Morgunblaðið - 24.01.2003, Side 21
SUÐURNES
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 21
FASTEIGNAFÉLAGIÐ Þrek ehf.,
dótturfélag Húsaness ehf. í Kefla-
vík, er að hefja byggingu á íbúðum í
Reykjanesbæ til útleigu á almenn-
um markaði. Mun fyrirtækið byggja
32 íbúðir á þessu og næsta ári og
stefnir að byggingu fleiri leiguíbúða
í kjölfar þess. Er þetta fyrsta einka-
fyrirtækið sem ræðst í byggingu
íbúða til útleigu í bæjarfélaginu.
Bygging íbúðanna er liður í átaki
Íbúðalánasjóðs til að auka við hús-
næði á leigumarkaðnum. Til þessa
verkefnis veitir sjóðurinn lán á
lægri vöxtum en almennt gerist.
Halldór Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Húsaness ehf., segir
að könnun sem gerð var á vegum
bæjarfélagsins sýni að það vanti 80
leiguíbúðir í Reykjanesbæ. Það sé
grundvöllur þessa framtaks fyrir-
tækisins.
Vonast eftir uppgangi
í bænum
Íbúðirnar verða byggðar í fjög-
urra til átta íbúða húsum, inni í nú-
verandi byggð. Fyrstu tvö húsin
verða á lóðum sem fyrirtækið á að
Hafnargötu 50 og Hafnargötu 20.
Þar verða tólf fyrstu íbúðirnar. Á
næst ári verða síðan byggðar tutt-
ugu íbúðir til viðbótar og er fyr-
irtækið í viðræðum við Reykja-
nesbæ um lóðir fyrir þær.
Halldór reiknar með að breiður
hópur fólks muni sækjast eftir að
leigja þessar íbúðir, meðal annars
ungt fólk sem er að hefja búskap og
fólk sem er að flytja til bæjarins.
Eigendur fyrirtækisins hafa mikla
trú á að framundan sé uppgangur í
Reykjanesbæ. Bærinn hafi upp á
allt að bjóða sem fólk og fyrirtæki
þurfi til að setja sig niður. Hann
nefnir að framundan sé uppbygging
í Helguvík, meðal annars fjölmenn-
ur vinnustaður í stálröraverk-
smiðju, og fyrirtæki séu að byggja
yfir sig við Reykjanesbrautina. „Ég
er sannfærður um að hér verður
uppgangur og fólksfjölgun á næstu
árum,“ segir Halldór.
Fasteignafélagið Þrek er fyrsta
einkafyrirtækið sem byggir íbúðir
til leigu á almennum markaði en áð-
ur hefur bæjarfélagið byggt fé-
lagslegar íbúðir og íbúðir fyrir aldr-
aðra. Segir Halldór að þess vegna
hafi fyrirtækið ákveðið forskot,
þörfin sé fyrir hendi og reiknar
hann með að markaðurinn taki vel
við þessari nýjung. Þá sé því haldið
opnu að selja leigjendum búsetu-
rétt, með svipuðum hætti og hús-
næðissamvinnufélagið Búmenn sem
ekki hafa byggt neitt í Reykja-
nesbæ.
Viðhaldslitlar íbúðir
Því hefur verið haldið fram að
erfitt sé að reka leiguíbúðir, leigan
standi ekki undir uppbyggingar- og
rekstrarkostnaði. Eigendur Fast-
eignafélagsins Þreks telja sig geta
látið dæmið ganga upp og að þetta
verði góður rekstur.
Jóhannes Ellertsson fjármála-
stjóri segir að lán Íbúðalánasjóðs
séu til 50 ára með 4,5% vöxtum. Það
létti mjög undir með þeim. Þá séu
húsin hönnuð með það í huga að
þau þarfnist lítils viðhalds. Sérinn-
gangur verði í allar íbúðir og lítil
sem engin sameign. Hann segir að
húsin verði byggð úr viðhaldsfríium
efnum, litað stál á þaki og veggir
steinaðir að utan með marmara-
salla. Þá verði innréttingar einfald-
ar en traustar og gólf flísalögð. „Við
munum auðvitað mála reglulega en
vonumst til að viðhald verði ekki
mikið meira,“ segir Jóhannes.
Þeir félagar segja þó að betra
væri að hafa fleiri íbúðir í svona
rekstrareiningu, til dæmis 70 til 80
íbúðir, og að þeir stefni að því að
byggja fleiri þegar þessum 32 íbúð-
um verður lokið.
500 íbúðir á 24 árum
Húsanes ehf. vinnur að ýmsum
öðrum verkefnum. Það er að ljúka
við byggingu átta hæða fjölbýlis-
húss að Framnesvegi 20 í Keflavík
þar sem eru 22 íbúðir. Húsið sem er
skammt frá Flughótelinu er hæsta
hús Reykjanesbæjar. Halldór segir
að búið sé að selja meira en helm-
ing íbúðanna og fólkið sé að flytja
inn. Þá berist margar fyrirspurnir
þessa dagana þannig að hann hann
býst að þær íbúðir sem eftir eru
seljist í vetur.
Húsanes hefur einnig fyrir
skömmu lokið smíði á tólf parhús-
um við Gígjuvelli í Keflavík. Um
þessar mundir er að hefjast smíði
átján félagslegra leiguíbúða sem
Húsanes ehf. byggir fyrir Reykja-
nesbæ.
Eins og sést á þessu sérhæfir
Húsanes sig þessi árin við að
byggja íbúðarhúsnæði, ýmist fyrir
eigin reikning eða fyrir bæinn. All-
ar íbúðirnar eru inni í núverandi
byggð. Halldór Ragnarsson segir að
fyrirtækið hafi lagt mesta áherslu á
að kaupa lóðir og byggja á þeim til
að þétta byggðina. Með því séu þeir
að þjóna því fólki sem vilji búa í
grónum hverfum. Aðrir hafi annast
uppbygginguna í útjaðrinum, til
dæmis Grænási.
Á þeim 24 árum sem Húsanes
hefur starfað hefur fyrirtækið
byggt hátt í 500 íbúðir í Reykja-
nesbæ. Meginhluti þeirra hefur ver-
ið byggður fyrir eigin reikning og
seldur á almennum markaði. Ef
fjórir búa í hverri íbúða að með-
altali hafa eigendur fyrirtækisins
séð 2.000 manns fyrir húsnæði á
þessum árum.
Þeir hafa einnig tekið að sér
fjölda tilboðsverka á Suðurnesjum
og á höfuðborgarsvæðinu, byggt
grunnskóla, leikskóla, aðrar opin-
berar bygginar og atvinnuhúsnæði.
Eigendur fyrirtækisins, auk Hall-
dórs, eru Margeir Þorgeirsson
verkefnisstjóri sem verið hefur með
honum frá upphafi og Jóhannes Ell-
ertsson fjármálastjóri.
Byggja 32 íbúðir
til að leigja út
á markaðnum
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Á bak við Halldór Ragnarsson sést húsið sem Húsanes er að ljúka við að byggja á Framnesvegi 20 en það er hæsta
hús Reykjanesbæjar. Leiguíbúðir sem fyrirtækið ætlar að byggja verða í minni húsum, fjögurra til átta íbúða.
Keflavík
LÖGREGLAN í Keflavík hefur
stuðst við myndir á vefnum
djammari.is til að athuga hvort
unglingar undir aldri væru inni
á vínveitingastöðum. Nú hafa
aðstandendur síðunnar lokað
fyrir aðgang netþjóna dóms-
málaráðuneytisins og þar með
lögreglunnar að vefsíðunni.
Karl Hermannsson, yfirlög-
regluþjónn í Keflavík, segir að
fólk sem skoði vefsíður úr
skemmtanalífinu taki eftir því
að inni á vínveitingastöðum séu
unglingar sem þar hafi ekki leyfi
til að vera. Kennarar, foreldrar
og starfsfólk útideildar hafi vak-
ið máls á þessu og lögreglan geti
ekki annað en kannað málið.
Segir Karl að í nokkrum til-
vikum hafi unglingar og foreldr-
ar þeirra verið beðin um skýr-
ingar á því hvernig standi á því
að börnin hafi komist inn á stað-
ina. Þetta sé liður í að veita eig-
endum staðanna aðhald og
reyna að hindra að þeir hleypi
unglingum inn. Vegna slíkra
brota geta veitingamenn fengið
sektir og áminningu frá lög-
reglu eða sveitarstjórn.
Styrmir Bragason, einn að-
standenda djammari.is, segir í
samtali við fréttavef Víkurfrétta
að lögreglan hafi ekki leyfi til að
nota myndirnar nema með
skriflegu leyfi síðunnar. Henni
hafi verið lokað til að mótmæla
aðgerðum lögreglunnar.
Skemmti-
síða lokar á
lögregluna
Keflavík
BLÁA lónið hf. hefur keypt veitinga-
húsið Jenný, sem er staðsett stein-
snar frá Bláa lóninu. Fyrirtækið hef-
ur þegar tekið við rekstrinum og
verður staðurinn framvegis starf-
ræktur undir nafninu Hraunborg.
Húsið verður ekki rekið sem hefð-
bundinn veitingastaður heldur verð-
ur áhersla lögð á leigu þess til funda
og einkasamkvæma. Salurinn, sem
rúmar allt að 150 gesti, hentar vel
fyrir fundi og mannfagnaði, t.d.
starfsmannafagnaði, afmæli og
árshátíðir, segir í fréttatilkynningu
frá Bláa lóninu.
Bláa lónið hf. hafði áður tekið við
rekstri Eldborgar, kynningar- og
ráðstefnuhúsi Hitaveitu Suðurnesja.
Veitingastaðurinn Jenný heitir nú Hraunborg og reksturinn hefur tekið breytingum í höndum Bláa lónsins.
Veitingahúsið
Jenný verður
Hraunborg
Bláa lónið
Innlausnarverð*
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Lánasýslu ríkisins að Borgartúni 21, 2. hæð,
hjá Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og í bönkum og sparisjóðum um land allt.
Innlausnarverð er höfuðstóll vextir, vaxtavextir og verðbætur.*
Reykjavík, 21. janúar 2003
Nafnverð
5.000,00 kr.
10.000,00 kr.
50.000,00 kr.
100.000,00 kr.
1.000.000,00 kr.
12.193,65 kr.
24.387,30 kr.
121.936,45 kr.
243.872,95 kr.
2.438.729,60 kr.
Flokkur: 1993 – 1.fl.D, 10 ár
Gjalddagi: 10. febrúar 2003