Morgunblaðið - 24.01.2003, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 24.01.2003, Qupperneq 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 45  MARKUS Baur, fyrirliði Þjóð- verja, hrósaði Grænlendingum fyrir þeirra frammistöðu í viðureign þjóð- anna í gær. „Þeir léku góðan hand- bolta og við þurftum að halda fullri einbeitingu í 60 mínútur á móti þeim,“ sagði Baur.  HEINER Brand, þjálfari Þjóð- verja, sagði hinsvegar að nú hæfist heimsmeistarakeppnin með leiknum við Portúgal á laugardag, undirbún- ingnum væri loksins lokið.  NIELS Davidsen, 39 ára gamall markvörður Grænlendinga var í miklum ham gegn Þjóðverjum í gær en hann kom inná í lok fyrri hálf- leiks. Davidsen fékk þrumuskot í höfuðið í upphafi síðari hálfleiks, Þjóðverjar fengu knöttinn og skutu aftur á markið og á ný í höfuðið á Davidsen. Höggin virtust hafa góð áhrif á markvörðinn því hann varði alls 16 skot í síðari hálfleik.  ÞAÐ vekur athygli hve mörg mörk Grænlendingar skora úr langskot- um og gegn Þjóðverjum var engin breyting þar á. Jakob Larsen og Hans P. Motzfeldt skoruðu báðir sjö mörk úr langskotum og alls urðu mörkin 16 úr langskotum.  HEINER Brand, þjálfari þýska liðsins, fórnaði höndum í hvert sinn sem Grænlendingar skoruðu með langskotum, og var ekki sáttur við varnarleik sinna manna. Grænlend- ingar skoruðu eitt mark úr vítakasti, einu sinni eftir gegnumbrot og tvisv- ar af línu.  GRÆNLENSKI línumaðurinn Rasmus Larsen þykir fastur fyrir í leik sínum. Gegn Þjóðverjum fékk línumaðurinn Christian Schwarzer að finna fyrir því í upphafi leiks er Larsen reif hreinlega keppnistreyju Schwarzers í ræmur. Schwarzer lék nánast ber að ofan í nokkrar mín. áð- ur en hann fékk nýja treyju.  TÖLUVERT af áhorfendum fylgd- ist með leik Þjóðverja og Grænlend- inga. Rúmlega eitthundrað stuðn- ingsmenn eru frá Grænlandi og um 150 Þjóðverjar. Skólabörn frá Viseu eru einnig fjölmörg á leikjunum og hafa fengið „úthlutað“ sínu liði. Grænlendingar eru „vopnaðir“ sér- stökum plaststöngum sem þeir blása upp og klappa saman í gríð og erg á meðan leik stendur.  VALGERÐUR Sverrisdóttir, iðn- aðar- og viðskiptaráðherra, var á meðal áhorfenda á leik Íslands og Portúgals. Hún er stödd í Portúgal til að vera í dag viðstödd er límtrés- veksmiðja í eigu Íslendinga verður formlega opnuð í bænum Mortágua, sem er suður af Porto.  LANDSLIÐSHÓPUR Íslands verður í saltfiskveislu í kvöld í bæn- um Viseu. Það er SÍF, í samráði við stærsta kaupanda sinn í Portúgal, sem býður til veislunnar.  IOSU Olalla leikur ekki meira með Spánverjum á heimsmeistaramótinu í handknattleik. Hann slasaðist á handlegg í leik gegn Pólverjum á þriðjudag. Þetta er mikið áfall fyrir Spánverja því Olalla er lykilmaður- inn í varnarleik þeirra. FÓLK  PATREKUR Jóhannesson, landsliðsmaður í handknattleik og fyrirliði þýska liðsins Essen, varð fyrstur Íslendinga til að skora yfir 100 mörk í heimsmeistarakeppn- inni, þegar hann skoraði fyrsta mark sitt gegn Portúgal í gær- kvöldi í Viseu. Patrekur skoraði tvö mörk í leiknum og hefur alls skorað 101 mörk á HM.  Valdimar Grímsson átti fyrra metið fyrir HM í Portúgal, en hann hafði skorað 95 mörk í fjór- um HM – í Tékkóslóvakíu 1990 (5), í Svíþjóð 1993 (4), á Íslandi 1995 (34) og í Kumamoto í Japan 1997 skoraði hann 52 mörk, sem er mesta skor Íslendings í einni HM.  Patrekur, sem hefur skorað 13 í Portúgal, skoraði 7 mörk í HM í Svíþjóð, 16 á Íslandi, 40 í Kuma- moto, 25 og 25 mörk í HM í Frakklandi 2001.  Geir Sveinsson hefur skorað 87 HM-mörk, Ólafur Stefánsson 80, Kristján Arason 65 í tveimur HM – 41 mark í Sviss 1986 og 24 í Tékkóslóvakíu 1990, Sigurður Val- ur Sveinsson og Júlíus Jónasson koma næstir með 51 mark og þá kemur gamla kempan Gunnlaugur Hjálmarsson með 49 mörk.GeirValdimar Það hefur ekki verið mikið afáhorfendum á fyrstu leikjunum og það var allt annar bragur á þessu inni á vellinum sem og utan. Við lögðum áherslu á að vera til- búnir í þessar að- stæður, við vissum að það yrði fullt hús og brjáluð stemmning. Og við náð- um að ljúka við þennan áfanga. Guð- jón Valur bætti því við að lokasek- úndur leiksins hefðu verið magnaðar. „Ég hljóp útaf þegar 2 sekúndur voru eftir og þeir áttu að- eins aukakastið eftir. Það var betra að fá stóran mann í vörnina. Við get- um leyft okkur að njóta augnabliks- ins eitthvað fram eftir degi en síðan tekur við undirbúningur fyrir leik- inn gegn Katar. Með sigri gegn þeim verðum við örugglega með tvö stig í milliriðlinum og það var tak- markið frá upphafi.“ Erum ekki vitleysingar Hornamaðurinn Einar Örn Jóns- son var atkvæðamikill í íslenska lið- inu gegn Portúgal og var marka- hæstur með sjö mörk líkt og hinn hornamaður liðsins, Guðjón Valur Sigurðsson. Einar sagði að erfiðasti hluti dagsins hefði samt sem áður verið biðin eftir leiknum. „Við erum búnir að spila mikið í leikjatölvunni uppá hótelherbergi og erum orðnir ansi góðir í ýmsum leikjum. Aftur á móti blundaði leik- urinn alltaf í undirmeðvitundinni þrátt fyrir að maður hafi ekki ætlað að einblína á leikinn frá því maður vaknaði, þá gerði maður það nú samt. Ég viðurkenni það alveg að biðin tók aðeins á sálartetrið. Spennustigið var hátt í upphafi leiks en lagaðist þegar á leið,“ sagði Ein- ar. Hann var sammála því að ís- lenska liðið hefði leyst vel úr því þegar Portúgal ákvað að taka Ólaf Stefánsson úr umferð. „Það er ekki markmiðið að Ólafur sé mikið að skora þegar hann er tekin úr um- ferð. Við eigum að skapa okkur tíma og rými fimm á móti fimm. Ef ég nota „handnattleiksfræðina“ þá er það í raun gjöf að geta spilað gegn fimm manna vörn. Ég get tekið und- ir það að lékum ekki vel þegar við vorum með yfirhöndina, þá lukum við sóknum okkar of snemma. Menn urðu of æstir og gráðugir, en þetta hafðist – með naumindum þó. Þegar við gerðum það sem við ætluðum okkur að gera í leiknum skoruðum við mark eða fengum dauðafæri,“ sagði Einar Örn en varaði menn við að fara á flug fyrir leikinn gegn Kat- ar. „Við erum ekki vitleysingar og höfum lært af reynslunni.“ Við mæt- um í næsta leik, einbeittir sem fyrr og slökum hvergi á. Handbolti er einföld íþrótt Patrekur Jóhannesson hefur oft verið meira áberandi í sóknarleik ís- lenska liðsins en hann stóð vaktina í vörninni að venju og stóð sig vel. Patrekur sagði að það hefði ekki komið honum á óvart að liðið hefði ekki misst dampinn þrátt fyrir að 13 leikmenn hefðu komið við sögu í leiknum. „Þetta er íslenska landsliðið og við treystum hver á annan. Allir hafa sín hlutverk og leysa þau af hendi. Við lærðum af reynslunni í Svíþjóð á EM að þreyta gerir vart við sig undir lok keppninnar. Núna eru fleiri að taka af skarið og það er okkar styrkur.“ Patrekur játti því að liðið hefði látið slakt dómarapar fara í taugarnar á sér og þá sér- staklega í fyrri hálfleik. „Dómararn- ir voru einfaldlega lélegir en and- rúmsloftið var hreinsað hvað þá varðar í hálfleik. Eftir það náðum við að stilla okkur þrátt fyrir að þeir dæmdu illa. Það er vel hægt að segja að þetta hafi verið fyrsti al- vöru leikurinn í mótinu, og ég get ekki annað en verið ánægður með að sigra Portúgal með einu marki á úti- velli, þar sem við lékum í raun ekki neitt sérlega vel þegar á heildina er litið. Við erum búnir að leika gegn ýmsum varnarafbrigðum í gegnum tíðina og í raun á ekkert eftir að koma okkur á óvart í framhaldinu. Handbolti er einföld íþrótt,“ sagði Patrekur Jóhannesson í léttum tón. Mikil gleði í herbúðum Íslendinga á HM í Portúgal Vorum vel undirbúnir GUÐJÓN Valur Sigurðsson skoraði með ýmsum hætti að þessu sinni og m.a. úr langskoti. Essen-leikmaðurinn sagði að Guð- mundur Guðmundsson þjálfari liðsins hefði lagt áherslu á að æfa það vel þegar mótherjarnir taka Ólaf Stefánsson úr umferð. „Það hefði verið lélegt af okkur að standa okkur ekki á því sviði,“ sagði Guðjón Valur við Morgunblaðið eftir leikinn og bætti við að aðstæð- urnar gegn heimamönnum hefðu verið ólíkar öllu sem þeir hefðu upplifað í keppninni fram að þessu. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar frá Viseu Morgunblaðið/Günter Schröder Einar Örn Jónsson sýndi hvers hann er megnugur í leiknum gegn Portúgal í gærkvöldi í Viseu – hér skorar hann eitt af sjö mörkum sínum í leiknum. AP Íslendingar fagna sætum sigri á Portúgölum í gær. Fremstir eru Guðjón Valur Sigurðsson og Patrekur Jó- hannesson ásamt Roland Eradze markverði. Patrekur rauf 100 marka múrinn   A. *:   =A. *:   = /, / &' 5 # ( >? ?@ >< /A /A  /# / &( 5 # ( >< ?@ ?.  '  ; @ . ? ; "' !*'  !--A!-  , ,' :: <  ?  :        

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.