Morgunblaðið - 24.01.2003, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.01.2003, Blaðsíða 23
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 23 M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 0 1 .0 3 báðar leiðir með flugvallarsköttum. frá Sala farmiða og nánari upplýsingar: www.icelandexpress.is Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24 Sími 5 500 600. Opið frá 9-17 alla virka daga. Fyrsta flug 27. febrúar. * * London báðar leiðir með flugvallarsköttum. frá * Köben Gildir ef bókað er á Netinu. Athugið takmarkað sætaframboð. ALLGÓÐ aðsókn var að rauðu sinfóníutónleikunum í gær, þó að engin höfuðverk sígildra tónmennta væru á dagskrá. Kunnast var Læri- sveinn galdra- mannsins sem jaðraði við að verða ofþvælt í konsertsölum fyrir ekki svo mörgum árum og því sennilega vanmetið í dag, líkt og með ýmis fyrrum ofspiluð verk. Lífið fyrir keis- arann, ópera Mikhails Glinka frá 1836, hélt stöðu rússneskrar þjóð- aróperu allt fram að 1917, ekki sízt þökk efniviðarins þar sem fyrsti keisari Romanov-ættarinnar kemur við sögu. Forleikur óperunnar hefur þó staðið fyrir sínu sem sjálfstætt atriði í tónleikasölum, jafnvel þótt annar forleikur Glinka, Rúslan og Lúdmilla, sé mun kunnari. Áhrifa- mest þótti manni hið hægt líðandi upphaf með syngjandi óbó í forystu- hlutverki, en að öðru leyti var eins og forleikinn vantaði almennilega hrífandi stef. Báðir klarínettkonsertar Carls Mariu von Webers voru samdir í München 1811. Í gærkvöld var á boðstólum nr. 2 í Es-dúr Op. 74. Einleikarinn var Hermann Stefáns- son sem gegnir stöðu 1. klarínetts í Stokkhólmsfílharmóníunni. Verkið þykir vel skrifað fyrir sólistann og veitir honum fjölda „bravúra“-tæki- færa, auk þess að vera létt og þokkafullt, þó að inntakið verki svo- lítið þunnildislegt í dag. Hermann lék af óþvinguðu öryggi og hafði greinilega lítið fyrir ofurveikum pí- anissimó-bergmálum sínum, jafnvel á hraðskreiðustu nótnarunum. Þó vakti nótnastóllinn nokkra undrun í jafnauðmundu verki. Hermann var aftur í forystuhlut- verki fyrst eftir hlé. Fyrsta og reyndar eina Rapsódía Debussys var samin 1910 fyrir klarínett og kammerhóp sem prófverkefni fyrir Parísarkonservatóríuna en orkestr- uð 1911. Afburðagott og heilsteypt lítið verk, gætt exótískri dulúð og litríkum glæsileik. Undraverð mýkt einleikarans var ekki síðri hér í hlut- fallslega samtvinnaðri einleiksrödd en í Weber-konsertnum og auðheyrt að sólistinn hafði tilfinningu hljóm- sveitarmannsins fyrir samhljómi heildar. Var honum afar vel tekið. Líkt og fyrrgetin Rapsódía Debussys voru „Tignir og tárdrægir valsar“ landa hans Ravels (Valses nobles et sentimentales) fyrst samd- ir fyrir píanó – raunar sama ár og Debussy orkestraði sitt verk – og útsettir fyrir hljómsveit ári síðar. Vínarvalsformið er stórlega teygt og tosað hjá franska orkestrunarmeist- aranum, þó ekki keyri eins langt um þverbak og í paródíu hans La Valse. Hefði túlkun SÍ fram að þessu verið fyrir ofan meðallag, bar hún hér af svo um munaði undir stjórn hins rússneska Alexanders Vedernikovs. Hraðavalið var ávallt eðlilegt, til- gerðarlaust og skilvirkt – án þess að slæva samtaka snerpu og stigmagn- andi spennu. Sömu kostir einkenndu lokaverk kvöldsins, Lærisveinn galdramanns- ins eftir Paul Dukas, sem flestir hlustendur tengja við teiknimynd Disney-versins Fantasia með Mikka mús í hlutverki lánlausa nýgræð- ingsins, þó að Dukas sækti sjálfur söguþráðinn til ballöðu Goethes. Þrátt fyrir ómælda flíkun tón- menntakennara er þetta „barna- verk“ samið af fúlustu alvöru, mikilli kunnáttu og skilvirkum kontra- punkti í snilldarlegri orkestrun fyrir stóra hljómsveit. Kom það enda glöggt fram af sprækum en hnitmið- uðum leik Sinfóníuhljómsveitarinn- ar og óhætt að segja að sópað hafi duglega að axarsköftum lærisveins- ins undir fagmannlegri stjórn Ved- ernikovs. Sópandi sinfón- ísk axarsköft TÓNLIST Háskólabíó Verk eftir Glinka, Weber, Debussy, Ravel og Dukas. Hermann Stefánsson klarín- ett; Sinfoníuhljómsveit Íslands. Hljóm- sveitarstjóri: Alexander Vedernikov. Fimmtudaginn 23. janúar kl. 19:30. SINFÓNÍUTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Hermann Stefánsson ÓLAFUR Jóhann Ólafsson hlýtur lof í þýskum fjöl- miðlum fyrir skáldsögu sína Slóð fiðrildanna sem nýverið kom út hjá Knaus Verlag þar í landi. Hann er sagður hrífa lesandann með sér í ferðalag, rætt er um meistaratök á listinni að gefa í skyn og þá vekur athygli hvernig hann skrif- ar frá sjónarhorni konu. Gagnrýnandi Kölner Stadt- Anzeiger/Kölnische Rundschau segir í gagnrýni sinni að Ólafur Jóhann Ólafsson hafi „meistaratök á listinni að gefa í skyn. Á milli línanna er meira sagt en allar beinar skírskotanir, ábendingar eða staðreyndir megna.“ Í Frankfurter Allgemeine Zeit- ung sagði að það væri eftirtekt- arvert að karlhöfundur skyldi leggja sig svo mjög fram við að lýsa tilfinningum aðalsöguhetj- unnar Dísu. Sálfræðilega sannfærandi Gagnrýnandi Nürnberger Nach- richten ritaði: „Ólafur Jóhann Ólafsson lýsir á næman hátt hvernig aðalsöguhetjan rekur gengin spor og hríf- ur lesandann með sér í ferðalag um fortíð hennar og fegurð heimkynna hennar á Íslandi.“ Í Pforzheimer Zeitung sagði að hér segði Ólafur Jóhann „sálfræðilega sannfærandi sögu and- spænis dramatískum sögulegum viðburðum sem er spennandi og full af óvænt- um uppákomum“. Í Scweriner Volkzeitung sagði í umsögn Slóð fiðrildanna: „Með ísmeygilegri fágun vindur Ólafur Jóhann Ólafsson ofan af lífi konu sem aðeins hefur megnað að lifa af missi sinn með því að bæla harm sinn. Fyrir vikið verður Dísa að táknmynd heillar kynslóðar sem reyndi að gleyma jafnt sekt sem sársauka með þögninni.“ Loks má geta þess að í frétta- blaði bókasafns Bæjaralands sagði: „Blítt og með innlifun segir Ólafur Jóhann Ólafsson sögu sem útheimtir fulla einbeitingu lesand- ans en sem er sannarlega þessarar einbeitingar virði.“ Ólafi Jóhanni vel tekið í Þýskalandi Hrífur lesandann með í ferðalag Ólafur Jóhann Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.