Morgunblaðið - 16.01.2003, Page 18
AKUREYRI
18 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
TÆPLEGA þrítugur karlmaður
hefur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmdur í fimm mánaða
fangelsi fyrir líkamsárás. Maðurinn
var ákærður fyrir að hafa slegið
mann á veitingahúsi á Dalvík um jól-
in árið 2001, en sá nefnbrotaði og
hlaut glóðarauga.
Maðurinn játaði brot sig og
greiddi brotaþola skaðabætur.
Með þessu broti rauf maðurinn
skilorð dóms sem hann hlaut árið
2000, einnig vegna líkamsárásar. Sá
dómur var nú tekinn upp og honum
gerð refsing í einu lagi fyrir bæði
brotin. Til þess var litið við upp-
kvaðningu dóms að nokkuð var liðið
frá broti mannsins sem og einnig að
aðstæður hans höfðu breyst frá þeim
tíma.
Fært þótti að fresta refsingunni
um fjögur ár og mun hún falla niður
haldi maðurinn skilorð. Manninum
var gert að greiða allan sakarkostn-
að.
Sló til manns
á veitingahúsi
SKÓLANEFND samþykkti á fundi í
vikunni tillögu um fyrirkomulag á
sumarlokun í leikskólum Akureyrar-
bæjar nú á komandi sumri. Sam-
kvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að
allir leikskólar bæjarins verði lokað-
ir í tvær vikur í sumar, en þó ekki all-
ir í einu. Helmingi leikskólanna verð-
ur lokað dagana 7. til 18. júlí en
hinum helmingnum dagana 21. júlí
til 1. ágúst.
Skólanefnd mælti á sama fundi
með því að haldið yrði áfram viðræð-
um við félagsstofnun stúdenta við
Háskólann á Akureyri, FÉSTA um
uppbyggingu og rekstur fjögurra
deilda leikskóla við Tröllagil. Þá
leggur nefndin ríka áherslu á að nýj-
um leikskóla á neðri Brekku verði
fundinn staður hið fyrsta svo hægt
verði að taka hann í notkun árið
2005.
Sumarlokun leikskóla
Lokað í tvær
vikur í sumar
ÞRJÚ verk hafa verið valin til sýn-
inga hjá Leikfélagi Akureyrar í
kjölfar samkeppni sem efnt var til
á haustdögum undir yfirskriftinni;
Uppistand um jafnréttismál. Verk-
in eru Maður og kona: Egglos eftir
Sigurbjörgu Þrastardóttur, Hve
langt er vestur eftir Hallgrím
Oddsson og Olíuþrýstingsmæling
dísilvéla eftir Guðmund Kr. Odds-
son, en þeir tveir síðarnefndu eru
bræður og vissu ekki hvor af öðr-
um þegar þeir sendu inn handrit í
keppnina. Alls bárust fjórtán
handrit í keppnina, en í dómnefnd
sátu Sigurður Hróarsson, Þor-
steinn Bachmann, Valgerður
Bjarnadóttir og Sigrún Jak-
obsdóttir.
Ráðgert er að frumsýna uppi-
standið í Samkomuhúsinu í febr-
úar næstkomandi en leikstjóri
verður Halldór Laxness. Að-
alsteinn Bergdal mun leika verkið
um olíuþrýstingsmælinguna, Skúli
Gautason fer með hlutverkið í Hve
langt er vestur? og Hildigunnur
Þráinsdóttir í Egglosinu. Að lok-
inni frumsýningu verður verkið
sett upp á fleiri stöðum og jafnvel
kemur til greina að sýna þau
hvert og eitt t.d. fyrir starfs-
mannahópa eða í fyrirtækjum að
sögn Þorsteins Bachmann leik-
hússtjóra.
„Við vorum að leita að frum-
legum verkum, þar sem ekki væri
að finna mikið um gamlar klisjur
um baráttu kynjanna heldur
skemmtileg og innihaldsrík leik-
húsverk með nýjar víddir og sem
settu í gang nýjar hugsanir hjá
áhorfendum,“ sagði Valgerður
Bjarnadóttir, formaður leik-
húsráðs LA, „og þessi þrjú verk
uppfylltu alla þessa þætti“.
Sigurbjörg Þrastardóttir er
stödd í Lundúnum um þessar
mundir og var því ekki viðstödd
þegar tilkynnt var um úrslit í sam-
keppninni í gær, en hún vann m.a.
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar árið 2002.
Þeir bræður Hallgrímur og Guð-
mundur kváðust „eitthvað hafa
fengist við skriftir, það eru þó
mest bernskubrek og ekki mikið
til upprifjunar,“ eins og þeir orð-
uðu það. Guðmundur skrifaði m.a.
söngleikinn Hold sem sýndur var í
Fjölbrautaskólanum í Ármúla og
Hallgrímur skrifaði „Enn Júlía lif-
ir“ í kringum lög með hljómsveit-
inni Abba svo eitthvað sé nefnt.
Það verður óvenju líflegt hjá
Leikfélagi Akureyrar nú á næst-
unni, en þar standa yfir sýningar á
Hversdagslegu kraftaverki, uppi-
standið verður frumsýnt og eins
verður næsta leikverk, Leynd-
armál rósanna frumsýnt 31. jan-
úar. Þá er unnið að því að fá
gestasýningu úr höfuðborginni
norður.
Þrjú verk valin til sýninga í samkeppni um uppistand um jafnréttismál
Egglos, Olíuþrýstingsmæling
og Hve langt er vestur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bræðurnir Hallgrímur, t.v., og Guðmundur ásamt Sigurbjörgu Þrastardóttur unnu samkeppni sem LA efndi til
um leikþætti tengda jafnréttismálum. Sigurbjörg Þrastardóttir er ekki á milli bræðranna, hún er stödd erlendis.
SJÖ bílar urðu fyrir tjóni, mis-
miklu þó, eftir óhapp í Kaupvangs-
stræti skömmu fyrir hádegi í gær-
dag. Gríðarleg hálka var í Gilinu,
sem svo er nefnt þegar atvikið átti
sér stað. Blautur snjór sem hafði
þjappast saman og myndað
glærasvell.
Slökkvibíll sem var á leið upp
Gilið þurfti að stöðva ofarlega,
skammt ofan Myndlistaskólans á
Akureyri, þar sem bíll á undan
honum var stopp. Ekki tókst að
koma slökkvibílnum af stað aftur í
hálkunni og hallanum og rann
hann að sögn varðstjóra Slökkvi-
liðs Akureyrar stjórnlaust niður
Gilið, en förin endaði með því að
hann lenti á kyrrstæðri bifreið á
bílstæði við Myndlistaskólann.
Áreksturinn hafði þær afleiðingar
að þrír bílar á stæðinu pressuðust
saman, en mest varð tjónið á þeirri
sem slökkvibíllinn lenti á.
Skömmu síðar, á meðan verið
var að skoða aðstæður á vettvangi,
gerðist það að sendibíll á leið upp
Gilið lenti í vandræðum sem lykt-
aði með því að hann fór að renna
stjórnlaust afturábak, nánast í
sömu hjólförum og slökkvibíllinn
og munaði minnstu að hann lenti á
honum.
Áttu fótum fjör að launa
Eftir þetta var neðri hluta Gils-
ins lokað en umferð úr Eyrar-
landsvegi beint upp Gilið að Þing-
vallastræti. Ekki vildi betur til en
svo að fólksbíll á þeirri leið stöðv-
aðist vegna hálku, næsti bíll á eftir
honum hugðist fara fram úr en
lenti utan í þeim fyrri og síðan
runnu þeir niður samsíða; annar
lenti framan á sendlabílnum en
hinn á vegg Myndlistaskólans.
Nokkurn fjölda fólks hafði drifið
að til að fylgast með og átti fólk
fótum sínum fjör að launa þegar
seinni hrinan hófst. „Sem betur fer
urðu ekki slys á fólki, en það má
gera ráð fyrir að tjón verði um-
talsvert þegar upp er staðið,“
sagði Jóhann Þór Jónsson varð-
stjóri hjá slökkviliðinu. „Þannig að
það má segja að þetta hafi kannski
farið eins vel og hugsast gat miðað
við aðstæður sem þarna sköpuð-
ust.“
Gilið var sandborið eftir atvikið.
Tjón á sjö bílum eftir óhapp í glerhálu Grófargili
Bílarnir runnu stjórn-
laust niður hált Gilið
Morgunblaðið/Ingunn Jónsdóttir
Snjóruðningstæki frá Akureyrarbæ
með slökkvibílinn í togi í Gilinu.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Slökkvibíllinn rann stjórnlaust
niður Gilið, lenti á kyrrstæðri bif-
reið á stæði við Myndlistaskólann
með þeim afleiðingum að þrír
bílar pressuðust saman.
♦ ♦ ♦
MERK tímamót urðu í versl-
unarrekstri í Ólafsfirði í vikunni.
Á þriðjudag var Valbúð lokað og
daginn eftir var Úrval opnað,
sameiginleg verslun Valbúðar og
Strax. Tvær matvöruverslanir
hafa verið í Ólafsfirði í rúm 40 ár
en nú er þar ein verslun. Úrval
býður viðskiptavinum sínum upp
á fjölmörg girnileg tilboð í tilefni
opnunarinnar sem Ólafsfirðingar
hafa verið mjög duglegir að nýta
sér.
Hulda Þiðrandadóttir, starfs-
maður Úrvals, sagði að það væri
skrítin tilfinning að skipta um
vinnustað eftir 35 ár, en hún
vann árum saman í Valbergi og
hin síðari ár Valbúð á Aðalgötu
16. Núna er hún komin til starfa í
nýjum húsakynnum að Aðalgötu
2–3. En Hulda sagði að þetta
væri engu að síður mjög ánægju-
legt.
Viðskiptavinir verslunarinnar
voru hinir ánægðustu með nýju
búðina og vöruúrvalið er gott að
þeirra mati. Til að leggja áherslu
á þetta var nýju búðinni gefið
nafnið Úrval!
Tímamót í verslunarrekstri í Ólafsfirði
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Hulda Þiðrandadóttir gaf sér tíma til að líta upp ásamt nokkrum við-
skiptavinum Úrvals, en þeir eru Ingibjörg Antonsdóttir og barnabörn
hennar Kristófer Númi og Anna Dís Hlynsbörn.
Sameinuð verslun
opnuð í bænum