Morgunblaðið - 24.01.2003, Blaðsíða 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 17
UMFANGSMIKIL rannsókn á
áströlskum tvíburum styður þá
kenningu, að hass- og
maríjúananeysla ýti undir
neyslu sterkari fíkniefna.
Fylgst var með ferli 622 manna
eða 311 tvíbura af sama kyni,
þar af 136 eineggja. Átti það
alltaf við, að annar tvíburinn
hefði notað maríjúana fyrir 17
ára aldur en hinn ekki. Í ljós
kom, að sá fyrrnefndi var allt að
fimm sinnum líklegri en hinn til
að fara út í neyslu harðari efna.
Fleiri konur
BREZKI Íhaldsflokkurinn
verður að taka sér tak til að
fjölga kvenframbjóðendum
flokksins fyrir næstu þingkosn-
ingar, að því er einn flokksfor-
mannanna, Theresa May, sagði
í vikunni. Hún sagði að flokk-
urinn hefði nú þegar gert sitt-
hvað til að ná þessu marki, m.a.
með því að ráða til starfa vinnu-
sálfræðing til að skýra línur um
það hvernig bezt yrði að vali
frambjóðenda staðið, hvort sem
er karl- eða kvenkyns. Af 163
þingmönnum Íhaldsflokksins,
sem nú eiga sæti í neðri deild
brezka þingsins, eru 14 konur.
Dómar í
Túrkmen-
istan
HÆSTIRÉTTUR Túrkmen-
istans hefur dæmt 46 manns,
þeirra á meðal tvo fyrrverandi
utanríkisráð-
herra, seka um
aðild að sam-
særi um að
myrða einræð-
isherra Túrk-
menistans,
Saparmurat
Niyazov, að
sögn heimild-
armanns í
stjórn landsins
í vikunni.
Borís Shikhmuradov, fyrr-
verandi utanríkisráðherra sem
er sagður hafa skipulagt morð-
tilræðið og misheppnaða valda-
ránstilraun 25. nóvember, var
dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Bróðir hans fékk 17 ára fang-
elsisdóm.
„Glæpur
gegn mann-
inum“
JEAN-Francois Mattei, ráð-
herra heilbrigðismála í Frakk-
landi, hefur kynnt lagafrum-
varp sem felur í sér að
einræktun manna verði lýst
„glæpur gegn manninum sem
tegund“ sem er nýtt hugtak í
lögfræðinni. Munu þeir sem
brjóta gegn lögunum eiga yfir
höfði sér allt að tuttugu ára
fangelsisvist.
Lögunum er beint gegn
Raelian-sértrúarsöfnuðinum,
að sögn fréttaskýrenda, en leið-
togar hans segja að vísinda-
mönnum Clonaid, fyrirtækis
sem tengist söfnuðinum, hafi
tekist að búa til tvö klónuð börn
er hafi komið í þennan heim um
áramótin. Flestir forystumenn
safnaðarins, þ. á m. stofnand-
inn Claude Vorhilon og Brigitte
Boisselier, forstjóri Clonaid,
eru franskir.
STUTT
Ávísun á
sterkari
efni?
Niyazov
GEORGE Robertson, fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO), lætur af störfum í
árslok. Frá þessu var greint í
fyrrakvöld. Meðal þeirra sem sagð-
ir eru koma til greina sem arftakar
Robertsons eru Poul Nyrup Rasm-
ussen, fyrrverandi forsætisráð-
herra Dana, Kristin Krohn Devold,
varnarmálaráðherra Noregs, og
Aleksander Kwasniewski, forseti
Póllands.
Robertson hefur í framkvæmda-
stjóratíð sinni einbeitt sér að þeim
breytingum, sem átt hafa sér stað
á eðli NATO en m.a. hefur verið
reynt að gera bandalagið að mik-
ilvægum þátttak-
anda í baráttunni
gegn alþjóðleg-
um hryðjuverk-
um.
„Ég hef verið
beðinn um það af
nokkrum ríkis-
stjórnum að sitja
áfram í embætt-
inu eitt ár til við-
bótar, sem yrði mitt fimmta, en ég
tel eðlilegt að menn sitji ekki leng-
ur en fjögur ár í þessu krefjandi og
erfiða starfi,“ sagði Robertson er
hann tilkynnti ákvörðun sína.
Robertson kynnti í gær verð-
launahugmynd að útliti nýrra höf-
uðstöðva NATO en þær eru nú í
gömlum byggingum í úthverfi
Brussel sem minna einna helst á
bragga. Nýjar höfuðstöðvar verða
hins vegar afar nútímalegar í útliti
og er gert ráð fyrir að þær verði
tilbúnar innan fárra ára.
Tony Blair, forsætisráðherra
Breta, hafði áður hrósað Robert-
son fyrir „mikilvægt framlag“
hans. „Undir hans forystu hefur
NATO haldið mikilvægi sínu sem
undirstaða öryggismála yfir Atl-
antshafið og aðalvettvangur sam-
ráðs bandamanna um öryggismál,“
sagði Blair.
Robertson hættir í árslok
Brussel. AFP.
George Robertson RSH.is
Dalvegi 16b • 201 Kópavogur
Sími 544 5570 • Fax 544 5573
www.rsh.is • rsh@rsh.is
Rafhlöður
VERSLUN • VERKSTÆÐI
Radíóþjónusta Sigga Harðar
Nýjar hleðslurafhlöður í flest tæki
og síma einnig viðgerðir og smíði
Endurlífgum rafhlöður
w
w
w
.d
es
ig
n
.is
©
2
0
0
3
fyrir hákarla og alvörumenn!
Verkfærasett
vnr. 5000462 Verð áður 3.495 kr.
2.445 kr.
Kastari á fæti
vnr. 5880069 Verð áður 5.420 kr.
3.990 kr.
Verkfærataska
vnr. 5024706 Verð áður 3.993 kr.
2.395 kr.
Borvél Kress 500W
Vönduð, þýsk höggborvél í tösku
ásamt bitaboxi.
vnr. 5259998 Verð áður 10.995 kr.
7.995 kr.
Topplyklasett
vnr. 5052486 Verð áður 10.995 kr.
7.995 kr.
Hvort sem þú ætlar að breyta, bæta, lagfæra eða byggja heimili þitt frá grunni þá finnurðu það sem þig vantar í
Húsasmiðjunni. Þar færðu líka alltaf lipra þjónustu og góð ráð hjá fagmönnum okkar. Velkomin í Húsasmiðjuna.
Hákarl handa
bóndanum!
Allar konur, sem
versla verkfæri í dag,
fá 200 gr af hákarli
í kaupbæti* handa
þeim sem hljóp út á
brókinni í morgun.
Hörkuútsala
á verkfærum.
Við heilsum þorra með
kraftmiklum tilboðum.
* Meðan birgðir endast.