Morgunblaðið - 24.01.2003, Qupperneq 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 15
Nýtt
Framtíð án elli.
Perfectionist Correcting Serum for Lines/Wrinkles.
Sértu að spá í leysigeislameðferð, húðslípun eða hrukkusprautur,
því þá ekki að íhuga mildari valkost, án retínóls. Perfectionist er fljótvirkt,
árangursríkt og áhrifin endast lengi. Uppistaðan í því er hið einstaka
BioSync Complex.
Eftir daginn: Fíngerðar þurrklínur hverfa.
Eftir viku: Dýpri línur grynnka og húðin sléttist.
Eftir mánuð: Endurheimtur æskuljómi.
Gjöfin þín.
Gefðu húð þinni þá frábæru meðferð sem hún á skilið.
Prófaðu nýja lausa púðrið. Finndu angan vors og blóma í yndislegum ilmi.
Kaupirðu Estée Lauder vörur fyrir 3.900 kr. eða meira í Debenhams
færðu að gjöf fallega snyrtitösku með eftirfarandi glaðningi:*
VETRARGLAÐNINGUR
Advanced Night Repair.
Advanced Night Repair
Eye Recovery Complex.
Nýtt: So Ingenious Laust púður.
Pure Color Varalit nr. 79.
Illusionist Maskari.
Estée Lauder Pleasures EDP spr.
* Meðan birgðir endast.
FRANZ Fischler, sem fer með land-
búnaðarmál í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins, kynnti á mið-
vikudag fyrir Evrópuþinginu nýj-
ustu tillögur framkvæmdastjórnar-
innar að umbótum á landbúnaðar-
styrkjakerfi sambandsins. Miða
tillögurnar að því að miðla málum
milli öndverðra sjónarmiða sem uppi
eru meðal ráðamanna aðildarríkj-
anna um endurskoðun kerfisins, sem
gleypir um helming allra útgjalda úr
sameiginlegum sjóðum ESB.
Fischler sagði bændur verða að
vera reiðubúna að lúta í ríkari mæli
almennum lögmálum rekstrar á
samkeppnismarkaði, en tók fram að
það stæði þó ekki til að ofurselja þá
markaðsöflunum.
„Kæru bændur, við ætlum ekki að
snúa baki við ykkur. Enginn ætlar að
snúa baki við ykkur,“ sagði Fischler
á blaðamannafundi í Brussel.
Aukinn hiti hefur færzt í umræð-
urnar um endurskoðun landbúnað-
arstefnunnar eftir að ljóst varð að tíu
ný aðildarríki, sem mörg hver eiga
mikið undir landbúnaði, myndu bæt-
ast í raðir ESB á árinu 2004.
Að hin ríku núverandi ESB-ríki
skyldu ekki enn hafa getað komið sér
saman um neinn teljandi niðurskurð
á niðurgreiðslum og styrkjum til
sinnar landbúnaðarframleiðslu hef-
ur líka kallað á alþjóðlega gagnrýni;
ESB er sakað um að láta kerfið gefa
landbúnaðarframleiðslu aðildarríkj-
anna óeðlilegt samkeppnisforskot
gagnvart afurðum frá löndum utan
sambandsins.
Styrkirnir aftengdir
framleiðslu
„Tillögurnar miða að því að sjá
bændum bæði í núverandi og tilvon-
andi aðildarríkjunum fyrir þeim
stöðugleika sem þeir þurfa á að
halda,“ sagði Fischler. „Það er kom-
inn tími til að þeim stýringartækjum
sem við ráðum yfir sé beitt á nýjan
hátt, þannig að þau þjóni ekki aðeins
hagsmunum bænda heldur einnig
neytenda og skattgreiðenda.“
Róttækasta breytingin sem stung-
ið er upp á í nýju tillögunum er að
skorið verði á þau tengsl sem sam-
kvæmt núverandi kerfi eru á milli
framleiðslumagns og styrkfjárhæða.
Kerfinu verði í áföngum breytt
þannig að í stað framleiðslustyrkja
fái bændur greitt fyrir jarðræktar-
störf sín. Til skemmri tíma litið mun-
ar mestu um niðurskurð styrkja til
mjólkurframleiðslu.
Frakkar hafa beitt sér gegn öllum
niðurskurðarhugmyndum en Hol-
lendingum og Þjóðverjum þykja til-
lögurnar ekki ganga nógu langt.
Landbúnaðarstefna Evrópusambandsins
Fischler kynnir nýj-
ar umbótatillögur
Brussel. AFP.
Franz Fischler kynnir tillögurnar á fundi í Brussel í gær.