Morgunblaðið - 24.01.2003, Side 12
FRÉTTIR
12 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MENNIRNIR tveir sem lögreglan á
Blönduósi handtók á þriðjudag fyrir
umfangsmikla ræktun á kannabis-
plöntum, voru í gær úrskurðaðir í
einnar viku gæsluvarðhald.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Blönduósi verða mennirn-
ir væntanlega fluttir á Litla-Hraun
innan skamms. Eins og greint var
frá í Morgunblaðinu í gær lagði lög-
regla jafnframt hald á tug skotvopna
og talsvert magn af kannabisefnum á
mismunandi vinnslustigum.
Kannabisrækt-
endur í varðhald
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
fela borgarverkfræðingi og forstjóra
Orkuveitu Reykjavíkur að taka sam-
an upplýsingar um framkvæmdir
sem hægt er að flýta á þessu ári. Að-
gerðirnar eru leið til þess að koma í
veg fyrir frekara atvinnuleysi, bæði
á vegum sveitarfélaga og ríkis. At-
vinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu
var 3,1% í desember og ljóst er að
nokkurs samdráttar er farið að gæta
í hagkerfinu.
Meðal framkvæmda sem til greina
koma eru skólabyggingar, íþrótta-
mannvirki, gatnaframkvæmdir og
orkuframkvæmdir á höfuðborgar-
svæðinu. Borgarráð samþykkti jafn-
framt að fela borgarstjóra að óska
eftir viðræðum við ríkisstjórnina um
þær framkvæmdir á vegum ríkisins
sem hægt er að flýta.
Í greinargerð frá efnahagsskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins um mat
á þjóðhagslegum áhrifum stóriðju-
og virkjanaframkvæmda kemur
fram að að meðan virkjanafram-
væmdir standa sem hæst á Reyðar-
firði þurfi að draga úr fjárfestingu
hins opinbera um 10%. Mikilvægt sé
þess vegna að flýta framkvæmdum.
Reykjavíkurborg
Framkvæmd-
um verði flýtt
BÖRN úr Fossvogsskóla fóru í heimsókn í Bústaða-
kirkju í vikunni þar sem þau spiluðu félagsvist við eldri
borgara. Varla mátti sjá hvor hópurinn skemmti sér
betur, 12 ára börnin eða eldri borgarar. Keppnisskapið
var ekki langt undan, en aðalatriðið var að hafa gaman
af spilamennskunni. Hver veit nema þau spili reglulega
saman í framhaldinu. Eldri og reyndari spilarar voru
duglegir við að leiðbeina þeim yngri.
Morgunblaðið/Golli
Heimsóttu eldri borgara
HÆGT hefur gengið hjá borgaryf-
irvöldum, að mati Kjartans Magn-
ússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, að hrinda í framkvæmd
átaki vegna bílastæðamála fatlaðra í
Reykjavík. Samþykkt var á fundi
samgöngunefndar borgarinnar í
janúar í fyrra tillaga Kjartans þess
efnis að skipaður yrði starfshópur
til að vera nefndinni til ráðgjafar um
bílastæðamál fatlaðra og hreyfi-
hamlaðra. Var hún samþykkt ein-
róma og segir Kjartan einnig hafa
verið samkomulag um að hrinda
henni í framkvæmd á skömmum
tíma.
Misnotkun á sér-
merktum stæðum
Árni Þór Sigurðsson, formaður
samgöngunefndar, segir að svo virð-
ist sem tilnefningar frá samtökum
fatlaðra í starfshópinn hafi aldrei
borist. Hann segir að samgöngu-
nefnd hafi fyrir sitt leyti tilnefnt
fulltrúa í starfshópinn á nýjan leik
fyrir skömmu og að hann hafi rætt
við starfsmenn starfshópsins og for-
mann um að gengið verði eftir til-
nefningum frá þeim aðilum sem eiga
fulltrúa í starfshópnum.
Spurður um þann drátt sem orðið
hefur á afgreiðslu málsins segir
Árni Þór að þáverandi formaður
samgöngunefndar og formaður
starfshópsins hafi augljóslega átt að
ganga eftir því á sínum tíma að það
bærust tilnefningar um fulltrúa í
hópinn svo hann gæti tekið til
starfa. Það hafi hins vegar ekki ver-
ið gert.
Að sögn Kjartans Magnússonar
er markmið tillögunnar að vekja al-
menning til umhugsunar um bíla-
stæðamál fatlaðra. Mikil brögð séu
að því að reglur um sérmerkt stæði
þeirra séu ekki virtar. Athugun hafi
sýnt að um misnotkun sé að ræða í
allt að helmingi tilvika. Samræma
þurfi aðgerðir bílastæðasjóðs og
lögreglunnar og brýnt sé að gera
eftirlit með stæðunum markvissara.
Þá gerir tillagan ráð fyrir að starfs-
hópurinn meti hvort setja þurfi ít-
arlegri reglur um stæði fatlaðra og
hreyfihamlaðra og að tekin verði út
ákveðin svæði og kannað hvort þörf
sé á fleiri sérmerktum stæðum fyrir
þessa hópa í miðborginni, við
Laugaveg eða við tilteknar þjón-
ustustofnanir.
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi gagnrýnir seinagang
við framkvæmd tillagna vegna bílastæðamála fatlaðra
Tilnefningar frá fötl-
uðum ekki borist
Ár er síðan
ákveðið var að
setja á stofn
starfshóp
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
ákveðið að skipa starfshóp til að fara
ofan í siglingar á Eyjafirði og málefni
Grímseyjarferjunnar Sæfara. Sæfari
er skráður sem vöruflutningaskip en
ekki farþegaskip og gerir Evrópska
efnahagssvæðið kröfu um að ferjunni
verði ekki heimilt að flytja nema tólf
farþega í hverri ferð. Halldór Blön-
dal, forseti Alþingis og fyrsti þing-
maður Norðurlands eystra, sagðist
nýlega í Morgunblaðinu ætla að taka
þetta mál upp við samgönguráðherra.
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra segir að málið snúist fyrst og
fremst um að tryggja að Sæfari upp-
fylli þær kröfur sem gerðar eru til
farþegaskipa á Evrópska efnahags-
svæðinu. Unnið hafi verið að úrlausn
málsins í ráðuneytinu en niðurstaða
liggi ekki fyrir. Að sjálfsögðu verði
lögð áhersla á að farið verði eftir
reglum. Nú sé verið að bíða eftir nán-
ari skilgreiningum frá EES um ör-
yggiskröfur sem gerðar eru. Sæfari
verði látinn duga enn um sinn ef hægt
verði að uppfylla kröfurnar með því
að gera breytingar á skipinu.
„Við erum að fara yfir málið og
þegar svar liggur fyrir munum við
gera þingmönnum Norðurlandskjör-
dæmis eystra grein fyrir málinu og til
hvaða ráða þurfi að grípa til að
tryggja hagsmuni Grímseyinga. Það
er auðvitað lífæð byggðarinnar í
Grímsey að þetta skip sé nýtanlegt,“
segir Sturla. Verði ekki hægt að upp-
fylla kröfur EES með breytingum á
skipinu verði ráðuneytið að snúa sér
að því að útvega annað skip í þessar
siglingar. Það sé þó ekki hægt að
segja til um hvort skipið yrði keypt
eða leigt, ef út í það færi. Stefnt sé að
því að skipið geti siglt næsta sumar
með jafnmarga farþega og tíðkast
hafi til þessa.
Nefnd skoði
siglingar til
Grímseyjar
ÁSLAUG Skúladóttir,
fyrrverandi sendiráðs-
fulltrúi, andaðist á líkn-
ardeild Landspítalans
mánudaginn 20. janúar
sl., 78 ára að aldri.
Áslaug Skúladóttir
var fædd í Danmörku 1.
ágúst 1924. Foreldrar
hennar voru þau Krist-
jana Kristjánsdóttir frá
Ísafirði og Skúli Skúla-
son, úrsmiður og versl-
unarmaður á Ísafirði.
Áslaug dvaldi með móð-
ur sinni tvö fyrstu ár
ævi sinnar í Danmörku,
en flutti síðan með henni til Ísafjarð-
ar og skömmu síðar til Reykjavíkur.
Eftir að hafa útskrifast úr Versl-
unarskóla Íslands vorið 1941 að und-
angengnu námi þar og við Landa-
kotsskólann fór Áslaug til Svíþjóðar
1945 og gerðist sendiráðsritari við
Sendiráð Íslands í Stokkhólmi. Hún
starfaði sem sendiráðsritari og síðar
sem sendiráðsfulltrúi við sendiráðið í
Stokkhólmi til ársins 1955. Þá flutti
hún til Bonn í Þýska-
landi og vann þar við
sendiráð Íslands þar til
1964, en þá flutti hún
aftur til Stokkhólms.
Þar starfaði hún á sín-
um gamla vinnustað til
1987, þegar hún gerðist
starfsmaður utanríkis-
ráðuneytisins í höfuð-
stöðvum þess í Reykja-
vík. Þar vann hún fram í
september 1991, en
flutti þá aftur til Stokk-
hólms og var sendiráðs-
fulltrúi þar til hún varð
sjötug 1994. Þá flutti
hún alfarið heim til Íslands eftir 49
ára samfellt og farsælt starf hjá utan-
ríkisþjónustunni.
Áslaug var heiðursfélagi í Íslend-
ingafélögunum í Stokkhólmi og
Gautaborg og hún var sæmd erlend-
um heiðursmerkjum fyrir störf sín.
Áslaug var mjög virk í félagsstarfi
Íslendinga í Stokkhólmi og aðstoðaði
Íslendinga, sem þurftu á því að halda
í Svíþjóð. Hún var ógift og barnlaus.
Andlát
ÁSLAUG
SKÚLADÓTTIR
BYGGÐASTOFNUN fór ekki að
lögum við úthlutun byggðakvóta árið
1999 að mati umboðsmanns Alþing-
is, sem gerði athugun á málinu að
eigin frumkvæði í kjölfar erindis
sem honum barst vegna úthlutunar-
innar.
Athugun umboðsmanns beindist
einkum að því hvort ákvörðun
Byggðastofnunar um að auglýsa
ekki úthlutun byggðakvótans hefði
verið í samræmi við vandaða stjórn-
sýsluhætti og jafnræðissjónarmið
sem stjórnvöldum ber að hafa í
heiðri við úthlutun takmarkaðra
gæða. Stjórn Byggðastofnunar hef-
ur ekki fjallað um álitið en Aðal-
steinn Þorsteinsson, forstjóri stofn-
unarinnar, segir að við næstu
endurskoðun á úthlutunni í haust
verði án efa komið til móts við sjón-
armið álitsins með einhverjum hætti.
Í álitinu segir umboðsmaður m.a.
að gera verði þá kröfu að stjórnvöld
gæti að jafnræðissjónarmiðum þeg-
ar takmörkuðum gæðum á borð við
aflaheimildir sé úthlutað til ein-
stakra byggðarlaga á grundvelli
byggðasjónarmiða og síðan til ein-
staklinga eða lögaðila innan þeirra.
Þá verði að auki að gera þá kröfu að
stjórnvöld leggi fullnægjandi grund-
völl að slíkum ákvörðunum, enda
byggi þau eðli máls samkvæmt á
mati.
Bar að auglýsa úthlutunina
Það er niðurstaða umboðsmanns
að Byggðastofnun hafi í samræmi
við óskráða grundvallarreglu stjórn-
sýsluréttar um jafnræði borið að
auglýsa fyrirhugaða úthlutun
byggðakvótans. Stofnuninni hafi
borið að haga slíkri auglýsingu með
þeim hætti að í henni sé gerð grein
fyrir þeim reglum sem stofnunin hafi
sett sér um úthlutunina. Umboðs-
maður telur jafnframt að það sé
betra fyrir stofnunina almennt að
auglýsa eftir umsóknum frá útvegs-
aðilum í hverju byggðarlagi áður en
byggðakvótanum sé ráðstafað í sam-
ráði við viðkomandi sveitarstjórnir.
Samkvæmt bráðabirgðaákvæði í
lögum um stjórn fiskveiða er gert
ráð fyrir því að Byggðastofnun hafi á
fiskveiðiárunum 1999–2000 til og
með 2005–2006 „árlega“ til ráðstöf-
unar 1.500 þorskígildislestir miðað
við óslægðan fisk. Samkvæmt
reglum um úthlutun þessarar afla-
heimildar frá júlí 1999 ákvað stofn-
unin að framkvæma umrædda út-
hlutun þannig að upphaflega var
úthlutað umræddum aflaheimildum
til fimm ára. Forsendur úthlutunar-
innar á hins vegar að endurskoða ár-
lega.
Samkvæmt þessu beinir umboðs-
maður Alþingis þeim tilmælum til
stjórnar Byggðastofnunar að hugað
verði að því í næstu endurskoðun á
upphaflegri úthlutun byggðakvótans
hvort og þá hvernig tekið verði tillit
til sjónarmiða hans í álitinu.
Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri
Byggðastofnunar, segir að á næsta
stjórnarfundi um miðjan febrúar
komi álit umboðsmanns væntanlega
til vandlegrar umfjöllunar. Ekki sé
ástæða til að gera það fyrr þar sem
næsta árlega endurskoðun á úthlut-
uninni eigi ekki að fara fram fyrr en í
haust fyrir komandi „fiskveiðiára-
mót“. Þá verði leitast við að koma til
móts við sjónarmið umboðsmann,
Byggðastofnun muni ekki hundsa
álit hans.
Byggðastofnun í frumkvæðisathugun umboðsmanns Alþingis
Fór ekki að stjórnsýslulögum
við úthlutun byggðakvóta
♦ ♦ ♦