Morgunblaðið - 18.03.2003, Síða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.
Skemmtilegasta rómantíska
gamanmyndin síðan
Pretty Woman!
Rómantík,
grín og góð
tónlist í
frábærri
mynd!
Sýnd kl. 5.45Sýnd kl. 10. B. i. 16Sýnd kl. 7. B.i. 16.
HJ MBL
Miðasala opnar kl. 15.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
SV. MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com13
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m.
besta mynd
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i 12.
Sýnd kl. 8. B.i. 16. Sýnd kl. 3.45 og 5.50. Sýnd kl. 4. B.i.12
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20. B.i. 16Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20.
kl. 8 og 10.20
Einnig sýnd í LÚXUSSAL kl. 4. B. i. 12.
Skemmtilegasta rómantíska
gamanmyndin síðan
Pretty Woman!
Rómantík,
grín og góð
tónlist í
frábærri
mynd!
HJ MBL
ARTIMUS Pyle er sjálfsþurft-
arrokksveit frá San Francisco
skipuð þremur strákum sem eiga
ekki bót fyrir brók. Hins vegar lifa
þeir fyrir tónlistina, eitthvað sem
rekur þá í ferðalög um heimsins
höf til að breiða út fagnaðarerind-
ið. Hingaðkomnir léku þeir á
tvennum tónleikum og segir hér
frá þeim fyrri.
Þetta var ekki kvöld Snafu. Sig-
urður söngvari raddlaus og hljóm-
ur til vansa. Sigurður gaf sig þó
allan og fær hann algjöra „virð-
ingu“ fyrir það. En settið fór
svona fyrir ofan garð og neðan, að-
allega vegna hljóms. Inn á milli
mátti glitta í fullt af hugmyndum;
Snafu eru að pæla og tveir hlutir
eru þeirra: flókið taktskipt rokk, á
stundum sinfónískt – alltént hvað
lengd varðar og „grúvið“ er oft
fantagott. En illu heilli heyrðist
þetta báglega þetta kvöldið. Geng-
ur betur næst.
I Adapt er mesta stemningssveit
Harðkjarnans. Og þótt ótrúlegt
megi virðast sú eina sinnar teg-
undar hér á landi. Sveitin spilar sí-
gilt, melódískt harðkjarnarokk af
gamla skólanum og tónleikar
þeirra koma róti á skanka fólks og
hugsanir. Það geislar ávallt af
söngvaranum Birki sem, eins og
bandið allt reyndar, leggur sig
ávallt 110% fram. Fólk syngur
með í viðlögum og slík var stemn-
ingin að sveitin átti hreinlega erf-
itt með að hætta. Nýr trommuleik-
ari, Elli (sem leikur og með
mulningsrokkurunum í Molesting
Mr. Bob) barði sig þá inn með
glans. Fín frammistaða hjá I
Adapt.
Vá. Artimus Pyle stóðu sann-
arlega undir væntingum sem há-
vær – og hreinlega brjáluð – rokk-
hljómsveit. Rokk með risastóru
R-i, risastóru O-i, risastóru K-I, já
og öðru, risastóru K-I. Ég hafði
forðast það vísvitandi að nálgast
tóndæmi með sveitinni fyrir tón-
leikana í þeirri von að hárin
myndu rísa af furðu við fyrsta tón.
Svo varð og raunin því Artimus
umbreyttust í tónlistarleg drápstól
strax í fyrsta lagi. Algjör sprengja.
Skemmtilegt líka hversu erfitt er
að negla bandið niður stíllega, en
nálgun þess við hart rokk er um
margt fersk og nýstárleg. Farið
var úr hefðbundnu mulningsrokki
(„grindcore“) yfir í Black Sabbath-
legt sorarokk („sludge“) og svo
aftur í „einn, tveir, þrír“ harð-
kjarnastuð. Hljómurinn var rosa-
legur, bandið þétt og rokksködd-
unin væn og góð. Allt í allt fínasta
eyrnabomba.
Tónlist
Bomba í
Breið-
holtinu
Hljómleikar
Undirheimar FB
Artimus Pyle og fleiri
Tónleikar bandarísku rokksveitarinnar
Artimus Pyle. Einnig léku I Adapt og
Snafu. Föstudagurinn 14. mars, 2003.
Arnar Eggert Thoroddsen
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rokk var það heillin! Artimus Pyle lét verkin tala.
SÝNING Diddu Leaman og Ingu Þóreyjar Jó-
hannsdóttur var opnuð í Gallerí Skugga við
Hverfisgötu um helgina. Þar mátti sjá nýja
sýn á borgarkort af London og dýnur í óhefð-
bundnu formi.
„Í verkum sínum fjalla þær um samband
hugtakanna yfirborð og umhverfi. Rúmdýnur/
týpógrafía og borgarskipulag eru hluti inn-
setningar listamannanna sem vísar til hins lík-
amlega og andlega; hugrenningatengsla sem
kvikna við sjónræna upplifun og samspil texta
og mynda,“ segir í tilkynningu.
Niðri mátti síðan hlusta á upptöku úr neð-
anjarðarlest í London, loka augunum og fara í
ferðalag milli Kings Cross og Knights Bridge.
Opnun í Galleríi Skugga
Listakonurnar Didda Leaman og Inga Þórey Jóhannsdóttir
opnuðu sýningu í Galleríi Skugga um helgina.
Ferðast í neðanjarðarlest
Sýning Diddu og Ingu Þóreyjar stendur til 30. mars.
Gallerí Skuggi er opið alla daga nema mánudaga kl.
13–17. Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MARGT var um manninn á sýningu
fagfólks í hárgreiðslu og förðun,
Tískunni 2003, sem haldin var á
Broadway á dögunum.
Keppt var í eftirtöldum flokkum:
Frístælkeppni, tískulínukeppni,
litakeppni, fantasíuförðun, leik-
húsförðun, ljósmyndaförðun, tísku-
og samkvæmisförðun, dagförðun,
ásetningu gervinagla, fant-
asíunöglum, kvöld- og samkvæm-
isklæðnaði, tískuráðgjöf, tísku-
skartgripum og frjálsum stíl.
Slagorð keppninnar var að þessu
sinni: „Sýnum samúð og sanngirni í
mannlegum samskiptum og þjóða á
milli.“
Tískan 2003 á Broadway
Keppt í
förðun og
hárgreiðslu
Keppt var í ýmsum flokk-
um förðunar, m.a. fant-
asíu- og leikhúsförðun.
Meðal annars var keppt í ásetningu gervinagla og fantasíunöglum. Holdgervingur frelsisstyttunnar á Íslandi?
Morgunblaðið/Gollialltaf á föstudögum