Morgunblaðið - 16.01.2003, Page 14

Morgunblaðið - 16.01.2003, Page 14
ERLENT 14 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ NOVUS B 225 Gatar 25 blöð.. Með kvarða og læsingu Verð 635 kr Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is www.mulalundur.is Alla daga við hendina TILBOÐ Á EGLA BRÉFABINDUM - VERÐ 310 KR / STK. Tilboðið gildir til 31. janúar 2003 Kjölmiðar með ártali Skilblöð af öllum gerðum og góðum verðum STABILO kúlupenni 10 í pakka á 299 kr/pk HEIMASTJÓRNIN á Grænlandi er fallin á ný. Hans Enoksen, formaður hennar og leiðtogi jafnaðarmanna, Siumut-flokksins, sagði upp sam- starfinu við IA, Inuit Ataqatigiit, í fyrrinótt. Kom þetta fram á frétta- vefjum danskra fjölmiðla í gær. Á ýmsu hefur gengið í samstarfi flokkanna í tæplega hálfan annan mánuð og var mikil óánægja innan IA með, að Enoksen skyldi skipa þrjá flokksbræður sína í æðstu emb- ætti innan heimastjórnarinnar. Meðal þeirra var Jens Lyberth, sem vakti hneykslan um jólin er hann lét særingamann sinn reka illa anda út úr stjórnarráðsbyggingum í Nuuk. Um síðustu helgi virtust flokkarn- ir hafa náð að setja deilurnar niður og var þá embættismönnunum þremur sagt upp störfum. Í fyrrinótt lýsti Enoksen hins vegar yfir, að nú lægi fyrir lagalegt álit um, að skipan þeirra hefði verið lögleg á allan máta auk þess sem hann sakaði Josef Motzfeldt, leið- toga IA, um að hafa farið á bak við sig í síðustu viku með viðræðum við borgaraflokkinn Atassut um nýja stjórn. Enoksen tilkynnti jafnframt, að Siumut ætlaði að ræða við Atassut um nýja stjórn og áttu þær viðræð- ur að hefjast í gær. Heimastjórn Græn- lands fallin aftur FRAKKAR og Þjóðverjar, sem löngum hafa verið drifkrafturinn í þróun Evrópusamrunans, kyntu undir umræðu um framtíðarskipan forystu Evrópusambandsins (ESB) í gær, eftir að kynntar voru hugmynd- ir þar að lútandi sem þeir Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands, og Jacques Chirac Frakklandsforseti komu sér saman um er þeir hittust í París á þriðjudagskvöld. Þessar nýjustu þýzk-frönsku til- lögur snúa að því hvernig stofnana- uppbyggingu og stjórnun ESB skuli háttað eftir að aðildarríkjunum hef- ur fjölgað úr 15 í 25, sem mun gerast á næsta ári. Sú af þessum hugmynd- um sem mesta athygli vekur er til- laga um að æðstu málsvarar ESB verði tveir menn – annars vegar for- seti framkvæmdastjórnarinnar, hins vegar forseti ráðherraráðsins. Það nýja við tillöguna er, að hún gerir ráð fyrir að forseti ráðherraráðsins verði kjörinn til að gegna því hlutverki á tveggja og hálfs eða fimm ára kjör- tímabili, í stað þess að formennskan sé á hálfs árs fresti til skiptis í hönd- um ríkisstjórnarleiðtoga eins aðild- arríkjanna, eins og nú er. Ekki hrifin Talsmenn framkvæmdastjórnar- innar lýstu strax í gær efasemdum um ágæti tillögunnar. „Það felst fyr- irsjáanlegur vandi í því að hafa tvær u.þ.b. jafnvígar valdstöðvar. Við verðum að skoða náið hvernig slíkt kerfi gæti starfað með árangursrík- um hætti,“ lét einn talsmaður fram- kvæmdastjórnarinnar hafa eftir sér. En þýzk-frönsku tillögurnar teygja sig langt í þá átt að sætta sjónarmið þeirra sem vilja að ESB taki á sig meira sambandsríkisform og hinna sem vilja standa vörð um valdsvið ríkisstjórna þjóðríkjanna sem aðild eiga að sambandinu. „Eins og oft áður hafa Frakkar og Þjóðverjar hér bent á nokkuð sem kemst mjög nærri hinum evrópska samnefnara,“ sagði brezkur stjórn- arerindreki. Chirac og Schröder birtu tillögur sínar eftir viðræður þeirra í París síðla þriðjudags, en fundurinn var að öðru leyti liður í undirbúningi fyrir hátíðahöld í tilefni af því að 40 ár eru frá því að Frakkar og Þjóðverjar gerðu með sér vináttu- og samstarfs- samning sem markaði tímamót í samskiptum þjóðanna eftir síðari heimsstyrjöld. Lagt fyrir Framtíðarráðstefnu Samkvæmt tillögunum er hug- myndin sú að forseti framkvæmda- stjórnarinnar, kjörinn af Evrópu- þinginu, og forseti ráðherraráðsins, kjörinn af ráðherrum aðildarríkj- anna, skipti með sér æðstu stjórn sambandsins. Þar að auki skuli að því stefnt að sameina embætti sér- skipaðs utanríkismálatalsmanns ESB, sem Spánverjinn Javier Sol- ana gegnir nú, og þess meðlims framkvæmdastjórnarinnar sem fer með utanríkismál, en því embætti gegnir Bretinn Chris Patten nú. Nýju tillögurnar verða lagðar fyr- ir hin núverandi aðildarríkin sem og hin tilvonandi, auk Valerys Giscard d’Estaings, fyrrverandi forseta Frakklands sem nú stýrir hinni svo- kölluðu Ráðstefnu um framtíð Evr- ópu. Hún er eins konar stjórnlaga- þing ESB, skipað alls 105 fulltrúum frá núverandi og tilvonandi aðildar- ríkjum auk framkvæmdastjórnar- innar og Evrópuþingsins. Ráðstefn- unni er ætlað að leggja fram uppkast að nýrri stjórnarskrá ESB, einföld- uðum og endurbættum stjórnlögum ESB, fyrir júnílok nk. Allir þátttakendur í umræðunni um framtíðarfyrirkomulag á stjórn- un Evrópusambandsins eru sam- mála um þörfina á umbótum á núver- andi kerfi eftir fjölgun aðildar- ríkjanna. En skoðanir eru mjög skiptar um hvað skuli taka við, eink- um hvernig finna skuli nýtt jafnvægi milli valdsviðs ríkisstjórna aðildar- landanna og valdsviðs framkvæmda- stjórnarinnar. Í flestum tilvikum fylkja sér smærri aðildarríkin með málstað framkvæmdastjórnarinnar, þar sem þau líta gjarnan til hennar sem bandamanns í hagsmunatog- streitu við stóru ríkin eins og Frakk- land, Þýzkaland og Bretland. Þýzk-franskar tillögur um framtíðarskipan forystu ESB Tveir forsetar skipti með sér æðstu stjórn Brussel. AFP. AP Jacques Chirac Frakklandsforseti í ræðustól á blaðamannafundi í Elysée- höll í París í fyrrakvöld. Schröder Þýzkalandskanzlari fylgist með. VOPNAEFTIRLITSMENN Sam- einuðu þjóðanna grandskoðuðu í gær eina af forsetahöllum Saddams Husseins í höfuðborg Íraks, Bagdad. Í byggingunni eru aðalskrifstofa Saddams og skrifstofa lífvarðasveita hans. Heimsókn vopnaeftirlitsmann- anna stóð í fjórar klukkustundir en þetta er í annað skipti sem þeir nýta sér heimild til að leita í einhverjum af átta forsetahöllum Saddams án þess að hafa tilkynnt um það fyrir- fram, en slíka heimild höfðu vopna- eftirlitsmenn ekki síðast þegar þeir störfuðu í Írak, þ.e. 1998. Þrjár af átta forsetahöllum Sadd- ams eru í Bagdad. Fáar eru mikil- vægari en sú, sem skoðuð var í gær, og til marks um það má nefna að her- sveitir bandamanna vörpuðu ítrekað sprengjum á þessa höll í Persaflóa- stríðinu 1991. Fara fram á aðstoð NATO Bandaríkin hafa formlega farið fram á aðstoð Atlantshafsbandalags- ins (NATO) komi til hernaðarað- gerða gegn Írak. Háttsettur fulltrúi NATO staðfesti þetta í gær og sagði Bandaríkjastjórn hafa farið fram á aðstoð og stuðning bandalagsins í hugsanlegu stríði í Írak. Ekki er far- ið fram á beina þátttöku í hernaðará- tökum. Heimildarmenn Reuters-frétta- stofunnar segja að farið sé fram á að- stoð við að verja Tyrkland gegn hugsanlegum flugskeytaárásum Íraka og afnot af loftvarnarstöðvum, lofthelgi, höfnum og herstöðvum að- ildarríkja bandalagsins. Leitað í forsetahöll Saddams í Bagdad Bagdad. AFP. RUDY Giuliani, fyrrverandi borg- arstjóri New York, sótti íbúa Mexíkóborgar heim á þriðjudag og var búist við að hann héldi heim- leiðis í gær. Giuliani rekur nú ráð- gjafarfyrirtæki en í stjórnartíð hans í New York tókst að fækka af- brotum um 65%. Skutu mexíkóskir kaupsýslumenn saman 4,3 milljón- um dollara, um 360 milljónum kr., í þóknun til að fá góð ráð hjá fyrir- tækinu varðandi leiðir til að sporna við glæpafárinu í borginni. „Giuliani-sirkusinn kemur!“ sagði mexíkóska dagblaðið Ovacio- nes en heimsóknin hefur verið um- deild og gagnrýnt að miklu fé sé varið í að fá gestinn í heimsókn til borgar þar sem mánaðarlaun lög- reglumanns eru að jafnaði um 6.000 pesóar, um 4.600 krónur. Einn þeirra sagði vonlaust að útrýma spillingu í röðum liðsins nema laun- in yrðu hækkuð og þjálfun endur- bætt. Alls eru um 35.000 lögreglu- menn í borginni. Mannrán algeng Þjófnaðir og mannrán eru mjög tíð í Mexíkóborg sem er nokkru stærri en New York, íbúafjöldinn er talinn vera um 20 milljónir. Hafa sumir leigubílstjórar, sem flestir nota hvít-grænar Wolkswagen- bjöllur, gerst sekir um að kúga fé af gíslum sínum, fólki sem í mesta sak- leysi hefur sest inn en verið ekið á afvikinn stað og haldið þar í nokkra daga. Þyrlur sveimuðu yfir gestinum og fylgdarliði hans, aragrúi frétta- manna og myndatökumanna var á staðnum og fjöldi vopnaðra lífvarða fylgdi Giuliani hvert fótmál er hann rölti um götur nokkurra af skugga- legustu hverfum Mexíkóborgar en einnig nokkur ríkmannlegri hverfi. Hann vísaði á bug orðrómi í bandarískum fjölmiðlum um að uppreisnarmenn frá Kólumbíu hygðust ræna honum. Giuliani sagðist ekki enn vera reiðubúinn að gefa ráð. „Þetta er enn sem komið er upphafið að löngu ferli,“ sagði hann. Þótt sumt væri frábrugðið aðstæðum í New York væri annað mjög líkt en starfsmenn hans væru að kynna sér menningarlegan mun og lagakerfið. Þeir myndu síðan hanna lausn sem hentaði Mexíkó- borg. Giuliani heimsækir Mexíkó- borg Gefur ráð um baráttu gegn glæpafári Mexíkóborg. AP. AP Rudy Giuliani meðal aðdáenda í Mexíkóborg á þriðjudag, með honum var fjöldi vopnaðra varða. Hann ræddi m.a. við yfirmenn lögreglunnar um leið- ir til að endurbæta löggæslu í borginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.