Morgunblaðið - 24.01.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Verð á mann frá 19.800* kr.
þegar bókað er á www.icelandair.is
www.icelandair.is
Netsmellur - alltaf ódýrast á Netinu
Flugsæti á broslegu verði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
IC
E
19
89
0
01
/2
00
3
*Innifalið: Flug og flugvallarskattar
MIKLAR úrbætur felast í nýrri
reglugerð um útlendinga, að því er
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð-
herra segir. Reglugerðin var gefin
út í gær og eiga endurbæturnar
bæði við um þá útlendinga sem
hingað koma og þær stofnanir sem
vinna með mál þeirra á grundvelli
reglugerðarinnar. Í reglugerðinni
má meðal annars finna fyrstu op-
inberu reglurnar um meðferð hæl-
isumsókna.
Georg Lárusson, forstjóri Út-
lendingastofnunar, segir útlend-
inga vera mun tryggari hér á landi
eftir setningu reglugerðarinnar.
Hann segist jafnframt telja að
vafamálum varðandi réttindi og
önnur málefni útlendinga muni
fækka um 90% í kjölfar setningar
reglugerðarinnar.
Sólveig sagði að nýja reglugerð-
in væri í aðalatriðum sambærileg
við það sem gerist víðast hvar á
Vesturlöndum. Kveðið er á um
setningu reglugerðarinnar í lögum
um útlendinga sem samþykkt voru
á Alþingi síðastliðið vor.
Ekki undanþága um
erlenda sérfræðinga
Heimild til fingrafaratöku af
hælisleitendum hafa verið þrengd
vegna tilmæla frá Persónuvernd.
Ákvæði um tryggt húsnæði og
vegabréfaskyldu voru rýmkuð og
skilgreiningu á samfelldri dvöl var
breytt eftir að fram komu ábend-
ingar frá hagsmunaaðilum. Engin
ákvæði um undanþágur fyrir er-
lenda sérfræðinga er að finna í
reglugerðinni. Sólveig segir að
ákveðið hafi verið að taka slíkt
ákvæði út úr reglugerðinni þar
sem fulltrúar vinnuveitenda hafi
ekki talið þörf á slíku að svo
stöddu. Þá sagði Sólveig að slík
ákvæði væri að finna í lögum og
reglugerðum flestra landa í kring
um okkur en tilgangur slíkra und-
anþága er yfirleitt sá að svara
þörfum vinnumarkaðarins fyrir
sérhæfða starfsmenn.
Samkvæmt reglugerðinni þurfa
útlendingar, sem sækja um dval-
arleyfi hér á landi, að sýna fram á
að þeir séu sjúkratryggðir hjá vá-
tryggingafélagi með starfsleyfi hér
á landi.
Útlendingarnir þurfa jafnframt
að sækja um dvalarleyfi áður en
þeir koma hingað til lands. Sam-
kvæmt því sem fram kom á blaða-
mannafundi með dómsmálaráð-
herra í gær geta þeir einnig fengið
sjúkratryggingar, samkvæmt nú-
gildandi reglum tryggingafélag-
anna, sem eiga lögheimili hér á
landi. Sólveig sagðist vonast til
þess að tryggingafélögin muni á
næstunni aðlaga reglur sínar að
sjúkratryggingakröfunni sem gerð
er til útlendinga, sem hyggjast
sækja um dvalarleyfi hér á landi, í
reglugerðinni.
Geta aðeins fengið fyrsta
maka sinn hingað til lands
Útlendingar sem sækja um dval-
arleyfi hér á landi þurfa jafnframt
að sýna fram á að framfærsla
þeirra sé trygg þann tíma sem þeir
sækja um að fá að dveljast hér á
landi og að þeir hafi tryggt hús-
næði þann tíma sem dvalarleyf-
isumsókn þeirra tekur til.
Þar sem fjölkvæni er ólöglegt
hér á landi geta þeir útlendingar,
sem eru með dvalarleyfi og eiga
fleiri en einn maka, einungis fengið
fyrsta maka sinn hingað til lands.
Þá geta útlendingar, sem hafa
dvalarleyfi hér á landi, einungis
fengið barnunga ættingja, sem þeir
hafa á framfæri sínu, hingað til
lands séu ættingjarnir ógiftir.
Þurfa að sækja námskeið í
íslensku fyrir útlendinga
Samkvæmt reglugerðinni þurfa
útlendingar sem sækja um búsetu-
leyfi hér á landi að leggja fram
vottorð um að þeir hafi sótt a.m.k.
150 stunda námskeið í íslensku
fyrir útlendinga og að tímasókn
þeirra hafi ekki verið minni en
85%. Þó er heimilt að víkja frá
ákvæðum um þátttöku í námskeiði
ef umsækjandi hefur náð viðhlít-
andi þekkingu í íslensku og getur
lagt fram vottorð því til staðfest-
ingar.
Vafamálum um réttindi útlendinga fækkar um 90% með nýrri reglugerð
Ætlað að tryggja réttindi
útlendinga á Íslandi
Morgunblaðið/Þorkell
BRÆÐUR sem ríkissaksóknari
ákærir fyrir alvarlega og sérstaklega
hættulega líkamsárás gegn ungum
manni á og við heimili þeirra að
Skeljagranda í Reykjavík 2. ágúst sl.
játuðu ákæruna að hluta fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær en neit-
uðu öðru. Þeir eru einnig ákærðir
fyrir líkamsárás á Eiðistorgi síðar
sama dag og fleiri afbrot.
Bræðurnir hafa setið í gæsluvarð-
haldi frá því þeir voru handteknir í
kjölfar árásanna. Faðir þeirra var
grunaður um aðild að alvarlegri lík-
amsárásinni og sat í gæsluvarðhaldi í
rúmlega einn mánuð en málið gegn
honum var fellt niður.
12 stungu- og skurðsár í andliti
Fyrri árásin var einkar hrotta-
fengin. Bræðurnir sem eru 20 og 21
árs eru ákærðir fyrir að hafa föstu-
dagsmorguninn 2. ágúst ráðist á 22
ára gamlan mann á heimili þeirra að
Skeljagranda og síðar á göngustíg
við Rekagranda. Þeir hafi margsinnis
slegið hann í andlit og líkama með
krepptum hnefum og bareflum,
stungið hann og skorið með eggvopn-
um og misþyrmt honum með öðrum
hætti. Við árásina hlaut maðurinn,
auk annarra áverka, tólf stungu- og
skurðsár í andlit og líkama, brot í höf-
uðkúpu og nefi, fjóra skurði á höfði
og lífshættulega blæðingu milli heila-
himna. Yngri bróðirinn er einn
ákærður fyrir að nota beltisgatara til
að gera gat á vinstra eyra mannsins.
Sá sem tilkynnti um árásina til lög-
reglu kvaðst hafa séð tvo menn bera
manninn meðvitundarlausan milli sín
og kasta honum yfir grindverk og í
trjábeð við leikskólann Gullborg.
Taldi sá sem hringdi hugsanlegt að
um lík væri að ræða. Við þingfestingu
ákærunnar í gær sagðist eldri bróð-
irinn ekki hafa orðið var við að egg-
vopn hefðu verið notuð í árásinni,
eins og segir í ákæru. Sagðist hann
aldrei hafa barið manninn með
krepptum hnefa heldur lamið hann
4-6 sinnum með kústskafti úr áli. „Á
göngustígnum vorum við ekki að níð-
ast á honum,“ sagði hann, heldur
hefði maðurinn reynt að komast und-
an. Maðurinn hefði rekist á hann og
við það dottið og steinrotast. Við fall-
ið hefði hann fengið „þetta heilablóð-
fall.“ Yngri bróðirinn kannaðist held-
ur ekki við að eggvopnum hefði verið
beitt en játaði að hafa slegið manninn
þrisvar með hnefa í andlit og klippt
hann í eyrað með beltisgatara.
Maðurinn sem ráðist var á gekkst
undir aðgerð á Landspítalanum og
komst fljótlega til meðvitundar en
hann var síðar staðinn að verki við að
hnupla lyfjum á spítalanum.
Tvisvar við Eiðistorg
Bræðurnir eru einnig ákærðir fyr-
ir að veitast að þrítugum manni við
Eiðistorg síðar sama morgun og á
annar þeirra að hafa slegið hann með
skóflu í upphandlegg. Um tveimur
klukkustundum síðar hafi þeir ráðist
á hann í sameiningu, annar þeirra
tekið hann hálstaki og snúið hann
niður og bitið hann í vinstri upphand-
legg en hinn bróðirinn slegið og
sparkað í höfuð mannsins þar sem
hann lá. Bræðurnir neituðu báðir sök
og sögðu að maðurinn hefði átt upp-
tökin að átökunum. Höfnuðu þeir
kröfu hans um 750.000 krónur í
skaðabætur.
Ríkissaksóknari ákærir auk þess
fyrir eldri afbrot. Játaði eldri bróð-
irinn að hafa brotist inn í tvær bif-
reiðar í apríl sl. Úr annarri stal hann
geislaspilara, 25 geisladiskum og
íþróttatösku, samtals að verðmæti
um 70.000 krónur. Sá yngri er ákærð-
ur fyrir að taka við myndbandsupp-
tökuvél, myndbandstæki og hljóm-
flutningstækjum sem hann vissi að
tveir piltar höfðu stolið skömmu áð-
ur. Þetta sagði hann rangt, hann
hefði ekki haft hugmynd um að varn-
ingurinn væri þýfi.
Aðalmeðferð málsins fer fram 12.–
13. mars nk.
Tveir bræður ákærðir fyrir að ráðast á mann á
Skeljagranda um verslunarmannahelgina í fyrra
Bræðurnir játa
sakargiftir að hluta
FRAMKVÆMDASTJÓRN Versl-
unarráðs Íslands hefur ráðið Þór
Sigfússon hagfræðing í starf fram-
kvæmdastjóra ráðsins. Gert er ráð
fyrir að Þór hefji störf hjá Verslun-
arráði með vor-
inu. Þangað til
mun Birgir Ár-
mannsson gegna
störfum fram-
kvæmdastjóra en
sem kunnugt er
hefur Vilhjálmur
Egilsson, fyrr-
verandi fram-
kvæmdastjóri
ráðsins, hafið
störf hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í
Washington.
Þór hefur verið svæðisstjóri og að-
stoðarframkvæmdastjóri hjá Nor-
ræna fjárfestingarbankanum (NIB)
í Helsinki síðustu fimm árin.
Tengist reynslu
og áhugasviðum
Í samtali við Morgunblaðið sagðist
Þór vera mjög spenntur fyrir því að
taka við þessu verkefni. „Ég held að
reynsla mín og raunar ekki síður
áhugasvið muni að mörgu leyti koma
að góðu gagni í þessu starfi.“
Þór hefur ritað tvær bækur um
efnahagsmál og viðskipti, Örríki á
umbrotatímum, þar sem fjallað var
m.a. um styrk og veikleika Íslands í
alþjóðlegri samkeppni og bent á leið-
ir til að auka fjölbreytni í atvinnulífi
og bókina Landnám þar sem fjallað
var um útrás íslenskra fyrirtækja og
alþjóðavæðingu íslensks atvinnulífs.
„Þetta er auðvitað vinkill sem mig
langar m.a. að taka með mér inn í
þetta starf og svo hef ég einnig mik-
inn áhuga á áframhaldandi einka-
væðingu og einkaframkvæmd. Að
mörgu leyti starfa ég í feikilega
skemmtilegu umhverfi hjá NIB og
það þarf dálítið mikið til þess að
menn séu tilbúnir að stíga út úr því.
En ég held að þetta starf henti mér
mjög vel og þess vegna var ég
reiðubúinn til þess að stökkva á
þetta tækifæri,“ segir Þór.
Verslunarráð Íslands
Þór Sigfússon
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Þór Sigfússon
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði í gær Landssamband ís-
lenskra útvegsmanna af kröfum Sjó-
mannasambands Íslands um að felld-
ur yrði úr gildi úrskurður
gerðardóms um breytingar á skipti-
kjaraákvæðum þegar nýr tækjabún-
aður er settur í skip eða störfum hag-
rætt þannig að færri menn geti sinnt
skipsstörfum. Héraðsdómur vísaði
þessu máli frá 30. september en með
dómi Hæstaréttar 30. október sl. var
úrskurðurinn felldur úr gildi.
Málavextir eru í stuttu máli þeir að
Hæstiréttur tilnefndi gerðardóm 1.
júní sl. en þá höfðu félögin átt í kjara-
deilu í rúmlega eitt ár. Úrskurðurinn
var kveðinn upp 1. júlí. Í úrskurðinum
var m.a. kveðið á um að þegar nýr
tæknibúnaður væri settur í skip eða
hagrætt þannig að færri menn geti
sinnt skipsstörfum skuli hlutur eða
hlutir þeirra sem hægt er að fækka
um í áhöfn, skiptast að hálfu milli
þeirra sem eru á skipinu en hinn
helmingurinn skuli ganga óskertur til
útgerðarinnar. Áður verði þó að gera
skriflegan samning milli útgerðar og
áhafnar þar sem rökstuðningur fyrir
breytingunum kemur fram. Samning-
inn þurfi að staðfesta í leynilegri at-
kvæðagreiðslu. Sjómannasambandið
taldi m.a. að gerðardómurinn hefði
farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt
og að úrskurður hans bryti að þessu
leyti í bága við lög um stéttarfélög og
vinnudeilur.
Í niðurstöðu héraðsdóms er rakin
sú niðurstaða gerðardóms að sé
fækkun tilkomin vegna hagræðingar
og tæknibreytinga á skipi skuli sú
regla gilda sem vélstjórar sömdu um,
að helmingur fari til áhafnar og helm-
ingur til útgerðar. Í lögum hafi bein-
línis verið mælt fyrir um að gerðar-
dómur færi eftir kjarasamningum
sem gerðir hefðu verið á undanförn-
um mánuðum, þegar það ætti við. Þá
hefði gerðardómur ekki farið út fyrir
lögbundið hlutverk sitt eða á önnur
sjónarmið Sjómannasambandsins.
Allan Vagn Magnússon héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Björn
Bergsson hrl. var lögmaður sjómanna
en Jón H. Magnússon hdl. var til
varnar fyrir útvegsmenn.
LÍÚ sýknað af
kröfum Sjómanna-
sambandsins