Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 35
SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 35 til markaðssetningar á hinni glað- beittu og dugmiklu ímynd borgar- stýrunnar með blaða- og fréttamönn- um. En hún vann einnig mikið skipulagningarstarf með ráðgjöfum sínum og skildi margvíslega óviðkom- andi rekstrarliði frá borgarsjóðnum við ómældan pirring máttlítillar stjórnarandstöðu. Markaðssetning borgarstýru allra Reykvíkinga hefur öll hin rúm 8 stjórnarár verið þrautvelheppnað og útfært afrek. Gemsinn hefur líka komið henni vel: hefur gjörbreytt allri starfsaðstöðu stjórnmálamanna og alltaf er hægt nú að ná til allra hinna mörgu blaða- og fréttamanna, sem haldið hafa viðkomandi í svo að segja beinni útsendingu nánast daglega öll þessi ár. T.a.m. hefur hún strax getað náð í bróður Alfreð Þ., þótt hann væri staddur í London í mesta sakleysi inní vandaðri klæðskerabúð á Strand með flokki undirsáta – eða náð undireins til rannsóknarblaðamannsins Reynis Traustasonar, þótt hann sæti í af- slappaðri stellingu í rakarastólnum bakvið Dómkirkjuna. Vinsældir Ingibjargar Sólrúnar byggjast á nokkrum þáttum: Hún hefur til að bera afvopnandi skýrleika og greiningarhæfni og strákslegan kvenþokka, sem höfðar til ólíklegasta fólks. Röddin er styrk og jákvæð, en þó ekki steigurlát. Auk þess hefur henni tekizt að varðveita heiðarleika- og skírlífisímynd kvennalistans og hefur ekki opinberlega verið staðin að óheilindum. Hún undirbýr mál af gaumgæfni, mætir vel óríenteruð í viðtöl og kann vel að nýta hæfileika og þekkingu borgarstarfsmanna sjálfri sér til framdráttar og vegsauka, þó með notalegum hætti gagnvart við- komendum. Hvort marggreindir hæfileikar hennar og kostir nýtast í hinum nýju skotgröfum Samfylkingarinnar innan um kraumandi afbrýði allra bryndís- anna og össuranna kemur í ljós á næstu vikum. En oft hefur það sýnt sig í íslenzk- um stjórnmálum, að háttvirtir kjós- endur – hinn grái massi – er grárri en nokkur getur ímyndað sér. Höfundur er fornbókasali. Það vantar nýtt heildarskipulag Ég sammála megininntaki niður- lagsorða Árna, að fé því sem fer til heilbrigðismála er í raun vel varið. Í Bandaríkjunum fer stór hluti skatt- peninga til hernaðar en hér hafa stjórnmálamenn fyrri áratuga, sem og þeir sem nú sitja, borið gæfu til þess að verja sameiginlegum verð- mætum þjóðarinnar á betri hátt. Hér getur hver einstaklingur menntast eins og hugur og geta gefur tilefni til og allir þegnar landsins eiga að njóta góðrar heilbrigðisþjónustu. Hér er allt til staðar til að þess hægt sé að stunda góðar forvarnir og lækningar. Starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar er vel menntað, húsakostur og tækja- búnaður er allgóður og peningar í raun nægir til að reka megi starfsem- ina á viðunandi hátt. Heildarsýn vantar hins vegar þegar fjallað er um vandamál heilbrigðiskerfisins. Ekki dugar að líta á þætti heilbrigðiskerf- isins, svo sem heilsugæslu, sjúkra- hús, sérfræðiþjónustu, endurhæf- ingu og heimahjúkrun sem afmarkaðar einingar, heldur þarf að byggja upp kerfi þar sem allir þessir þættir vinna saman að því að skila sem bestum heildarárangri. Aðal- áherslan þarf að vera á þjónustu við þá sem þurfa á forvörnum eða lækn- ingu að halda. Efla þarf samvinnu milli heilbrigðisstarfsmanna og auka upplýsingastreymi milli einstakra heilbrigðisstofnana og starfsfólks innan þeirra. Nota skal þau rekstr- arform sem skila notendum sem bestri þjónustu á sem hagkvæmastan hátt. Ég mælist til að að ráðamenn hug- leiði hvernig megi bæta skipulag og resktur heilbrigðisþjónustunnar og meti gæði og afköst þess ekki ein- ungis í peningum heldur í raunveru- legum afurðum hennar, heilbrigði, forvörnum og lækningum. Höfundur er sérfræðingur í lyflækningum og gigtlækningum. alltaf á föstudögum Ráðstefna um vistunarmat á Hótel Loftleiðum mánudaginn 24. mars 2003 kl. 8:30 – 15:00 Dagskrá 1. kl. 8:30 Skráning 2. kl. 9:00 Ávarp Jóns Kristjánssonar, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra 3. kl. 9:15 Vilborg Hauksdóttir, deildarstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, fjallar um lög um málefni aldraðra og reglugerð um vistunarmat. 4. kl. 9:40 Pálmi V. Jónsson, öldrunarlæknir, talar fyrir hönd eftirlitsnefndar með vistunarmati aldraðra. 10:15 – 10:40 KAFFIHLÉ. 5. kl. 10:45 Oddur Ingimarsson, læknanemi, greinir frá reynslu af notkun vistunarmats í Reykjavík síðastliðin tíu ár. 6. kl. 11:20 Oddný Vestmann, umsjónarmaður vistunarmats í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu, fjallar um skráningu og úrvinnslu gagna. 12:00 – 13:00 MATUR 7. kl. 13:00 Svana Helen Björnsdóttir, Bjarni Þór Björnsson og Hjörleifur Pálsson, starfsmenn verkfræði- og tölvuþjónustunnar Stika, segja frá rafvæðingu vistunarmats á landsvísu, fjalla um persónuvernd, uppbyggingu netkerfisins og notkun vistunarmatsforritsins. 8. kl. 14:35 Umræður. 9. kl. 15:00 Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjórar: Hrafn Pálsson og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir. Ráðstefnan er ætluð öllum, sem koma að vistunarmati aldraðra. Aðgangur er ókeypis. Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina 27. mars í eina eða 2 vikur til Kanaríeyja á hreint ótrúlegu verði. Beint flug til Kanarí og þú getur valið um 1 eða 2 vikur í sólinni. Það er um 28 stiga hiti á Kanarí í marsmánuði, og hér er auðvelt að njóta lífsins við frá- bærar aðstæður. Þú bókar ferðina núna og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför, hringjum við í þig og látum þig vita hvar þú gistir, og á meðan á dvölinni stendur nýtur þú þjónustu reyndra fararstjóra okkar allan tímann. Stökktu til Kanarí 27. mars frá kr. 39.963 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 39.963 Verð fyrir manninn, m.v. hjón m. 2 börn 2-11 ára. Flug, gisting og skattar. 27. mars, 7 nætur. Ferðir til og frá flug- velli kr. 1.800. Alm. verð kr. 41.962. Verð kr. 52.950 Verð fyrir mann, m.v. 2 í íbúð, gisting og skattar. 27. mars, 7 nætur. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Alm. verð kr. 55.600. Síðustu sætin Munið Mastercard ferðaávísunina Stjórn Landssíma Íslands hf. Aðalfundur Landssíma Íslands hf. verður haldinn 26. mars nk. í húsnæði félagsins að Ármúla 25, Reykjavík, kl. 17.00. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, þurfa að berast stjórn eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Dagskrá fundarins, tillögur og ársreikningur félagsins mun liggja frammi á skrifstofu Símans við Austurvöll, hluthöfum til sýnis, sjö dögum fyrir aðalfund. Ársreikning félagsins er einnig að finna á heimasíðu félagsins, www.siminn.is. LANDSSÍMI ÍSLANDS HF. AÐALFUNDUR 2003 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. Tillaga um breytingu á gr. 19.1 í samþykktum félagsins þess efnis að fækka varamönnum í stjórn úr fimm í þrjá. Tillaga um breytingu á gr. 21.4 í samþykktum félagsins þess efnis að undirskrift meirihluta stjórnarmanna bindi félagið í stað fjögurra. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa hluti í félaginu skv. 55. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Önnur mál löglega upp borin. 13.00 Ræða: Tryggvi Jónsson, formaður stjórnar SVÞ fjallar m.a. um nýja stefnumótun SVÞ og viðhorf stjórnmálaflokkanna til verslunar og þjónustu. Ávarp: Valgerður Sverrisdóttir, viðskiptaráðherra. Þema: Starfsumhverfi verslunar og þjónustu -Smásöluverslun - afl til atvinnusköpunar Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ fjallar um nýtt fræðslurit. -Leikreglur viðskiptanna - siðferði við stjórnun fyrirtækja Dr James Hine, stjórnandi MBA náms við Edinborgar- háskóla. 14.30 Veitingar 15.00 Hefðbundin aðalfundarstörf Aðalfundur SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu fimmtudaginn 20. mars 2003 í Ársal Hótels Sögu Samtök verslunar og þjónustu Samtök verslunar og þjónustu Þátttökutilkynningar í síma 511 3000 eða á adalfundur@svth.is Afmælisþakkir Hjartans þakkir til allra, sem glöddu okkur með gjöfum, blómum og heillaóskum á áttatíu ára afmæli okkar 30. janúar og 5. mars sl. Marta Kristjánsdóttir og Bjarni Ólafsson, Sigtúni, Ólafsvík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.