Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 53

Morgunblaðið - 24.01.2003, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2003 53 Kvikmyndir.is HL MBL E I N N I G M E Ð Í S L E N S K U T A L I Sýnd kl. 5 Ísl. tal./Sýnd kl. 8 enskt tal. ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI ÁLFABAKKI KRINGLAN KEFLAV.  ÓHT Rás 2 Hún var flottasta pían í bænum  1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 5 og 7. / Sýnd kl. 6. ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11 og 12. B. i. 14. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. Sýnd kl. 4 ísl. tal. / Sýnd kl. 4 ísl. tal. / Sýnd kl. l. 6 ísl. tal. . Langbesti leikmaður NBA deildarinnar fær ævilangt bann frá deildinni og dettur það „snjallræði“ í hug að dulbúa sig og keppa í kvennadeildinni. Bráðskemmtileg gamanmynd! Inni held ur e fni s em þú h efði r ald rei feng ið a ð sj á í sjón varp i. Sjúklegasta grínmynd ársins er komin í bíó. Frumsýning / LEIKKONAN Angelina Jolie segir áhugaleysi Billy Bob Thorntons á ættleiddum syni þeirra hafa orsakað skilnað þeirra. Jolie hefur nú í fyrsta sinn rætt opinberlega um skilnaðinn og staðfest sögu- sagnir um að áhugaleysi fyrr- um eiginmanns hennar á syninum Maddox hafi, ásamt óheiðarleika hans, leitt til skilnaðar þeirra. „Mér varð ljóst að hann hefði farið á bak við mig og gert hluti sem ég gat ekki sætt mig við. Ég held að flestir viti að ég er mjög opin og umburðarlynd, en það er ekki allt réttlætanlegt og ég get ekki búið með einhverjum sem virðir ekki skuld- bindingar sínar,“ segir hún. Þá segist hún fljótlega hafa gert sér grein fyrir því að Billy Bob væri ekki reiðubúinn til að axla ábyrgð á uppeldi Maddox og að hann hafi með því sýnt henni fram á að hann væri ekki sá maður sem hún hafi talið hann vera. … Tennisstjarnan Anna Kournikova hefur slitið sambandi sínu við söngv- arann Enrique Iglesias. Kournikova er sögð hafa sagt söngv- aranum upp skömmu fyrir jól, þar sem hún hafi fengið sig fullsadda af kvensemi hans. Samband stjarnanna, sem hafði staðið í u.þ.b. eitt ár, hafði alltaf verið stormasamt, en það mun hafa tek- ið steininn úr er Iglesias sást láta vel að hinni bresku Emmu Jones eftir af- hendingu evrópsku MTV-verð- launanna í Barcelona í nóvember. FÓLK Ífréttum Hafið Með Hafinu er komið fram verk sem ber þess vitni að íslenskt listafólk hafi náð fullkomnum tökum á hinu alþjóðlega tungumáli kvikmyndalistarinnar. (H.J.) Háskólabíó. Lord of the Rings: The Twin Towers (Hringadróttinssaga: Tveggja turna tal) Millikafli stórvirkis Tolkiens og Jacksons gnæfir yfir aðrar myndir ársins, mikil- fengleg sagnagáfa þeirra skapar eitt magn- aðasta ævintýri kvikmyndasögunnar. Ósvikin epík um hugrekki, vináttu og drenglyndi. (S.V.) Laugarásbíó, Smárabíó, Kringlubíó, Borgar- bíó Akureyri. Harry Potter og leyniklefinn Harry og félagar eru komnir aftur í mynd fullri af frábærum karakterum, ótrúlegum að- stæðum, spennu og hryllingi. Gaman, gaman! (H.L.) Sambíóin. 8 Mile (8 mílur) Þegar á heildina er litið er það hversu einföld meginfléttan er, en hún snýst í raun um þátt- töku rapparans í einni keppni, bæði helsti kostur og galli myndarinnar. Þannig tekst að halda sögunni á raunsæislegu sviði en á sama tíma er sigursagan teygð dálítið á langinn. (H.J.)  Háskólabíó, Sambíóin, Laugarásbíó. Grill-Point (Kaffivagninn) Vel leikin og raunsæisleg þýsk mynd um tvenn hjón sem neyðast til að endurskoða líf sitt þegar framhjáhald kemur upp. Skemmti- leg og áhrifarík mynd sem kemur á óvart. (H.L.) Háskólabíó. Gullplánetan Skemmtilegar og frumlegar persónur í geggj- uðu umhverfi þeysast um himingeiminn í spennandi og dramtískri leit að gulli. Fyrir alla fjölskylduna. (H.L.)  Sambíóin, Háskólabíó, Laugarásbíó Die Another Day (Deyðu annan dag) Fulllöng Bond-mynd þar sem hasarinn ræð- ur ríkjum og húmorinn er komin í hring. Ágætasta afþreying fyrir fólk í góðu skapi og með smekk fyrir fallegu fólki. (H.L.) ½ Smárabíó, Regnboginn, Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri. Analyze That (Aftur í meðferð) Framhaldsmyndin á sína spretti, og er það iðulega vegna þess hversu vel að- alleikurunum tekst að fylla upp í tóm- legt handritið. (H.L.) Sambíóin, Háskólabíó. Juwanna Mann (Ingiríður Eygló) Körfuboltakappi klæðist kvenfötum og held- ur áfram í kvennaliði þegar hann er rekinn úr NBA. Mun skárra en það hljómar. (S.V.) Sambíóin. The Transporter (Flutningsmaðurinn) Sólskinið í Suður-Frakklandi, vel skipulögð átakatriði og eltingaleikir eru ljósu punktarnir í annars myrkri meðalmennsku. (S.V.) Regnboginn, Smárabíó. The Hot Chick (Aðalpæjan) Hér glímir Roy Schneider við enn eina ónátt- úruna, síðast var hann dýr í mannslíkama, nú unglingsstúlka í líkama loðins og ófrýni- legs karlmanns. Groddahúmorinn veður hér uppi, en hittir sjaldan í mark. (H.J.) ½ Sambíóin. BÍÓIN Í BORGINNI Sæbjörn Valdimarsson/Hildur Loftsdóttir/Heiða Jóhannsdóttir  Meistaraverk  Ómissandi  Miðjumoð  Tímasóun 0 Botninn „Einföld meginfléttan er … bæði helsti kostur og galli myndarinnar,“ segir m.a. um 8 Mile Eminems.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.