Morgunblaðið - 20.03.2003, Page 3
SAMFYLKINGIN og Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð hafa
óskað eftir því að sérstakur fundur
verði haldinn án tafar í utanríkis-
málanefnd Alþingis vegna stuðn-
ings Íslendinga við fyrirhugaðar
aðgerðir Bandaríkjamanna og
Breta í Írak og segja að þingsköp
hafi verið brotin þar sem nefndin
hafi ekki verið kölluð saman. Slíkt
eigi að gera þegar um meiriháttar
utanríkismál er að ræða.
Sigríður Anna Þórðardóttir, for-
maður utanríkismálanefndar, seg-
ir að fundur verði væntanlega
haldinn í nefndinni í þessari viku.
Hún segir að engin stefnubreyting
hafi orðið í utanríkismálastefnu
ríkisstjórnarinnar og því sé af og
frá að þingsköp hafi verið brotin.
Í bréfum sem Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylkingar-
innar, og Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, hafa hvor um sig
sent Sigríði Önnu segir að þrátt
fyrir skýr fyrirmæli í þingsköpum
um samráð við utanríkismálanefnd
um meiriháttar utanríkismál,
hvort sem er á þingtíma eða í þing-
hléum, hafi ekkert slíkt samráð átt
sér stað í málinu.
Steingrímur segir í bréfi sínu að
niðurlæging utanríkismálanefndar
og Alþingis fullkomnist í því að
fréttir af stuðningi Íslands verði
opinberar þegar Bandaríkjastjórn
birti lista yfir þau lönd sem fylgi
þeim að málum. Halldór Ásgríms-
son utanríkisráðherra hafi upplýst
að samráð hafi verið haft við
bandaríska sendiherrann á Ís-
landi. „Með öðrum orðum afstaða
Íslands er mótuð með bandaríska
sendiherranum en lögskipað sam-
ráð við utanríkismálanefnd er
hundsað,“ segir Steingrímur í bréfi
sínu.
Sigríður Anna vísar því algjör-
lega á bug að þingsköp hafi verið
brotin eða óeðlilega hafi verið að
málinu staðið. „Það er engin
stefnubreyting af hálfu íslenskra
stjórnvalda hvað þessi mál varðar.
Við erum fyrst og fremst að fylgja
eftir ályktunum Sameinuðu þjóð-
anna og við höfum alltaf gert það.
Það náðist hins vegar ekki sam-
staða um nýja ályktun innan Sam-
einuðu þjóðanna.“
Sigríður Anna segist ekki telja
að það hefði átt að kalla nefndina
saman þar sem ágreiningur sé um
hvort ályktanir Sameinuðu þjóð-
anna, sem fyrir liggja, nægi sem
lagaleg stoð fyrir stríði. Það hafi
margsinnis verið farið yfir þessi
mál í utanríkismálanefnd. „Mér
finnst að það hafi verið staðið mjög
eðlilega að málum gagnvart nefnd-
inni. Ég vísa því algjörlega á bug
að það hafi verið brotin einhver lög
og þingsköp hvað þetta mál snert-
ir. Það eru ekki nema rúmlega
tvær vikur síðan [utanríkis]ráð-
herrann var hjá okkur síðast að
ræða þessi mál og farið var mjög
vandlega yfir þau,“ segir Sigríður
Anna.
Segja þingsköp brotin
Eðlilega að mál-
um staðið, segir
formaður utan-
ríkismálanefndar
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
18 HERMENN GÁFUST UPP
Um 300.000 bandarískir og bresk-
ir hermenn biðu átekta í gær eftir
fyrirskipun frá George W. Bush um
að hefja innrás í Írak. Talsmenn
Bandaríkjahers sögðu að 18 íraskir
hermenn hefðu þegar gefist upp við
landamæri Íraks og Kúveit í gær-
kvöldi. Stærsti hluti bandaríska
hersins er í Kúveit.
Mannbjörg er trilla sökk
Mannbjörg varð í gær þegar trilla
sökk um eina sjómílu frá landi út af
Snæfellsnesi. Áhöfn grænlensk-
íslenska loðnuskipsins Siku bjargaði
tveimur mönnum þegar trillan fyllt-
ist af sjó á svipstundu og sökk.
Mennirnir voru á leið til Reykjavík-
ur þar sem búið var að selja trilluna.
Margir Írakar flúðu
Fjölmargir Írakar flúðu höfuð-
borgina Bagdad í gær af ótta við yf-
irvofandi stríð. Aðrir birgðu sig upp
af nauðsynjavörum og komu sér fyr-
ir á öruggum stað áður en sprengju-
árásir hæfust.
Há skattleysismörk
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
sagði í gær að skattleysismörk væru
óvíða hærri en á Íslandi. Hann sagði
skattleysismörk á Íslandi mun hærri
en á hinum Norðurlöndunum, Bret-
landi og flestum Evrópulöndum.
Aukið húsnæði lykilatriði
ASÍ kynnti ítarlegar tillögur í vel-
ferðarmálum á ráðstefnu í gær. Þor-
björn Guðmundsson, formaður
nefndar á vegum ASÍ, sagði aukið
framboð á félagslegu húsnæði lykil-
atriði í að hjálpa fátækum á Íslandi.
Markmið væri að eyða biðlistum eft-
ir húsnæði á þremur árum.
Listakosning hjá SPRON
Krafa um hlutbundna kosningu,
það er að segja listakosningu, barst
stjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis í gær. Þetta mun vera í
fyrsta skiptið í rúmlega 70 ára sögu
sparisjóðsins sem þetta gerist.
Saddam bauðst skjól
Hamad, konungur Bahrein,
bauðst til að veita Saddam Hussein
öruggt skjól svo hægt væri að koma
í veg fyrir hernaðarátök í gær. Sadd-
am hefur hins vegar heitið því fyrir
löngu að hann muni ekki yfirgefa
land sitt.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 34/36
Erlent 16/21 Minningar 37/41
Höfuðborgin 22 Skák 45
Akureyri 21/23 Bréf 48/45
Suðurnes 24 Kirkjustarf 45
Landið 25 Dagbók 46/47
Neytendur 26 Íþróttir 48/51
Listir 27/28 Fólk 52/57
Menntun 29 Bíó 54/57
Forystugrein 30 Ljósvakamiðlar 58
Viðhorf 34 Veður 59
* * *
HRAFNHILDUR Stefánsdóttir, yf-
irlögfræðingur Samtaka atvinnulífs-
ins, segir að túlkun félagsmálaráðu-
neytisins á fæðingarorlofslögunum
komi Samtökum atvinnulífsins mjög á
óvart en ráðuneytið telur að Fæðing-
arorlofssjóður eigi að greiða orlofs-
laun. Hrafnhildur bendir á að þessi
túlkun kalli á aukin útgjöld sjóðsins
sem aftur hljóti að leiða til hækkunar
á tryggingagjaldi sem atvinnurek-
endur greiði.
„Orlofslögin hafa aldrei verið túlk-
uð með þessum hætti og við höfum
ekki tekið undir þessa túlkun,“ sagði
Hrafnhildur.
Ekkert samráð
Hún sagði að ekkert samráð hefði
verið haft við Samtök atvinnulífsins
um þetta mál. Þetta sé stórt mál sem
nauðsynlegt sé að skoða vel í heild
sinni.
„Áður en lögin voru sett höfðu
Samtök atvinnulífsins og ASÍ með sér
samstarf um þetta mál og lögðu fram
sameiginlega skýrslu sem send var
stjórnvöldum. Þar var m.a. reiknaður
út kostnaður við breytt fyrirkomulag
og aldrei gert ráð fyrir að orlof yrði
greitt ofan á fæðingarorlof.“
Hrafnhildur sagði að til marks um
þennan skilning væri einnig samning-
ur ríkisins um orlofsgreiðslur við op-
inbera starfsmenn.
Hrafnhildur sagði að ef þessi túlk-
un félagsmálaráðuneytisins ætti að
gilda fæli það í sér veruleg útgjöld
fyrir Fæðingarorlofssjóð. Sjóðurinn
væri fjármagnaður með trygginga-
gjaldi og aukin útgjöld kölluðu beint á
skattahækkun á atvinnulífið.
Félagsmálaráðherra hefur bent á
að opinberir starfsmenn í fæðingaror-
lofi fái greidd orlofslaun. Hrafnhildur
sagði að opinberir starfsmenn fengju
orlofslaun greidd frá sínum vinnuveit-
anda en ekki frá Fæðingarorlofssjóði.
Þeir hefðu átt þann rétt samkvæmt
lögum áður en fæðingarorlofslögin
voru sett. Það hefði því ekkert með
sjóðinn að gera.
Magnús Norðdahl, lögfræðingur
ASÍ, sagði að ASÍ væri sátt við þá
túlkun sem félagsmálaráðuneytið
hefði sett fram í þessu máli.
SA er ósammála túlkun félagsmálaráðuneytisins á fæðingarorlofslögunum
Aukin útgjöld gætu
hækkað tryggingagjald
NÚ STANDA yfir opnir dagar eða „öðruvísi dagar“
í Fjölbrautaskólanum við Ármúla. Heiti þeirra,
„FÁ-rdagar, ekk’ alltaf hamborgara“, er til komið
vegna áherslu á framandi menningarheima eins
Helga Þórarinsdóttir, 76 ára, sýndi í gær þar sem
hún var að kenna þeim Helgu Völu og Elfu rúss-
neska dansa. Markmið daganna er aukinn skiln-
ingur og umburðarlyndi gagnvart því sem við
fyrstu sýn virðist fjarlægt og öðruvísi. Fjölbreytt
dagskrá er í FÁ og má nefna kennslu í undir-
stöðuatriðum afró, salsa, grískra og rússneskra
þjóðdansa, magadans og línudans. Þá verður kynnt
tælensk, indversk og kóresk matargerð, ástralska
hljóðfærið didgeridoo og margt fleira.
Morgunblaðið/Kristinn
„Öðruvísi dagar“ í FÁ
Pharmaco
stefnir að
fjölgun skrif-
stofa erlendis
PHARMACO vinnur að því að opna skrif-
stofur víðar í heiminum en fyrirtækið er
nú með starfsemi í 14 löndum.
Verksmiðja fyrirtækisins í Hafnarfirði
hefur verið samþykkt af yfirvöldum í
Sádí-Arabíu og segir Róbert Wessman,
annar forstjóri fyrirtækisins, að gert sé
ráð fyrir að sala á lyfjum þar í landi hefj-
ist í lok þessa árs. Einnig sé verið að
vinna í því að finna umboðs- og samstarfs-
aðila í Jemen, Óman og í öðrum löndum
þar í kring.
Þá segir Róbert að Pharmaco sé að
fikra sig inn í Bandaríkin í kjölfar
samstarfssamnings við lyfjafyrirtækið
Purepac frá því í nóvember síðastliðnum.
Auk þess sé verið að athuga um sölu á
lyfjum í Brasilíu og annars staðar í Suður-
Ameríku í gegnum viðskiptavini fyrirtæk-
isins í Evrópu.
Í Evrópu vantar helst að lyf Pharmaco
séu seld í Rúmeníu, Tékklandi, Ungverja-
landi, Slóvakíu og Póllandi.
Ævintýralegar/B6
GRÁSLEPPUVERTÍÐIN hefst í dag, á
svæðinu frá Skagatá í vestri úti fyrir Norð-
urlandi, Austfjörðum og Austurlandi að
Garðskaga. Grásleppukarlar eru bjartsýnir
fyrir vertíðina, horfur eru á góðri veiði og er
stefnt að því að auka aflann frá síðustu vertíð
um 30%, en í fyrra veiddust um 10.300 tunn-
ur af hrognum. Góðar horfur eru sömuleiðis
á sölu hrognanna á grásleppuvertíðinni og
verða greiddar 70 þúsund krónur fyrir tunn-
una, sem er talsvert hærra verð en grá-
sleppusjómenn í Noregi fá fyrir sín hrogn.
Útflutningsverðmæti saltaðra grásleppu-
hrogna og fullunnins kavíars nam á síðasta
ári tæplega 936 milljónum króna.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Húsvískir grásleppusjómenn gera klárt
fyrir veiðarnar í gær; Trausti Sverrisson
og Jón Óli Sigfússon skipstjóri greiða nið-
ur netin um borð í Fleyg ÞH.
Útlit fyrir
góða vertíð
Milljarður/B9
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 20. MARS 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í F
FYRIRTÆKI VIÐSKIPTI FISKVINNSLA
Samkeppni olíufélaga
á Íslandi er miklu
meiri en fólk gerir sér
almennt grein fyrir.
Fá fyrirtæki hafa vaxið eins hratt
hér á landi og lyfjafyrirtækin
Delta og Pharmaco.
Tæknivæddasta hausa-
þurrkun í heimi hefur
hafið störf hjá Lauga-
fiski á Akranesi.
ÆTLUM/4 ÆVINTÝRALEGAR/6 HÁTÆKNI/11
SAMRÆMD vísitala neysluverðs í EES-
ríkjum var 112,3 stig í febrúar sl. og hækk-
aði um 0,4% frá janúar. Á sama tíma var
samræmda vísitalan fyrir Ísland 124,0 stig
og lækkaði um 0,2% frá fyrra mánuði.
Frá febrúar 2002 til jafnlengdar árið
2003 var verðbólgan, mæld með sam-
ræmdri vísitölu neysluverðs, 2,3% að með-
altali í ríkjum EES, 2,4% á evrusvæðinu og
1,1% á Íslandi.
Mesta verðbólga á evrópska efnahags-
svæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var á
Írlandi, 5,1%, og 4,2% í Grikklandi. Verð-
bólgan var minnst á Íslandi, 1,1%, og í
Þýskalandi, 1,3%.
V E R Ð L A G
Verðbólga á
Íslandi með
þeirri lægstu
í Evrópu
!"
#$%
&
$' ( ( )*
+$,$+
'
--%.//.-%.//0
1
2
2
2
&$3&
- ALLS voru flutt út 28 þúsund
tonn af óunnum fiski frá Íslandi á
síðasta fiskveiðiári eða tæp 6% af
heildarbotnfisksafla ársins. Mest
var flutt út af óunnum karfa á síð-
asta fiskveiðiári, alls um 9.600
tonn, sem bæði voru flutt út ísuð í
gámum og með veiðiskipum.
Hlutfallslega mest af óunnum
fiski er flutt utan frá Vestmanna-
eyjum.
Það eru tæp 15% af heildar-
karfaafla síðasta fiskveiðiárs. Þá
voru flutt út um 5.700 tonn af
óunnum þorski sem eru tæp 3%
af þorskafla tímabilsins. Eins
voru flutt út um 4.300 tonn af
óunninni ýsu eða rúm 10% heild-
araflans.
Þetta kom fram í svari sjávar-
útvegsráðherra við fyrirspurn
Einars Kristins Guðfinnssonar
alþingismanns um útflutning á
óunnum fiski.
40% af heildinni
Langmest var flutt út frá Vest-
mannaeyjum eða 11 þúsund tonn
sem eru um 40% af heildarút-
flutningnum. Alls voru flutt út
tæp 1.500 tonn af óunnum þorski
frá Vestmannaeyjum sem eru
tæp 16% þess þorskafla sem land-
að var í Eyjum á síðasta fiskveiði-
ári. Eins kemur fram í svari sjáv-
arútvegsráðherra að tæp 2.200
tonn af ýsu voru flutt út óunnin
frá Vestmannaeyjum á tímabilinu
eða nærri 70% þess ýsuafla sem
þar var landað, samkvæmt afla-
tölum Fiskistofu. Þess ber þó að
geta að í svari sjávarútvegsráð-
herra er miðað við heimahöfn við-
komandi skipa og fyrirtækja en
aflatölur Fiskistofu taka mið af
löndunarhöfn.
Næstmest var flutt út af óunn-
um fiski frá Reykjavík á síðasta
fiskveiðiári eða rúm 2.800 tonn.
Það sem af er yfirstandandi
fiskveiðiári er búið að flytja út um
15.000 tonn af óunnum fiski, þar
af um 4.500 tonn af karfa og tæp
2.700 tonn af þorski. Um 5.600
tonn hafa verið flutt út frá Vest-
mannaeyjum á fiskveiðiárinu en
um 1.700 tonn frá Grundarfirði.
Einar Kristinn segir tölurnar
sýna að íslensk fiskvinnsla eigi
þess ekki kost að bjóða í umtals-
verðan hluta þess botnfiskafla
sem sé til ráðstöfunar af Íslands-
miðum. Það skipti máli með hvaða
hætti þessi afli sé nýttur til sem
mestrar verðmætasköpunar fyrir
landið. Hann segir að búa þurfi
þannig um hnútana að fiskvinnsl-
an í landinu eigi sömu möguleika
á að kaupa þennan fisk en þó á
sambærilegu verði og fiskvinnsla
erlendis.
Selja hæstbjóðanda
Sjávarútvegsráðherra gaf nýver-
ið út reglugerð sem kvað á um að
tilkynna skuli fyrirhugaðan út-
flutning á óunnum og óvigtuðum
afla sem fluttur er á erlendan
uppboðsmarkað með 24 tíma fyr-
irvara. Fiskverkendur hafa sagt
að þessi tilkynningaskylda breyti
engu um aðgang þeirra að hráefn-
inu en Einar Kristinn segist
þeirrar skoðunar að þar sé um að
ræða skref í rétta átt. „Það er
fullkomlega eðlilegt að útgerðin
selji afla sinn hæstbjóðanda en ég
tel að það sé sömuleiðis eðlilegt að
íslensk fiskvinnsla fái þá tækifæri
til að greiða jafnhátt verð. Að
mínu mati ætti að vera hægt, án
mikilla vandkvæða, að bjóða
þennan afla upp hérlendis, í gegn-
um fjarskiptamarkaði. Erlendir
fiskkaupendur hefðu þá einnig
möguleika á að bjóða í fiskinn til
jafns við íslenska, og um leið væri
tryggt hæsta verð fyrir aflann.“
Tæp 70% af ýsu Eyja-
manna óunnin úr landi
9.600 tonn af óunnum karfa flutt utan til Þýzkalands á síðasta ári eða 15% karfaaflans
Morgunblaðið/Þorgeir
Alls voru flutt út 28 þúsund tonn af óunnum fiski frá Íslandi á síðasta fisk-
veiðiári eða tæp 6% af heildarbotnfisksafla ársins.
Miðopna: Ævintýralegar breytingar