Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 32

Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 32
MINNINGAR 32 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ G reint var frá því í fréttum í vikunni að meirihluti lands- manna vildi ekki láta lögleyfa spilavíti hér á landi. Fréttir á borð við þessa birtast með reglulegu millibili. Einn daginn vill meirihluti lands- manna ekki láta lögleyfa hnefa- leika. Seinna er vilji til að leyfa hnefaleikana. Einn daginn vilja landsmenn ekki að leyft sé að hlusta á aðrar útvarpsstöðvar en þá ríkisreknu. Næsta dag dettur engum í hug að banna ein- staklingum að reka útvarps- stöðvar. Einn daginn telja Íslend- ingar að hag sínum sé best borgið með því að hér megi enginn drekka bjór nema vera nýkominn frá útlöndum með „tollinn“ sinn. Næsta dag er þetta sjónarmið fjar- stæðukennt. Svipaða sögu er að segja um tóbak, brennd vín, afgreiðslutíma verslana, einka- dans og ýmis önnur einkamál fólks. Menn hafa eina skoðun í dag og aðra á morgun á því hvort setja eigi strangar reglur eða mildar; hvort eigi að banna eða leyfa. Hin hliðin er að stundum eru menn skikkaðir til að gera til- tekna hluti. Einn daginn eru menn skyldaðir til að spara, en ekki næsta dag. Einn daginn er mönnum gert að setja á sig ör- yggisbelti, áður var það frjálst. Einn daginn ráða eigendur fjöl- býlishúsa hvort þeir leyfa reyk- ingar í stigagöngum húsa sinna, næsta dag er þeim óheimilt að leyfa slíkar reykingar. Opinber fyrirmæli í þessum efnum breyt- ast eftir duttlungum hvers tíma. Ef tiltekið sjónarmið kemst í tísku og nær stuðningi meirihlut- ans er líklegt að það nái fyrr en seinna eyrum löggjafans, sem hikstalaust setur reglur sem banna borgurunum eitt og bjóða þeim annað. Boð og bönn þykja ekki tiltökumál ef marka má reglusetningar hins opinbera. Nú segir einhver sennilega að þetta sé bara fullkomlega eðlilegt, meirihlutinn eigi að ráða. Ef meirihlutanum finnist ekki að leyfa eigi spilavíti þá sé bara lýð- ræðisleg niðurstaða að banna þau. Við því sé ekkert að segja og minnihlutinn verði að sætta sig við að lúta vilja meirihlutans. En er þetta þannig? Er eðlilegt að hvenær sem meirihlutaskoðun næst um tiltekið mál, þá nýti meirihlutinn afl sitt og knýi fram vilja sinn í óþökk minnihlutans? Sum mál eru vissulega þess eðl- is að um þau kann að þurfa að taka ákvörðun sem snertir alla. Þessi mál eru að vísu mun færri en virðist í fyrstu, því einstakling- arnir geta leyst mun fleiri mál með samningum sín á milli en gert er ráð fyrir nú. Hvað um það, segjum að til séu mál sem ekki er með góðu móti hægt að leiða til lykta án ákvörðunar meirihlutans gegn andstöðu minnihlutans, eða að minnsta kosti án samþykkis hans. Nefna má sem dæmi ákvörðun um virðisaukaskatts- hlutfallið. Slík ákvörðun verður að vera ákvörðun meirihlutans, því ekki er hægt að láta hvern og einn velja sér sitt eigið skatthlutfall – þó að sumir geri það að vísu, sér- staklega þegar meirihlutinn hefur valið að hafa hlutfallið of hátt. En hvað með þau mál sem nefnd voru hér að ofan, eru þau þess eðlis að ekki væri hægt að eftirláta hverjum og einum að taka eigin afstöðu og fylgja henni fyrir sig? Nei, þessi mál eru ekki þess eðlis. Ekkert segir að einn varði um það hvort annar maður spilar fyrir eigið fé. Og ekkert segir að skylda þurfi alla til sparnaðar, eins og gert var á ár- um áður, þó margir vilji spara. Það er oft ekki fyrr en menn lenda sjálfir í minnihlutahópnum sem þeir átta sig á að ekki er eðli- legt að aðrir en þeir sjálfir hafi um einkamál þeirra að segja. Og jafnvel þá hafa menn stundum furðu litla samúð með öðrum sem lenda í minnihluta í öðrum mál- um. Þannig geta harðir áhuga- menn um hnefaleika verið sam- þykkir því að öðrum mönnum sé bannað að leyfa reykingar í eigin húsum, bara af því þeir vilja sjálf- ir ekki reykja og eiga erfitt með að setja sig í spor annarra. Svo eru sumir sem hafa lítinn áhuga á bjór eða tóbaki, hnefaleikum eða fjárhættuspilum, og vilja bara banna þetta allt saman og telja að með því verði heimurinn svo miklu betri. Þá ættu menn þó að velta því fyrir sér hvað gerðist ef þeir lentu í minnihluta í einhverju máli sem þeim sjálfum er hjartans mál. Hvað fyndist mönnum til að mynda ef meirihluti landsmanna kæmist að þeirri niðurstöðu að handboltaiðkun væri hættuleg tímasóun sem kenndi bæði leik- mönnum og áhorfendum vonda siði og ýtti undir fantaskap og of- beldi? Ætli áhugamenn um hand- bolta myndu þá láta gott heita og snúa sér af óskiptum áhuga að bóklestri? Svona að minnsta kosti þar til uppáhaldsbækurnar þeirra væru bannaðar því meirihlutinn hefði komist að þeirri niðurstöðu að þær væru illa skrifaðar og inni- haldsrýrar eða jafnvel fullar af of- beldislýsingum og öðrum ósóma. Það er býsna margt sem hætta er á að verði boðum og bönnum að bráð ef menn spyrna ekki við fót- um með einhver grundvall- arviðhorf um frelsi og réttindi einstaklingsins að leiðarljósi. Vissulega er alltaf hætta á að ein- hverjir kunni ekki fótum sínum forráð í lífinu og verði á alvarleg mistök. Hjá þessu verður hins vegar ekki komist með opinberum fyrirmælum, því tækifærin til að misstíga sig eru óendanleg, auk þess sem reglurnar hafa oftar en ekki þær afleiðingar að menn fara með einhverjum hætti í kringum þær. Þannig verða til glæpir án fórnarlamba – nema ef til vill glæpamannsins sjálfs – og glæpa- menn án glæps. Þeir sem krefjast reglna um hátterni annarra ættu að hugsa sig tvisvar um hvort þeir vilja lifa í þjóðfélagi þar sem hverfull meirihluti setur umhugsunarlítið strangar reglur um hegðun minnihlutans. Nema ef til vill þeir, sem eru bæði sannfærðir um að verða ofaná í öllum málum og hafa ekki sérstaka samúð með þeim sem lenda í minnihlutanum. Minni- hlutinn „Það er oft ekki fyrr en menn lenda sjálf- ir í minnihluta sem þeir átta sig á að ekki er eðlilegt að aðrir en þeir sjálfir hafi um einkamál þeirra að segja.“ VIÐHORF Eftir Harald Johannessen haraldurj@mbl.is ✝ Björn Guð-mundsson flug- maður fæddist á Grjótnesi á Mel- rakkasléttu 16. júní 1926. Hann lést á Landspítalanum 19. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þórey Böðvarsdótt- ir, f. 2. 7. 1904, d. 5.12. 1990, og Guð- mundur Björnsson bóndi á Grjótnesi, síðar skjalavörður, f. 14.9. 1899, d. 6.1. 1995. Systkini Björns eru Vilborg Sigríður, f. 18.6. 1929, Ragnhildur Guðrún, f. 21.12. 1933, Böðvar, f. 3.2. 1938, og Þórey, f. 30.5. 1945. Björn kvæntist Þorbjörgu Rósu Guðmundsdóttur verslunarmanni, f. 16. 8. 1929, dóttur Guðmundar Henný Hugadóttir, f. 3.2. 1978, sonur þeirra Jón Valur, f. 16.5. 2002, Guðbjörg, f. 28.7. 1984, og Hrafnkell, f. 23.5. 1992. 3) Guð- mundur Ásgeir tannlæknir, f. 6.9. 1962, kvæntur Sæunni Gísladóttur íþróttakennara, f. 31.12. 1963. Börn þeirra Gísli Rafn, f. 6.6. 1986, Fanney Þorbjörg, f. 5.6. 1992, og Björn Ásgeir, f. 3.9. 1998. Björn varð gagnfræðingur frá Menntaskólanum á Akureyri 1945. Hann stundaði flugnám við A.S.T. Hamble í Southampton 1946 til 1948 og lauk atvinnuflugmanns- og blindflugsprófi. Björn var flug- maður hjá Flugfélagi Íslands og síðan Flugleiðum hf. Í fyrstu flug- maður á Douglas DC-3, Douglas DC-4 og Catalina PBY-5 og PBY-5A. Flugstjóri á DC-3, DC-4, Douglas DC-6B og Boeing 727. Björn hefur gegnt flestum trúnað- arstörfum innan FÍA, og var meðal annars formaður árin 1972, 1974, 1975 og 1979. Björn starfaði síðan á skrifstofu FÍA til dauðadags. Útför Björns verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 10.30. Stefánssonar bónda á Harðbak á Melrakka- sléttu, f. 13.7. 1885, d. 30. maí 1971 og Mar- grétar Siggeirsdóttur húsfreyju, f. 12.8. 1890, d. 18. nóv. 1978. Börn Björns og Þor- bjargar eru: 1) Þórey meinatæknir og flug- freyja, f. 11.3. 1952, gift Jóhannesi Jens Kjartanssyni lækni, f. 19.8. 1951. Börn þeirra: Björn Róbert, f. 5.6. 1969, kvæntur Stefaníu Kjartans- dóttur, f. 25.5. 1972, Þorbjörg, f. 12.8. 1975, Davíð, f. 2.11. 1981, og Þórdís, f. 8.6. 1990. 2) Margrét hjúkrunarfræðingur BS, f. 31.1. 1956, gift Jóni Hrafnkelssyni lækni, 6.12. 1951; börn þeirra Björn, f. 14.12. 1978, sambýliskona Kæri Björn, þá hefur þú kvatt okkur í bili. Við vissum að hverju dró í langan tíma en samt var undirbún- ingnum ekki lokið og það er margt sem við áttum eftir ógert saman en svona er þetta nú og við það verður ekki ráðið. Það hefur alla tíð verið mér mikill heiður að eiga þig sem tengdaföður. Þú ert einarður og dugandi maður, heill í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og sanngjarn. Drengur góð- ur! Þú gerir einnig kröfu til sam- ferðamanna þinna að þeir sýni heið- arleika og orð skulu standa. Af þessum sökum átt þú einvala lið vina, félaga og aðdáenda sem margir hafa þig að sinni fyrirmynd. Það á við um mig eins og marga aðra að ég hef litið til þín um margt, enda varst þú lærifaðir minn í skot- veiðimennsku þegar þú bauðst mér sem ungum manni með þér og þínum óborganlegu félögum í rjúpnaveiðar víða í óbyggðum Íslands. Í þessum ferðum lærðist mér að bera virðingu fyrir náttúrunni, gæta að samferða- mönnum, taka mið af vindum, hita og staðháttum og njóta kyrrðarinnar sem er óviðjafnanleg í fjallasölunum. Gönguþrek þitt var óviðjafnanlegt og oft vorum við yngri mennirnir að niðurlotum komnir í lok dags þegar þú bauðst til að létta á okkur byrð- arnar þó svo þú værir undantekning- arlaust með þyngri byrðar fyrir, enda varst þú okkur yfirleitt fremri í veiðinni. Nægir þar að minnast á ferðina á Brekkuna þegar ég ætlaði að viðra þig eftir aðgerðina. Þú áttir að spássera í kringum bílinn meðan ég gekk upp á fjallið og gleymdi mér í veiði. Ég var býsna stoltur með 4 rjúpur eftir fjögurra tíma labb en brá þó í brún þegar ég sá þig ekki við bílinn enda var ég búinn að vera mun lengur en ég ætlaði. Það var því mik- ill léttir að sjá þig staulast undan bílnum, þótt ég byggist við miklum skömmum því ég hafði óvart læst bílnum. Þú burstaðir bara af þér snjóinn og sagðir kankvís: „Fjand- ans ólán að þú skyldir læsa, því ég varð skotfæralaus eftir einn og hálf- an tíma“ og svo dróstu fram 22 rjúp- ur undan bílnum. Kæri tengdapabbi, þú kenndir okkur Þóreyju líka undirstöðuatrið- in í gönguferðum á Hornströndum sem þú labbaðir í gúmmístígvélum ásamt vinum þínum löngu áður en öðrum hugkvæmdist þessi útivera. Við fengum lánaðan gamla prímus- inn sem var frábær og gamla tjaldið. Þú hefur kynnt okkur öll fyrir þeirri göfugu íþrótt hestamennsk- unni og verið óspar að taka barna- börnin með í hesthúsið og hafa sum þeirra ánetjast hestunum fyrir lífs- tíð. Hestaferðirnar þar sem þú virkj- aðir alla fjölskylduna til langferða meðal annars á Löngufjörur og á Snæfjallaströnd eru ógleymanlegar. Þér var alltaf mikið í mun að kom- ast norður í Harðbak og á Grjótnes að veiða silung í vötnunum á Mel- rakkasléttunni og þá var oft handa- gangur í öskjunni við netalagnir og að höggva við í eldinn. Kvöldstund- irnar á Harðbak með þér og tengda- mömmu eftir amstur dagsins voru glaðværar og öllum ógleymanlegar. Þrátt fyrir það sem á undan er sagt duldist engum að Glæsivellir áttu hug þinn allan og það voru sennilega þínar bestu stundir þegar þú tókst stoltur á móti þeim er þér þótti vænst um, allri fjölskyldunni, á höfuðbóli ykkar tengdamömmu á Glæsivöllum. Góða ferð, kæri tengdapabbi. Við erum stolt af þér. Jens Kjartansson. Fyrstu tíu ár ævinnar var ég eins- konar viðhengi við afa. Hvert sem hann fór, fór ég líka. Mér er eig- inlega fyrirmunað að skilja hvernig hann nennti að hafa strákinn með sér alla daga. En hann kvartaði ekki og virtist láta sér vel líka. Of langt mál yrði að telja upp öll ferðalögin norður í Harðbak, austur í Gunnars- holt, hestaferðirnar og sumarfríin sem ég fór með afa og ömmu, endast hvorki fingur og tær í þær upptaln- ingar. Afi var fljótur til svars og ræðu- maður mikill, talaði ævinlega blaða- laust. Margar hetjusögur heyrði ég af afa, snerust þær flestar um flugið enda farsæll og áræðinn flugstjóri. Þær sögur bárust mér þó ekki fyrr en á fullorðinsárum, þá helst frá vinnufélögum hans. Hann var hins vegar fámáll um eigin afrek og að- spurður gerði hann lítið úr og sagði gjarnan: „Það er ekki gott að trúa öllu sem maður heyrir, nafni minn.“ Þegar litið er til baka, sést að afi var staðfastur persónuleiki og örlátur. Þó var hann ekki mikið fyrir bruðl. Eitt sinn fyrir löngu var hann á flugi og kom að vesturströnd Grænlands. Hann átti stutt eftir til Keflavíkur. Það var hins vegar ófært fyrir Grænland. Auðveldast var að lenda og bíða veðrið af sér en það hefði getað tekið nokkra daga. Björn frá Grjótnesi flaug frekar nætursjón- flug með vesturströndinni norður til Thule, tankaði þar, flaug síðan niður eftir aftur eftir austurströndinni, krækti þannig fyrir óveðrið. Í dag er þetta ekkert mál en þetta er snúnara þegar þú hefur bara kort og myrkur þér til stuðnings því áttavitar virka illa norðurfrá og önnur nútímahjálp- artæki af skornum skammti. Að- spurður vildi hann ekki leggja út í óþarfa kostnað fyrir flugfélagið með því að lenda og setja farþegana á hótel! Elsku afi, um leið og ég kveð þig bið ég Guð að færa ömmu áfram- haldandi styrk. Björn Róbert. Elsku afi minn, ég vona að þessar línur hitti þig hressann og kátann. Þér leið ekki vel þegar að við kvödd- umst seinast en þú kvartaðir aldrei. Í þínum huga var þetta tímabundið ástand sem tók varla að tala um. „Þessi fjandi hlýtur að líða hjá“ varstu vanur að segja og áttir þá við verkinn. Þú varst baráttujaxl í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur og lif- andi goðsögn svo lengi sem ég man. Svo eftirminnilegur ertu! Á aðfanga- dagskvöldum lagðir þú þig gjarnan eftir matinn og þetta var hefð. Eitt kvöld var þó undartekning en það voru önnur jólin mín. Ég skreið upp á magann á þér og hélt fyrir þér vöku, eða það segja mamma og amma. Það er til mynd frá þessu kvöldi fyrir 25 árum síðan og hana geymi ég vel. Myndin lýsir þér svo vel sem yndislegum afa, enda sækja börnin í hlýjuna. Ég var svo lánsöm að kynnast hestamennskunni með þér og ömmu, njóta hestaferðanna og samverustundanna á Glæsivöll- um, Karfó, Harðbak, Vestfjörðum, Flórída, Ítalíu eða bara hvar sem er. Elsku afi, ég er stolt af því að vera barnabarnið þitt og mun minnast þín um ókomna tíð. Þorbjörg Jensdóttir. Elsku afi, nú ertu horfinn yfir móðuna miklu. Þú varst alltaf svo duglegur, bjartsýnn, og lífsglaður og máttir aldrei vera að því að stoppa. Varst alltaf að vinna við eitthvað uppi í bústað. Ó, hvað við eigum eftir að sakna þín þar. En þú barmaðir þér aldrei. Ónei, ekki einu sinni í þessum erfiðu veikindum sem nú eru á enda. Ég minnist ferðanna okkar norður á Melrakkasléttu, þegar þú kenndir mér að leggja net og draga síðan spriklandi silung upp úr vatn- inu næsta dag. Þú kenndir mér að sitja hest, og flest allt sem viðkemur hestamennsku. Ég man hvað ég leit alltaf mikið upp til þín, afi. Þú kunnir svo margt, varst flugstjóri og hafðir flogið til svo margra landa. Manstu þegar við vorum að temja Sleipni, þennan brúna með blesuna, hversu ánægðir og stoltir við vorum þegar hann tölti og þú ljómaðir allur. Takk fyrir að vera alltaf ánægður og stolt- ur með það sem maður gerði, í skól- anum sem og annars staðar. Takk fyrir öll hrósin sem þú gafst okkur barnabörnunum. Þú leystir það verkefni að vera afi eins vel og hugs- ast getur. Þú munt lifa í hjörtum okkar allra. Guð geymi þig elsku, hjartans afi minn. Elsku amma, megi Guð styrkja þig og okkur hin í þessari miklu sorg. Gísli Rafn Guðmundsson. Elsku afi. Ég er mjög montin af því að eiga þig fyrir afa og er mjög heppin að hafa kynnst þér svona vel. Og þá sérstaklega í hestunum því ég hef upplifað svo margt gott með þér í hestunum.Ég gleymi því aldrei þeg- ar ég sá Gram hestinn þinn undir þér í fyrsta skipti og ég spurði hvort ég mætti fara á bak. Þú sagðir að hann væri of ungur og ég líka en ég mætti eflaust fara á hann seinna. Ég var mjög spennt og spurði aftur nokkrum mánuðum seinna en þú varst tregur til en sagðir svo að ef að ég myndi skipta faxinu og greiða það þá mætti ég fara á bak. Ég gerði það strax næsta dag og fékk því að fara á BJÖRN GUÐMUNDSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.