Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 49
HUGVEKJA MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 49 HINN 21. mars 1960gerðist það í Suður-Afríku, nánar til-tekið í Sharpeville,að lögregla hóf skothríð að hópi fólks, sem var að mótmæla á friðsamlegan hátt að- skilnaðarstefnu þarlendra stjórn- valda. Alls féllu þar 69 í valinn. Til minningar um þann hörmu- lega atburð gerðu Sameinuðu þjóðirnar fljótlega umræddan dag að alþjóðlegum baráttudegi gegn kynþáttahyggju. Hann er enn við lýði. Í tímaritinu Vinnan (4. tbl. 2001) er fróðleg lesning um þetta efni, og ber hún yfirskriftina „Kynþáttamismunun í öllum heimsálfum“. Vegna alvarleika málsins finnst mér ástæða til að birta lungann úr þeirri sam- antekt. En þar segir m.a.: Átök kynþátta í Afríku, spenna milli kynþátta í Norður-Ameríku, höfnun erlendra verkamanna og útskúfun er- lends verkafólks í Evrópu, einangrun indíána í Suður-Ameríku og efnahags- leg kúgun farandverkafólks í Asíu. Litlu skiptir hvert litið er. Kynþátta- hyggja virðist síst á undanhaldi í heiminum. Samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóð- anna frá 1998, er ekkert svæði í heim- inum undanskilið þegar rætt er um vaxandi ofbeldi vegna kynþátta- hyggju. Ástandið er mjög alvarlegt í Afríku, þar sem ættflokkar stríða og meðlimir sumra eru reknir frá til- teknum landssvæðum með harðri hendi. Vöxturinn hefur verið gríð- arlegur í ríkjunum sunnan Sahara. Skemmst er að minnast þjóðarmorðs í Ruanda. Nefnd um jöfn atvinnutækifæri í Bandaríkjunum skilaði skýrslu í des- ember á síðasta ári. Í henni kemur fram, að tilvikum þar sem fyr- irtækjum er stefnt fyrir rétt vegna kynþáttamismununar á vinnustöðum hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Kóka Kóla-fyrirtækinu var t.d. gert að greiða 200 milljónir dollara í bætur til 2000 svartra starfsmanna sinna vegna slíkra mála. Texaco og Boeing-flugvélaverksmiðjunum hefur einnig verið stefnt fyrir rétt vegna slíkra mála. Í plaggi sem Evrópuráðið tók saman til að undirbúa ráðstefnuna í Durban lýsti Evrópuráðið áhyggjum sínum vegna vaxandi kynþáttahyggju í álf- unni. Sérstaklega er bent á stöðu sí- gauna. Ennfremur er bent á nýlegar ofsóknir á hendur Kosovo-Albönum, stöðu verkamanna frá Norður-Afríku á Spáni, tyrkneskra verkamanna í Þýskalandi og fleira. Í rómönsku Ameríku eru milljónir manna fórnarlömb kynþáttafordóma og -mismununar. Í fjölmörgum til- vikum eru það svertingjar, sem sums staðar hafa litlu betri stöðu en þrælar. Í Brasilíu t.d. verða svartir fyrir mik- illi mismunun á vinnumarkaði. Meðal þeirra er mun meira atvinnuleysi en hjá öðrum hópum og þeir sem hafa vinnu, njóta að jafnaði talsvert lægri launa en aðrir. Meira en fjórðungur svartra íbúa Brasilíu er án atvinnu, á meðan hlutfallið hjá öðrum hópum er um 18%. Laun annarra en svartra eru 40% hærri en svartra. Talið er að um sex milljónir asískra farandverkamanna, aðallega frá Kína, Nepal, Bangladesh, Filippseyjum og Indlandi ferðist um í leit að vinnu. Um 30–40% þeirra eru án löglegra pappíra og mikill fjöldi þeirra er hnepptur í þrældóm af umboðsskrifstofum sem sjá um að útvega þeim starf, en hirða drjúgan hluta launanna í staðinn. Að- stæður þessa fólks eru oft og tíðum skelfilegar. Á sama tíma og þetta er að gerast ytra ályktar félag á lítilli eyju í norðurhöfum, með hugann í einhverjum rósrauðum drauma- heimi, að brýnt sé að „hindra frekara landnám útlendinga af öðrum en evrópskum uppruna hér á landi“ og „viðhalda, vernda og efla tungu, menningu og manngerð íslensku þjóðarinnar ásamt því að hefja þjóðern- ishyggju aftur til vegs og virð- ingar“. Slagorð þess er „Ísland fyrir Íslendinga“. Um það má nánar lesa á http://notend- ur.centrum.is/~fith/. Því er til að svara, að kirkjan getur aldrei tekið undir rök ís- lenskra þjóðernissinna. Það myndi ganga algjörlega í ber- högg við eðli hennar, tilgang og markmið. Aukinheldur er leiðtogi hennar af semískum rótum kom- inn. Hvað varðar íbúa þessa lands, benda rannsóknir til að við séum að mestu af landnámsfólki sem ættað var frá Skandinavíu, en þó virðist sem meirihluti kvennanna hafi verið af breskum ættum. Að ganga um með þá flugu í koll- inum, að við séum af einhverjum hreinum kynstofni er því beinlín- is fáránlegt. Við höfum frá önd- verðu verið sambland margra þjóðabrota. Eflaust mætti til sanns vegar færa, að ef ekki hefðu komið til áhrif útlendinga á land og þjóð fyrr á öldum og síðar, byggjum við líklegast enn í torfi klæddum moldarkofum, þrammandi um í sauðskinnsskóm, grálúsugir. Í það minnsta hefði framþróuninni seinkað allnokkuð. Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 1. desember 2002 voru 86,6% íbúa skráðir í þjóðkirkjunni, 4,2% í fríkirkjum, 4,2% í öðrum skráð- um trúfélögum, 2,7% í óskráðum trúfélögum og með ótilgreind trúarbrögð og 2,3% utan trú- félaga. Kristnir eru hér í stórum meirihluta og kynþáttahyggja eða önnur aðgreiningarhugsun mun aldrei líðast í þeirra röðum. Verum í fylkingarbrjósti þjóða, sem hafna dilkadrætti. Íslendingar eru þeir, sem eiga hér ríkisfang, óháð litarhafti eða menningarlegum uppruna. Og svoleiðis á það að vera áfram. „Æ em a væking!“ sigurdur.aegisson@kirkjan.is „Hver maður er bor- inn frjáls og jafn öðr- um að virðingu og réttindum,“ segir í Mannréttinda- yfirlýsingunni frá 1948. Sigurður Æg- isson leitar á þau mið í tilefni þess að föstudagurinn næst- komandi er alþjóð- legur baráttudagur gegn kynþátta- hyggju. M al lo rc a Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Alltaf ód‡rari! Ver›dæmi Spariplús Mallorca 36.340 kr. á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting í 1 viku á Pil Lari Playa, íslensk fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar. Ef 2 ferðast saman: 43.830 kr. á mann. Krít 50.382 kr. á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting í 1 viku á Skala, íslensk fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar. Ef 2 ferðast saman: 60.670 kr. á mann. Portúgal 39.990 kr. á mann miðað við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. Innifalið: Flug, gisting í 1 viku á Sol Doiro, íslensk fararstjórn, ferðir til og frá flugvelli erlendis og flugvallarskattar. Ef 2 ferðast saman: 54.055 kr. á mann. opna nú aftur sálmabókina í minn- ingu Valgerðar. Sælir þeir, er sárt til finna sinnar andans nektar hér, þeir fá bætur þrauta sinna, þeirra himnaríkið er. Sælir þeir, er sýta’ og gráta, sorgin beizk þó leggist á. Guð mun hugga, Guð mun láta gróa sár og þorna brá. (Vald. Briem.) Fagur dagur að kvöldi kominn, haldið heim á leið. Ég kveð Valgerði Hannesdóttur, fyrrverandi húsfreyju á Torfastöð- um, með hlýhug, þakklæti og djúpri virðingu. Elínu, Björgu, fjölskyldum þeirra og öðrum aðstandendum sendi ég einlægar samúðarkveðjur. Sigríður Ingólfsdóttir. Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta. Á grænum grundum lætur hann mig hvílast, leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta. (Úr 23. Davíðssálmi.) Ég var svo lánsöm á sjötta ára- tugnum að vera í mörg sumur í sveit á Torfastöðum hjá Valgerði og Snorra. Í dag finnst mér þetta hafa verið forréttindi að hafa haft tæki- færi til að kynnast náttúrunni, dýr- unum og vinna bæði úti- og innistörf. Fyrstu sumrin mín var t.d. ekki raf- magn á bænum og var farið á traktor með kerru á annan bæ í sveitinni til að þvo stórþvott, því mannmargt var á sumrin hjá þeim hjónum, því þau tóku að sér mörg börn til dvalar. Var oft glatt á hjalla og margt brallað. Aðstandendum sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Árný V. Ingólfsdóttir. að amma mundi fatta að hann væri að tala við mig en ekki hana og þá yrði hún ekki ringluð svo ég leyfði honum alltaf að kalla mig þetta, al- veg fram til dauðadags. Ég man þegar ég komst á unglingsárin og afi var orðin hjartasjúklingur og honum var skipað að hætta að reykja, þá laumaði minn maður sér bara inn á klósett og reykti þar eins og herforingi og hann hélt að enginn fattaði það, svo fann ég sígarettu- pakka inni í eldhússkáp heima hjá þeim en þegar ég spurði afa út í það þá sagði hann að einhver hlyti að hafa gleymt þeim þarna, en samt var þetta tegundin sem hann reykti. Ég man hvað hann varð spenntur í haust þegar ég sagði honum að ég ætti von á barni, hann hlakkaði svo til að verða langafi í þriðja sinn en hann fær víst ekki að kynnast þessu barni en ég veit að hann á eftir að vera hjá okkur í anda eins oft og hann getur. Svona eru nú góðar minningarnar um hann afa minn sem nú er farinn frá okkur og hvílir á góðum stað. Elsku afi, takk fyrir allar góðu stundirnar og tímann sem við áttum saman. Þín Halla litla. Hallveig Fróðadóttir. MINNINGAR AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disk- lingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heima- síma). Ekki er tekið við hand- skrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfi- legri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) . Frágangur afmælis- og minning- argreina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.