Morgunblaðið - 24.01.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.01.2003, Blaðsíða 2
F Ö S T U D A G U R 2 4 . J A N Ú A R 2 0 0 3 B L A Ð B  INGI 26 BINGÓ!/2  ÞORRAMATURINN ÞJÓÐLEGI/3  ÍSLENSK FLÍK ENGRI LÍK/4  SAMSTARF NEMA LHÍ OG HR – HUGMYNDARÍKIR HÓPAR/6  AUÐLESIÐ EFNI/8  B ÓNDADAGUR er í dag, fyrsti dagur þorra. Dagurinn hefur í sjálfu sér enga sérstaka þýð- ingu í huga karla nú til dags, nema ef vera skyldi að eig- inkonan eða unnustan færði þeim blómvönd í tilefni dagsins. Sá ágæti siður mun hafa hafist um og eftir 1980, líklega í tengslum við vaxandi jafnréttisumræðu, því frá því um miðjan sjötta áratug síðustu aldar hefur það tíðkast að karlar færi konum sínum blóm á konudaginn, fyrsta dag góu. Í íslensku bændasamfélagi hér fyrr á öldum var þorrinn tileink- aður húsbóndanum, en góa hús- freyjunni, og í gömlum heimildum má finna frásagnir um sérstakar at- hafnir sem tengdust bóndadegi. Um þetta segir meðal annars í þjóð- sagnasafni Jóns Árnasonar: „Þess vegna var það skylda bænda „að fagna þorra“ eða „bjóða honum í garð“ með því að þeir áttu að fara fyrstir á fætur allra manna á bænum þann morgun sem þorri gekk í garð. Áttu þeir að fara ofan og út í skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra brókarskálmina og láta hina svo lafa eða draga hana á eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti í kringum allan bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa. Síðan áttu þeir að halda öðr- um bændum úr byggðarlaginu veislu fyrsta þorradag; þetta hét „að fagna þorra“. Reyndar segir Árni Björnsson þjóðháttafræðingur, í riti sínu Saga daganna, að heimildum beri ekki alveg saman um hvort það er hús- freyjan eða húsbóndinn sem bjóði þorra inn. Í þeirri eldri er það hús- freyjan, en í hinni yngri er það hús- bóndinn. „Eldra viðhorfið fær stuðning í sumum þorrakvæðum, til dæmis vísum um „kallinn Þorra“ frá árinu 1744 eftir síra Benedikt Jónsson úr Bjarnanesi. Þar hvetur hann hverja snót til að taka með blíðuhótum á móti Þorra. Ein vísan er á þessa leið: Konur allar kveð ég þess, kasti á palla og búi sess. So má falla, ef syngið vess, sjálfur kallinn verði hress. Árni Björnsson segir ennfremur að sami meiningarmunur hafi verið þekktur meðal núlifandi fólks, þar sem um nokkra svæðaskiptingu væri að ræða á þá lund að á landinu norðvestanverðu, frá Borgarfirði til Skagafjarðar fylgdi meirihluti eldra dæminu, að konan eigi að taka á móti þorra, en á Suðurlandi væri því öfugt farið. „Þessi munur er samt meira í orði en á borði því niðurstaðan er hin sama,“ segir Árni. „Hvort sem húsfreyja eða húsbóndi tekur á móti þorra þá er það einkum bónd- inn sem nýtur gæðanna hvar sem er á landinu. Hann fær besta kjötbit- ann (nýrnastykki, síðu, bringubita), ellegar brauð, kökur eða lummur eru skammtaðar öllum nema hon- um, sem fær að borða ómælt. Marg- ir geta þess einnig að honum sé fært í rúmið um morguninn, jafnvel að þetta sé frídagur bóndans.“ svg@mbl.is Þorramaturinn þjóðlegi Berlæraðir á bóndadegi 3 NATO-RÍKI DEILA Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kvaðst í gær vera viss um að margar þjóðir myndu fylkja sér með hersveitum Banda- ríkjamanna ef þeir ákvæðu að beita hervaldi til að afvopna Íraksstjórn þótt öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna samþykkti enga nýja ályktun þar að lútandi. Ummæli varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna um að and- staða Frakka og Þjóðverja við hugs- anlegan hernað í Írak væri afstaða „Gömlu Evrópu“ hafa aukið klofn- inginn milli stærstu bandamann- anna í NATO. Segir hagsmunina vanmetna Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra segir stjórn Landssam- bands íslenskra útvegsmanna van- meta viðskiptahagsmuni Íslendinga vegna stækkunar Evrópusambands- ins. Stjórn LÍÚ telur kröfur ESB um hækkað framlag Íslendinga til þróunarsjóða sambandsins vegna stækkunar þess í hróplegu ósam- ræmi við það sem í húfi sé. Bondevik ræðir kröfur ESB Kjell Magne Bondevik, forsætis- ráðherra Noregs, ræðir í dag við gríska ráðamenn í Aþenu og hyggst útskýra hvers vegna norska stjórnin hafnar fjárkröfum framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins í samningaviðræðum um aðlögun samningsins um Evrópska efna- hagssvæðið að stækkun ESB. Annar samningafundur EFTA-ríkjanna og ESB um samninginn verður haldinn í Brussel í dag. Sigruðu Portúgal á HM Ísland sigraði Portúgal með eins marks mun, 29:28, í æsispennandi leik á heimsmeistaramótinu í hand- knattleik í gærkvöldi. Mótið er hald- ið í Portúgal. Segir verðmatið of lágt Verðmat endurskoðunarfyrirtæk- isins Deloitte & Touche á Frjálsa fjárfestingarbankanum er faglegt stórslys að mati Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis sem keypti bank- ann af Kaupþingi. SPRON segir að verðmatið sé of lágt vegna rangra forsendna og útreikninga endur- skoðunarfyrirtækisins. Y f i r l i t FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ 575 1230 Opi› mán-fös 09-18 og lau 10-16 Glæsivagn Mercedes Benz ML55 AMG 8.990fl. N‡skr.05.2002, 5400cc vél, 332 hö 5 dyra, sjálfskiptur silfurgrár, ekinn 7.fl, Í dag Sigmund 8 Minningar 32/38 Viðskipti 13/14 Staksteinar 42 Erlent 15/18 Bréf 40/41 Höfuðborgin 19 Skák 43 Akureyri 20 Dagbók 42/43 Suðurnes 21 Brids 43 Landið 22 Leikhús 48 Listir 23/24 Fólk 48/53 Umræðan 25/47 Bíó 50/53 Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54 Viðhorf 38 Veður 55 * * * NORSK yfirvöld hafa sektað skip- stjóra Stakkanessins, sem notað er við björgunaraðgerðir vegna Guðrúnar Gísladóttur KE-15, um 460 þúsund íslenskar krónur. Sekt- in er fyrir að hafa siglt án hafnsögu- manns, farið um ólöglega siglinga- leið og hunsað skipanir um að halda sig fjarri Moskenesstraumnum. Þetta kemur fram í norska dag- blaðinu Avisa Nordland. Atvikið átti sér stað í byrjun desember þegar Stakkanesið var á leið inn til Lofoten með útbúnað og mannskap til að taka þátt í björg- unaraðgerðunum. Er haft eftir lögreglu í Avisa Nordland að skip þurfi alltaf að biðja um leiðsögn á þessu svæði en það hafi ekki verið gert, Stakkanesið hafi ekki farið eftir þekktri siglingaleið og hunsað skipanir strandgæslunnar um að snúa við og sigla inn til Lofoten eftir annarri leið þegar eftir því var óskað. „Þetta er alvarlegt brot á norskum lögum um siglingu er- lendra skipa í norskri lögsögu og hefur þetta mál fengið forgang hjá okkur,“ hefur blaðið eftir Ritu Her- mannsen, lögfræðingi lögreglunn- ar. Ásgeir Logi Ásgeirsson, sem er í forsvari fyrir björgunaraðgerðirnar í Noregi, segir að skipið hafi farið eftir þeirri siglingaleið sem ákveðin hafi verið áður en skipið lagði af stað frá Íslandi. Í kjölfar strands Guðrúnar hafi reglur um siglingar á þessari siglingaleið verið hertar. „Skipstjórinn tilkynnir sig þegar hann kemur inn í 12 mílur og aftur þegar hann kemur inn í 4 mílur og þá hringja þeir í hann til baka til að segja að hann megi ekki fara þessa leið en þá er hann farinn í gegnum leiðina. Þessi siglingaleið er hvorki óþekkt né ólögleg, þessa leið fara langflestir bátar. Það var óhapp að við skyldum ekki láta vita fyrr,“ seg- ir Ásgeir Logi. Hann segir að sektin verði borguð, það sé dýrara að reyna að komast hjá því. Sagður hafa hunsað skip- anir norskra yfirvalda Skipstjóri Stakkanessins sektaður um 460 þúsund krónur „JÁ, ÉG man mjög vel eftir ferðinni til Noregs fyrir þrjátíu árum,“ segir Þóra Lind Karlsdóttir sem var ein 850 barna frá Vestmannaeyjum sem fóru í tveggja vikna ferð til Noregs sum- arið 1973. Um 300 einstaklingar úr hópnum hittust á Hótel Loftleiðum í gær í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá því að gosið í Heimaey hófst. „Ég og bróðir minn fórum til Hurdal í Noregi og vígðum nýtt heimili fyrir fatlaða krakka. Það var alveg yndislegt að vera þarna.“ Þóra var tíu ára sumarið sem hún fór til Nor- egs. „Ég hugsa oft um þessa ferð, sérstaklega þegar þessi dagur nálgast ár hvert. Svo fór ég árið 1986 til Noregs og gerði mér sérstaka ferð og heimsótti Hurdal til að upplifa þetta allt saman aftur. Það var alveg einstakt.“ Þóra Lind segir að sérstæðar aðstæður hér heima hafi örugglega orðið til þess að upplif- unin af ferðinni til Noregs varð einstakari og öðruvísi en ella. „Það var heilmikil tilhlökkun að fara og skipta um umhverfi. Þá var líka spennandi að komast til útlanda, þetta var í fyrsta skipti sem flest okkar voru að fara til út- landa.“ Gos og hraun fyrir alla Hugmyndina að því að bjóða börnum frá Vestmannaeyjum til Noregs átti Ólöf Bjarna- dóttir sendiherrafrú í Ósló. Viðraði hún hug- myndina við Ólaf Friðfinnsson sem þá starfaði á skrifstofu Loftleiða í Ósló. Efnt var strax á fyrstu dögum gossins til söfnunar í Noregi og á 19 dögum hafði tekist að safna fyrir ferðinni. „Upphaflega héldum við að börnin í Vest- mannaeyjum væru um 200 talsins en fljótlega kom í ljós að þau voru 850! Norðmenn skyldu ekkert í þessari frjósemi Vestmannaeyinga,“ sagði Ólafur Friðfinnsson á Hótel Loftleiðum í gær við mikinn hlátur viðstaddra. Hann sagði ótrúlegt að ferðin skyldi hafa heppnast jafnvel og raun bar vitni og að ekkert óhapp hefði orð- ið í ferðinni. „Ég sé að þið hafið stækkað og sum ykkar breikkað en vonandi eruð þið sömu prakkararnir og jafnlífsglöð og þið voruð fyrir þrjátíu árum.“ Ferðin var skipulögð af Rauða krossi Íslands með aðstoð Loftleiða, nú Flugleiða. Þessir sömu aðilar skipulögðu endurfundina á Hótel Loft- leiðum í gærkvöldi. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Flugleiða, bauð fólkið velkomið og sagði frá því að einhver hefði stungið upp á því að á boð- stólum yrði eingöngu haft gos og hraun, en þessi brandari er Vestmannaeyingum vel kunn- ur. Þá var sýnd kvikmynd um aðstoð Rauða kross Íslands. Það urðu að vonum fagnaðarfundir með fólk- inu sem jafnan er nefnt gosbörnin en þetta eru fyrstu formlegu endurfundir hópsins. Af þeim 850 einstaklingum sem fóru til Noregs eru um 350 nú búsettir á höfuðborgarsvæðinu, 290 í Eyjum og aðrir annars staðar á landinu eða er- lendis. „Gosbörnin“ minntust ferðar til Noregs Vestmannaeyjameyjar rýna í 30 ára gömul norsk dagblöð þar sem sagt er frá heimsókn krakkanna. BIFREIÐAEIGENDUR geta nú fengið fimm króna afslátt af hverjum lítra í sjálfsafgreiðslu hjá bæði Skeljungi og Esso. Greinilegt er að aukinnar sam- keppni gætir á bensínmarkaðin- um, a.m.k. í sjálfsafgreiðsluvið- skiptum. Að því er næst verður komist mun hlutfall sjálfsaf- greiðslu í heildarsölu á bensíni vera á bilinu 40 til 50% hjá olíu- félögunum þannig að afsláttur Skeljungs og Esso tekur til stórs hóps viðskiptavina. Esso kynnti á miðvikudaginn nýja þjónustu þar sem menn geta greitt í sjálfsölum við dæl- ur og fengið fjögurra króna af- slátt auk einnar krónu til safn- kortshafa. Skeljungur, sem heldur upp á 75 ára afmæli Shell á Íslandi í þessum mánuði, tilkynnti í gær að veittur yrði fimm króna afsláttur af elds- neyti í sjálfsafgreiðslu á öllum Shell-stöðvum á höfuðborgar- svæðinu út janúarmánuð en af- slátturinn sem hér um ræðir kemur til viðbótar þeim afslætti sem Shell-vildarvinir fá hjá fé- laginu. Olíufélagið/Esso brást strax við í gær og jók sinn af- slátt úr fjórum í fimm krónur og sem fyrr fá safnkortshafar fé- lagsins einnar krónu afslátt til viðbótar. Skeljungur ætlar að bjóða viðskiptavinum sínum afslátt á ýmsum vörum í tilefni afmælis- ársins. Aukinn afslátt- ur á bensíni VESTMANNAEYINGAR gengu í gærkvöldi með blys niður að höfn til að minnast þess að þrjátíu ár voru liðin frá upphafi eldgossins í Heimaey. Karl Sigurbjörnsson biskup var meðal þeirra sem flutti ræðu en hann var prestur í Eyjum. Morgunblaðið/Sigurgeir Goss minnst með blysför Morgunblaðið/Árni Sæberg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.