Morgunblaðið - 18.03.2003, Blaðsíða 19
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 19
%&
#'
(%
. & )"
13&41'/5&41
" %
&# #
*
% 6 7
#
#
#-
9
#
-
!
# #
Vor í París
“Sous le ciel de Paris,
S'envole une chanson....’’
EDITH PIAF
„Undir Parísarhimni
tekur söngurinn flugið....“
Tilboð í apríl og maí
Verð frá 44.930 kr.
á mann í tvíbýli í 3 nætur á Hotel Yllen Eiffel kkl
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur með morgun verði,
flugvallarskattar og þjónustugjöld
Fararstjóri Icelandair í París, Laufey Helgadóttir listfræðingur,
er farþegum til aðstoðar í París og skipuleggur kynnisferðir
til 30. maí.
Sjá nánari upplýsingar um París og skoðunarferðirnar
á www.icelandair.is/paris
Hafið samband við söluskrifstofur Icelandair eða við
Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100 (svarað mánud. - föstud.
kl. 8-20, laugard. frá kl. 9-17 og á sunnudögum frá kl. 10-16)
Þetta tilboð gefur 3.600 ferðapunkta
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
20
55
2
03
/2
00
3
Icelandair tekur við ferðaávísun MasterCard
og orlofs ávísunum VR í pakkaferðir.
VR orlofsávísun
Munið ferða-
ávísunina
vilji að bærinn taki yfir reksturinn
nú sé að þeir vilji ekki að ráðist verði
í breytingar sem gilda munu til
skamms tíma. Hann segir bæjaryf-
irvöld reiðubúin að taka yfir rekst-
urinn ef viðræður við ÍMS þróist í þá
veru.
„Við ætlum að sjá til en leikskóla-
stjórarnir eru reyndar báðir búnir að
segja upp og samtökin verða að vera
með stjórnendur sem hafa réttindi
til að stýra þessari starfsemi. Spurn-
ingin er: hvað vilja þau gera?“ segir
Magnús.
Fulltrúar Skólaskrifstofu Hafnar-
fjarðar munu hitta framkvæmda-
stjóra leikskólans, Sunitu Ghandi, á
fimmtudag, en hún er erlendis sem
stendur, og í framhaldi af því verður
rætt við fulltrúa úr stjórn ÍMS.
Leikskólastjórarnir sögðu upp
störfum fyrir síðustu mánaðamót og
er meginástæða uppsagnanna sam-
FORELDRAFÉLAG barna í leik-
skólanum Tjarnarási sem rekinn er
af Íslensku menntasamtökunum
hafa sent bæjaryfirvöldum bréf þar
sem óskað er eftir að Hafnarfjarð-
arbær yfirtaki rekstur leikskólans.
Leikskólastjóri og aðstoðarleik-
skólastjóri hafa báðir sagt upp störf-
um frá og með 1. júní nk.
Að sögn Magnúsar Baldurssonar,
fræðslustjóra Hafnarfjarðarbæjar,
munu bæjaryfirvöld eiga fund með
stjórn samtakanna á næstu dögum
vegna þeirrar stöðu sem upp er kom-
in.
Bærinn reiðubúinn
að taka yfir reksturinn
Samningur við ÍMS rennur út eft-
ir rúmt eitt ár. Magnús segir eina af
ástæðunum fyrir því að foreldrar
starfsörðugleikar milli fram-
kvæmdastjórans og leikskólastjór-
anna beggja, að sögn Magnúsar.
Mjög sorglegt
Að sögn Gunnar Baldursdóttur,
formanns leikskólanefndar, var bréf
foreldrafélagsins tekið fyrir á fundi
nefndarinnar sl. föstudag og þar var
samþykkt að óska eftir viðræðum við
ÍMS. Hún segir það mjög alvarlegt
að bæði leikskólastjóri og aðstoðar-
leikskólastjóri hafi sagt upp störfum
og mjög sorglegt að málin hafi
þróast með þessum hætti. Yfir 100
börn eru á leikskólanum Tjarnarási.
„Ég vona að þetta leysist á farsæl-
an hátt og án nokkurra láta,“ segir
Gunnur.
Ekki náðist í leikskólastjórana
sem sagt hafa upp störfum og
fulltrúi foreldrafélagsins vildi ekki
tjá sig um málið.
Leikskólastjórar á Tjarnarási sem ÍMS reka hafa
sagt upp störfum vegna samstarfsörðugleika
Foreldrar vilja að bær-
inn yfirtaki reksturinn
Hafnarfjörður
ÞAÐ var sannkölluð karnival-
stemning í Háteigsskóla á föstudag
en þá var lokadagur þemadaga
skólans sem fjölluðu um fjölmenn-
ingu að þessu sinni. Á dögunum
bjuggu nemendur til alheimsþorp
með heimilum og verslunum á ýms-
um stöðum á hnettinum, lærðu
leiki, lög og dansa frá öllum heims-
hornum, æfðu leikrit, bjuggu til
fréttablað, kynntu brúðkaupssiði
víða um heim, matar- og sælgæt-
isgerð, pappírsbrot, stafagerð og
margt fleira.
Unglingarnir í skólanum fengu
m.a. kynningu á skiptinema-
samtökum, heimsóttu Alþjóðahúsið
og sendiráð, reyndu að skilja betur
kynþáttafordóma með því að nota
leikræna tjáningu og kynntu sér
þjóðsögur frá öllum heimsálfum.
Á föstudag var svo lífleg uppske-
ruhátíð þar sem ættingjum var boð-
ið að skoða sýnilegan afrakstur
vinnunnar og er ekki annað að sjá
en að nóg hafi borið fyrir augu
þeirra gesta sem litu við í Háteigs-
skóla þennan dag.
Morgunblaðið/Golli
Uppskeruhátíð
með alþjóðlegum blæ
Háteigshverfi