Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 61 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2 og 4. Sýnd kl. 4. ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI / AKUREYRI Sýnd kl. 2, 4 og 6. KEFLAVÍK Sýnd kl. 2 með íslensku tali. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8. KEFLAVÍK  ÓHT Rás 2 1/2 H.L. Mbl.  H.K. DV  Radíó X 1/2 Kvikmyndir.com  Kvikmyndir.is Óskarstil- nefningar Sýnd kl. 2, 4 og 6. / Sýnd kl. 6 og 8. KRINGLAN / AKUREYRI Sýnd kl. 2 og 4. Ísl. tal. ÁLFABAKKI Áður en þú deyrð, færðu að sjá ÁLFABAKKI / KRINGLAN / KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10.10. / Sýnd kl. 10.10. / Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16. SV MBL RADIO X KVIKMYNDIR.IS Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. / Sýnd kl. 8 og 10.40. / Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 12. ÁLFABAKKI / KRINGLAN / AKUREYRI Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.45. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 12. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 2, 5.15, 8, OG 10.45. B. I. 16. ÁLFABAKKI / KRINGLAN Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. B. i. 14. KEFLAVÍK Sýnd kl. 6 og 10.10. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.20. Ögrandi mynd sem hefur fengið lof gagnrýnenda um allan heim með þeim Edward Norton (Fight Club, American HistoryX), BarryPepper (Saving Private Ryan, GreenMile) og Philip Seymour Hoffman (Red Dragon, Boogie Nights) Ef þú ættir 1 dag eftir sem frjáls maður.. gætir þú gjörbreytt lífi þínu? Lækkað verð! Miðaverð kr. 750. 4 Bandaríkjunum en ólst upp að mestu í Tacoma í Washington-fylki. Hún er af úkraínsku bergi brotin og fjöl- skyldan bar nafnið Tsjevtsjenko þeg- ar hún fluttist til Bandaríkjanna á sínum tíma en innflytjendafulltrúa fannst ómögulegt að stafa það og valdi Case. 15 ára pönkari Neko Case fluttist að heiman að- eins fimmtán ára gömul til að vera pönkari og lék á trommur í nokkrum pönkhljómsveitum, lengst í sveit sem kallaðist Maow. Hún segist hafa orðið trommuleikari vegna þess að hana langaði til að taka þátt í að búa til tón- list og þar sem hún var svo feimin var auðveldast að fela sig fyrir aftan trommusettið. Um það leyti, um miðj- an níunda áratuginn, var mikil gróska í tónlistinni á þeim slóðum, í norð- vesturhluta Bandaríkjanna. Þó Neko Case sé þekktust fyrir það í dag að vera söngkona byrjaði hún ekki að syngja fyrr en löngu eftir að hún fór að spila með hljómsveitum, en það var þá líka í annarri gerð tón- listar. Margir af þeim sem fram- arlega voru í pönki vestur í Banda- ríkjunum tóku þátt í að endurnýja sveitatónlistina vestan hafs, snúa henni frá því að vera glitskreytt væl í að vera kraftmikil og innihaldsrík tónlist líkt og forðum daga. Þar voru menn að feta slóð Gram Parsons og fleiri álíka spámanna sem ruddu brautina áratug fyrr; gæddu sveita- tónlist nýju lífi og létu hana hljóma eins og rokktónlist. Þó segir Case að það hafi aldrei verið tekin bein ákvörðun um að fara að spila kántrí- tónlist, menn hafi einfaldlega smám saman áttað sig á að allt væri leyfilegt svo lengi sem það væri gaman. 24 ára kántríkona Þegar Case 24 ára gömul sneri hún sér að námi aftur og fluttist til Van- couver í Kanada til að ganga í skóla þar í borg. Þar komst hún í tæri við ýmsa tónlistarmenn og byrjaði nú að syngja sveitatónlist. Hún stofnaði hljómsveitina Neko Case & Her Boyfriends og hljóðritaði með henni nokkur eigin lög og lög eftir ýmsa aðra, sumt hreinræktað kántrí eins og lög eftir Ernest Tubb og Loretta Lynn, og svo sérkennilegri lög eins og eitt eftir Scott Walker. Plötunni, The Virginian, var bráðvel tekið þótt ekki hafi hún selst neitt sérstaklega, og í framhaldinu söng Case meðal annars inn á plötu með stórsveit Jons Langfords (Mekons, Waco Brothers o.fl.) The Pine Valley Cosmonauts, tók upp plötu með Carolyn Mark og hóf samstarf með Carl Newman, liðs- manni popprokksveitarinnar Zump- ano, en Newman söng með henni í einu lagi á The Virginian. Þegar hann tók að smala saman í hljómsveit leit- aði hann til Case sem slóst í hópinn. Um líkt leyti tók Case upp plötu með söngkonunni Carolyn Mark undir nafninu The Corn Sisters og starfaði einnig með hljómsveitinni The Sa- dies. Það er því varla nema von að það tók hana þrjú ár til að setja sam- an næstu sólóskífu, Furnace Room Lullaby og var hreint afbragð. Svo vildi reyndar til að um líkt leyti komu út þrjár plötur þar sem Case var í að- al- eða aukahlutverki; plötur Corn Sisters og New Pornographers og síðan sólóskífa hennar. Case lauk síðan námi í Vancouver, BA gráðu í listum með áherslu á ljós- myndun og þar með var lokið dvöl hennar í Kanada, því hún fékk ekki dvalarleyfi. Hún settist því að í Chic- ago og býr þar og starfar í góðu sam- bandi við Jon Langford og gengið í kringum hann, en Case hefur meðal annars sungið inn á plötu með The Pine Valley Cosmonauts. Ýmsir gestir koma við sögu á skíf- unni nýju, til að mynda Howe Gelb leiðtogi Giant Sand og ekki nema við hæfi að samstarfsmenn hans í þeirri sveit, Joey Burns og John Convert- ino, sláist í hópinn en þeir eru reynd- ar þekktari núorðið fyrir hliðarsveit- ina Calexico. Einnig lætur söngkonan Kelly Hogan í sér heyra og sjálf Mary Margaret O’Hara, sem lítið sem ekk- ert hefur heyrst til árum saman. Neko Case er þó í aðalhlutverki, syngur eins og engill og semur bæði skemmtilega kántrískotin lög og einkar veigamikla texta, sjá til að mynda lagið „Deep Red Bells“, sem segir frá Green River-fjöldamorð- inganum í Washington fylki á níunda áratugnum, sem yfirvöld létu að miklu leyti afskiptalausan vegna þess að hann lagðist á vændiskonur og heróínfíkla. Vissulega nýstárlegt yfrkisefni fyrir kántrísöngkonu. ÁSGARÐUR — GLÆSIBÆ Caprí tríó leikur fyrir dansi í Ásgarði Glæsibæ sunnudagskvöld
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.