Morgunblaðið - 16.01.2003, Síða 8

Morgunblaðið - 16.01.2003, Síða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Súpa vitringanna þótti frekar þunnur þrettándi, naglalaust bænakvak blandað pólitísku trausti. Fyrirlestur um menningarbundin geðbrigði Mannfræði hugarástands Emily Martin, pró-fessor í mannfræðivið New York-há- skóla, flytur opinberan fyr- irlestur í dag á vegum mannfræði- og þjóðfræði- skorar og Rannsóknar- stofu í kvennafræðum. Fyrirlesturinn, sem hefur yfirskriftina „Menningar- bundin geðbrigði: Drög að mannfræði hugarástands,“ verður í stofu 101 í Lög- bergi við Háskóla Íslands og hefst hann klukkan 12. Öllum er heimill aðgangur. Morgunblaðið ræddi við Emily um rannsóknir hennar. – Segðu okkur fyrst eitt- hvað um efni fyrirlesturs- ins... „Í fyrirlestrinum greini ég frá mannfræðirann- sóknum mínum á geðfræði- legum skilgreiningum um tilfinn- ingar sem ég vann í Banda- ríkjunum. Ég skoða hvernig þessar skilgreiningar eru menn- ingarlega mótaðar, mældar og hvernig þeim er beitt, og að því búnu lagaðar, mótmælt og hafnað í ferlum, svo sem á stofugangi, í ráð- gjafarhópum sjúklinga og frétta- vefjum á Netinu. Meðal málefna sem ég brydda upp á má nefna: Hvaða skilgrein- ingar á skynsemi eru undirliggj- andi geðröskun? Hvaða aukaverk- anir, eða hvað hefur það í för með sér fyrir sjálfsmynd sjúklings að vinna gegn órökrænum geðrösk- unum með geðlyfjum sem ætlað er að hafa stjórn á þeim? Hvaða merkingu hefur núverandi endur- mat á geðbrigðum fyrir almenning í stærra samhengi, t.d. fyrir mark- aðssæknar bandarískar fyrir- tækjasamsteypur, sem nú leggja mikið upp úr áköfu geðhæðar- ástandi vegna þess sköpunarkrafts sem sagt er að það feli í sér?“ – Á hverju byggir þú fyrirlest- urinn? „Ég hef stundað áralangar rannsóknir á efninu, hef fylgst með fólki úr öllum þjóðfélagshópum og fylgst með hvernig það upplifir sitt geðslag, hvaða væntingar það hef- ur og hvernig það vinnur úr því og staðsetur sig. Eitt sem ég hef orðið var við er, að viðhorf hafa breyst gríðarlega síðan á fyrri hluta tutt- ugustu aldar. Þá voru mjög staðl- aðar kynbundnar skilgreiningar á geðhvörfum. Þunglyndi var tengt karlmennsku. Karlar áttu að vera fámálir, rólegir, yfirvegaðir og með traust yfirbragð, en konur aft- ur á móti óstöðugar, ótraustverð- ugar og hálfgeggjaðar, sem er at- ferli sem tengist geðhæðum, eða maníu. Í ljós hefur komið að það er engin kynbinding í þessum efnum, það er alveg hreint skipt til helm- inga, hins vegar má segja að við- horf til maníu hafa breyst nokkuð í þá veru að vegna viðhorfa og aug- lýsingaherferða þykir jafnvel hæfileg manía eftirsóknarverð.“ – Hvernig lýsir það sér? „Raunveruleikinn er auðvitað sá, að manía er ekki æski- legt ástand frekar en þunglyndi. Hins vegar nefndi ég áðan mark- aðssinnuðu fyrirtækjasamsteyp- urnar sem reyna að koma því inn hjá fólki að skemmtilegra líf bíði þeirra ef það fái uppáskrift hjá lækni sínum fyrir hinum og þess- um geðlyfjum, sem sagt er að haldi mönnum ofan við þunglyndis- mörkin og neðan við hæsta stig maníu. Á sama tíma er reynt að fegra maníu og það sýnir sig til dæmis í mikilli notkun á orðinu í Banda- ríkjunum, þar er orðið fléttað inn í verslunarnöfn, t.d. Shoemania, Automania og fleira, einnig eru einstakir vöruflokkar kynntir svona, ég gæti nefnt ilmvatn, osta- snakk og fleira. Einnig eru þau skilaboð skýr að margar mikilvæg- ar persónur úr heimi stjórnmála og skemmtanageiranum byggi allt sitt á því að virkja maníu á jákvæð- an hátt.“ – Telur þú að þessa gæti hér á landi? „Ég er nú bara rétt að byrja að kynna mér hvernig ástandið hér er. Eitt hef ég rekið mig á, og það er að bannað er að auglýsa þessi geðlyf í sjónvarpi, en í Bandaríkj- unum tröllríða slíkar auglýsingar öllu í sjónvarpi og gjarnan ber mest á þeim þegar flestir eru að horfa. Ég býst við að þetta ástand sé öfgakenndast í Bandaríkjunum, en maður veit aldrei hvað gerist í framtíðinni.“ – Þú talar um þetta eins um mikið vandamál sé á ferðinni? „Já og nei. Að því leyti er hér ekki um vandamál að ræða að geð- lyf bæta lífsgæði og lengja líf mik- ils fjölda einstaklinga sem þurfa beinlínis á þeim að halda og það er óumdeilt. Það er engin illska þar að baki eða annarleg sjónarmið. En við vitum að hér er meira á ferðinni, markaðssetn- ingin snýst ekki aðeins um að færa þurfandi einstaklingum þessi lyf. Vandamálið liggur ef til vill í því að þessi mál eru ekki rædd, þau bara ganga sinn gang gagnrýnislaust og það gengur ekki til lengdar.“ – Hverjir eiga erindi á fyrirlest- ur þinn? „Ég er að vona að ég fái breiðan hóp áheyrenda. Ég vildi gjarnan sjá fólk úr heilbrigðisstéttunum, úr viðskiptageiranum, heimspek- inga, fólk úr félagsmálageiranum, og ja, eiginlega vil ég bara fá fólk úr öllum kimum. Ekki síst ungt fólk, því þetta efni á ekki síður er- indi til þess en hinna sem eldri eru.“ Emily Martin  Emily Martin er kunn fyrir rannsóknir sínar á félags- og menningarlegum þáttum heil- brigðisþjónustu og heilsugæslu og hefur ritað fjölmargt um þau efni, m.a. bókina „The woman in the body: the cultural analysis and reproduction, sem vakið hef- ur mikla athygli. Emily er meðal brautryðjenda í kynjafræðum. Hún hefur starfað við nokkra há- skóla vestanhafs, m.a. Princeton, Yale, Irwine og Johns Hopkins. Hún stundaði nám við Michigan- háskóla og Cornell og lauk dokt- orsprófi árið 1971. Við vitum að hér er meira á ferðinni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.