Morgunblaðið - 16.01.2003, Side 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 15
KRINGLAN - SMÁRINN - AKUREYRI
Ecco dagar í verslunum Steinars Waage
dagana 16.-21. janúar
Gæði, þægindi og einfaldleiki einkennir Ecco skóna. Hráefnin eru úr ríki náttúrunnar,
hvort sem um er að ræða leður eða hrágúmmí og úr því er unnið mjúkt og fjaðurmagnað efni.
Ecco er þekkt fyrir fallegt leður. Leðrið er þannig unnið að það bætir loftstreymið í skónum og gerir
þá einstaklega mjúka. Ecco skór eru þægilegir um leið og farið er í þá. Mýktin og sveigjanleikinn
valda því að þeir laga sig að fætinum.
ECCO ER MEIRA EN ÞÆGINDI - ECCO ER UNAÐUR.
15-25% afsláttur af öllum ECCO skóm þessa daga
www.ecco.com
fyrir fjölskylduna
ÞINGMENN stjórnarandstöðunnar í Bretlandi
gagnrýndu í gær stjórn Tonys Blairs forsætisráð-
herra fyrir að hafa ekki gert nægar ráðstafanir til
að koma í veg fyrir hryðjuverkastarfsemi í landinu
eftir að lögreglumaður var stunginn til bana í húsi
í Manchester þar sem þrír meintir hryðjuverka-
menn voru handteknir í fyrrakvöld.
Lögreglan í borginni hefur hafið rannsókn á því
hvað gerðist í aðgerð lögreglunnar, til að mynda á
því hvers vegna lögreglumaðurinn sem beið bana
var óvarinn og árásarmaðurinn var ekki handjárn-
aður.
Lögreglumenn réðust inn í hús þriggja manna,
sem eru ættaðir frá Norður-Afríku, í tengslum við
viðamikla rannsókn sem hófst eftir að banvænt
eitur, rísín, fannst í íbúð í London 5. þessa mán-
aðar. Engin hættuleg efni fundust í íbúðinni í
Manchester.
Voru óvopnaðir
Að sögn breska útvarpsins BBC tóku 24 lög-
reglumenn þátt í aðgerðinni í fyrrakvöld og eng-
inn þeirra var vopnaður. Þeir sem réðust inn í
íbúðina og handtóku mennina þrjá voru í skotheld-
um vestum en ekki lögreglumenn sem komu síðar
á staðinn til að safna sönnunargögnum og yfir-
heyra mennina.
Michael Todd, yfirlögreglustjóri Manchester-
borgar, sagði að lögreglumennirnir hefðu ekki
verið taldir í hættu. Mennirnir þrír hefðu ekki ver-
ið handjárnaðir vegna þess að rannsóknarmenn
hefðu verið að leita á þeim og sett þá í sérstakan
búning til að varðveita sönnunargögn á þeim.
Einn mannanna losnaði frá lögreglumönnunum
rúmri klukkustund eftir að hann var handtekinn
og hljóp inn í eldhús íbúðarinnar. Hann tók þar
hníf og réðst á lögreglumennina.
Stephen Oake, einn lögreglumannanna sem
voru ekki í skotheldum vestum, kom félögum sín-
um til hjálpar og var stunginn til bana. Tveir aðrir
lögreglumenn, sem voru ekki heldur í skotheldum
vestum, særðust og gengust undir skurðaðgerð en
voru ekki í lífshættu. Fjórði lögreglumaðurinn
ökklabrotnaði.
Er þetta í fyrsta sinn í rúman áratug sem bresk-
ur lögreglumaður bíður í bana í aðgerð sem teng-
ist baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi.
Oliver Letwin, talsmaður Íhaldsflokksins í inn-
anríkismálum, sagði að augljóslega hefði „ýmis-
legt farið illa úrskeiðis“ í aðgerðinni.
Hann gagnrýndi ennfremur bresku stjórnina
fyrir að hafa ekki gert nóg til að hafa uppi á hugs-
anlegum hryðjuverkamönnum meðal fólks sem
leitað hefur hælis í Bretlandi. „Við höfum fengið
nægar vísbendingar um að til er fólk sem fengið
hefur hæli …og ætlar að fremja hryðjuverk,“
sagði Letwin.
David Blunkett, innanríkisráðherra Bretlands,
vísaði gagnrýninni á bug og sagði að aðgerðir lög-
reglunnar að undanförnu sýndu að öryggisráð-
stafanir yfirvalda bæru árangur en þær yrðu
bættar til að tryggja öryggi lögreglumanna.
„Við ráðum fyllilega við þá sem ógna lífi okkar
og lífsviðurværi,“ sagði Blunkett og bætti við að
yfirvöld hefðu gert ýmsar ráðstafanir til að koma í
veg fyrir að hugsanlegir hryðjuverkamenn fengju
hæli í Bretlandi, meðal annars með því að taka
fingraför hælisleitenda og koma upp öflugu tölvu-
kerfi.
Var á flótta undan lögreglunni
Blunkett skýrði ennfremur frá því að lögreglan í
Manchester hefði ráðist inn í íbúðina til að hand-
taka mann sem hefði verið á flótta undan lögregl-
unni frá því að beiðni hans um hæli í Bretlandi
hefði verið hafnað fyrir fjórum árum.
BBC segir að aðgerðir bresku lögreglunnar að
undanförnu séu liður í umfangsmiklum alþjóðleg-
um aðgerðum gegn liðsmönnum herskárra sam-
taka Norður-Afríkumanna í Evrópu sem eru talin
styðja al-Qaeda, hryðjuverkasamtök Osama bin
Ladens.
Frank Gardner, fréttaritari BBC í öryggismál-
um, segir að hópur meintra hryðjuverkamanna frá
Alsír og fleiri Norður-Afríkulöndum hafi komið til
Bretlands til að leita þar hælis árið 1995 eftir að
frönsk yfirvöld hófu herferð gegn hryðjuverka-
starfsemi í kjölfar mannskæðra sprengjutilræða.
Bretar hefðu ekki sent þá aftur til Frakklands þar
sem þeir hefðu haft áhyggjur af þeirri meðferð
sem mennirnir myndu fá.
Á síðustu vikum hafa breskir fjölmiðlar bent á
að frönsk stjórnvöld hafa árum saman kvartað yfir
því að bresk yfirvöld hafi ekki brugðist nógu hart
við hættunni sem stafi af íslömskum öfgamönnum.
Tony Blair hét því í gær að herða baráttuna
gegn hryðjuverkastarfsemi og sagði að drápið á
lögreglumanninum minnti bresku þjóðina óþyrmi-
lega á þá hættu sem stafaði af hryðjuverkamönn-
um.
„Við verðum að tryggja að þessir hópar öfga-
manna, sem víla ekki fyrir sér manndráp og setja
ekki fram neinar kröfur sem stjórnvöld geta hugs-
anlega orðið við, verði sigraðir,“ sagði forsætisráð-
herrann.
Breska stjórnin lofar að herða baráttuna gegn hryðjuverkastarfsemi
Gagnrýnd fyrir ónógar
öryggisráðstafanir
London. AP, AFP.
Rannsókn á áhlaupi
lögreglu eftir dauða
lögreglumanns
Reuters
Lögreglumenn halda á blómum að húsi í Man-
chester þar sem lögreglumaður var stunginn til
bana í aðgerð sem tengdist rannsókn á hryðju-
verkastarfsemi. Tveir lögreglumenn særðust.