Morgunblaðið - 24.01.2003, Side 49

Morgunblaðið - 24.01.2003, Side 49
KVIKMYNDIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 49 Jackass: The Movie er kvikmynda- útgáfan af samnefndum þáttum, sem sýndir hafa verið á MTV- stöðinni og á SkjáEinum. ÞAÐ er árið 2002 og hafa yfirvöld fangelsismála í Kaliforníu nýlega enduropnað eitt alræmdasta fang- elsi sögunnar, Alcatraz, sem nú er búið öllum hugsanlegum örygg- isbúnaði til að koma í veg fyrir strok fanga. Í þessum tilgangi hef- ur m.a. verið grædd í hvern og einn fanga sérstök örflaga svo að hægt sé að fylgjast með hreyf- ingum þeirra og staðsetningu auk þess sem fangelsið státar nú af glænýjum aftökuklefa, sem áætlað er að vígja við aftöku hins kunna afbrotamanns Lesters, sem dæmdur hefur verið til dauða fyrir að hafa rænt brynvörðum bíl með gulli innanborðs að verðmæti 200 milljónir dollara. Morris Chestnut fer með hlut- verk hins illræmda Donnys, sem safnar saman sérsveitarhópi, sem hefur það hlutverk á sínum herð- um að laumast inn fyrir fangelsis- múra þessa rammgerða há- tæknivirkis. Þegar inn fyrir múrana er komið, eiga þeir að hafa upp á Lester á dauðadeild- inni og neyða upp úr honum allan sannleikann um hvar allt gullið sé að finna. Tukthúslimurinn Nick Frazier, sem leikinn er af Ja Rule, sér sér þann kost vænstan að leggja FBI leynilöggunni Sascha Petrosevitch lið með því að sameina fanga á móti innrásarliðinu til að koma í veg fyrir morð á forseta Hæsta- réttar, sem nú er kominn í fang- elsið til að vera viðstaddur yfirvof- andi aftöku, en hann var sá sem dæmdi Lester til dauða á sínum tíma. Leikstjóri og handritshöfundur þessarar spennumyndar er Don Michael Paul, sem hóf feril sinn sem leikari, en fann svo köllun sína við handritasmíð og leikstjórn upp úr 1980. Upp á líf og dauða í rammgerðu fangelsi Smárabíó, Regnboginn og Borgarbíó Akureyri frumsýna Half Past Dead. Leikarar: Steven Seagal, Morris Chest- nut, Ja Rule, Nia Peeples, Claudia Christian, Tony Plana, Alexandra Kamp- Groeneveld, Bruce Weitz, Linda Thor- son, Matt Battaglia, Art Camacho og Kurupt. Þeir eru fangar í alræmdasta fangelsi sögunnar, Alcatraz. Í þá hefur verið grædd sérstök örflaga til að fylgjast með hreyfingum þeirra og staðsetningu. TVÆR miðaldra Hollywood- stjörnur, Goldie Hawn og Susan Sarandon, sem báðar státa af Ósk- arsverðlaunum, fara með aðal- hlutverkin í gamandramanu The Banger Sisters, sem frumsýnd verður í dag. Þær leika gamlar vin- konur, sem ekki hafa hist í tuttugu ár eða síðan þær voru óðfúsar og örlátar fylg- ismeyjar fjöl- margra hljóm- sveitargæja. Önnur þeirra, Suzette, sem leik- in er af Goldie Hawn, er ennþá villt og föst í sama gamla farinu, en hin, Lavinia, sem leikin er af Susan Sarandon, er orð- in ráðsett hús- móðir, gift lög- fræðingi og er meira að segja orðin dálítið snobbuð með sig. Hún vill líka fyrir alla muni reyna að afmá þessi villtu ár í huga sínum, en þegar Suzette ákveður að leita á náðir gömlu vin- konunnar, mætast tveir ólíkir heim- ar. Þegar þær svo loks hittast, byrjar sú villta á því að rifja upp gömlu góðu dagana þegar þær voru rokkgrúppíur með heldur ófyr- irséðum afleiðingum, en sameig- inlega lærist þeim gildi þess að upplifa augnablikið. Óskars- verðlaunahafinn Geoffrey Rush fer svo með eftirminnilegt hlutverk sérviturs rithöfundar, sem aldrei hefur slegið í gegn, en lendir svo í slagtogi með þeim stöllum. Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar Bob Dolman er að þreyta frumraun sína sem leik- stjóri, en hann hefur m.a. skrifað kvikmyndahandrit að bíómynd- unum Far and Away og Willow. Hann segir að hugmyndin að baki Banger Sisters hafi blundað með sér í fjölmörg ár áður en hann fann út úr því hvernig æskilegast væri að raða „plottinu“ endanlega sam- an. Andagiftin um Suzette og Lav- inia hafi að hluta til komið úr söng- texta Jim Morrisons heitins, Stoned Immaculate, þar sem fjallað er um frelsið annars vegar og ábyrgðina hinsvegar sem allar manneskjur dreymir um einhvern tímann á lífsleiðinni. Gömul kynni gleymast ei Regnboginn og Smárabíó frumsýna Banger Sisters. Leikarar: Goldie Hawn, Susan Sar- andon, Geoffrey Rush, Erika Christen- sen, Robin Thomas, Eva Amurri, Matthew Carey og Andre Ware. Tvær miðaldra Hollywood-stjörnur, Goldie Hawn og Susan Sarandon, sem báðar státa af Óskars- verðlaunum, fara með aðalhlutverkin í gamandram- anu The Banger Sisters. BRESKA bíómyndin Once Upon a Time In the Midlands er þriðja mynd eins allra efnilegasta leik- stjóra Breta af yngri kynslóðinni Shane Meadows, sem skrifaði jafn- framt handritið ásamt aul Fraser. Myndin, sem skartar eftirlætisleik- urum margra, hefur að geyma létta og þægilega þjóðfélagsádeilu og er eins konar breskur nútímavestri, en myndin var tekin upp á sjö vik- um haustið 2001 í og í nágrenni Nottingham. Tveir vinsælustu leikarar Bret- landseyja, þeir Robert Carlyle og Rhys Ifans, fara með aðal- hlutverkin í þessari bresku gam- anmynd, sem Háskólabíó frumsýnir í dag. Carlyle leikur smákrimmann Jimmy, sem ákeður að snúa á ný til heimabæjar síns eftir að hafa yf- irgefið eiginkonuna Shirley og dótt- urina Marlene tíu árum áður og hafa þær mæðgur ekkert heyrt frá fyrrum heimilisföðurnum allan þennan tíma. Fljótlega eftir að Jimmy hvarf á braut kynntist Shirley háttprúðum og traustum manni, Dek að nafni, sem flutti inn til mæðgnanna enda hefur Shirley litið svo á að hann einn sé maður drauma sinna. En þegar Dek tekur upp á því allt í einu að biðja um hönd Shirley fyrir framan alþjóð í beinni útsendingu án þess að ráðfæra sig við hana áð- ur er Shirley ekki skemmt og hún ákveður að hafna bónorðinu. Eins og svo margir aðrir verður Jimmy vitni að þessari uppákomu og sann- færist um það sem aldrei fyrr að nú eigi hann sér glæsta endurkomu inn í líf fyrrum eiginkonu og dótt- ur. Nútíma- vestri um hylli konu Háskólabíó frumsýnir Once Upon a Time in the Midlands. Leikarar: Robert Carlyle, Rhys Ifans, Kathy Burke, Shirley Henderson, Ricky Tomlinson og Finn Atkins. Myndin er létt þjóðfélagsádeila og er einskonar breskur nútímavestri. Tveir vinsælustu leikarar Bret- landseyja, þeir Robert Carlyle og Rhys Ifans, fara með aðal- hlutverkin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.