Morgunblaðið - 18.03.2003, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 51
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
þ. á. m. besta mynd og aðalhlutverk kvenna
Nicole Kidman
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
SV MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
13
Tilnefningar
til Óskars-
verðlauna
þ. á. m.
besta mynd
kvikmyndir.com
Tilnefningar til
Óskarsverðlauna6
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 12.
9
Sýnd kl. 5.30. B.i. 12
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i 12
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i 12
HJ MBL HK DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16.
„Ein besta mynd ársins“Fréttablaðið
Kvikmyndir.com
SG DV
Frá leikstjóra
Boogie Nights.
HOURS
HL MBL
www.laugarasbio.is
Frábær mynd frá leikstjóranum Martin Scorsese
HJ MBL
Sýnd kl. 5 og 8. B.i. 16 ára.
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Tilnefningar til Óskarsverðlauna:
Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson.
Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
Eingöngu sýnd um helgar
GAMAN er að vera krakki á mynd-
bandaleigunum þessa vikuna því út
koma þrjár myndir fyrir yngstu kyn-
slóðina. Um er að ræða barna- og
fjölskyldumyndirnar Lilo og Stitch,
Sleðahunda (Snow Dogs) og Múm-
ínálfana – Sumar í Múmíndal. Þetta
er fjórða myndin um Múmínálfana
sívinsælu en Múmínálfarnir og Lilo
og Stitch eru báðar teiknimyndir og
hefur sú síðarnefnda notið mikilla
vinsælda.
Þess má geta að Lilo og Stitch er
tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár sem
besta teiknimyndin og er gefin út
hér á landi bæði með íslensku og
ensku tali á myndbandi og mynd-
diski. Myndin fjallar um Lilo, sem er
fimm ára stúlka frá Hawaii, og hund-
inn hennar Stitch en saman lenda
þau í ótrúlegum ævintýrum. Það
ætti ekki að koma á óvart í ljósi þess
að Stitch er í raun ekki hundur og er
á flótta undan óvinum sínum í geimn-
um.
Sleðahundarnir er kvikmynd frá
Walt Disney líkt og Lilo og Stitch.
Átta sleðahundar eru stjörnur
myndarinnar og fara á kostum en í
mannlegu deildinni fara Cuba Good-
ing jr. og James Coburn með helstu
hlutverk.
Svo má ekki gleyma að hinn 20.
mars hefst útgáfa á níundu þáttaröð-
inni af einum vinsælasta gamanþætti
síðustu ára, Vinum (Friends). Um er
að ræða þrjár spólur og inniheldur
hver spóla fjóra þætti.
Af vinsældalista síðustu viku er
það helst að segja að spennumyndin
Táknin (Signs) í leikstjórn M. Night
Shyamalan með Mel Gibson í aðal-
hlutverki fór beint á toppinn. Úrvalið
var þó nóg fyrir þá sem hafa ekki
taugarnar til að horfa á yfirnáttúru-
lega atburði því Winona Ryder og
Adam Sandler grínast saman í Hr.
Deeds (Mr. Deeds), sem er ný á lista
í fjórða sæti.
Mikið úrval fyrir krakka á myndbandaleigunum
Af hundum og álfum
!"!#$
!"!#$ %
%
!"!#$
!"!#$
!"!#$ %
&
!
!"!#$
!"!#$ %
!"!#$ &
!
&
!
%
&
!
%
%
!"!#$ '
'
'
(
!
(
!
'
(
!
'
'
(
!
'
(
!
(
!
'
'
)
!
(
!
'
'
(
!
!
" # $ % &
!
'
!$
( )' * +
,
-$$
&
%'
Litla stúlkan Lilo og hundurinn
hennar Stitch lenda í mörgum æv-
intýrum í myndinni Lilo og Stitch
sem kom út á spólu og mynddiski á
mánudag.
Sakleysi
(Innocence)
Drama
Ástralía 2001. Myndform. VHS (94 mín.)
Öllum leyfð. Leikstjóri: Paul Cox. Aðal-
leikendur: Julia Blake, Charles Tingwell,
Terry Norris, Robert Menzes.
MYNDIR um eldri borgara eru
ótrúlega fágætar, ástæðan liggur í
augum uppi er við förum í bíó: Þar
er meðalaldurinn vel innan við tví-
tugt. Engu að síður eru gerðar af-
bragðsmyndir
annað slagið um
roskið fólk, vanda-
mál þess, um-
hverfi og lífsvið-
horf. Er skemmst
að minnast hinnar
framúrskarandi
Varðandi Schmidt,
sem enn gengur í
kvikmyndahúsum
borgarinnar.
Sú ástralska Sakleysi kemur
þægilega á óvart. Þar er einnig
fjallað um fullorðnar manneskjur á
mannlegan og ekki síst skilnings-
ríkan hátt. Claire (Blake) og Andr-
eas (Tingwell), eru bæði á sjötugs-
aldri.
Í æsku voru þau ástfangin og
hamingjusöm um hríð en örlögin
höguðu því svo að leiðir skildi. Ár-
in líða, þau búa á ný skammt hvort
frá öðru, hann orðinn ekkill, hún í
ástlausu hjónabandi.
Einn góðan veðurdag herðir
Andreas upp hugann og skrifar
æskuástinni sinni og framhaldið er
ljúf og falleg ástarsaga í anda mál-
tækisins að „fornar ástir fyrnist
ei“. Allar sögupersónurnar eru
meðhöndlaðar af virðingu og næm-
um skilningi á viðfangsefninu sem
er allt annað en auðvelt viðfangs.
„Við eigum ekki að rústa líf okkar
á gamals aldri,“ segir Claire. Með
tímanum finnur hún allt aðra
meiningu í þeim orðum en í upp-
hafi. Sakleysi er fyrst og fremst
fyrir fólk sem er farið að velta fyr-
ir sér lífsgátunni miklu en höfðar í
raunsæi sínu og vitrænni umfjöll-
un á mannlífsins flókna eðli til
allra aldurshópa. Leikin, skrifuð
og gerð langt yfir meðallagi.
Sæbjörn Valdimarsson
Myndbönd
Aldrei of
seint
fyrir ást
Rakarinn /
The Barber Frumleg og ófyrirsjáanleg um blóð-
þyrstan rakara sem villir á sér heim-
ildir í fámennu þorpi. McDowell
stendur sig frábærlega í hlutverki
rakarans. Mynd sem kemur á óvart.
(H.J.)
Krókódílamaðurinn / Crocodile
Hunter Bráðskemmtileg en umfram allt
fróðleg dýragrínmynd fyrir alla fjöl-
skylduna. Þær eru ekki á hverju
strái. (S.G.)
Pinero Ógeðfellt en áhrifaríkt verk um
árásargjarnan snilling sem á sér
ekki viðreisnar von. Pinero er það
meistaralega leikinn af Bratt að
túlkunin ein er þess virði að leigja
myndina. (S.V.)
Baran Þroskasaga frá Íran er harla óvenju-
legt efni á myndbandamarkaðnum
og vel þegið.
Forvitnileg og framandi, tækifæri til
að virða fyrir sér framandi mynd.
(S.V.)
Varðliðar Texasríkis / Texas
Rangers Lítur prýðilega út en atburðarásina
skortir kjöt á beinið. Úr verður for-
vitnilegur leikhópur og ætti útkom-
an að hugnast velflestum vestraunn-
endum. (S.V.)
Himinn og jörð að farast / Sky is
Falling Ein af þessum litlu myndum sem
leyna á sér, byrja e.t.v. ekki of vel,
en luma á fínum persónum og
óvenjulegri atburðarás. Bráðs-
kondin mynd á köflum, sem þó skil-
ur mátulega lítið eftir sig. (H.J.)
Græni drekinn / Green Dragon
Lágstemmd og vel gerð mynd um
hlið á Víetnamstríðinu sem ekki hef-
ur verið ofarlega á baugi í þeim fjöl-
mörgu myndum sem gerðar hafa
verið um þennan afdrifaríka viðburð
í sögunni.
Sjónum er beint að þeim þúsundum
Víetnama sem flúðu heimaland sitt
og hlutu hæli í Bandaríkjunum.
(H.J.)
Maðurinn frá Elysian Fields / The
Man from Elysian Fields Tilfinningaflækja miðaldra karl-
manns, sem neyðist til að horfast í
augu við að hafa ekki upp á annað að
bjóða en líkama sinn, er sannfær-
andi, einkum vegna frábærrar
frammistöðu Andy Garcia og Micks
Jaggers. (S.G.)
Fágætir fuglar / Rare Birds Ljúf og áreynslulítil dægurfluga eft-
ir Vestur-Íslendinginn Sturlu Gunn-
arsson, kannski bara helst til
áreynslulítil. (S.G.)
Fyrstu hjólabrettakapparnir /
Dogtown and Z-Boys Stórfróðleg mynd um uppruna
hjólabrettaiðkunar og lífsstílsins í
kringum hana. Í senn fyrir áhuga-
menn og þá sem hvorki þekkja haus
né sporð á fyrirbrigðinu. (S.G.)
Níu drottningar / Nueve reinas
/Nine Queens Spennandi, argentínsk glæpamynd,
sannkallað hnossgæti öllum þeim
sem hafa gaman af vel gerðum og
óvenjulegum myndum. (S.V.)
Handan sólar / Abril Despeda-
çado/ Behind the Sun Þessi hæggenga en einkar ljóðræna
mynd tekur verulega á áhorfandann,
er glæsilega úr garði gerð, kröftug,
sjóðheit og ögrandi. Alls ekki auð-
veld á að horfa en afskaplega gef-
andi. (S.G.)
Lítil leyndarmál / Little Secrets
Fínasta fjölskyldumynd, bæði upp-
byggjandi og skemmtileg, sem hefur
að geyma þann boðskap að leynd-
armál leiði sjaldan gott af sér.(S.G.)
Bagdad í beinni / Live from
Baghdad Trúverðug og óvenju fagmannleg
mynd sem gerist í Persaflóastríðinu
1990 og fjallar um álagið á frétta-
mönnum sem voru í borginni. Góður
leikur gerir og myndina með eftir-
minnilegri myndum af þessum toga.
(S.V.)
Hringurinn / Ringu Japanska frumútgáfan af Hringnum
er einfaldlega frábær hrollvekja.
Leigðu hana – ef þú þorir! (S.G.)
Sólskinsríkið / Sunshine State
John Sayles er með vandaðri kvik-
myndagerðarmönnum sem um get-
ur í dag og það sýnir hann með þess-
ari síðustu mynd sinni. Ekkert
meistaraverk en samt betra en flest
annað á leigunni í dag. (S.G.)
GÓÐ MYNDBÖND
Heiða Jóhannsdóttir/Skarphéðinn
Guðmundsson/Sæbjörn Valdimarsson
Meistaraverk Ómissandi Miðjumoð Tímasóun 0 Botninn
Ringu er einfaldlega frábær hroll-
vekja.