Morgunblaðið - 20.03.2003, Side 1
STOFNAB 1913 I 77. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 PRENTSMIÐJAÁRVAKURSHF. I mbl.is
íraksdeilan: Mikil hætta sogð á að írakar beiti
efnavopnum # rrÞeir munusprengja allt í t æ t l u r " ^
J-.i_^^iáaU|;-'*- -ji~-"- '"" "̂ *W ■*■•_,-*-* **:-íí'?i«- -z.
_!_•*__ __!___
Stríð hafið í Irak
George Bush ávarpaði þjóðina kl. 3.15 í nótt
Ráðist á skotmörk í Bagdad með stýriflaugum
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti
skýrði frá því klukkan 3.15 að íslenskum
tíma í nótt að aðgerðir bandamanna væru
hafnar í írak. „Á þessari stundu hófu
sveitir Bandaríkjanna og bandamanna
okkar hernaðaraðgerðir til að afvopna
Irak, frelsa íbúa þess og verja heiminn
fyrir alvarlegri hættu. Að minni skipan
hafa sveitir bandamanna hafið árásir á
valin skotmörk sem eru hernaðarlega
mikilvæg, til að draga úr getu Saddams
Husseins til að heyja stríð," sagði Bush.
Hálftíma áður hafði talsmaður forset-
ans, Ari Fleischer, greint frá því að Bush
myndi ávarpa þjóðina með orðunum: „ Af-
vopnun íraks er hafin." Þar með varð
h'óst að stríð er hafið í Irak.
Um klukkan hálf þrjú að íslenskum
tíma í nótt tóku loftvarnarflautur að
hbóma í Bagdad, höfuðborg íraks. Hleypt
var af loftvarnarbyssum upp í loftið.
Fréttamenn á staðnum sögðust ekki
greina hvort þotur væru yfir borginni eða
eldflaugum skotið að henni.
Skömmu síðar skýrði talsmaður forset-
ans frá því að aðgerðir væru hafnar. Ekki
var ljóst hvert umfang aðgerðanna var
þegar seinni prentun Morgunblaðsins
hófst í nótt en CNN-sjónvarpsstöðin hafði
eftir heimildum innan bandaríska herafl-
ans að stýriflaugum hefði verið skotið á
Bagdad og beint að leiðtogum ríkisins.
Fyrr i gærkvöldi var frá því greint að
Ibúar
Bagdad
UM þrjú hundruð þúsund banda-
rísMr og breskir hermenn biðu í
nótt gráir fyrir járnum við landa-
mæri íraks, reiðubúnir að láta til
skarar skríða. „Ég tel að andstæð-
ingur okkar hafi enga hugmynd um
hvað bíður hans," sagði Gary Crow-
der, yfirherfræðingur bandaríska
flughersins, seint í gær.
Heitir að yfirgefa
ekki land sitt
Fresturinn sem Bandaríkjafor-
seti hafði gefið Saddam Hussein
íraksforseta og sonum hans til að
hverfa í útlegð rann út klukkan eitt
að íslenskum tíma í nótt. Engin
merki voru þá um að forseti íraks
hefði farið að kröfu Bush. Saddam
hefur heitið því að hann muni ekki
yfirgefa land sitt og Tariq Aziz, að-
stoðarforsætisráðherra íraks, sagði
á fréttamannafundi að ekki kæmi til
greina að verða við kröfum Bush.
„Við erum reiðubúin til að berjast,
tilbúin til að takast á við árásarað-
ilann og erum fullviss um sigur,"
sagði hann. Aziz hafði boðað blaða-
mannafundinn til að bera til baka
orðróm, sem fór á sveim í gær, um
að hann hefði flúið land.
Margir írakar flúðu Bagdad í
gær, af ótta við yfirvofandi
sprengjuárásir á borgina. Aðrir
voru í óða önn að birgja sig upp af
nauðsynjavörum og hugðust koma
sér fyrir á öruggum stað áður en
hernaðaraðgerðir bandamanna
hæfust. Þegar skyggja tók minnti
Bagdad helst á draugaborg, að sögn
fréttamanna Associated Press, því
hvarvetna höfðu menn lokað öllum
gluggahlerum, viðbúnir hinu
versta. Víða gat að líta vopnaða liðs-
menn öryggissveita stjórnvalda og
báru sumir Kalashnikov-riffia en
aðrir báru sprengjuvörpur og enn
aðrir hríðskotabyssur.
Sigur eina niðurstaðan
„I þessum aðgerðum verða engin vettlingatök,"
sagði George Bush Bandaríkjaforseti þegar hann
ávarpaði bandarísku þjóðina f beinni útsendingu úr
Hvfta húsinu klukkan 3.15 í nótt. „Eina niðurstaðan
er sigur." Á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC
var greint frá því að heyrst hefði í loftvarnarbyssum
í Bagdad og sprengjugnýr heyrst í útjaðri borg-
arinnar í dögun. Myndin er tekin af útsendingu CNN.
Hlerað í höfuðstöðvum ESB
Brussel. AFP.
ÖRYGGISÞJÓNUSTUMENN í
höfuðstöðvum Evrópusambandsins
greindu frá því í gær, að ólöglegur
símahlerunarbúnaður hefði fundizt
í herbergjum nokkurra sendinefnda
í aðalbyggingu ráðherraráðs sam-
bandsins í Brussel, þ.á m. Frakk-
lands og Þýzkalands. Sérboðaður
leiðtogafundur ESB fer fram í
byggingunni í dag og á morgun, þar
sem íraksmálið verður efst á baugi.
í franska blaðinu Le Figaro var
fullyrt að Bandaríkjamenn stæðu
að baki þessum hlerunartilraunum,
en háttsettir embættismenn í
Brussel sögðu ekkert hafa komið
fram sem gæfi ástæðu til að fullyrða
neitt um það.
„Ég neita því að við höfum fundið
út úr því hver sé ábyrgur fyrir
þessu, hvort það voru Bandaríkja-
menn, Rússar, Kínverjar, eða ein-
hverjir aðrir. Við höfum sett rann-
sókn í gang," hafði AFP eftir
ónafngreindum embættismanni
ráðherraráðsins. „Rannsóknin
stendur enn yfir en svo virðist sem
býsna fagmannlega hafi verið að
verki staðið," sagði hann.
Talsmaður brezku sendinefndar-
innar hjá ráðherraráðinu greindi
frá því að hlerunarbúnaðurinn hefði
einnig beinzt að símum hennar.
Staðfesti hann að búnaðurinn sem
fannst hefði beinzt að símum alls
um „hálfrar tylftar" sendinefnda.
Áður höfðu embættismenn staðfest
að símar frönsku og þýzku sendi-
nefndanna hefðu verið hleraðir.
breskar og bandarískar flugvélar
hefðu gert loftárásir á nokkrar stöðv-
ar Iraka í suður- og vesturhluta lands-
ins. Ráðist hefði verið á stórskotalið,
loftvarnarstöðvar og eldflaugakerfi.
Þessi vopnakerfi voru sögð dgna inn-
rásarliði bandamanna sem bíður
handan landamæranna í Kúveit.
Bush sagði 35 ríki hafa veitt „afger-
andi stuðning" t.d. með því að leyfa af-
not af herflugvöllum og flotahöfnum.
Frakkar
æfírút
í Breta
Osáttir við ummæli
sem fellu í umræðum
á breska þinginu
París. AFP.
FRAKKAR fóru í gær hörðum orðum um
ráðamenn í Bretlandi, sem undanfarna
daga hafa gagnrýnt afstöðu franskra
stjórnvalda í Iraksmál-
inu harkalega. Sögðust
ráðamenn í París vera
„leiðir og í miklu upp-
námi" vegna ummæla
ráðherra i bresku rikis-
stjórninni, en Bretar
kenna Frökkum um að
ekki náðist samstaða í
öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna um nýja álykt-
un í málinu.
Dominique de Villep-
in, utanríkisráðherra Frakklands, hringdi í
starfsbróður sinn, Jack Straw, í gær til að
lýsa óánægju með ummæli í umræðum í
breska þinginu í fyrradag. Sagði Tony Blair
forsætisráðherra þar að honum hefði þótt
„sorglegt" að fylgjast með Jacques Chirac
Frakklandsforseta hóta að beita neitunar-
valdi í öryggisráðinu hvað sem tautaði og
raulaði. Sagði Blair að hörð afstaða Frakka
hefði lamað SÞ og gert það að verkum að
diplómatískar lausnir á málinu reyndust
ekki mögulegar. Virtist Blair gefa í skyn að
hefðu Frakkar ekki hagað sér með þessum
hætti hefði mátt komast hjá stríði.
Chirac og Blair hittast í dag
Franskir embættismenn sögðu ummæli
Blairs og annarra ráðherra, sem tóku til
máls í breska þinginu, ekki ýkja vinsamleg
um vinaþjóð og samstarfsríki á vettvangi
Evrópumála. Er lfklegt að þessi deila
Frakka og Breta muni setja svip á fund Chi-
racs og Blairs í dag, en þeir hittast þá á leið-
togafundi Evrópusambandsins í Brussel.
Ðominique
de Villepin