Morgunblaðið - 18.03.2003, Side 17
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 17
Tækifæri hf - Strandgata 3 - 600 Akureyri - Sími 460 4700 - Fax 460 4717 -
www.iv.is/taekifaeri
Aðalfundur Tækifæris hf.
verður haldinn miðvikudaginn 26. mars n.k. að 3. hæð Strandgötu 3,
Akureyri, og hefst kl. 14.
Dagskrá er skv. 4.04 grein samþykkta félagsins. Á fundinum verða m.a.
lagðar fram eftirfarandi tillögur:
• Tillaga um breytingar á samþykktum sem heimilar félaginu að sækja
um rafræna skráningu hlutabréfa félagsins.
• Tillaga um að heimild stjórnar til að auka hlutafé um kr. 400.000.000
að nafnvirði verði framlengd.
• Tillaga sem gerir félaginu kleift að eignast eigin bréf verði framlengd.
Endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á
skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund og samhliða því birtast í fréttakerfi
Kauphallar Íslands.
AÐ minnsta kosti níu manns hafa
látist í lungnabólgufaraldrinum,
sem nú geisar aðallega í Suðaustur-
Asíu en hugsanlega eru fyrstu til-
fellin komin upp í Evrópu. Hefur
WHO, Alþjóðaheilbrigðisstofnunin,
varað við sjúkdómnum um allan
heim.
Vitað var um 500 sjúkdómstilfelli
í gær en einkennin minna á inflú-
ensu, hár hiti og þreyta, en auk
þess veldur sjúkdómurinn bráðri
sýkingu í öndunarfærum. Af þeim
sökum er hann flokkaður sem afar
skæð lungnabólga.
Í viðvörunum WHO síðastliðinn
laugardag sagði, að sjúkdómurinn,
sem er auðkenndur með skamm-
stöfuninni „Sars“, hefði komið upp í
Kína, Hong Kong, Indónesíu,
Singapore, Taílandi, Taívan, Víet-
nam og Kanada en auk þess eru
heilbrigðisyfirvöld í Frakklandi,
Þýskalandi, Sviss og Slóveníu að
kanna hvort sjö ferðamenn frá Suð-
austur-Asíu séu haldnir honum.
Vegna faraldursins er mikill við-
búnaður hjá flugfélögum og í flug-
höfnum og alveg sérstaklega þegar
um er að ræða flugvélar, sem koma
frá Asíu.
Varað við skelfingu
Í gær var vitað um 83 tilfelli í
Hong Kong og hafði þeim fjölgað
um helming frá deginum áður. Yf-
irvöld fullyrtu þó, að engin ástæða
væri til mikils ótta og sögðu, að
ekkert benti til, að um eiginlegan
faraldur væri að ræða. Í Singapore,
Víetnam, Malasíu og víðar hafa ver-
ið skipaðar sérstakar nefndir til að
fást við sjúkdóminn og eiga þær að
stjórna aðgerðum til að kveða far-
aldurinn niður.
Innan WHO leikur grunur á, að
um sé að ræða sama sjúkdóminn og
kom upp í Guangdong-héraði í Kína
í síðasta mánuði en þá veiktust 305
og fimm létust. Kínversk yfirvöld
vilja þó ekki staðfesta það.
Lungnabólgan hugsan-
lega komin til Evrópu
Mikill viðbúnaður
hjá flugfélögum
og í flughöfnum
París. AFP.
Reuters
Kona mátar sóttvarnargrímu í lyfjaverslun í Hanoi. Mikið hefur dregið úr
ferðalögum til Víetnams vegna faraldursins og sum lyf eru uppseld.
ROBIN Cook, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra Bretlands, sagði af
sér í gær sem leiðtogi stjórnarinn-
ar í neðri deild breska þingsins til
að mótmæla þeirri stefnu hennar
að hefja hernað í Írak án stuðn-
ings öryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna eða bresku þjóðarinnar.
Gerði hann grein fyrir ákvörðun
sinni í neðri deildinni í gærkvöld.
Í ræðu sinni sagði Cook, að her-
styrkur Íraka væri nú helmingi
minni en hann hefði verið á tímum
síðasta Persaflóastríðs. Með það í
huga væri undarlegt að halda því
fram, að mikil hætta stafaði af
stjórnvöldum í Írak, hvað þá, að
hún réttlætti hernaðaraðgerðir.
Kom þetta fram á fréttavef BBC,
breska ríkisútvarpsins, í gær.
Efast um að Írakar
eigi gereyðingarvopn
Cook sagði ennfremur, að Írak-
ar réðu ekki yfir gereyðingarvopn-
um í þeim skilningi, að af þeim
stafaði raunveruleg hætta, það er
að segja, að þeir hefðu til dæmis
bolmagn til beita þeim gegn borg-
um. Þá lýsti hann furðu sinni á því,
að Bandaríkjastjórn virtist hafa
meiri áhuga á stjórnarskiptum í
landinu en raunverulegri afvopn-
un.
„Það, sem hefur valdið mér
nokkru hugarangri á síðustu vik-
um, er sá grunur, að hefðu flip-
arnir á kjörseðlunum í Flórída
verið túlkaðir með öðrum hætti og
Al Gore náð kjöri í forsetakosning-
unum, þá værum við ekki nú að
búa breska hermenn út í stríð,“
sagði Cook.
Cook kvaðst einnig hafa furðað
sig á því, að þeir, sem hefðu barist
mest fyrir hernaði í Írak, skyldu
ekki hafa fagnað fréttum um vax-
andi árangur af starfi vopnaeft-
irlitsmanna í landinu. Því hefði
raunar verið alveg öfugt farið og
hann spurði hvað það væri, sem
ræki á eftir stríði nú, helst í þess-
ari viku. Þá sagði hann, að því færi
fjarri, að Frakkar væru einir um
að vilja gefa vopnaeftirlitinu meiri
tíma. Þvert á móti væri það krafa
flestra ríkja.
Afsögn Cooks er áfall fyrir Tony
Blair forsætisáðherra enda má nú
kalla Cook ókrýndan leiðtoga
þeirra þingmanna Verkamanna-
flokksins, sem eru andvígir hern-
aðaraðgerðum í Írak.
Robin Cook í ræðu á breska þinginu í gærkvöld
Telur litla hættu
stafa af Íraksher
AP
Cook á breska þinginu í gærkvöld.