-
arareglunnar og Rotaryhreyfingar-
innar og ekki má láta þess ógetið að
hann varði miklum tíma og fjármun-
um til landgræðslumála. Fyrirtæki
hans byggðist að miklu leyti til að
ÁRNI
GESTSSON