Morgunblaðið - 16.01.2003, Qupperneq 41
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 41
VESTMANNAEYJAR eru í for-
grunni í viðtali franska tímaritsins
Télérama við Sólveigu Anspach
kvikmyndaleikstjóra um næstu
mynd hennar Stormy Weather.
Myndin gerist að hluta til í Vest-
mannaeyjum, einnig í París og
Belgíu.
Tökur í Vestmannaeyjum fóru
fram í nóvember og segir í grein-
inni að svo til allt kvikmyndagerð-
arfólkið hafi orðið sjóveikt um
borð í Herjólfi á leiðinni til Eyja.
Fram kemur að Högna Sigurð-
ardóttir arkitekt, móðir Sólveigar,
hafi fyrst íslenskra kvenna fengið
inngöngu í Beaux-Arts-listaskól-
ann í París, þar hafi hún orðið ást-
fangin af Bandaríkjamanni og átt
dótturina Sólveigu heima á Íslandi.
Þrátt fyrir að hafa alist upp í
Frakklandi hafi Sólveig aldrei slit-
ið tengslin við Ísland. Henni hafi
þótt Vestmannaeyjar henta vel fyr-
ir kvikmyndina Stormy Weather.
Myndin segir frá Coru, ungri
franskri konu sem er að læra geð-
lækningar. Cora tekur undir sinn
verndarvæng konu sem enginn
veit hver er og aldrei segir orð.
Cora einsetur sér að lækna þessa
dularfullu konu og þegar í ljós
kemur að hún er íslensk eltir Cora
hana til Vestmannaeyja.
Minnir á Hringadróttinssögu
Í grein Télérama segir að Cora
hálf tapi sér í þeirri umleitan sinni
að bjarga sjúklingi sínum, hún
finni í það minnsta nýjan heim í
Vestmannaeyjum sem veki upp
spurningar um hennar eigin.
„Land þar sem náttúruöflin eru sí-
fellt að störfum, landslag sem
ferðamálaráð stærir sig af á veggj-
um Métrosins [neðanjarðarlest-
arinnar] í París, dregur dár að öll-
um tilvistarefa,“ segir í greininni.
„Á meginlandi Evrópu telur fólk
sig hafa náð stjórn á náttúrunni, á
Íslandi gerir maður sér grein fyrir
því að það er ekki rétt,“ er haft eft-
ir Sólveigu Anspach.
Télérama segir að í Vest-
mannaeyjum geri maður sér betur
grein fyrir kröftum náttúrunnar
en annars staðar og er gosið í
Heimaey, sem hófst fyrir tæpum 30
árum, rifjað upp. Sólveig segist vel
muna eftir þessum atburðum. „Ég
varð ekki vitni að eldgosinu sjálfu,
en ég fékk martraðir um það í
mánuði á eftir,“ segir Sólveig.
Landslagið í Vestmannaeyjum er
sagt minna á Mordor, heimkynni
Saurons í Hringadróttinssögu.
Leikkonan Elodie Bouchez, sem
er mjög þekkt í Frakklandi og hef-
ur m.a. fengið leikkonuverðlaunin
í Cannes, fer með hlutverk Coru en
skáldkonan Didda hlutverk sjúk-
lingsins, Lóu. Ingvar E. Sigurðsson
leikur eiginmann hennar og Balt-
asar Kormákur lækni í Vest-
mannaeyjum.
Franska tímaritið Télérama talar við Sólveigu Anspach
Stormasamt í Eyjum
Mynd úr Télérama af Sólveigu Anspach í Vestmannaeyjum.
Vegleg fjögurra síðna umfjöllun er um Sólveigu og tökurnar á Stormy
Weather í nýlegu tölublaði tímaritsins Télérama.
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 11:00-19.00.
Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is
Hér er á ferðinni stórsýning þar sem rúmlega 20 manns
koma fram, söngvarar, hljóðfæraleikarar og dansarar.
Í Egilsbúð á Neskaupstað í haust sáu 1400 manns sýninguna.
Matur-skemmtun og
dansleikur 5.700 kr.
Skemmtun og
dansleikur 2.500 kr.
Dansleikur 1.500 kr.
T ó n l i s t a r s t j ó r n : G u ð n i B ra g a s o n
F ra m ko m a : A n n a K a r í n J ó n s d ó t t i r, K r i s t j á n
Þ ó r M a g n ú s s o n , A ð a l s t e i n n J ú l í u s s o n , L á ra
S ó l e y J ó h a n n s d ó t t i r, S ö n g va s y s t u r ( G u ð n ý ,
B y l g j a , H a r p a o g S vava S t e i n g r í m s d æ t u r ) ,
G u ð n i B ra g a s o n o g S i g u r ð u r I l l u g a s o n
a u k s j ö m a n n a s t ó r h l j ó m s v e i t a r.
G e s t a h l j ó ð f æ ra l e i k a r i : K r i s t i n n S vava r s s o n
Kynni r : Jóhann Kr is t inn Gunnarsson.
Stórdansleikur
með hljómsveitinni
The
Hefners
að lokinni sýningu
Þingeyingakvöld á Broadway
föstudaginn 31. janúar 2003
Vegna fjölda áskorana færir húsvískt
tónlistarfólk ykkur tónlistarveisluna:
Það er svo skrýtið
Söngperlur Vilhjálms Vilhjálmssonar
„Bíddu pabbi, Ég fer í nótt, SOS (ást í neyð),
Það er svo skrítið, Vor í Vaglaskógi, Heimkoman,
Það er bara þú, Fátt er svo með öllu illt, Við
eigum samleið, Sjómannsvísa, Söknuður, Og co,
Einbúinn, Svefnljóð, Hrafninn, Lítill drengur,
Þú átt mig ein, Dans gleðinnar“
Matur-skemmtun og
dansleikur 4.900 kr.
Skemmtun og
dansleikur 2.500 kr.
Dansleikur 1.200 kr.
St
af
ræ
na
h
ug
m
yn
da
sm
ið
ja
n/
27
30
Lög frá Beach Boys, Gipsy Kings og fleirum og fleirum.
Sólstrandaveisla
Blús, Rokk og Djassklúbburinn
föstudaginn 17. janúar:
„Hent'í mig hamrinum!“
Kaffibrúsakarlarnir
Kr. 1.800 á skemmtun.
Kr. 3.900 þorramatur
og skemmtun.
Laugardaginn
25 janúar
og laugardaginn
8. febrúar
Ennþá skemmti-
legastir eftir
30 ár
• Þau syngja, dansa og þjóna þér !
• Þau láta þig hlæja, dansa
og syngja!
• Ekki missa af þessari sýningu !
• Þau eru Le'Sing!
Næsta sýning 17. janúar og svo alla föstudaga og laugardaga í vetur.
Verð kr. 2.500 + matur
Litla sviðið opnar klukkan 19.30 .
Sýningin hefst
stundvíslega kl. 20:00.
Að gera góða auglýsingu betri
Morgunblaðið býður auglýsingahönnuðum og prentsmiðum upp
á námskeið þar sem farið verður yfir helstu tæknilegu þætti þess
hvernig hægt er að gera góða auglýsingu betri.
Meðal þess sem farið verður yfir er:
Að velja liti í Morgunblaðið.
Stillingu tölvuskjáa og gerð skjáprófíla.
Að setja upp Photoshop forritið þannig að það henti
vinnslu fyrir Morgunblaðið.
Notkun prófíla.
Nokkur helstu atriði í myndvinnslu.
Nokkur atriði varðandi letur.
Acrobat Distiller og gerð pdf skráa.
Sendingu auglýsinga til Morgunblaðsins.
Námskeiðið er 3ja daga og ókeypis, mánudagur, þriðjudagur og
miðvikudagur frá kl. 17:00-20:00. Fyrirhugað er að halda fyrsta
námskeiðið 7., 8. og 9. október og ef þátttaka verður mikil, fleiri
námskeið næstu vikur á eftir.
Fyrsti dagurinn er byggður upp á kynningu, en seinni tveir dagarnir
eru byggðir upp á verkefnavinnu þátttakenda.
Námskeiðið verður haldið í auglýsingadeild Morgunblaðsins.
Leiðbeinendur verða Ólafur Brynjólfsson og Snorri Guðjónsson.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til auglýsingadeildar
Morgunblaðsins, í netfang augl@mbl.is, þar sem fram kemur nafn,
símanúmer og vinnustaður.
Að gera góða auglýsingu betri
Morgunblaðið býður auglýsingahönnuðum og prentsmiðum upp
á námskeið þar sem farið verður yfir helstu tæknilegu þætti þess hvernig
hægt er að gera góða auglýsingu betri.
Meðal þess sem farið verður yfir er:
Að velja liti í Morgunblaðið.
Stillingu tölvuskjáa og gerð skjáprófíla.
Að setja upp Photoshop forritið þannig að það henti
vinnslu fyrir Morgunblaðið.
Notkun prófíla.
Nokkur helstu atriði í myndvinnslu og nýjungar í Photoshop 7.
Nokkur atriði varðandi letur.
Acrobat Distiller og gerð pdf skráa.
Sendingu auglýsinga til Morgunblaðsins.
Námskeiðin eru 3ja daga og ókeypis, ánudagur, þriðjudagur og
miðvikudagur frá kl. 14:00-17:00 eða frá kl. 17:00-20:00. Fyrirhugað
er að halda námskeiðin í febrúar og mars.
Fyrsti dagurinn er byggður upp á kynningu, en seinni tveir dagarnir
eru byggðir upp á verkefnavinnu þátttakenda.
Námskeiðið verður haldið í auglýsingadeild Morgunblaðsins.
Leiðbeinendur verða Ólafur Brynjólfsson og Snorri Guðjónsson.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til auglýsingadeildar Morgunblaðsins,
í netfang augl@mbl.is, þar sem fram kemur nafn, símanúmer,
vinnustaður og hvaða mánuður og tímasetning
hentar best.