Morgunblaðið - 16.01.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SÍÐLA í gær efndu virkjana-
andstæðingar til mótmælastöðu
við Lagarfljótsbrú. Flaggað var í
hálfa stöng, sungið og kveikt á
kertum í rökkrinu.
Eftirfarandi kveðja frá Aust-
firðingum var flutt og hún einnig
send inn á mótmælafund sem
haldinn var í Borgarleikhúsinu í
gærkvöld: „Á Austurlandi eru,
eins og annars staðar á Íslandi,
mjög skiptar skoðanir á virkjun
við Kárahnjúka. Sá hópur fer sí-
fellt stækkandi sem hræðist þessa
gölnu framkvæmd. Þeir, sem
dansa syngjandi í kringum álkálf-
inn, hafa haft sig mikið í frammi
og tala sífellt í nafni allra Aust-
firðinga. Við síðustu atburði og
hátíðarhöld í Fjarðabyggð var
mælirinn fylltur. Við förum því
fram á að gengið verði úr skugga
um það á lýðræðislegan hátt,
hvern hug Austfirðingar bera í
raun til flutnings Jöklu niður á
Fljótsdalshérað. Við höfum aldrei
verið spurð. Við þökkum ykkur
sunnanmönnum þrautseiga bar-
áttu fyrir Austurland. Hagvaxt-
arfíknin heimtar sífellt stærri
skammta. Því verða Þjórsárverin
næst ef við höldum ekki vöku
okkar.“
Ungt fólk skipulagði einnig
mótmæli við Kárahnjúkavirkjun
við Alþingishúsið í Reykjavík.
Mótmæli fólksins fóru frið-
samlega fram.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsd.
Andstæðingar virkjunar við Kárahnjúka syngja Ísland ögrum skorið í fannferginu við Lagarfljótsbrú í gærdag.
Mótmælastaða við Lagarfljótsbrú
Við höfum aldrei
verið spurð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í Reykjavík mótmælti hópur ungs fólks við Alþingishúsið með táknrænum
hætti. Meðal mótmælenda voru nokkrir ungir menn sem tóku vatn úr
Tjörninni og notuðu það til að „drekkja“ gróðri í skrúðgarðinum.
Egilsstöðum. Morgunblaðið.
ÚTGJÖLD Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss vegna lyfjakaupa á síð-
asta ári voru um 2,3 milljarðar
króna. Samkvæmt upplýsingum frá
Sjúkrahúsapótekinu, sem sér um öll
lyfjakaup spítalans, hefur lyfja-
kostnaður aukist um 37% frá árinu
2000. Ástæða aukningarinnar er
bæði hækkun lyfjaverðs og aukin
notkun lyfja.
Jóhannes Gunnarsson lækninga-
forstjóri sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að verð á S-merktum
lyfjum, sem eingöngu séu notuð á
spítölum, hafi hækkað um 28% í
fyrra þrátt fyrir hagstæða gengis-
þróun. Mörg undanfarin ár hafi lyf
hækkað um 12 til 14% að raungildi ár
hvert.
Í töflu sem sýnir opinbert heild-
söluverð ellefu lyfja hér á landi og í
Danmörku í apríl á síðasta ári sést að
lyf eru dýrari hér á landi í öllum til-
vikum. Í tveimur tilvikum er verð-
munurinn 70% en oftast eru lyfin um
30% dýrari hjá íslenskum heildsölum
en þeim dönsku. Landspítali kaupir
inn öll þessi lyf.
Áætluð velta með lyf á Íslandi í
fyrra var um 12,5 milljarðar króna.
Útgjöld Tryggingastofnunar ríkis-
ins, sem greiðir stóran hluta af verði
lyfseðilskyldra lyfja, var um 7 millj-
arðar króna og Landspítalans rúm-
lega 2 milljarðar. Einstaklingar,
sjúkrahús á landsbyggðinni, hjúkr-
unarheimili og aðrar stofnanir
greiddu samanlagt um 3,5 milljarða.
Neitar því að verð hafi hækkað
Hjörleifur Þórarinsson, formaður
lyfjahóps Samtaka verslunar og
þjónustu, segir Landspítalann gera
miklar kröfur til dreifingaraðila hér
á landi um góða þjónustu. Birgða-
hald sé dýrt þar sem fyrirtækin þurfi
að hafa öll skráð lyf tiltæk þótt lítið
magn sé notað á hverju ári. Oft séu
þetta lyf sem þurfi sérstaka með-
höndlun við flutning og geymslu.
Hann segir að 20% skráðra lyfja á
Íslandi standi undir 80% af veltunni.
Hjörleifur neitar því að lyfjaverð
hafi hækkað á Íslandi. Ástæðan fyrir
auknum kostnaði sé aukin notkun
lyfja, þ.e. að meira sé keypt af þeim,
og ný lyf hafi komið á markaðinn
sem séu dýrari í innkaupum frá
heildsölum.
Þrjú fyrirtæki flytja inn og dreifa
lyfjum á Íslandi. Það eru Lyfjadreif-
ing hf., PharmaNor hf. og Austur-
bakki hf. Lyfjadreifing er með
stærstu markaðshlutdeildina eða um
50%. PharmaNor er með rúmlega
35% markaðshlutdeild að sögn Hjör-
leifs og Austurbakki um 10%.
Lyfjaverðsnefnd ákvarðar lyfja-
verð skráðra lyfja á Íslandi eftir
ákveðnum starfsreglum, sem sam-
þykktar eru af heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu. Þegar nefndin
tekur afstöðu til breytinga á verði
lyfja er gerður samanburður við
verð í Noregi, Svíþjóð og Danmörku.
Miðað er við að verðmunurinn sé
ekki meiri en 15%. Fari mismunur-
inn yfir það er umsókn um verð-
hækkun hafnað eða óskað frekari
skýringa á hækkunarþörfinni.
200 lyf lækkuð að kröfu
lyfjaverðsnefndar
Lyfjaverðsnefnd hefur frá árinu
2000 endurskoðað tvisvar sinnum
verð skráðra lyfja sem velta meira
en 1,5 milljónum árlega. Fyrri sam-
anburðurinn leiddi í ljós að um það
bil 200 lyfjanúmer voru með umtals-
vert hærra hámarksverð í heildsölu
hér á landi en á Norðurlöndum. Far-
ið var fram á það við umboðsaðila
þessara lyfja að þeir lækkuðu verðið
til samræmis við heildsöluverð í
Danmörku, Noregi og Svíþjóð.
Samkvæmt upplýsingum frá lyfja-
verðsnefnd lækkaði heildsöluverð að
meðaltali um 10% á 215 pakkningum
söluhárra lyfja í kjölfarið. Reiknaður
heildarsparnaður vegna þessara að-
gerða nam um 300 milljónum króna á
ársgrundvelli. Þar af nam sparnaður
Tryggingastofnunar ríkisins um 140
milljónum króna á ári.
Aftur var verð lyfja endurskoðað á
síðasta ári. Þá var voru borin saman
509 lyfjanúmer og farið fram á lækk-
un á 156 þeirra. Af þeim lækkaði
verð 105 lyfjanúmera að meðaltali
um 15%. Heildarsparnaður vegna
lækkunarinnar nam samkvæmt upp-
lýsingum frá Lyfjaverðsnefnd um 91
milljón króna á ári. Sparnaður TR
var 67 milljónir miðað við ársveltu.
Lyfjaverðsnefnd hefur beitt sér
tvisvar fyrir lækkun lyfjaverðs
Þrjú fyrirtæki eru ráðandi í innflutn-
ingi og dreifingu lyfja á Íslandi
"
#$ %$%
&% '('
&) ))$
#' #&%
'* +))
%( #',
'$ *+%
%, $%%
,( ,'*
#( *%$
## ($)
)'-%.
),-+.
',-'.
',-,.
'&-%.
,*-+.
,#-%.
,$-&.
+-#.
'-#.
'-&.
/
0
123
4 55
6789
/
:;
; 1
75
24 81<
9
=55/>;
' *,+
' '*%
' '(+
%,-'.
' #)+
' '$$
' &+$
,)-,.
*))
()$
*+$
'$-%.
786
&-,
+$$
?
+
1<@ SAMKVÆMT verðsamanburði sem
deild lyfjamála á Landspítala hefur
gert er verulegur munur á lyfja-
verði hér á landi og í Danmörku,
Noregi og Svíþjóð. Lyfin sem um
ræðir eru dýr en notuð reglulega.
Í könnuninni kom fram að lyfið
Nova Seven, sem notað er við blóð-
flögusjúkdómi, er tæpum 44% dýr-
ara hér á landi en í Danmörku. Lyfið
er gefið fáum sjúklingum.
Minni verðmunur var á hinum
tveim lyfjameðferðunum eða í
kringum 28%.
Valgerður Bjarnadóttir, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahússapóteks-
ins, sem sér um öll lyfjakaup Land-
spítalans, segir unnið að því að
stöðva útgjaldaaukningu vegna
lyfjakaupa. Verð hafi hækkað en
aukin notkun lyfja skýri hluta aukn-
ingarinnar. Í fyrra hafi heildar-
útgjöld Landspítalans vegna lyfja-
kaupa verið 2,3 milljarðar króna og
vaxið um 37% frá því 2000.
Valgerður segir spítalann hafa
farið í norrænt útboð á lyfjum í maí
á síðasta ári til að reyna að lækka
kostnaðinn. Fá tilboð hafi hins vegar
borist. Hún segir ástæðuna vera
bæði smæð markaðarins og að lyfja-
framleiðendur á Norðurlöndum hafi
umboðsmenn hér á landi sem eigi að
þjónusta spítalann. Því sýndu fyr-
irtækin útboðinu lítinn áhuga og
niðurstaða þess var ekki viðunandi.
Landspítali kannar verð
lyfja á Norðurlöndum
Dæmi um
mikinn
verðmun
ÞORGEIR Baldursson, forstjóri
Prentsmiðjunnar Odda, mun segja
sig úr stjórn SPRON á næstunni.
Ástæðuna segir hann vera þá að það
fari ekki saman að vera bæði stjórn-
armaður í SPRON og jafnframt
stjórnarformaður SP-Fjármögnun-
ar, eftir að fyrirtækin tvö eru komin í
samkeppni.
SPRON keypti Frjálsa fjárfest-
ingabankann í október síðastliðnum.
Segir Þorgeir að þar með hafi
SPRON og SP-Fjármögnun verið
komin í samkeppni.
Í nóvember á síðasta ári seldu
sparisjóðirnir Landsbankanum rúm-
an helmingshlut í SP-Fjármögnun.
Að sögn Þorgeirs óskuðu stjórnend-
ur Landsbankans eftir því að hann
héldi áfram í stjórn SP-Fjármögn-
unar, sem hann hafi samþykkt. Því
hafi verið augljóst að hans mati að
hann yrði að hætta í stjórn SPRON.
Aðrar ástæður segir hann að liggi
ekki að baki þessari ákvörðun sinni.
Þorgeir
hættir í
stjórn
SPRON
♦ ♦ ♦
ÞAÐ þótti í meira lagi grunsamlegt
að maður, sem lögreglan í Reykjavík
hefur alloft haft afskipti af, skyldi
vera með dýran tölvubúnað merktan
Tækniháskóla Íslands í bíl sínum
þegar lögreglumenn stöðvuðu hann
um klukkan eitt í fyrrinótt.
Að sögn lögreglunnar var maður-
inn stöðvaður á Vesturlandsvegi við
Hálsabraut. Í bílnum var hann með
tvo skjávarpa auk annars búnaðar,
allt merkt Tækniháskólanum sem er
á Höfðabakka. Í ljós kom að hann
hafði brotist þar inn fyrr um nóttina
en svo virtist sem hann hefði lykil
sem gekk að útidyrahurð. Maðurinn,
sem einnig hefur verið sviptur öku-
leyfi, gisti fangageymslu lögreglu
um nóttina.
Grunsamlegir
flutningar