Morgunblaðið - 24.01.2003, Page 20

Morgunblaðið - 24.01.2003, Page 20
AKUREYRI 20 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ www.islandia.is/~heilsuhorn BODY LEAN Góð blanda til að laga línurnar og meltinguna PÓSTSENDUM Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889 Fæst m.a. í Lífsins lind í Hagkaupum, Árnesapóteki, Selfossi og Yggdrasil, Kárastíg 1. HILDIGUNNUR Svavarsdóttir hjúkrunarfræðingur hefur verið ráðin í stöðu skólastjóra Sjúkra- flutningaskólans. Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri tók að sér rekstur skólans með samningi við heil- brigðis- og tryggingaráðuneytið sem undirritaður var seint í nóv- ember og er hann nú hluti af rekstri FSA. Ákvörðun um staðsetningu var tekin með tilliti til vilja ríkisstjórnar að setja nýjar stofnanir á laggirnar utan höfuðborgarsvæðisins að svo miklu leyti sem hentugt þykir. Mikilvægt að viðhalda þekkingunni Hildigunnur hefur þegar tekið til starfa en hún sagði að markmiðið með skipulagðri kennslu á vegum Sjúkraflutningaskólans væri að tryggja grunn- og símenntun fyrir alla sjúkraflutningamenn í landinu. Mikilvægt væri að allir þeir sem stunduðu sjúkraflutninga hefðu grunnmenntun í sjúkraflutningum og gætu tekið þátt í sí- og endur- menntun til að viðhalda þekkingu sinni og tileinka sér nýjungar varð- andi starfið. Fyrsta námskeiðið verður haldið nú í febrúar og er gert ráð fyrir að það sæki 25 manns. Námskeiðin byggjast á bóklegri og verklegri kennslu en að sögn Hildi- gunnar má búast við að fjölbreyttari námskeið verði í boði og að hluti endur- og símenntunar verði vef- bundinn, auk þess sem gert sé ráð fyrir nánum tengslum við Háskól- ann á Akureyri varðandi mentunina og þróun hennar. Sjúkraflutn- ingaskólinn hefur keypt mynd- fundabúnað sem tryggir enn frekar að hægt verði að ná til fleiri sjúkra- flutningamanna á landinu og þannig verði þeim gert kleift að fylgjast með og taka þátt í menntun og fræðslu á sínu sviði. Næsta námskeið verður svo hald- ið í lok marsmánaðar. Að sögn Hildi- gunnar er mikil þörf fyrir að halda grunn- og endurmenntunarnám- skeið fyrir sjúkraflutningamenn og verið er að vinna að áætlun fyrir næsta skólaár. Vefsíða Sjúkraflutningaskólans hefur verið opnuð og er hún á slóð- inni www.ems.nett.is en þar er að finna ýmsar upplýsingar um skól- ann og námskeiðin. Góður samstarfsvilji Hildigunnur sagði að starfið legð- ist vel í sig og að almenn ánægja ríkti með að Sjúkraflutningaskólinn væri staðsettur á Akureyri. „Mér finnst fólk vera jákvætt og finn fyrir góðum samstarfsvilja af hálfu þeirra sem koma til með að tengjast mennt- unarmálum sjúkraflutningamanna í landinu,“ sagði hún. Hildigunnur er fædd á Akureyri árið 1967. Hún lauk prófi í hjúkr- unarfræði frá Háskólanum á Ak- ureyri árið 1992 og meistaraprófi í heilbrigðisvísindum 1997. Að námi loknu hefur hún með hléum starfað á slysadeild FSA. Hildigunnur hefur unnið að kennslu og fræðslu á sviði bráðaþjónustu og m.a. haft umsjón með endurlífgunarnámskeiðum á FSA. Hildigunnur gegnir einnig stöðu lektors við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri. Hildigunnur Svavarsdóttir ráðin skólastjóri Sjúkraflutningaskólans Morgunblaðið/Kristján Hildigunnur Svavarsdóttir, skólastjóri Sjúkraflutningaskólans, og Alfreð Birgisson, sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði Akureyrar, við hluta af þeim búnaði sem notaður er til kennslunnar. Einnig er búnaður í sjúkrabíl- unum notaður til verksins. Mikilvægt að viðhalda þekkingunni og til- einka sér nýjungar BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti á fundi í gær að taka þátt í stofnun undirbún- ingsfélags vegna fyrirhugaðra Vaðlaheiðarganga. Á fundin- um var kynnt skýrsla nefndar um Vaðlaheiðargöng sem Ey- þing lét gera og nýlega er komin út. Bæjarstjórn Akureyrar samþykkti á fundi sínum í mars í fyrra að Akureyrar- bær skyldi beita sér fyrir stofnun undirbúningsfélags sem kanna skyldi til hlítar alla möguleika á að ráðast í gerð jarðganga undir Vaðla- heiði. Á þeim grundvelli sam- þykkti bæjarráð aðild Akur- eyrarbæjar að stofnun undirbúningsfélags sem stjórn Eyþings hyggst gang- ast fyrir og felur bæjarstjóra að fara með umboð bæjarins á stofnfundi þess. Umboð bæjarstjóra felur í sér heim- ild til að skrá Akureyrarbæ fyrir hlutafé í félaginu. Félag vegna Vaðlaheiðarganga Akur- eyri tek- ur þátt ALLS hafa verið boðaðar komur 42 skemmtiferðaskipa til Akureyr- ar í sumar, eða fleiri en nokkru sinni fyrr. Pétur Ólafsson, skrif- stofustjóri Hafnasamlags Norður- lands, sagði ljóst að sumarið yrði annasamt hjá þeim aðilum sem þjónusta skemmtiferðaskipin en að það yrði jafnframt skemmtilegt og þá ekki síst fyrir bæjarbraginn. Um 23 þúsund farþegar verða með þessum skipum og yfir 11 þúsund manns í áhöfn, eða alls um 34 þúsund manns. Heildarstærð þessara skipa losar 900.000 brúttótonn. Stærsta skipið sem kemur er A’rosa Blu sem er um 70.000 brúttólestir. Pétur sagðist gera sér vonir um að flest skipin legðust að bryggju, enda færu þá mun fleiri farþegar frá borði en þegar skipin lægju við festar á Pollinum. Í gegnum tíðina hefur eldra fólk verið í miklum meiri- hluta þeirra farþega sem hingað koma en Pétur sagði að aldur far- þeganna færi lækkandi og þá ekki síst vegna þess að verðið í slíkar ferðir hefði verið að lækka. Skemmtiferðaskipið A’rosa Blu kom til Akureyrar sl. sumar og gat þrátt fyrir stærðina lagst að bryggju. Stærstu skemmti- ferðaskipin sem komið hafa til bæjarins eru um 78 þúsund brúttótonn. Komur skemmtiferðaskipa til Akureyrar sl. sumar urðu 36 tals- ins og með þeim komu um 20 þús- und farþegar. Árið 2001 voru skipakomurnar 28 og fjöldi far- þega um 17.500. Árin 1995 og 1996 voru skipakomurnar 38 hvort ár og höfðu aldrei verið fleiri en Pétur sagði að þá hefðu minni skip komið nokkrum sinnum til Akureyrar og þá með mun færri farþega en stóru skipin gera. Um 23 þúsund farþegar væntan- legir A’Rosa Blu er stærsta skemmtiferðaskipið sem væntanlegt er til Akureyr- ar næsta sumar en skipið kom einnig til bæjarins sl. sumar. STARFSHÓPUR um endurskoðun á aðild Akureyrarbæjar að atvinnu- málum hefur skilað skýrslu til bæj- aryfirvalda. Þar er m.a. lagt til að Ak- ureyrarbær dragi verulega úr framlögum til reksturs Atvinnuþró- unarfélags Eyjafjarðar, AFE, en ráð- stafi sjálfur fjármunum sínum til at- vinnu-, markaðs- og kynningarmála. Hins vegar er gert ráð fyrir í tillög- unum að til reiðu verði fjármagn til sameiginlegra verkefna sveitarfélag- anna við Eyjafjörð er lúta að atvinnu- málum. Bæjarstjórn samþykkti með 11 atkvæðum á fundi sínum í vikunni, að vinna að breytingum á þátttöku bæjarins í atvinnumálum á grundvelli tillagna starfshópsins. Þar er gert ráð fyrir að Akureyr- arbær færi starfsemi sína og fjárráð- stöfun á þessu sviði nær stjórnsýsl- unni með því á koma fót stoðstarfsemi innan stjórnskipulags bæjarins. Stoðstarfseminni verði stjórnað af bæjarráði eða annarri fastanefnd og atvinnumálanefnd verði lögð niður í kjölfarið. Umrædd starfsemi fyrir atvinnu-, markaðs og kynningarmál innan stjórnskipulags bæjarins verði byggð upp á þann hátt að höfuðáhersla verði lögð á að hafa mannahald í lágmarki en sem mest- um hluta fjármagnsins verði ráðstaf- að til atvinnulífsins á Akureyri. Lagt er til að starf upplýsinga- og kynning- arstjóra á þjónustusviði verði tengt hinni nýju stoðstarfsemi og að a.m.k. einn starfsmaður ráðinn til viðbótar. Einnig er lagt til að starfræktur verði verkefnasjóður fyrir markaðs- setningu og kynningarmál ferðaþjón- ustunnar sem heyri beint undir stoð- starfsemi bæjarins á sviði atvinnu-, markaðs- og kynningarmála. Sömu- leiðis komi Akureyrarbær að fjár- mögnun verkefnasjóðs frumkvöðla til að þróa og útfæra viðskiptahug- myndir áður en fjárfestingarsjóðir leggja þeim lið. Þá er lagt til að áfram verði um 74 milljónum króna varið til þessara málaflokka en eðlilegast þyk- ir að nákvæm skipting fjármuna verði ákveðin þegar stefnunarmótun- arvinnu fyrir hina nýja stoðstarfsemi er lokið. Í skýrslunni er gengið út frá því að Nýsköpunarmiðstöð á Akureyri þjóni þörfum fyrirtækja og frumkvöðla í bænum með stuðningi og hand- leiðslu. Endurskoðun á aðild Akureyrarbæjar að atvinnumálum Starfsemi og fjárráðstöf- un nær stjórnsýslunni Skákfélag Akureyrar heldur í kvöld, föstudagskvöld, sveitakeppni þar sem tefldar verða bæði atskákir og hraðskákir, en hún gengur undir nafninu Akureyrardeildin. Keppni hefst kl. 20. Að venju eru allir vel- komnir. Þá er skráning hafin í Skákþingi Ak- ureyrar sem hefst föstudags-kvöldið 31. janúar nk. Hægt er að skrá sig með tölvupósti á skakfelagid@hotmail.com eða í síma 8999966 Í DAG BÆJARÁÐ Akureyrar samþykkti á fundi tillögu fjármálastjóra varðandi reglur um afslátt af fasteignagjöld- um hjá öldruðum og örorkulífeyris- þegum. Þar er m.a. lagt til að fast- eignaskattur af eigin íbúðum þeirra sem verða 67 ára og eldri á árinu 2003 verði lækkaður um allt að kr. 21.850 af hverri íbúð sem nýtt er til eigin nota. Í samræmi við ákvörðun bæjar- stjórnar við afgreiðslu fjárhagsáætl- unar 2003 breytast aldursviðmið elli- lífeyrisþega sem lækkunar njóta úr 70 ára og eldri í 67 ára og eldri. Að öðru leyti eru reglurnar sambæri- legar við reglur fyrra árs nema við- miðunarfjárhæðir fasteignaskatts til lækkunar og tekjuviðmið breytast í samræmi við meðalhækkun fast- eignagjalda á milli ára og breytingu á neysluverðsvísitölu. Jafnframt er lagt til að fasteignaskattur af eigin íbúðum örorkulífeyrisþega (75% örorka) verði lækkaður um sömu upphæð hjá einstaklingum með tekjur allt að kr. 1.314.100 og hjá hjónum með tekjur allt að kr. 1.799.300. Lækkun hjá eldri borgurum DR. MIKAEL M. Karlsson pró- fessor hefur verið ráðinn í stöðu deildarforseta nýrrar félagsvís- inda- og lagadeildar við Háskólann á Akureyri. Mikael lauk MA-prófi í heim- speki frá Brandeis University árið 1970 og doktorsprófi í heimspeki frá sama skóla árið 1973. Hann hefur kennt heimspeki frá árinu 1967, þar af við Háskóla Íslands frá 1973 og eftir að hafa gegnt stöðu lektors og dósents fékk hann framgang í starf prófessors árið 1995. Auk kennslu við heimspeki- deild hefur hann kennt bæði við laga- og félagsvísindadeildir Há- skóla Íslands og einnig við all- marga erlenda háskóla. Félagsvísinda- og lagadeild HA var stofnuð á 200. fundi háskóla- ráðs þann 28. október 2002 og mun nám við hana hefjast haustið 2003. Deildin skiptist í tvær skorir, fé- lagsvísindaskor og lögfræðiskor. Í félagsvísindaskor er gert ráð fyrir að bjóða upp á nám í ýmsum greinum félagsvísinda m.a. al- þjóða- og Evrópufræði, fé- lagsfræði, fjölmiðlafræði, norður- slóðafræði/mannfræði, nútíma- fræði og stjórnsýslu- og byggða- fræði til BA-prófs og í lögfræðiskor verður kennd lög- fræði til BA-prófs. Mikael M. Karlsson deildar- forseti Félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.