Morgunblaðið - 18.03.2003, Page 23
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 23
Tryggðu þér síðustu sætin til Prag í mars og apríl á ótrúlegu
verði. Nú getur þú kynnst þessari fegurstu borg Evrópu og
tryggt þér farmiða frá aðeins 19.550 og upplifað fallegasta tíma
ársins í Prag. Hér upplifir þú mörg
hundruð ára sögu á hverju horni og
mannlíf og andrúmsloft sem á ekki sinn
líka. Í boði eru spennandi kynnisferðir
um kastalahverfið og gamla bæinn,
eða til hins einstaklega fagra
heilsubæjar Karlovy Vary, með
íslenskum fararstjórum Heimsferða.
Síðustu sætin til
Prag
31. mars
frá kr. 19.550
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 39.950
Helgarferð til Prag, 3. apríl, 4 nætur.
Flug, hótel og skattar. Verð á mann í
tveggja manna herbergi m. morgunmat.
Hotel Park, 4 stjörnur.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.
Verð kr. 19.550
Flugsæti til Prag, út 24. eða 31. mars.
Almennt verð með sköttum.
M.v. heimkomu á fimmtudegi.
Flug og skattar á mann miðað við
að 2 ferðist saman, 2 fyrir 1.
3. apríl - Helgarferð frá 39.950
Glæsileg hótel í hjarta Prag
Adria
Park hótel
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Spennandi kynnisferðir
GAMLI BÆRINN – 3 klst.
Venceslas torg, Republiky torg,
púðurturninn, Staromestské Námestí.
Þaðan er farið í Gyðingahverfið og
áfram niður á Karlsbrú þar sem ferðin
endar. Verð kr. 1.900. Íslenskur
fararstjóri.
Kastalahverfið
Laugardaga kl. 13.00.
Ferðin hefst við Republiky og
Venceslas torg kl. 13.00. Ekið upp
að Strahov klaustri. Helgidómar og
hallir, Loreta, Schwarzenberg höll,
erkibiskupshöllin, Vitusarkirkja.
Gullna gata og niður í Malá Strana.
Verð kr. 1.900. Íslenskur fararstjóri.
KARLSBAD
Sunnudaga kl. 9.00.
Ómissandi tækifæri til að kynnast
„hinni hliðinni“ á Tékklandi, náttúru,
landslagi og lífi. Ekið í um 2 klst. þar
til komið er til Karlovy Vary sem er
án efa einn frægasti heilsuræktarbær
Evrópu. Verð kr. 2.900. Íslenskur
fararstjóri.
Helgarferð
3. apríl – sértilboð – aðeins 29 sæti
Verð frá aðeins 2.900
M.v. 2 í herbergi á Parkhotel.
Tryggðu þér síðustu
sætin í vor
20. mars - 11 sæti
24. mars - laust
31. mars - síðustu sætin
3. apríl - 29 sæti
7. apríl - laust
10. apríl - 23 sæti
13. apríl - 19 sæti
17. apríl - Páskaferð
SALA á lambakjöti jókst um
16,3% á síðasta ársfjórðungi.
Salan í desember jókst um 20%,
í janúar var aukningin 13,8% og
í febrúar nam hún 16,9%.
Heildarhlutdeild kindakjöts á
kjötmarkaði síðastliðna 12
mánuði er 30,6%. Samkvæmt
upplýsingum frá Landssam-
bandi sauðfjárbænda selst eng-
in kjöttegund því betur núna en
lambakjöt. Sauðfjárbændur
benda á að lambakjöt njóti mik-
illar tryggðar hjá neytendum
enda um hágæðavöru að ræða
sem sloppið hefur að mestu við
vandamál í framleiðslu.
Sala á
lambakjöti
í uppsveiflu
SAMTÖK breskra hnykkjara vara
við meiðslum vegna sendingar
SMS-skilaboða á heimasíðu sinni,
www.chiropractic-uk.co.uk. Viðvar-
andi ásláttur á stjórnborð farsíma
vegna skilaboða er sagður með
tímanum auka líkurnar á tognun
og meiðslum.
Hermt er að 45 milljónir SMS-
boða séu sendar í Bretlandi á degi
hverjum, tíu milljónir í Sviss og
átta milljónir í Austurríki. Þjóð-
verjar sendi 80 milljónir textaskila-
boða á dag.
„Farsímar verða sífellt minni og
bil milli takka á stjórnborðinu
minna sem því nemur. Því minni
sem takkarnir eru því erfiðara er
að nota þá, sem eykur líkurnar á
hnjaski,“ er haft eftir Matthew
Bennett, talsmanni breskra
hnykkjara.
Símafyrirtækið Virgin Mobile
hefur brugðist við ábendingum fé-
lagsins með því að kenna notend-
um handaæfingar á Netinu.
Æfingunum er ætlað að örva
blóðrás í höndum og fingrum og
eru þær jafnframt sagðar gagnast
þeim sem eyða miklum tíma í
tölvuleiki.
Vara við
SMS-
meiðslum
Morgunblaðið/Jóra
Því minni sem takkarnir eru á símum því erfiðara er að nota þá sem eykur
líkurnar á hnjaski.
HAFINN er undirbúningur að
framleiðslu á lífrænum ostum hér
á landi. Það er starfsfólkið í Skaft-
holti í Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi sem er að undirbúa osta-
gerðina og koma upp aðstöðu
fyrir hana svo hægt sé að fara að
framleiða og selja ostana.
„Undanfarin tólf til þrettán ár
höfum við framleitt osta hér á
bænum fyrir heimilið en langar að
færa út kvíarnar,“ segir Guð-
finnur Jakobsson bóndi í Skaft-
holti. Hann segir að um venjuleg-
an heimilisost sé að ræða sem sé
ekki ósvipaður hollenskum gouda-
osti og osturinn í Skaftholti er al-
farið búinn til úr lífrænni mjólk.
Þegar hann er spurður hvort í
Skaftholti hafi verið búnar til aðr-
ar mjólkurafurðir segir hann að af
og til hafi verið búin til kotasæla
fyrir heimilisfólkið og svo strokk-
að smjör og búið til skyr og jóg-
úrt.. „Við munum þó til að byrja
með einbeita okkur alfarið að
þessari einu ostategund.“
Guðfinnur segir að í Skaftholti
sé grænmeti ræktað bæði í gróð-
urhúsum og úti en auk þess eru á
bænum kýr, kindur og hænsni.
Skaftholt er sjálfseignarstofnun
og þar búa nú auk Guðfinns og
hans fjölskyldu, nokkrir starfs-
menn og átta þroskaheftir ein-
staklingar sem starfa við bústörf-
in og annað sem til fellur.
Undirbúningur hafinn að
framleiðslu lífrænna osta
Íslenski, lífræni osturinn er sagður
minna á hollenska goudaostinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg