Morgunblaðið - 24.01.2003, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins er
viljasterkt og kann ýmislegt
fyrir sér á mörgum sviðum.
Það þarf helst að varast
drambsemi.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert hvorki betri né verri
en þú vilt vera og átt því að
horfast í augu við sjálfan
þig. Og gerðu hreint fyrir
þínum dyrum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að setja þér tak-
mark með öllu þínu athæfi.
Vertu samt ekki of smá-
munasamur/söm.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það getur verið erfitt að
standa á sínu þegar allir
virðast annarrar skoðunar.
Reiði hefur þó engan annan
tilgang en gera alla leiða og
flækja málin enn frekar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að leysa vandamál
sem krefst mikillar einbeit-
ingar og yfirsýnar. Lærðu
að meta hana án erfiðleika.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Láttu allan kjaftagang sem
vind um eyru þjóta. Þá
muntu sjá að oft er betra um
að tala en í að komast.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Nú er hart sótt að starfsemi
þinni svo þú þarft að verja
hana með kjafti og klóm.
Farðu því varlega í allri
samningagerð.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur þungar áhyggjur
af starfi þínu. Stattu fastur
á þínu, rökstyddu þitt mál
og hlustaðu á það sem and-
stæðingurinn hefur fram að
færa.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Varastu að láta aðra ráðsk-
ast með líf þitt þótt þeir
þykist vita betur. Nú er
bara að sýna dirfsku og
staðfestu og sigla málunum í
örugga höfn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Heiðarleikinn er það sem
dugar best bæði gagnvart
sjálfum þér og öðrum.
Segðu það sem þér finnst,
en kenndu ekki öðrum um
líðan þína.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gefðu þér tíma til að sinna
heimilinu og lyfta því upp
með því að mála eða breyta
til. Þú þarft að leggja hart
að þér til að sannfæra yf-
irmenn þína.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur ástæðu til að fagna
góðum árangri. Láttu slag
standa því þú hefur alla
burði til þess að taka stór og
erfið verkefni að þér.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Reyndu að sækja innblástur
í það sem þú hefur fyrir
stafni. Ástæðulaust er að
hafa áhyggjur í dag.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Stormur
Ég elska þig stormur, sem geisar um grund
og gleðiþyt vekur í blaðstyrkum lund,
en gráfeysknu kvistina bugar og brýtur
og bjarkirnar treystir, um leið og þú þýtur.
Þú skefur burt fannir af foldu og hól,
þú feykir burt skýjum frá ylbjartri sól,
og neistann upp blæs þú og bálar upp loga
og bryddir með glitskrúði úthöf og voga.
Þú þenur út seglin og byrðinginn ber
og birtandi, andhreinn um jörðina fer.
Þú loftilla, dáðlausa lognmollu hrekur
og lífsanda starfandi hvervetna vekur.
Og þegar þú sigrandi um foldina fer,
þá finn ég, að þrótturinn eflist í mér.
Ég elska þig kraftur, sem öldurnar reisir.
Ég elska þig máttur sem þokuna leysir.
Ég elska þig, elska þig eilífa stríð,
með ólgandi blóði þér söng minn ég býð.
Þú alfrjálsi loftfari, hamast þú hraður.
Hugur minn fylgir þér djarfur og glaður.
Hannes Hafstein
LJÓÐABROT
1. Rf3 Rf6 2. d4 e6 3. c4 b6 4.
Rc3 Bb7 5. a3 d5 6. cxd5
Rxd5 7. Dc2 Rxc3 8. bxc3
Rd7 9. e4 c5 10. Bf4 Be7 11.
d5 exd5 12. exd5 O-O 13.
Hd1 He8 14. Be2 c4 15. O-O
Bxa3 16. Bxc4 Df6 17. Rg5
Rf8 18. g3 h6 19. Re4 Df5 20.
f3 Rg6 21. Bc7 Hac8 22. Bb5
Hxc7 23. Bxe8 Bxd5 24.
Rf6+ Dxf6 25.
Hxd5 Hxc3 26.
De4 Bc5+ 27. Kg2
He3 28. Da4 He2+
29. Kh1
Staðan kom upp
í A-flokki Corus
skákhátíðarinnar
sem nú fer fram í
Wijk aan Zee.
Heimsmeistarinn
fyrrve
randi, Anatoly
Karpov (2688),
hafði svart gegn
Mikhal Krasenkov
(2633). 29...He1!
og hvítur gafst
upp enda verður hann mát
bæði eftir 30. Hxe1 Dxf3#
og 30. Hd1 Dxf3# en eftir
30. Kg2 Hxf1 31. Kxf1
Dxf3+ verður hann manni
og þrem peðum undir.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
ÞÓRÐUR Sigfússon er
réttnefndur bridsfræð-
ingur, en fáir hafa grúskað
meira en hann í fornum
fræðum spilsins, bæði hér-
lendum og erlendum.
Mörg undanfarin ár hefur
hann safnað saman á einn
stað rituðum heimildum
um brids á Íslandi og er
það efni orðið mikið að
vöxtum. Þórður hefur
mest yndi af flóknum úr-
spilsdæmum og í jólamán-
uðinum valdi hann úr safni
sínu sjö níðþung spila-
dæmi til að setja á vefset-
ur Bridssambandsins, ef
ske kynni að menn hefðu
lítið fyrir stafni annað en
að brjóta heilann um tvista
og þrista. Það tekur nefni-
lega tímann sinn að leysa
þessar Þórðarþrautir. Hér
er sú fyrsta:
Norður
♠ Á54
♥ 543
♦ D73
♣ÁG109
Vestur Austur
♠ 7632 ♠ K8
♥ 876 ♥ DG92
♦ 106 ♦ ÁG4
♣8765 ♣D432
Suður
♠ DG109
♥ ÁK10
♦ K9852
♣K
Suður spilar fimm tígla
og fær út hjarta. Hvernig
á að ná í ellefu slagi?
Þetta er of góð þraut til
að spilla henni með því að
birta lausnina strax og hún
kemur því í þættinum á
morgun. En það er sann-
gjarnt að koma lesandan-
um af stað og greina vand-
ann: Það er erfitt að
komast hjá því að gefa
austri slag á spaðakónginn
og því snýst glíman um
það að gefa aðeins einn
slag á tromp. Og það er
víst nógu hörð glíma.
E.S. Þeir sem ekki þola
biðina til morguns geta
kíkt á Netið (bridge.is).
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Svartur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. ágúst 2002 í
Langholtskirkju af sr.
Pálma Matthíassyni þau
Ágústa Hrönn Gísladóttir
og Hallgrímur Jónasson.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. júní 2002 í Lága-
fellskirkju af sr. Bernharði
Guðmundssyni þau Karen
Axelsdóttir og Gunnar Páll
Tryggvason.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. ágúst 2002 í Bú-
staðakirkju af sr. Pálma
Matthíassyni, þau Andrea
Jónsdóttir og Davíð Baldur
Sigurðsson.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. ágúst 2002 í Dóm-
kirkjunni af sr. Írisi Krist-
jánsdóttir þau Hildur Ír
Gísladóttir og Páll Björgvin
Guðmundsson.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Alltaf á þriðjudögum