Morgunblaðið - 16.01.2003, Side 19
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 19
FYRIRTÆKIÐ Geislabrot er að
hefja starfsemi sína. Það er stofnað
af sjö húsmæðrum í Mýrdalnum sem
tóku sig saman og keyptu stórvirka
leysiskurðarvél. Vélin er sú fyrsta
sinnar tegundar á Íslandi og sker
hún flest efni nema gler, stein og
járn. Öll framkvæmd við skurð-
arvélina fer fram í gegnum tölvu.
Til kaupa á skurðarvélinni fengu
þær stuðning frá Framleiðnisjóði,
Iðntæknistofnun og úr sjóði sem
sérhæfir sig í atvinnumálum
kvenna. Að sögn Ernu Ólafsdóttur,
bónda í Pétursey, og Ásrúnar Guð-
mundsdóttur, bónda í Steig, tveggja
af eigendunum, eru margar hug-
myndir í gangi um notkun á þessu
tæki og eru möguleikarnir nánast
ótakmarkaðir, t.d. geta þær tekið
við teikningum frá hönnuðum og
arkitektum og útbúið líkön fyrir þá,
einnig hafa þær hug á að framleiða
minjagripi og verður eitt af fyrstu
verkunum að skera út Lunda sem
minjagripi. Það er fyrirtækið Ice
Lux sem flutti tækið inn frá Taívan.
Undanfarna daga hefur Watson Yu,
sem kemur frá verksmiðjunni þar
sem skurðarvélin er framleidd, og
Guðmundur R. Ólafsson kerfisfræð-
ingur T.V., verið að kenna konunum
á tækið og setja það upp. En mest
vinnan er að læra á teikniforritið
sem stjórnar skurðarvélinni.
Watson varð fyrir smááfalli þegar
hann kom í Mýrdalinn, hann taldi
víst að hann væri að koma í 200
manna fyrirtæki vegna þess hvað
skurðarvélin er afkastamikil.
Skurðarvélinni var komið fyrir í
hluta af skólahúsinu á Ketilsstöðum
en þar var hætt að kenna síðastliðið
haust.
Afkastamikil skurðar-
vél tekin í notkun
Fagridalur
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Fyrstu tilraunaverkefnin.
Geislabrot er nýtt fyrirtæki
BIFREIÐ fór út af veginum við
Skáraklettanes í Steingrímsfirði sl.
þriðjudag. Bifreiðin, sem er af Sub-
aru-gerð, er mikið skemmd ef ekki
ónýt. Ökumaður slapp með skrámur
og má teljast heppinn að hafa ekki
slasast alvarlega.
Bifreiðin var á leið inn Selströnd og
missti ökumaður hana út af veginum
þar sem hann ók út úr beygju við
Skáraklettanes. Fór bifreiðin niður
fyrir veg, valt og endaði á toppnum.
Bílvelta á Selströnd
Drangsnes
Morgunblaðið/ Jenný Jensdóttir
SIGURÐUR Jónsson, kennari og
framkvæmdastjóri á Selfossi, hefur
verið ráðinn forstöðumaður Svæðis-
vinnumiðlunar Suðurlands úr hópi
28 umsækjenda. Svavar Stefánsson
forstöðumaður lét af því starfi um
áramót.
Sigurður hefur þegar hafið störf
og verður kominn til fullra starfa á
Svæðisvinnumiðluninni á næstu
tveimur vikum.
Sigurður hefur starfað á Selfossi
sem kennari við grunnskólann,
framkvæmdastjóri á ferðaþjónustu-
sviði KÁ, sem verkefnisstjóri við
byggingu Hótels Selfoss og sem
námsráðgjafi við Fjölbrautaskóla
Suðurlands. Einnig hefur hann
reynslu af störf-
um að félagsmál-
um, m.a. í al-
mennum félögum
og sem sveitar-
stjórnarmaður í
bæjarstjórn Sel-
foss 1990–1998 og
sem nefndarmað-
ur og formaður
félagsþjónustu-
nefndar Selfoss
og Árborgar til 10 ára. Þá hefur Sig-
urður einnig unnið við blaða-
mennsku, sem fréttaritari Morgun-
blaðsins í ríflega tvo áratugi.
Eiginkona Sigurðar er Esther
Óskarsdóttir, framkvæmdastjóri
Heilbrigðisstofnunarinnar á Sel-
fossi.
Nýr forstöðumaður
Svæðisvinnumiðlunar
Selfoss
Sigurður
Jónsson
LANDIÐ
RÚMUR milljarður af skuldum
Hafnasamlags Suðurnesja kemur í
hlut Reykjanesbæjar, Vatnsleysu-
strandarhreppur tekur á sig 65
milljónir og Gerðahreppur 39
milljónir kr. Samkomulag hefur
náðst í skilanefndinni eftir langt
þref. Fulltrúar allra sveitarfélag-
anna segjast sáttir við niðurstöð-
una.
Störfum skilanefndar Hafna-
samlags Suðurnesja (HASS) lauk í
gær með undirritun samkomulags
um skiptingu eigna og skulda sam-
lagsins. Samkomulagið gengur nú
til sveitarstjórnanna þriggja til
staðfestingar og verður þá Hafna-
samlaginu formlega slitið.
Reykjanesbær, Gerðahreppur
og Vatnsleysustrandarhreppur
mynduðu Hafnasamlag Suðurnesja
1996 með sameiningu allra hafna í
þessum þremur sveitarfélögum.
Vatnsleysustrandarhreppur sagði
sig úr samlaginu í lok ársins 2000
og átti úrsögnin að taka gildi í lok
ársins 2001 og Gerðahreppur
fylgdi síðan í kjölfarið. Skilanefnd
sem skipuð er tveimur fulltrúum
frá hverju þessarra sveitarfélaga
náði ekki samkomulagi um skipt-
ingu skulda Hafnasamlagsins og
var þá skipaður hlutlaus oddamað-
ur, Ásgeir Thoroddsen lögmaður.
Samkomulag það sem skilanefndin
hefur nú undirritað byggist á til-
lögu hans.
Samkvæmt samkomulaginu
verða hafnamannvirki á hverjum
stað aftur eign viðkomandi sveitar-
félags frá 1. janúar 2002 að telja
svo og framkvæmdir við þessi
mannvirki á starfstíma HASS.
Reykjanesbær fær afhentar allar
fasteignir HASS, hafnsögu- og
dráttarbátinn Auðun og aðrar
eignir samlagsins.
Skuldunum er í aðalatriðum
skipt þannig að upphafleg stofn-
framlög eigendanna og fram-
kvæmdir við hafnarmannvirki sem
til þeirra falla nú eru framreiknuð
til loka árs 2001 og fylgja eign-
unum til sveitarfélaganna. Um-
framskuldunum, en þær hafa orðið
til vegna tapreksturs HASS á
starfstíma þess, er skipt milli
sveitarfélaganna eftir íbúafjölda.
Samkvæmt þessu tekur Reykja-
nesbær á sig rúman milljarð af
nettóskuldum HASS, nánar tilekið
1.052 milljónir kr. miðað við verð-
lag í lok ársins 2001. Vatnsleysu-
strandarhreppur tekur á sig 64,8
milljónir og Gerðahreppur 39,2
milljónir kr.
Forsendur brugðust
Fulltrúar sveitarfélaganna kváð-
ust ánægðir með að samkomulag
hefði náðst, þegar rætt var við þá
eftir undirritun samninganna í
gærmorgun. Jón Gunnarsson, odd-
viti Vatnsleysustrandarhrepps,
sagði að allir hefðu gert sér grein
fyrir því við stofnun Hafna-
samlagsins að það væri of skuldugt
til að geta staðið undir sér að
óbreyttu. Því hefði það verið for-
senda sameiningarinnar að þáver-
andi samgönguráðherra hefði lofað
að ríkið yki fjárframlög sín til sam-
lagsins, til að létta skuldabyrðina
og til framkvæmda. Það hefði ekki
staðist. Sveitarstjórnin hafi litið
svo á að betra væri að reka höfn-
ina sjálfstætt en taka áfram þátt í
Hafnasamlaginu. Sigurður Jóns-
son, sveitarstjóri í Garði, segir að
sveitarstjórnin hafi metið það svo
að betra væri að ganga út úr sam-
laginu nú þar sem ekki væri sjáan-
legt að rekstur þess batnaði það
mikið að það réttlætti áframhald-
andi þátttöku hreppsins.
Ellert Eiríksson, fyrrverandi
bæjarstjóri Reykjanesbæjar, tók í
sama streng hvað varðar aðstoð
hins opinbera og bætir því við að
tekjur Hafnasamlagsins hafi dreg-
ist mjög saman vegna samdráttar í
sjávarútvegi. Þetta séu tvær helstu
ástæður slita samlagsins og hvor-
uga hafi menn getað séð fyrir.
Ellert sagðist hvorki geta lýst
yfir ánægju né óánægju með nið-
urstöðu skilanefndarinnar. „Þetta
er bara niðurstaða sem menn hafa
orðið ásáttir um. Ég held þó að all-
ir geti farið þokkalega sáttir frá
borðinu,“ sagði hann.
Enginn þremenninganna kann-
ast við að slit á Hafnasamlagi Suð-
urnesja geti talist áfall fyrir sam-
vinnu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum. Ellert bendir á að
samvinna sveitarfélaganna sé á
öðrum grunni og hún gangi vel. Í
samstarfinu um hafnirnar hafi ut-
anaðkomandi áhrif valdið því að
menn hafi talið hagkvæmara að
skipta samlaginu aftur upp. Jón
Gunnarsson tekur undir það, segir
að samvinna sveitarfélaganna sé í
góðum farvegi og Sigurður bendir
á að sveitarfélögunum hafi tekist
að leysa þetta erfiða uppgjörsmál
með samkomulagi.
Samkomulag um skiptingu eigna og skulda Hafnasamlags
Reykjanesbær
tekur á sig skuldir
upp á milljarð
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Skilanefndarmennirnir Ellert Eiríksson, Sigurður Jónsson og Jón
Gunnarsson takast í hendur eftir undirritun samkomulags um slit HASS.
Suðurnes
Frambjóðendur Framsóknar-
flokksins í Suðurkjördæmi verða
með kynningarfund í Reykjanesbæ í
kvöld. Fundurinn verður í félags-
heimili framsóknarmanna við Hafn-
argötu í Keflavík og hefst klukkan
20.
Tíu bjóða sig fram við uppstillingu á
listann og verður kosið á milli þeirra
á aukakjördæmisþingi sem fram fer
á Hótel Selfossi næstkomandi laug-
ardag.
Í DAG
EKKI hefur verið skipuð ný stjórn
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
(HSS). Einn af þremur fulltrúum
sem sveitarfélögin tilnefndu fyrir
meira en hálfum öðrum mánuði
krefst þess að stjórnin ræði lækna-
deiluna.
Ráðherra ber að skipa í stjórn
sjúkrastofnana, að fengnum tillög-
um sveitarstjórna og starfsmanna,
að afloknum sveitarstjórnarkosn-
ingum. Þar sem það hefur enn ekki
verið gert spurðist Eyjólfur Ey-
steinsson, einn þeirra þriggja sem
sveitarfélögin hafa tilnefnt, fyrir um
málið hjá heilbrigðisráðherra.
Samkvæmt upplýsingum úr heil-
brigðisráðuneytinu var óskað eftir
tilnefningum heimamanna að aðal-
og varamönnum með bréfum í júní.
Sveitarfélögin hafi tilnefnt sína full-
trúa með bréfi 27. nóvember síðast-
liðinn en tilnefning hefði ekki borist
frá starfsmannafélagi HSS. Beiðni
um tilnefningu hafi nú verið ítrekuð.
Eyjólfur segist raunar hafa þær
upplýsingar að starfsmannafélagið
sé búið að ganga frá tilnefningu
sinna fulltrúa og hafi skilað þeim til
skrifstofu framkvæmdastjóra. Þær
hafi af einhverjum ástæðum ekki
verið sendar áfram til ráðuneytisins.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, aðstoðar-
maður ráðherra, segir að ráðherra
sé tilbúinn með þá menn sem verði
skipaðir formaður og varaformaður
stjórnar og stjórnin verði skipuð um
leið og allar tilnefningar hafi borist.
Eyjólfur segir að neyðarástand sé
að skapast á Suðurnesjum vegna
læknadeilunnar og segir hann mik-
ilvægt að stjórnin sé kölluð saman
til að ræða málið. Muni hann krefj-
ast þess að fá upp á borðið skýr-
ingar á því á hverju strandi í við-
ræðum við lækna heilsugæslu-
stöðvarinnar. Segir Eyjólfur að
þessi vandræðagangur við skipan
stjórnarinnar breyti ekki því að
fjalla eigi um málið á þessum vett-
vangi. Gamla stjórnin sitji þar til sú
nýja taki til starfa en hún hafi held-
ur ekki verið kölluð saman til að
ræða málið.
Ný stjórn HSS ekki verið skipuð
Reykjanes