Morgunblaðið - 24.01.2003, Blaðsíða 42
DAGBÓK
42 FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss og Gissur
fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Rán kom í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Bingó í
dag kl. 14.
Árskógar 4. Kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofan, kl.
13.30 bingó.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–12.30 böðun, kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 13–16
frjálst að spila í sal.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 hár-
greiðslustofan opin, að-
stoð við böðun, og opin
handavinnustofa, kl.
11.15 hádegismatur, kl.
15 kaffiveitingar.
Félagsstarfið, Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9–12 applikering, kl.
10–13 opin verslunin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12
baðþjónusta, kl. 9–
16.30 opin vinnustofa,
myndlist, gifs o.fl., kl.
9.30 gönguhópurinn
Gönuhlaup leggur af
stað, kaffi á eftir göng-
unni, allir velkomnir,
kl. 14 brids og almenn
spilamennska.
Korpúlfar, Grafar-
vogi, samtök eldri
borgara.Vatnsleikfimi
er í Grafarvogslaug á
föstudögum kl. 14. Ný-
ir félagar velkomnir.
Upplýsingar gefur
Þráinn í síma 545 4500.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8. böðun, kl.
10 hársnyrting, kl. 10–
12 verslunin opin, kl.
11 leikfimi, kl. 11.30 há-
degisverður, kl. 13
„opið hús“ spilað á spil
kl. 14.30 kaffiveitingar.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Pútt og
brids kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Kaffistofan
opin kl. 10–13 virka
daga. Laugardagur 25.
janúar: Heilsa og ham-
ingja“ kl. 13.30 í Ás-
garði, Glæsibæ. Erindi
flytja: Hannes Péturs-
son yfirlæknir um
„geðklofa“ og Jóhann
Axelsson prófessor um
„vetraróyndi“. Allir
velkomnir. Skrifstofa
félagsins er í Faxafeni
12 sími. 588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf, kl. 9–16.30
vinnustofur opnar, m.a.
bókband eftir hádegi,
frá hádegi spilasalur
opinn, kl. 14. kóræfing.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.30 málm- og
silfursmíði, kl. 9.15
vefnaður, kl. 13 bók-
band.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlistahóp-
ur, kl. 10 ganga. Kl. 14–
15 söngur. Bóndakaffi í
Gullsmára. Konum
bent á að bjóða bónda
sínum í pönnukökur og
súkkulaði á bóndadag-
inn í dag kl. 15.
Hraunbær 105. Kl. 9
baðþjónusta, handa-
vinna, útskurður, fóta-
aðgerð og hárgreiðsla,
kl. 11 spurt og spjallað,
kl. 14 bingó.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9 postulín, kl. 12.30
postulín. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
13 tréskurður, kl. 9–17,
hárgreiðsla kl. 10–11
boccia.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
alm. handavinna, kl.
10–11 kántrídans, kl.
11–12 stepp, kl. 13.30–
14.30 sungið við flyg-
ilinn, kl. 14–15 félags-
ráðgjafi á staðnum, kl.
14.30–16 dansað í kaffi-
tímanum við lagaval
Halldóru.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9.30
bókband og morgun-
stund, kl. 10 fótaað-
gerðir, kl. 11.30 matur,
kl. 12. 30 leirmótun, kl.
13.30 bingó.
Bridsdeild FEBK, Gjá-
bakka. Brids kl. 13.15 í
dag.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka, Fann-
borg 8, kl. 10.
Gott fólk, gott rölt.
Gengið frá Gullsmára
13, kl. 10 á laugardög-
um.
Félag einhleypra.
Fundur á morgun kl.
21 í Konnakoti, Hverf-
isgötu 105, nýir félagar
velkomnir. Munið
gönguna mánu- og
fimmtudaga. Þorrablót
verður laugardaginn 1.
febrúar á Catalínu,
Hamraborg 11. Uppl. s
696 2193, 867 1135,
896 3965.
Ungt fólk með ungana
sína. Hitt húsið býður
ungum foreldrum með
börnin sín á fimmtud.
kl.13–15 á Loftið í Hinu
húsinu, Pósthússtræti
3–5. Opið hús og kaffi á
könnunni, djús, leik-
föng og dýnur fyrir
börnin.
Í dag er föstudagur 24. janúar,
24. dagur ársins 2003. Bóndadag-
ur. Orð dagsins: Ver eigi fjarri
mér, því að neyðin er nærri, og
enginn hjálpar.
(Sálm. 22, 12.)
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI fagnar eindregið skel-eggri framgöngu íslenzkra
stjórnvalda, sem nú hafa byrjað að
sekta óheiðarlega ferðamenn, sem
koma með hrátt kjöt, t.d. útlenda
skinku og pylsur og illa merkta osta,
sem gætu verið úr ógerilsneyddri
mjólk, með sér til landsins í farangri
sínum. Víkverja finnst kominn tími
til að hart sé tekið á þessum inn-
flutningi, sem stofnar heilsu og nátt-
úrulegum yfirburðum íslenzkra bú-
fjárstofna í hættu. En Víkverja
þykir þó ekki nóg að gert. Enn eru
talsverðar gloppur í því kerfi, sem á
að verja heilsu íslenzks búfénaðar.
x x x
TIL að mynda flytur varnarliðið áKeflavíkurflugvelli inn sína eigin
matvöru og Víkverja skilst að ís-
lenzk yfirvöld séu ekkert að setja út
á að þar komi t.d. hrátt kjöt inn í
landið. Um daginn vitnaðist að
hundur, sem varnarliðið hefur sér til
halds og trausts, hefði ekki þurft að
fara í sóttkví í Hrísey eins og aðrar
innfluttar skepnur. Yfirdýralæknir
sagði aðspurður um þetta hér í
blaðinu, að þetta væri nú í lagi af því
að hundurinn væri undir heraga.
Ætli hráa kjötið á varnarsvæðinu sé
líka undir heraga og aldrei hleypt út
fyrir girðingu? Víkverji er hræddur
um ekki. Hvað ef það slys ætti sér nú
t.d. stað að varnarliðsmenn færu í
lautarferð utan varnarsvæðis og gæf
rolla reyndi að sníkja sér bita af
nestinu þeirra? Hvað ef hún fengi
skinkubrauðsneið? Víkverji hefur af
þessu miklar áhyggjur.
x x x
ÖNNUR gloppa í kerfinu er auð-vitað undanþága erlendra sendi-
ráðsmanna frá farangursskoðun, en
samkvæmt lögum og alþjóðasátt-
málum má ekki leita í farangrinum
þeirra nema „gildar ástæður“ séu til
að ætla að í farangrinum séu t.d.
vörur, sem lúta sóttvarnarreglum.
Víkverja skilst að þetta þýði að hrá-
ar nautatungur verði nánast að lafa
út úr ferðatöskum diplómata til þess
að leitað sé í þeim. Þetta er auðvitað
engan veginn nógu gott og verður að
setja einhvern veginn undir þennan
leka. Sennilega þarf að meðhöndla
rusl frá sendiráðum og jafnvel heim-
ilum sendiráðsmanna sérstaklega til
að gæta þess að óæskilegar mat-
vörur komist ekki út á meðal ís-
lenzks fénaðar.
x x x
VÍKVERJI hefur heimildir (aðvísu allsendis óstaðfestar) fyrir
því að yfirdýralæknisembættið
hyggist bregðast við með útgáfu
tveggja upplýsingabæklinga, „Smit-
varnir í sendiráðum“ og „Sóttvarn-
arliðið á Miðnesheiði“. Verði gamalli
hugmynd Víkverja, um að þjálfa upp
sérstaka hunda til að leita að ostum
og skinku í farangri ferðamanna í
Leifsstöð, jafnframt hrint í fram-
kvæmd ætti varnarmúrinn um ís-
lenzku dýrin að vera orðinn sæmi-
lega heldur.
Morgunblaðið/Ásdís
Hættulegt!
ÁÐUR hvessti og lægði, nú
bætir í vind og dregur úr
vindi. Hvað veldur þessari
breytingu á tungutaki veð-
urfræðinga? Þórður frá
Vallnatúni, safnvörður í
Skógum, gaf út stórmerka
bók um veðurfar. Þar er
ótrúlegur fjöldi orða sem
veðurfræðingar og frétta-
menn ættu að kunna skil á.
Hvað veldur því að erlend-
ar veðurstofur minnast
aldrei á Ísland í veður-
fregnum sínum? Það sýnir
afskiptaleysi íslenskra veð-
urfræðinga og stjórnvalda
að hvorki Sky-sjónvarps-
stöðin né CNN birta veð-
urfregnir héðan. Hvað eru
nú stórkarlalæti ráðherra,
forstjóra, sendiherra og
þeirra sem sífellt sitja ráð-
stefnur og staðhæfa að Ís-
land megi sín mikils? Væri
ekki ráð að stjórnvöld
beindu tilmælum til þess-
ara áhrifamiklu stöðva að
þær taki íslenska storma og
stórviðri inn á veðurkort
sín? Hitastigið mætti
fylgja.
Pétur Pétursson þulur.
Áhyggjur
MIG langar að vekja at-
hygli á grein í DV hinn 16.
janúar sl.
Þar koma fram áhyggjur
Hákonar Aðalsteinssonar,
skógarbónda og skálds,
vegna Kárahnjúkavirkjun-
ar og ósvaraðra spurninga
varðandi bæði náttúruna og
það þegar svo stórt fyrir-
tæki sem Alcoa er að nema
land á okkar litla Íslandi.
Björg.
Fróði og félagar –
Áskorun
ÉG vil hér með skora á Rík-
issjónvarpið að endursýna
teiknimyndirnar sem heita
Einu sinni var … Fyrir þá
sem ekki muna þá fjölluðu
þessir þættir um Fróða og
félaga sem sáu um að
stjórna líkamanum. Þetta
allt með veirurnar og hvað
gerðist þegar bein brotnaði
og þegar maður fékk hita
og svona. Þessir þættir
hafa gífurlegt fræðslugildi
og hafa allir gaman af
þessu, bæði börn sem full-
orðnir. Mig langar mjög til
þess að sjá þessa þætti aft-
ur í sjónvarpinu því þeir
voru mjög skemmtilegir.
Með von um góð við-
brögð.
Ein áhugasöm.
Tapað/fundið
Eyrnalokkur tapaðist
EYRALOKKUR með
tveimur svörtum steinum
tapaðist 17. janúar sl. í
Lionshúsinu, Auðbrekku
25, Kóp. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 554-
0345.
Ýmislegt í óskilum
Í MIÐASÖLUNNI á
Hlemmi er ýmislegt dót í
óskilum svo sem gleraugu,
veski, lyklakippur og margt
fleira. Hægt er að nálgast
hlutina á afgreiðslutíma
miðasölunnar sem er frá kl.
8–20 virka daga og frá kl.
12–20 laugardaga og
sunnudaga.
Dýrahald
Nebbi er týndur
NEBBI hefur ekkert sést
síðan laugardaginn 18. jan-
úar sl. og er hans sárt sakn-
að. Hann er 9 mánaða gelt-
ur fress, með eyrnamerk-
inguna 02G277 og býr í
Hólmatúni 35, Álftanesi.
Nebbi er brúnbröndóttur
með hvíta bringu og hosur.
Hann er græneygður og
með hvíta blesu upp með
nefinu vinstra megin og er
mjög blíður og góður kisi.
Hann gæti hafa lokast inni
einhvers staðar, vinsamleg-
ast kíkið í bílskúra og
geymslur. Þeir sem hafa
séð til hans vinsamlegast
látið vita í síma 692-6670
eða 896-0310.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Íslenskir storm-
ar og stórviðri
LÁRÉTT
1 vinnumenn, 8 hæðin, 9
huldi, 10 veiðarfæri, 11
kom í verð, 13 þverneita,
15 korntegundar, 18
hugsun, 21 spil, 22 suða,
23 baktala, 24 tíbrá.
LÓÐRÉTT
2 geðvond, 3 kunn-
ingsskapur, 4 rjúfa, 5
sakaruppgjöf, 6 elds, 7
sjávardýr, 12 atorku, 14
fáláta, 15 nirfill, 16 gjald-
gengi, 17 endurtekning,
18 úttroðin, 19 snákur, 20
svelgurinn.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 hlemm, 4 björg, 7 afmán, 8 líran, 9 ill, 11 part,
13 gróa, 14 eldur, 15 böll, 17 ábót, 20 kar, 22 gettu, 23
umtal, 24 renni, 25 lærir.
Lóðrétt: 1 hlaup, 2 eimur, 3 máni, 4 ball, 5 ögrar, 6
gunga, 10 lydda, 12 tel, 13 grá, 15 bögur, 16 látún, 18
bítur, 19 telur, 20 kuti, 21 rusl.
Krossgáta
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Morgunblaðið/Golli
Eftir að niðurstöður úrprófkjöri Samfylking-
arinnar í nóvember lágu
fyrir var ekki annað að
sjá en að forystumenn
flokksins væru ánægðir
með úrslitin. Formaður
flokksins, Össur Skarp-
héðinsson, sagði Sam-
fylkinguna koma sterka
út úr prófkjörinu. Össur
sagði þingflokkinn vera
að uppskera fyrir störf
sín.
Á þeim vikum sem liðn-ar eru frá prófkjör-
inu hafa hins vegar flest-
ar fréttir í fjölmiðlum af
Samfylkingunni snúist
um tilraunir til að breyta
niðurstöðum prófkjörs-
ins. Fulltrúar þingflokks-
ins frækna verða raunar
á sínum stað en að öðru
leyti virðist sem þeir er
þátt tóku í prófkjörinu
geti ekki gengið út frá
því sem vísu að fá að vera
með á listanum.
Fyrst var Ingibjörg
Sólrún fengin til að taka
fimmta sætið á lista í
Reykjavík norður og tek-
in ákvörðun um að gera
hana að sérstöku for-
sætisráðherraefni.
Nú hefur Samfylkingin
dregið upp enn eitt
trompið, Ellert B.
Schram, fyrrum þing-
mann Sjálfstæðisflokks-
ins. Til þess að koma Ell-
erti fyrir varð að draga
til baka loforð um sæti til
annars fulltrúa Samfylk-
ingarinnar.
Ellert, sem sá raunarástæðu til þess fyrir
síðustu borgarstjórn-
arkosningar að ítreka í
blaðagrein að „mitt at-
kvæði verður á sínum
stað“, ætlar hins vegar
ekki að segja skilið við
Sjálfstæðisflokkinn. Fyrir
síðustu þingkosningar
gældi hann við framboð
fyrir Frjálslynda flokkinn
en tók að lokum ákvörð-
un um að vera áfram í
Sjálfstæðisflokknum.
„Þrennt hefur þar ráðið
mestu. Í fyrsta lagi er ég
flokksbundinn sjálfstæð-
ismaður og hef enga
löngun til að fara í fram-
boð fyrir annan flokk
enda þótt ég treysti mér
ekki til að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn í þessum
kosningum að óbreyttri
stefnu. Í öðru lagi hef ég
áður setið á þingi og hef
ekki haft metnað til að
fara þangað aftur. Ég hef
talið þeim kafla í lífi mínu
lokið. Í þriðja lagi er ég
oddviti stórrar almanna-
hreyfingar, íþróttahreyf-
ingarinnar, og hef ekki
talið það henta hags-
munum hennar að ég sé
að vasast í flokkspólitísku
framboði,“ sagði Ellert
við Morgunblaðið í mars
1999.
Málið er allt hiðskrautlegasta. Sam-
fylkingin fær nú í fram-
boð forseta ÍSÍ, sem telur
það ekki henta hags-
munum samtakanna að
„vasast í flokkspólitísku
framboði“ og er jafn-
framt flokksbundinn
sjálfstæðismaður en telur
það raunar vera „algjört
aukaatriði í sínum aug-
um“. Hvað næst?
STAKSTEINAR
Aukaatriði á borð við
flokksaðild