Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 27 GYMFORM GYMFORM maga- og vöðva- örvunartækið fyrir þá sem kom- ast ekki í líkamsræktina. Fjöl- nota vöðvamótunartæki sem þjálfar kviðvöðva, rass, læri, brjóstvöðva ofl. (CE merkt) Verð aðeins kr. 6.600.- og kr. 10.500.- Trönuhrauni 6 220 Hafnarfirði Sími 565 1533 Fax 565 3258 polafsson@polafsson.is Búnaðarbankinn Verðbréf | Hafnarstræti 5 | 155 Reykjavík Sími 525 6060 | Fax 525 6099 | verdbref@bi.is F í t o n / S Í A F I 0 0 6 3 7 2 Sérbankaþjónusta Búnaðarbankans er ætluð efnameiri einstaklingum sem sækjast eftir fjármálaþjónustu og skatta- ráðgjöf í hæsta gæðaflokki. Viðskiptavinir Sérbankaþjónustu fá meiri þjónustu og njóta betri kjara í banka- og verðbréfa- viðskiptum. Lögð er áhersla á persónulega og vandaða fjármálaráðgjöf, trúnað og traust. Undirbúðu næsta leik með Sérbankaþjónustu Búnaðarbankans. Sérbankaþjónusta – það besta sem við höfum að bjóða. Góður undirbúningur er mikilvægur áður en þú ákveður næsta leik. Með Sérbankaþjónustu Búnaðarbankans öðlast þú yfirsýn yfir fjármálin og nýtur reynslu og þekkingar sérfræðinga við eignastýringu sem sérsniðin er að þínum þörfum. Góð yfirsýn er nauðsynleg S É R B A N K A Þ J Ó N U S T A Bókmenning í bændasam- félagi 19. aldar Á VEGUM Landsbókasafns Íslands verða tvö námskeið um bókamenn- ingu í bændasamfélagi 19. aldar hald- in í Þjóðarbókhlöðu 19. og 26. mars kl. 20-22. Davíð Ólafsson fjallar um þá sterku mynd sem Halldór Laxness dregur upp í Heimsljósi af viðhorfum íslenskrar alþýðu til bókmennta og hvað liggur að baki henni. Mynd sem sýnir annars vegar alþýðufólk sem var tilbúið að leggja allt í sölurnar fyr- ir hlutdeild í heimi hins ritaða orðs og hinna, sem vissu ekkert fyrirlitlegra en að „liggja í bókum“. Sjónum verður beint að skriftar- kunnáttu í íslenska bændasamfélag- inu á 19. öld með tilliti til dagbókarit- unar og uppskrifta fornsagna. Júlía nefnist skáld- saga eftir Sig- urbjörn Þorkels- son. Júlía er 18 ára Reykjavíkurmær og fer í gegnum ævi sína í leit að skýringum á stöðu sinni í lífinu. Með það fyrir augum að ná áttum í tilverunni og reyna að vinna sig út úr og lifa með orðnum atburðum. Hún vinnur í því að sættast við sjálfa sig og aðra. Í mikilli óákveðni um heppilegt skref vinnur hún að því að feta sig inn í framtíðina. Bókin er sú níunda sem Sigurbjörn sendir frá sér. Höfundur gefur út. Bókin er 94 bls., prentuð í Litrófi ehf. Mynd á bókarkápu er eftir höfundinn. Skáldsaga ♦ ♦ ♦ UNGMENNAFÉLAG Íslands og Kammerkór Reykjavíkur standa fyrir stórtónleikunum Fíkn er fjötur víða um land fimmtudaginn 20. mars kl. 20.30. Tónleikarnir verða haldnir á Selfossi, Ísafirði, Borgarnesi, Akureyri og Egils- stöðum, í umsjón Þjónustu- miðstöðva UMFÍ sem starfa á þessum stöðum. Fjöldi kóra og tónlistarmanna, bæði úr heima- byggð og gestir munu taka þátt í tónleikunum. Tónleikar verða einnig í Hall- grímskirkju kl. 17 laugardaginn 22. mars og taka þátt tugir kóra – alls á annað þús- und tónlistar- manna. Fíkn er fjötur er forvarnarverkefni þar sem höfðað er til forráðamanna unglinga. Allur ágóði tónleikunum rennur í forvarn- arsjóð UMFÍ í baráttunni gegn fíkniefnanotkun. Ungmennafélag Íslands mun í samstarfi við fagaðila hefja átak í kjölfar tónleikanna þar sem for- eldrum er kennt að þekkja fyrstu einkenni unglinga sem eru að byrja neyslu eiturlyfja og viðbrögð við því. Undirbúningur að tónleikunum hófst í desember og eru æfingar framundan hjá fjölmörgum kór- um um land allt. Kammerkór Reykjavíkur starf- ar undir stjórn Sigurðar Braga- sonar kórstjóra og söngvara og hefur Kammerkór Reykjavíkur veg og vanda að undirbúningi dag- skrár tónleikanna í samvinnu við Þjónustumiðstöðvar UMFÍ, sem halda utan um framkvæmd tón- leikanna. Fjölmargir einsöngvarar munu koma fram á tónleikunum, m.a. Signý Sæmundsdóttir, Davíð Ólafsson, Snorri Wium, Elín Ósk Óskarsdóttir, Kristjana Stef- ánsdóttir og Keith Reed. Kammerkór Reykjavíkur hefur áður staðið fyrir styktartónleikum í mars 2002 Á annað þúsund tónlistarmanna gegn fíkniefnum Signý Sæmundsdóttir Davíð Ólafsson Sigurður Bragason Elín Ósk Óskarsdóttir mbl.is STJÖRNUSPÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.