Morgunblaðið - 18.03.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HALLDÓR Sigfússon, fyrrverandi
leikmaður KA-liðsins í handknatt-
leik, skoraði 6 mörk og lék einn
sinn besta leik fyrir Friesenheim
þegar liðið sigraði Melsungen,
21:20, í suðurriðli þýsku 2. deild-
arinnar í handknattleik um helgina.
„Þetta var geysilega mikilvægur
sigur og við höldum þar með enn í
smávon um að ná öðru sætinu í riðl-
inum. Halldór var virkilega góður
og var kannski heilt yfir okkar
besti maður í leiknum,“ sagði Atli
Hilmarsson, þjálfari Friesenheim, í
samtali við Morgunblaðið.
Friesenheim er í þriðja sæti rið-
ilsins með 33 stig, tíu stigum á eftir
Düsseldorf og 14 á eftir toppliði
Kronau/Östringen, en lærisveinar
Atla eiga þrjá leiki til góða.
„Við eigum eftir að mæta Düssel-
dorf á heimavelli og Düsseldorf á
einnig eftir að leika við Kronau, en
það er ekki öll von úti enn um að ná
öðru sætinu. Við eigum tíu leiki eft-
ir og megum varla við því að missa
mörg stig út úr þeim leikjum til að
eiga möguleika á öðru sætinu,“
sagði Atli. Liðin sem verða í öðru
sæti í suður- og norðurriðli eigast
við í tveimur leikjum og sigurveg-
arinn í þeim leikjum mætir liðinu
sem hafnar í þriðja neðsta sæti
Bundesligunnar um laust sæti í
deildinni.
Atli og Halldór eru samnings-
bundnir Frisenheim til júní á næsta
ári.
Besti leikur Halldórs
með Friesenheim
Halldór Sigfússon lék vel og setti sex mörk.
ALLY McCoist, fyrrverandi landsliðsmiðherji Skota í
knattspyrnu, hefur hvatt Berti Vogts, landsliðsþjálf-
ara Skota, til að velja Datten Fletcher, hinn 19 ára
gamla miðjumann Manchester United, í landsliðshóp-
inn sem mætir Íslendingum á Hampden Park í Glas-
gow um aðra helgi. Vogts tilkynnir landsliðshóp sinn
á morgun.
Flecther er nýjasta ungstirnið hjá United en hann
fékk að spreyta sig í fyrsta skipti í byrjunarliði liðsins
í 1:1 jafnteflinu á móti Basel í Meistaradeildinni í síð-
ustu viku. Fletcher er af mörgum kallaður „litli Beck-
ham“ og bindur Alex Ferguson, stjóri Manchester
United, miklar vonir við leikmanninn í framtíðinni.
McCoist segir engan skaða fyrir Vogts að velja
Fletcher og hann eigi ekki að hika við að kalla strák-
inn inn í hópinn.
Vill sjá
Fletcher gegn
Íslendingum
STEVE Bruce, knattspyrnustjóri
Birmingham, segir að leikmenn
Aston Villa hafi gert í því að espa
Frakkann Christoph Dugarry upp í
grannaslag liðanna á dögunum. Dug-
arry á yfir höfði sér leikbann vegna
atviks sem átti sér stað í leiknum en
Frakkinn hrækti að Jóhannesi Karli
Guðjónssyni.
BRUCE segir að Jóhannes Karl
hafi láti ýmis orð falla í garð Dug-
arrys sem og fleiri leikmenn Aston
Villa gerðu í leiknum. Með því hafi
þeir verið að æsa leikmanninn upp.
Hann segir að Dugarry hafi misst
stjórn á sér og hrækt en það hafi
ekki verið með ráðum gert að beina
hrákanum að leikmanninum.
NOEL Whelan framherji Middles-
brough valdi frekar að fara sem
lánsmaður til Crystal Palace heldur
en Stoke en Íslendingaliðið gerði til-
raun til að fá leikmanninn að láni.
Whelan, sem fá tækifæri hefur feng-
ið hjá Middlesbrough á leiktíðinni,
verður hjá Palace til loka leiktíðar.
GERARD Houllier, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, hefur ákveðið að
Senegalinn El-Hadji Diouf spili ekki
síðari leik Liverpool og Celtic í 8-liða
úrslitum UEFA-keppninnar á An-
field á fimmtudaginn. Diouf varð á í
messunni í fyrri leik liðanna í Glas-
gow í síðustu viku þegar hann
hrækti á stuðningsmenn Celtic. Aga-
nefnd UEFA á eftir að taka málið
fyrir og verður hann væntanlega úr-
skurðaður í leikbann.
HOULLIER var mjög óhress með
framkomu Senegalans og svipti
hann tveggja vikna launum.
ALEX Ferguson ætlar að tefla
fram hálfgerðu drengjaliði þegar
Manchester United mætir Deport-
ivo La Coruna í Meistaradeildinni í
kvöld. Sjö af þeim leikmönnum sem
léku á móti Aston Villa um helgina
verða ekki með en það eru Barthez,
Gary Neville, Beckham, Nistelrooy,
Ferdinand, Scholes og Silvestre. Að
auki eru Roy Keane og Juan Sebast-
ian Veron meiddir. United hefur
þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslit-
um og vonir Deportivo um að kom-
ast áfram eru nær engar.
JOHN Gregory, hinn skapstóri
knattspyrnustjóri Derby, hefur ver-
ið dæmdur í fimm leikja bann og til
að greiða rúmlega millj. kr. í sekt
fyrir að ráðast að varadómara í leik
Derby og Portsmouth 8. febrúar.
Gregory getur ekki stjórnað liði sínu
í fimm leikjum – verður að vera á
meðal áhorfenda.
MASSIMO Moratti, forseti Inter,
ítrekaði það í gær stuðning sinn við
argentínska þjálfarann Hector Cup-
er, sem hefur mátt þola ádeilur í vet-
ur. Inter fagnaði sigri á Como á
sunnudaginn, 4:0, og er í öðru sæti 1.
deildar á Ítalíu.
FÓLK
Forráðamenn Chelsea eru hinsvegar reiðubúnir að gera nýjan
samning við Zola og eiga þá von
heitasta að Chelsea nái Meistara-
deildarsætinu en fjögur efstu liðin í
úrvalsdeildinni vinna sér sæti í
Meistaradeildinni og þegar átta
umferðum er ólokið er Chelsea í
fjórða sætinu og í harðri baráttu
við Everton og Liverpool um það
sæti.
Zola, sem verður 37 ára gamall á
þessu ári, sýndi enn og aftur snilli
sína þegar hann tryggði Chelsea
sigurinn á WBA í fyrradag. Zola
skoraði síðara mark þeirra blá-
klæddu með frábærum hætti – 14.
mark hans á leiktíðinni.
Claudio Ranieri, stjóri Chelsea,
hrósaði Zola í hástert eftir leikinn.
„Zola er hreinn snillingur í mínum
augum. Hann er töframaður með
knöttinn og ég held hreinlega að
þetta sé hans besta tímabil,“ sagði
Ranieri, sem breytti hefðbundinni
leikaðferð síns liðs. Í stað þess að
tefla fram 4:4:2 lék Chelsea-liðið
3:5:2 með Eið Smára Guðjohnsen
og Jimmy Floyd Hasselbaink í
fremstu víglínu og í holunni fyrir
aftan þá var Zola í frjálsu hlutverki.
„Ég vil bara ekki hugsa um fram-
tíðina á þessari stundu. Það eina
sem kemst í kollinn á mér hvað
knattspyrnuna varðar er að reyna
að spila eins vel og ég get og síðan
verðum við bara að sjá til með
framhaldið. Það sem skiptir mestu í
lífinu er að hafa gaman af því sem
þú gerir og það hef ég svo sann-
arlega. Ég vil ekki hugsa um annað
þessa stundina en að spila góðan
fótbolta, skora mörk og safna stig-
um fyrir Chelsea,“ segir Zola sem
tókst að gera alla þessa hluti í
leiknum við WBA.
Reuters
Ítalski leikmaðurinn Gianfranco Zola og Eiður Smári Guðjohn-
sen fagna marki í leik gegn Manchester City á dögunum.
GIANFRANCO Zola, litli töframaðurinn í liði Chelsea, segir við
enska fjölmiðla að svo geti farið að hann endurskoði ákvörðun
sína að leggja knattspyrnuskóna á hilluna takist liðinu að
tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð. Samningur
Zola við Lundúnaliðið rennur út í sumar og allt fram að þessu
hefur Ítalinn sagt að þar með væru dagar hans á knattspyrnu-
vellinum taldir.
Zola íhugar að
halda áfram
Ummæli Shearers vöktu gríðarlega athygli íknattspyrnuheiminum en í gær sló framherj-
inn skæði á allan vafa í þessu sambandi. Shearer
sendi frá sér fréttatilkynningu og greindi þar frá
að dagar hans með enska landsliðinu væru taldir.
„Eftir að hafa íhugað málið vel og vandlega og
þá aðallega með eiginkonu minni, fjölskyldu og
nánum vinum hef ég komist að þeirri niðurstöðu
að ég óska ekki eftir því að verða valinn í enska
landsliðið. Ég þakka þeim fjölmörgum sem hafa
farið lofsamlegum orðum um mig og ég vill óska
landsliðinu góðs gengis í komandi verkefnum,“
sagði meðal annars í fréttatilkynningunni sem
Shearer sendi frá sér.
Shearer hætti með landsliðinu eftir Evrópu-
keppnina árið 2000 og vildi eftir það einbeita sér að
því að spila með Newcastle. Það hefur hann gert
með frábærum árangri og er enn einn hættuleg-
asti framherji ensku úrvalsdeildarinnar. Shearer,
sem er 32 ára gamall, hefur skoraði 24 mörk á leik-
tíðinni en í þeim 63 leikjum sem hann klæddist
ensku landsliðstreyjunni skoraði hann 30 mörk.
Sven Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Eng-
lendinga, hefur ekki farið dult með áhuga sinn á að
fá Shearer í lið sitt og fylgdist með honum skora
bæði mörkin gegn Inter í meistaradeild Evrópu í
síðustu viku. „Ég ber mikla virðingu fyrir Shearer
sem er frábær knattspyrnumaður. Ef hann mun
einhvern tíma gefa kost á sér á ný, mun ég skoða
þann möguleika gaumgæfilega,“ sagði Eriksson
við Sunday Times fyrir skömmu.
Alan Shearer
snýr ekki til baka
ALAN Shearer, fyrirliði Newcastle, sagði
eftir að hafa skorað gegn Charlton í úrvals-
deildinni á laugardaginn við blaðið Observ-
er: „Ég færi ekki rétt með ef ég segði að ég
saknaði ekki þess að leika fyrir Englands
hönd. Mér finnst að ég gæti enn staðið mig
vel í ensku landsliðstreyjunni, er reyndar
handviss um það,“ sagði Shearer.
Reuters
Alan Shearer, fyrirliði Newcastle og
fyrrverandi fyrirliði Englands, hefur
fagnað mörgum sigrum og mörkum
með Newcastle að undanförnu.