Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 21

Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 21
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 21 FASTEIGNAFÉLAGIÐ Þrek ehf., dótturfélag Húsaness ehf. í Kefla- vík, er að hefja byggingu á íbúðum í Reykjanesbæ til útleigu á almenn- um markaði. Mun fyrirtækið byggja 32 íbúðir á þessu og næsta ári og stefnir að byggingu fleiri leiguíbúða í kjölfar þess. Er þetta fyrsta einka- fyrirtækið sem ræðst í byggingu íbúða til útleigu í bæjarfélaginu. Bygging íbúðanna er liður í átaki Íbúðalánasjóðs til að auka við hús- næði á leigumarkaðnum. Til þessa verkefnis veitir sjóðurinn lán á lægri vöxtum en almennt gerist. Halldór Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri Húsaness ehf., segir að könnun sem gerð var á vegum bæjarfélagsins sýni að það vanti 80 leiguíbúðir í Reykjanesbæ. Það sé grundvöllur þessa framtaks fyrir- tækisins. Vonast eftir uppgangi í bænum Íbúðirnar verða byggðar í fjög- urra til átta íbúða húsum, inni í nú- verandi byggð. Fyrstu tvö húsin verða á lóðum sem fyrirtækið á að Hafnargötu 50 og Hafnargötu 20. Þar verða tólf fyrstu íbúðirnar. Á næst ári verða síðan byggðar tutt- ugu íbúðir til viðbótar og er fyr- irtækið í viðræðum við Reykja- nesbæ um lóðir fyrir þær. Halldór reiknar með að breiður hópur fólks muni sækjast eftir að leigja þessar íbúðir, meðal annars ungt fólk sem er að hefja búskap og fólk sem er að flytja til bæjarins. Eigendur fyrirtækisins hafa mikla trú á að framundan sé uppgangur í Reykjanesbæ. Bærinn hafi upp á allt að bjóða sem fólk og fyrirtæki þurfi til að setja sig niður. Hann nefnir að framundan sé uppbygging í Helguvík, meðal annars fjölmenn- ur vinnustaður í stálröraverk- smiðju, og fyrirtæki séu að byggja yfir sig við Reykjanesbrautina. „Ég er sannfærður um að hér verður uppgangur og fólksfjölgun á næstu árum,“ segir Halldór. Fasteignafélagið Þrek er fyrsta einkafyrirtækið sem byggir íbúðir til leigu á almennum markaði en áð- ur hefur bæjarfélagið byggt fé- lagslegar íbúðir og íbúðir fyrir aldr- aðra. Segir Halldór að þess vegna hafi fyrirtækið ákveðið forskot, þörfin sé fyrir hendi og reiknar hann með að markaðurinn taki vel við þessari nýjung. Þá sé því haldið opnu að selja leigjendum búsetu- rétt, með svipuðum hætti og hús- næðissamvinnufélagið Búmenn sem ekki hafa byggt neitt í Reykja- nesbæ. Viðhaldslitlar íbúðir Því hefur verið haldið fram að erfitt sé að reka leiguíbúðir, leigan standi ekki undir uppbyggingar- og rekstrarkostnaði. Eigendur Fast- eignafélagsins Þreks telja sig geta látið dæmið ganga upp og að þetta verði góður rekstur. Jóhannes Ellertsson fjármála- stjóri segir að lán Íbúðalánasjóðs séu til 50 ára með 4,5% vöxtum. Það létti mjög undir með þeim. Þá séu húsin hönnuð með það í huga að þau þarfnist lítils viðhalds. Sérinn- gangur verði í allar íbúðir og lítil sem engin sameign. Hann segir að húsin verði byggð úr viðhaldsfríium efnum, litað stál á þaki og veggir steinaðir að utan með marmara- salla. Þá verði innréttingar einfald- ar en traustar og gólf flísalögð. „Við munum auðvitað mála reglulega en vonumst til að viðhald verði ekki mikið meira,“ segir Jóhannes. Þeir félagar segja þó að betra væri að hafa fleiri íbúðir í svona rekstrareiningu, til dæmis 70 til 80 íbúðir, og að þeir stefni að því að byggja fleiri þegar þessum 32 íbúð- um verður lokið. 500 íbúðir á 24 árum Húsanes ehf. vinnur að ýmsum öðrum verkefnum. Það er að ljúka við byggingu átta hæða fjölbýlis- húss að Framnesvegi 20 í Keflavík þar sem eru 22 íbúðir. Húsið sem er skammt frá Flughótelinu er hæsta hús Reykjanesbæjar. Halldór segir að búið sé að selja meira en helm- ing íbúðanna og fólkið sé að flytja inn. Þá berist margar fyrirspurnir þessa dagana þannig að hann hann býst að þær íbúðir sem eftir eru seljist í vetur. Húsanes hefur einnig fyrir skömmu lokið smíði á tólf parhús- um við Gígjuvelli í Keflavík. Um þessar mundir er að hefjast smíði átján félagslegra leiguíbúða sem Húsanes ehf. byggir fyrir Reykja- nesbæ. Eins og sést á þessu sérhæfir Húsanes sig þessi árin við að byggja íbúðarhúsnæði, ýmist fyrir eigin reikning eða fyrir bæinn. All- ar íbúðirnar eru inni í núverandi byggð. Halldór Ragnarsson segir að fyrirtækið hafi lagt mesta áherslu á að kaupa lóðir og byggja á þeim til að þétta byggðina. Með því séu þeir að þjóna því fólki sem vilji búa í grónum hverfum. Aðrir hafi annast uppbygginguna í útjaðrinum, til dæmis Grænási. Á þeim 24 árum sem Húsanes hefur starfað hefur fyrirtækið byggt hátt í 500 íbúðir í Reykja- nesbæ. Meginhluti þeirra hefur ver- ið byggður fyrir eigin reikning og seldur á almennum markaði. Ef fjórir búa í hverri íbúða að með- altali hafa eigendur fyrirtækisins séð 2.000 manns fyrir húsnæði á þessum árum. Þeir hafa einnig tekið að sér fjölda tilboðsverka á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu, byggt grunnskóla, leikskóla, aðrar opin- berar bygginar og atvinnuhúsnæði. Eigendur fyrirtækisins, auk Hall- dórs, eru Margeir Þorgeirsson verkefnisstjóri sem verið hefur með honum frá upphafi og Jóhannes Ell- ertsson fjármálastjóri. Byggja 32 íbúðir til að leigja út á markaðnum Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Á bak við Halldór Ragnarsson sést húsið sem Húsanes er að ljúka við að byggja á Framnesvegi 20 en það er hæsta hús Reykjanesbæjar. Leiguíbúðir sem fyrirtækið ætlar að byggja verða í minni húsum, fjögurra til átta íbúða. Keflavík LÖGREGLAN í Keflavík hefur stuðst við myndir á vefnum djammari.is til að athuga hvort unglingar undir aldri væru inni á vínveitingastöðum. Nú hafa aðstandendur síðunnar lokað fyrir aðgang netþjóna dóms- málaráðuneytisins og þar með lögreglunnar að vefsíðunni. Karl Hermannsson, yfirlög- regluþjónn í Keflavík, segir að fólk sem skoði vefsíður úr skemmtanalífinu taki eftir því að inni á vínveitingastöðum séu unglingar sem þar hafi ekki leyfi til að vera. Kennarar, foreldrar og starfsfólk útideildar hafi vak- ið máls á þessu og lögreglan geti ekki annað en kannað málið. Segir Karl að í nokkrum til- vikum hafi unglingar og foreldr- ar þeirra verið beðin um skýr- ingar á því hvernig standi á því að börnin hafi komist inn á stað- ina. Þetta sé liður í að veita eig- endum staðanna aðhald og reyna að hindra að þeir hleypi unglingum inn. Vegna slíkra brota geta veitingamenn fengið sektir og áminningu frá lög- reglu eða sveitarstjórn. Styrmir Bragason, einn að- standenda djammari.is, segir í samtali við fréttavef Víkurfrétta að lögreglan hafi ekki leyfi til að nota myndirnar nema með skriflegu leyfi síðunnar. Henni hafi verið lokað til að mótmæla aðgerðum lögreglunnar. Skemmti- síða lokar á lögregluna Keflavík BLÁA lónið hf. hefur keypt veitinga- húsið Jenný, sem er staðsett stein- snar frá Bláa lóninu. Fyrirtækið hef- ur þegar tekið við rekstrinum og verður staðurinn framvegis starf- ræktur undir nafninu Hraunborg. Húsið verður ekki rekið sem hefð- bundinn veitingastaður heldur verð- ur áhersla lögð á leigu þess til funda og einkasamkvæma. Salurinn, sem rúmar allt að 150 gesti, hentar vel fyrir fundi og mannfagnaði, t.d. starfsmannafagnaði, afmæli og árshátíðir, segir í fréttatilkynningu frá Bláa lóninu. Bláa lónið hf. hafði áður tekið við rekstri Eldborgar, kynningar- og ráðstefnuhúsi Hitaveitu Suðurnesja. Veitingastaðurinn Jenný heitir nú Hraunborg og reksturinn hefur tekið breytingum í höndum Bláa lónsins. Veitingahúsið Jenný verður Hraunborg Bláa lónið Innlausnarverð* Auglýsing um innlausnarverð verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Lánasýslu ríkisins að Borgartúni 21, 2. hæð, hjá Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og í bönkum og sparisjóðum um land allt. Innlausnarverð er höfuðstóll vextir, vaxtavextir og verðbætur.* Reykjavík, 21. janúar 2003 Nafnverð 5.000,00 kr. 10.000,00 kr. 50.000,00 kr. 100.000,00 kr. 1.000.000,00 kr. 12.193,65 kr. 24.387,30 kr. 121.936,45 kr. 243.872,95 kr. 2.438.729,60 kr. Flokkur: 1993 – 1.fl.D, 10 ár Gjalddagi: 10. febrúar 2003

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.