Morgunblaðið - 18.03.2003, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 47
MEIÐSL þau sem Arnar Grétars-
son varð fyrir í leik með Lokeren
sl. laugardag eru ekki alvarlegri
en svo að hann gat tekið þátt í æf-
ingu með liðinu í gær. Hann varð
að fara af leikvelli á 47. mínútu
viðureignar Lokeren og Gent í
belgísku 1. deildinni eftir að hafa
skorað tvö mörk. Arnar ætti þess
vegna að vera klár í slaginn þeg-
ar íslenska landsliðið kemur sam-
an í næstu viku vegna landsleiks-
ins við Skota sem fram fer á
Hampden Park um aðra helgi en
Arnar var á ný kallaður inn í
landsliðið, eftir nokkurt hlé, þeg-
ar það var valið undir lok síðustu
viku.
Arnar á ról
á nýjan leik
GUNNAR Berg Viktorsson skor-
aði eitt mark fyrir Paris þegar liðið
vann Ivry, 26:25, á útivelli í frönsku
1. deildinni í handknattleik í gær-
kvöldi. Paris er fjórða sæti í deild-
inni, 10 stigum á eftir Montpellier
sem trónir á toppnum.
ARNAR Grétarsson var valinn í
lið vikunnar í belgíska dagblaðinu
Het Nieuwsblad eftir leiki síðustu
helgar og var útnefndur maður leiks-
ins í sigri Lokeren á Gent, 5:1, sl.
laugardag.
ARNAR skoraði tvö mörk í leikn-
um en lék aðeins í 47. mínútur vegna
smávægilegra meiðsla. Hann fékk 4 í
einkunn hjá dagblaðinu, Rúnar
Kristinsson fékk 3, en Arnar Þór
Viðarsson og Marel Baldvinsson 2.
Het Laatste Nieuws fer mjög lof-
samlegum orðum um frammistöðu
Arnars í leiknum og segir hann hafa
verið hjartað í leik Lokeren að þessu
sinni.
VALERI Karpin gefur ekki kost á
sér í rússneska landsliðið í knatt-
spyrnu sem mætir Albaníu síðar í
þessum mánuði í undankeppni EM.
Karpin hefur leikið einkar vel með
Real Sociedad í vetur. Hann segist
alls ekki eiga von á að hann leiki oft-
ar með rússneska landsliðinu. Karp-
in er 34 ára gamall.
SVEN-Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englendinga í knattspyrnu,
segir ekkert hæft í þeim yfirlýsing-
um Sir Alex Fergusons, knatt-
spyrnustjóra Manchester United, á
dögunum að hann hafi verið búinn að
handsala samning þess efnis að taka
við Manchester-liðinu í fyrrasumar,
en þá stóð til að Ferguson hætti. „Ég
hef aldrei átt í samningaviðræðum
við félagslið á þeim tíma sem ég hef
stýrt enska landsliðinu,“ sagði Er-
iksson í gær. Orð Erikssons styðja
yfirlýsingar forráðamanna Man-
chester United um sama efni.
SVETLANA Feofanova, stangar-
stökkvari frá Rússlandi, fékk jafn-
virði nærri 4 millj. króna frá Alþjóða
frjálsíþróttasambandinu, IAAF, fyr-
ir að setja heimsmet á heimsmeist-
aramótinu í frjálsíþróttum í Birm-
ingham síðasta sunnudag. IAAF
hefur á nokkrum undanförnum
heimsmeistaramótum greitt fyrir
heimsmet sem sett eru á mótunum
en met Feofanovu í stangarstökki
kvenna, 4,80 metrar, var hið eina
sem sett var að þessu sinni.
SERGEI Bubka, heimsmethafi í
stangarstökki karla, afhenti Feof-
anovu gullverðlaunin í Birmingham
og um leið ávísun upp á 50.000
Bandaríkjadali.
BANDARÍKJAMENN unnu flest
verðlaun á heimsmeistaramótinu í
frjálsíþróttum, alls 17, þar af voru tíu
gullverðlaun. Rússar komu næstir
með 12 verðlaunapeninga. Frændur
vorir Svíar, unnu fern verðlaun, öll
úr gulli.
FÓLK
„VIÐ lögðum okkur fram í þessum
leik eins og í öllum þessum þrem-
ur leikjum svo að fyrrverandi fall-
kandídatar gerðu deildarmeist-
urunum virkilega erfitt fyrir,“
sagði Pétur Ingvarsson þjálfari og
leikmaður Hamars eftir leikinn í
Grindavík í gærkvöldi. „Ef við lít-
um í heild á þessa þrjá leiki má sjá
að Grindvíkingar þurftu virkilega
að hafa fyrir sigrinum og voru ef-
laust á einhverjum tímapunkti
orðnir hræddir. Meira getur lið
sem var lengi við fall varla gert.
Við ætluðum að stöðva þá í vörn-
inni en taka okkar tíma í sóknina
og velja góð skotfæri, okkar áætl-
anir voru ekki flóknari en það.
Helsta vopn Grindvíkinga var því
að halda uppi hraða gegn liði sem
reynir að hægja á leiknum og
þeim tókst að stjórna hraðanum
góðan hluta af leiknum. Á meðan
hraðinn er svona mikill erum við
frekar líklegir til að tapa. Þegar
þeir ná síðan góðu forskoti kemur
í okkar hlut að elta og það hleypir
upp hraðanum, sem hentar þeim
mun betur og þeir kunna til hlít-
ar,“ bætti Pétur við. Hann var
ánægður með lokasprett sinna
manna á mótinu en ekki í heildina.
„Við fórum í þessa keppni án þess
að eiga innstæðu fyrir henni og
það var því engin pressa á okkur.
Ég get verið sáttur við síðasta
hlutann í mótinu og alveg fyrst en
í heildina var veturinn frekar köfl-
óttur. Við fórum svo sem í fjög-
urra liða úrslit í bikar og velgdum
deildarmeisturunum verulega
undir uggum í úrslitakeppninni
svo að þegar farið verður að skoða
úrslit eftir tíu ár – ef einhver gerir
það – þá man enginn eftir vetr-
inum í heild. Við hljótum að hafa
lært eitthvað í vetur. Hamar hefur
verið fjögur ár í úrvalsdeildinni og
jafnmörg ár í úrslitakeppninni en
núna er eflaust ákveðið skref að
vinna aftur leik í úrslitakeppninni
á móti erfiðum mótherja. Næsta
skref hlýtur að vera að komast í
næstu umferð.“
Það var vel mætt í Röstina í gær-kveldi og Hvergerðingar sem
heimamenn létu vel í sér heyra. Það
mátti þó öllum ljóst
vera sem voru á
leiknum að heima-
menn ætluðu að
vinna þennan leik og
voru gríðarlega einbeittir í öllum sín-
um aðgerðum frá fyrstu sekúndu.
Eftir fjórar mínútur var staðan orðin
18:7 og heimamenn líklegir til að kaf-
færa gestina. Gestirnir náðu þó að
vinna sig inn í leikinn en voru press-
aðir hátt á vellinum frá fyrstu mín-
útu og lengstum í leiknum. Þá vakti
það athygli að við hverja körfu
Grindvíkinga voru mikil fagnaðar-
læti á bekk heimamanna sem spiluðu
þennan leik út í gegn af mikilli ein-
beitingu til síðustu mínútu. Fjörug-
um fyrsta leikhluta lauk þannig að
heimamenn voru með forustu 31:20.
Svipaður munur var allan annan
leikhluta og Hamarsmenn áttu ekki í
teljandi vandræðum með að halda í
við heimamenn þannig að þeir
misstu þá ekki langt frá sér. Í hálf-
leik var staðan 55:43 og svipuð staða
og í síðasta leik þegar þessi tvö lið
mættust í Röstinni á fimmtudags-
kvöld. Nú voru það heimamenn sem
bættu í og sigu enn meira fram úr en
í síðasta leik syðra þegar gestirnir
náðu að jafna í þriðja leikhluta. Áður
en varði var staðan orðin 70:50 og
ljóst að heimamenn voru að vinna
leikinn. Hamarsmenn neituðu að
gefast upp og héldu áfram að berj-
ast, enda dyggilega studdir af áhorf-
endum sínum sem fylgdu þeim, en
máttu þola það að missa tvo leik-
menn útaf með fimm villur fyrir
miðjan síðasta leikhluta. Smátt og
smátt var ljóst hvernig leikurinn
myndi enda því heimamenn spiluðu
leikinn til enda af krafti og einbeit-
ingu sem aldrei fyrr og lönduðu
öruggum sigri, 97:73.
Bestur í liði gestanna var Marvin
Valdimarsson en aðrir náðu ekki að
skara framúr. Hjá heimamönnum
var liðsheildin sterk og nú stigu
menn fram í Grindavíkurliðinu en
liðsheildin var gríðarlega sterk.
Helgi Jónas Guðfinnsson, Páll Axel
Vilbergsson og Guðmundur Braga-
son áttu allir mjög góðan leik í ann-
ars jafngóðu liði heimamanna. Dar-
rel Lewis var á rólegu nótunum
þetta kvöldið og gerði 11 af sínum
nítján stigum í síðasta leikhlutanum
en spilaði félaga sína oft vel uppi.
Morgunblaðið/Golli
Darrel Lewis fagnar sigri Grindvíkinga á Hamri með ungum stuðningsmanni eftir leikinn í gærkvöldi.
Grindvíkingar
tóku strax völdin
ÞRIÐJI leikur Hamars og Grindvíkinga í átta liða úrslitum úrvals-
deildar karla í körfuknattleik í Grindavík í gærkvöldi varð aldrei að
neinum spennuleik. Heimamenn náðu snemma forustu og sigruðu
sannfærandi 97:73, eftir að hafa verið 12 stigum yfir í hálfleik,
55:43. Grindvíkingar eru þar með komnir í undanúrslitin ásamt
Njarðvík en í kvöld fæst úr því skorið hvaða tvö lið til viðbótar leika í
undanúrslitum, þá mætast Keflavík og ÍR annars vegar og Haukar
og Tindastóll hins vegar í oddaleikjum í Keflavík og í Hafnarfirði.
Garðar Páll
Vignisson
skrifar
Velgdu þeim undir uggum