Morgunblaðið - 16.01.2003, Page 45
KVIKMYNDAVERÐLAUN banda-
rísku kvikmyndaakademíunnar, Ósk-
arinn, eru umtöluðustu verðlaun
kvikmyndageirans en síðustu helgi
voru tæplega 6000 kjörseðlar sendir
út til þeirra sem eru kjörgengir hjá
Akademíunni.
Hinn 11. febrúar næstkomandi
verða tilnefningar kynntar og eru
spekingar þegar farnir að velta vöng-
um yfir því hvaða myndir munu fylla
viðkomandi flokka. FagritiðHolly-
wood Reporter er ein helsta heim-
ildin um þessi mál vestra og eru flest-
ir á því að þetta ár verði fremur
órætt. Ekki þykir líklegt að nein
mynd sópi að sér verðlaunum eins og
oft vill verða, sbr. Schindler’s List ár-
ið 1993 (alls 7 verðlaun) og Titanic
1997 (alls 11 verðlaun).
Opinberlega koma 279 myndir til
greina sem besta myndin en af þeim
er þó einungis rétt liðlega tugur í ein-
hverri alvöru umræðu sem líklegir
kostir. Þar á meðal er kvikmyndgerð
eftir söngleiknum Chicago og dramað
The Hours (byggt á samnefndri bók
sem vann Pulitzer-verðlaun og skart-
ar m.a. Meryl Streep og Nicole Kid-
man). Báðar myndir eru tilnefndar til
fjölda Golden Globe-verðlauna, sem
þykir gefa ákveðnar vísbendingar um
Óskarinn.
Venjan hefur verið sú að tilnefna
a.m.k. eina „stórmynd“ hvert ár og
koma tvær til greina þetta árið. Ann-
ars vegar The Lord of the Rings: The
Two Towers en mörgum þótti gengið
fram hjá undanfaranum í fyrra, The
Lord of the Rings: The Fellowship of
the Ring. Engu að síður er talið að
enn verði beðið með að ausa verð-
launum yfir Peter Jackson leikstjóra
og félaga, það verði gert er þriðja
myndin, The Lord of the Rings: The
Return of the King, verður gerð upp
á næsta ári. Önnur stórmyndin sem
til greina þykir koma er Gangs of
New York, stórvirki Martin Scorsese,
sem vakið hefur sterk viðbrögð gagn-
rýnenda, flest jákvæð en sum nei-
kvæð. En hvað sem því líður er
myndin dæmigerður „Óskarsmatur“.
Aðrar myndir sem talað er um sem
bestu myndir síðasta árs eru About
Schmidt (með Jack Nicholson sjóð-
heitum og Óskarsvænum í burð-
arrullu), Far From Heaven (eftir
Todd Haynes), Adaption (eftir Spike
Jonze), The Pianist (eftir Polanski en
hún fékk Cannes-verðlaunin í fyrra
og verðlaun Landssamtaka kvik-
myndagagnrýnenda vestra), Road to
Perdition (með Tom Hanks og Paul
Newman), Antwone Fisher (leikstýrt
af Denzel Wahsington) og 25th Hour
(eftir Spike Lee). Þá er Steven Spiel-
berg með tvær myndir sem eru lög-
legar þetta árið, Minority Report og
Catch Me If You Can. Akademían
mun ekki hafa mikinn smekk fyrir
vísindaskáldsögum og Spielberg hef-
ur löngum verið í kuldanum þar
(nema þegar áðurnefnd Schindler’s
List sló í gegn). Myndir sem taka á
helförinni hafa jafnan átt skjól hjá
Akademíunni og því er mynd Pol-
anski, The Pianist, sem fjallar einmitt
um upplifun leikstjórans af henni, tal-
in líkleg til stórræða, og þar er nafn
aðalleikarans, Adriens Brody, gjarn-
an nefnt til sögunnar.
Þá eru tvær erlendar myndir einn-
ig uppi á borði. Hable Con Ella (Talk
To Her) eftir Spánverjann Pedro
Almodovar og hin mexíkóska Y Tu
Mamá También (And Your Mother
Too). Báðar eru gildar í almenna
flokkinn, ekki hinum erlenda, þar
sem myndirnar voru sýndar í al-
mennum sýningum í Los Angeles á
síðasta ári.
8 Mile, sem er sjálfsævisöguleg
mynd, byggð á ævi hins geysivinsæla
rappara Eminem, þykir þá líkleg til
að gára vatnið. M.a. er talað um Em-
inem, sem leikur aðalhlutverkið, sem
mögulegan Óskarsverðlaunahafa.
Óskarsverðlaunin verða afhent við
hátíðlega athöfn hinn 23. mars.
Fyrstu Óskarsspár farnar að berast
Engin ein mynd þyk-
ir sigurstranglegust
Gangs of New York, eftir Martin Scorsese, er ein
þeirra mynda sem þykja líklegar til að gera skurk í
Óskarnum í ár.
Reuters
Stórleikkon-
urnar Meryl
Streep, Jul-
ianne Moore og
Nicole Kidman
þykja allar lík-
legar til stór-
ræða á Ósk-
arnum fyrir
framlag þeirra
til The Hours.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 2003 45
Kvikmyndir.isHL MBL
E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I
Hún var flottasta pían í bænum
Sýnd kl. 5 Ísl. tal./Kl. 6 og 9.15 enskt tal./ Kl. 5 Ísl. tal. Vit 468
1/2 Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 5, 7 og 9. / Sýnd kl. 5, 6 og 10. / Sýnd kl. 8 og 10 .
Sýnd kl. 3.45, 5.45, 8 og 10.15 / Sýnd kl. 7, 9 og 10.10. / Sýnd kl. 8 og 10.
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.45 og 10.15. B. I. 16.
Robert DeNiro, BillyCrystalog
LisaKudrow(Friends) eru mætt
aftur í frábæru framhaldi af hinni
geysivinsælu gamanmynd
AnalyzeThis.
ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI KEFLAVÍK
ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI
Sýnd kl. 3.45 íslenskt tal./ Kl. 5 og 6 íslenskt tal./Kl. 6 íslenskt tal.
ÁLFABAKKI AKUREYRIÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI / KEFLAVÍK
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 10.15. B.i. 16.
ÁLFABAKKI
DV
ÁLFABAKKI AKUREYRI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15. / Sýnd kl. 8.